Morgunblaðið - 13.09.1980, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEFfEMBER 1980
Ný stjórnarskrá
samþykkt í Chile
— tryggir Pinochet völd næstu 8 árin
Santiago, 12. september. AF.
CHILEBtJAR samþykktu í þjóð-
aratkvæðagreiðslu með yfirKnæf-
andi meirihluta stjórnarskrá,
sem tryiíKÍr AuKusto Pinochet,
forseta landsins, valdasetu næstu
8 árin. KosninKaþátttaka var
86%. 67,5% samþykktu stjórn-
arskrána. 29,6% voru henni and-
Forseti Chile, Augusto Pinochet
hershofðinKÍ. ávarpar mann-
fjölda fyrir framan stjórnar-
skrifstofurnar i Santiago eftir að
hafa lýst yfir sÍKri í allsherjar-
atkvæðaKreiðslu um nýja stjórn-
arskrá.
vÍKÍr. Pinochet skyldaði lands-
menn til kosningaþátttöku að
viðlöKðum refsinjíum ef þeir ekki
kysu.
Þessi aðferð einræðisherrans
vakti harða gagnrýni erlendis.
Evrópuráðið hefur gagnrýnt hana,
og sagt, að kosningarnar endur-
spegli ekki vilja þjóðarinnar. Öll
umræða um stjórnarskrána var
bönnuð fyrir kosningarnar. At-
kvæðagreiðslan um nýja stjórn-
arskrá er á sjöunda valdaári
Pinochet og hersins. Það kom
mjög á óvart, að áður en fyrstu
tölur voru birtar, birtist Pinochet
þar sem talning atkvæða fór fram
og lýsti yfir sigri. „Chile hefur
unnið," sagði hann. Úti fyrir höfðu
um 15 þúsund manns safnast
saman og hylltu Pinochet. Pinoc-
het veifaði til mannfjöldans og
hélt stutta ræðu, þar sem hann
lofaði stofnun nýs ráðuneytis —
fjölskyldumálaráðuneytis. Hin
nýja stjórnarskrá Chile kemur í
stað plaggs frá 1926. Pinochet
lýsti því yfir fyrir kosningárnar
að gamla stjórnarskráin væri of
veik til að standast „alþjóðlegan
marxisma". Samkvæmt hinni nýju
stjórnarskrá er þegnum landsins
veitt trúfrelsi, eignarréttur er
lögfestur og mannréttindi tryggð.
Undir stjórn Pinochet hefur fjöldi
manns sætt ofsóknum. Kaþólska
kirkjan hefur birt nöfn 650
manna, sem voru handteknir af
stjórn Pinochet og ekki hefur
spurst til síðan. Mannréttinda-
nefnd Chile hefur birt nöfn 1500
manna, sem hafa verið teknir
höndum á þessu ári. Að sögn
samtakanna hafa margir mátt
sæta pyntingum og að minnsta
kosti einn stúdent hefur verið
barinn til bana.
ERLENT
veg
embættismenn hafi komið
fyrir rannsókn hans í Jidda.
Nú hefur það gerzt, að Kirby
þessi hefur verið kallaður til
Bretlands til yfirheyrslu. Brezk
blöð halda því fram, að fiskur liggi
undir steini og allt sé málið hið
dularfyllsta.
„Málið allt lyktar af hneyksli,"
skrifaði Lundúnablaðið Daily
Mirror og Lundúnablaðið London
Evening News birti leiðara um
málið þar sem segir m.a.: „Við-
brögð utanríkisráðuneytisins
verða sífellt vafasamari í máli
Helenar Smith, — sem leiðir
aðeins til getsagna um hylmingu."
Var Helenu kastað
fram af svölunum
— eftir að Þjóðverjar höfðu nauðgað henni?
Nýtt hneykslismál forsíðuefni brezkra blaða
Lundúnum. 12. september. AP.
NÝTT hneykslismál er nú í upp-
siglingu í Bretlandi. Fyrrum
leynilögreglumaður, Ronald
Smith, heldur þvi fram að dóttur
hans ásamt holienskum sjó-
manni, hafi verið kastað fram af
svölum, — fallið var 21 metri,
eftir að dóttir hans hafði verið
nauðgað af mörgum Þjóðverjum í
mikilli kynlifsveizlu. Mál þetta
hefur verið á forsíðum brezkra
hlaða undanfarið og valdið
brezka utanríkisráðuneytinu
miklum vanda. Ráðuneytið hefur
verið ásakað um yfirhylmingu.
Þann 19,—20. maí í fyrra fór
fram mikil veizla á heimili
brezkra hjóna, — Richard Arnotts
og konu hans, Penelope. Áfengi
var veitt óspart í þessari veizlu og
að sögn var kynsvall mikið. Ron-
ald Smith heldur því fram, að
dóttur sinni hafi verið nauðgað af
Þjóðverjum. Til að hylma yfir
glæp sinn, hafi þeir kastað Helenu
fram af svölunum, og hollenska
sjómanninum, Johannes Otten,
þar sem hann hafi verið vitni að
öllu saman.
Arnott hjónin voru síðar hand-
tekin af saudi-arabískum yfirvöld-
um og þau dæmd til 12 mánaða
fangelsisvistar auk hýðingar. Það
var svo í ágúst síðastliðnum að
Khaled konungur náðaði skötu-
hjúin og þeim var vísað úr landi.
Ronald Smith heldur því fram,
að varakonsúil Breta í Jidda,
Gordon Kirby, hylmi yfir með
hjónunum vegna vinskapar við
þau. Utanríkisráðuneytið heldur
því fram, að Kirby hafi aldrei hitt
Arnott hjónin fyrr en eftir að
líkin fundust á götunni. Ronald
Smith heldur því fram, að brezkir
Helmut Schmidt.
Franz-Josef Strauss.
gefinn og hann er óheflaður.
Kristilegir demókratar haf reynt
að svara óhróðrinum um Strauss
með því að gefa út stóra bækl-
inga um hann. Þar er lögð
áherzla á, að Strauss sé fórnar-
lamb nazískra áróðursherferða,
— það sýni hvaðan nazisminn
komi.
Siðanefndin hefur sætt harðri
gagnrýni. Formaður hennar er
fyrrum mótmælendabiskup, —
Hermann Kunst. Þann 22. júlí
samþykkti siðanefndin að stöðva
útgáfu kosningabæklings jafn-
aðarmanna, þar sem Strauss var
líkt við blóðþyrst skrímsli. Síðar
gerðist það, að Heiner Geissler,
formaður kristilega demókrata-
flokksins, kallaði Schmidt „póli-
tískan lífeyrissvindlara". Hann
sakaði Schmidt um, að hafa
Brigslyrði og óhróður
setja mark á kosninga-
slaginn í V-Þýzkalandi
Bonn. 12. september. AP.
GÍFURYRÐIN ganga á víxl i
v-þýzku kosningaharáttunni, —
svívirðingar og rógur. Helmut
Schmidt. kanzlari hefur verið
kallaður af kristilegum demó-
krötum „pólitiskur lífeyris-
svindlari14. Andstæðingur hans,
hinn umdeildi Franz-Josef
Strauss hefur mátt sæta miklu
harðari gagnrýni. Honum hefur
verið líkt við Hitler. Á vegg-
spjöldum viðs vegar um landið
hefur Ilitlersskeggið fræga ver-
ið teiknað á kanzlaraefnið. Bar-
áttan gégn Strauss hefur verið
undir slagorðinu „Stoðvið
Strauss“. Kristilegir demókrat-
ar segja, að óhróðurinn um
Strauss minni einmitt á áróður
nazista á sínum tima.
Jafnvel siðanefnd, hvers verk-
efni hefur verið að reyna að
halda óhróðri og svívirðingum
utan kosningabaráttunnar, hef-
ur sætt harðri gagnrýni. Frjáls-
lyndi flokkurinn hefur lent utan-
garðs í rimmu stóru flokkanna
tveggja, — kristilegra demó-
krata og jafnaðarmanna. Hans-
Dietrich Gencher, utanríkisráð-
herra og leiðtogi frjálslyndra,
varaði við „ósmekklegum kosn-
ingaáróðri" í ræðu nýlega. Kosn-
ingabaráttan hefur verið gífur-
lega hörð — en samkvæmt
skoðanakönnunum þá hefur
Helmut Schmidt mikið forskot á
Strauss, — 55% vilja Schmidt
fremur en Strauss. Áðeins 27%
taka Strauss framyfir kanzlar-
ann.
Óhróðurinn um Strauss virðist
ekki koma frá jafnaðarmönnum,
— fréttaskýrendur eru sammála
um það. Það eru einkum vinstri-
sinnaðir öfgaflokkar, sem hafa
gengið hvað lengst í óhróðri um
hann. „Strauss er annar Hitler“,
er algengt slagorð og myndir af
Strauss þar sem honum er líkt
við böðul eru algengar. Hins
vegar hefur Strauss verið til-
tölulega hógvær í kosningabar-
áttunni. Hann er sami and-
kommúnistinn og áður. Er
hlynntur auknum vígbúnaði
Þjóðverja, er hlynntur byggingu
kjarnorkuvera og lítur á Banda-
ríkin sem nánasta vin Þjóðverja.
Helmut Schmidt hefur sagt
um Strauss að hann sé jafn vel
brotið loforð sem hann gaf um
að breyta ekki lífeyriskerfinu.
Síðar beitti Schmidt sér þó fyrir
breytingu. Jafnaðarmenn kröfð-
ust þess, að kristilegir tækju
þessi orð til baka — Hermann
Kunst þvertók fyrir það. Jafnað-
armenn í siðanefndinni hafa
hótað að ganga úr nefndinni. Þá
hefur nefndin neitað að taka til
baka ummæli kristilegra að
Schmidt tæki við boðum sínum
frá A-Berlín og Moskvu.
Þannig hafa ásakanir gengið á
víxl — brigzlyrði og óhróður
hafa verið daglegt brauð. Víða
hefur komið til átaka á kosn-
ingafundum. Skemmst er að
minnast óeirða í Hamborg, þar
sem Schmidt flutti ræðu, og
Strauss hefur sætt aðkasti oftar
en einu sinni. Þrátt fyrir allan
óhróðurinn og hitann í kosn-
ingabaráttunni spá kosninga-
kannanir Schmidt og jafnaðar-
mannaflokki hans öruggum sigri
í kosningunum og að kristiiegir
demókratar verði enn að sætta
sig við að standa í skugga
jafnaðarmanna — og Helmut
Schmidt.
Sendifulltrúi Kúbana
drepinn í New York
New York, 12. sept. — AP.
FULLTRÚI í sendinefnd Kúbu-
manna hjá Sameinuðu þjóðunum
var skotinn til bana í gær á götu
í New York. Samtök, sem berjast
gegn Fidel Castro. segjast bera
ábyrgð á morðinu.
Kúbanski sendifulltrúinn, Feliz
Garcia-Rodriguez, var á ferð í bíl
sínum eftir götu í Queens-hverf-
inu í New York þegar hann var
Feliz Garcia-Rodriguez, kúbanskur sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, sést hér látinn í bil sinum en
hann var skotin til bana í Queens-hverfinu í New York í fyrradag. Omega 7, samtök manna, sem berjast
gegn Fidel Castro á Kúbu, segjast bera ábyrgð á morðinu.
skotinn þrisvar sinnum í háls og
höfuð. Skömmu síðar var hringt á
fréttastofu AP í borginni og sagt,
að Omega 7, samtök sem berjast
gegn Fidel Castro á Kúbu, hefðu
verið hér að verki. Sá, sem
hringdi, sagði, að næstur yrði
fyrir valinu sendiherra Kúbu hjá
Sameinuðu þjóðunum, Raul Roa.
Omega 7-samtökin hafa áður
sagst bera ábyrgð á sprengingum í
New York, sem beint hefur verið
gegn Kúbumönnum og Rússum.
Edmund S. Muskie innanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna hefur
lýst yfir samúð sinni og hryggð
vegna atburðarins og heitið því að
allt verði gert til að hafa hendur í
hári hryðjuverkamannanna. Hið
opinbera málgagn Kúbustjórnar
sagði í dag, að hryðjuverkamenn,
sem hötuðust við Kúbumenn,
störfuðu óhindrað í Bandaríkjun-
um og að þeir væru aldrei sóttir til
saka.
Dagblaðið Miami News hafði
það í dag eftir talsmanni sovéska
sendiráðsins í Washington,1 að
morðið kynni að vera tengt eitur-
lyfjasölu. „Sumir þessara raanna
vilja reyna auðgast erlendis og
taka til við eiturlyfjasölu í þeim
tilgangi," sagði hann.