Morgunblaðið - 13.09.1980, Side 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
2 X
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280
kr. eintakiö.
Mesta atlaga að
frjálsum atvinnu-
rekstri í áratugi
Aðför Alþýðubandalagsins að Flugleiðum og tilraunir flokksins til
þess að koma fyrirtækinu á kné og þjóðnýta allar flugsamgöngur
er mesta aðför, sem gerð hefur verið að frjálsum atvinnurekstri á
Islandi í áratugi. Þótt dregið hafi úr gegndarlausum árásum
talsmanna flokksins á Flugleiðir síðustu daga er það fyrst og fremst
vegna þess, að þeir hafa fundið megna andúð almennings á
málflutningi þeirra og vinnubrögðum. Þeir munu taka upp þráðinn á
ný og fyrirsjáanlegt er, að næstu mánuði munu standa hörð átök á
opinberum vettvangi um framtið frjáls atvinnureksturs í fluginu.
Kommúnistar hafa óvenju sterka aðstöðu að þessu sinni til þess að
heyja baráttu sína gegn Flugleiðum. Þeir stjórna fjármálaráðuneyt-
inu og félagsmálaráðuneytinu, en bæði þessi ráðuneyti koma viðsögu
í þeirri stöðu, sem flugmálin nú eru í. Þeir hafa augljóslega gert
tilraun til þess að taka forræði þessara mála úr höndum Steingríms
Hermannssonar, samgönguráðherra, sem hefur hins vegar ekki látið
þá komast upp með svo frekjuleg vinnubrögð og er það vel. En í krafti
aðildar að ríkisstjórn hafa þeir margvíslega aðra möguleika til þess
að bregða fæti fyrir nýja uppbyggingu flugrekstursins og stefna
markvisst að því.
Fyrirsjáanlegt er að vandamál flugrekstursins verða ekki leyst
innan núverandi ríkisstjórnar, þar sem einn stjórnarflokkurinn hefur
það markmið helzt í huga að koma félaginu á kné. Þess vegna verður
að leysa vandamál flugrekstursins með samstarfi lýðræðisflokkanna
á Alþingi og eiga út af fyrir sig ekki að verða nokkur vandkvæði á því,
að flokkarnir þrír geti náð samstöðu um þær aðgerðir, sem
nauðsynlegar eru af opinberri hálfu til þess að greiða fyir Flugleiðum.
Aðför Alþýðubandalagsins að Flugleiðum verður líka að skoða í
stærra samhengi. Takist sósíalistum að koma Flugleiðum á kné munu
þeir telja, að mikill sigur hafi unnizt í baráttu þeirra fyrir því að
koma á sósíalísku þjóðskipulagi á íslandi, þar sem þeir hafi lagt að
velli eitt glæsilegasta fyrirtæki í einkaeign á íslandi. En þeir munu
ekki láta staðar numið heldur snúa sér að stærri fyrirtækjum á
öðrum sviðum. Síðan kemur röðin að smærri atvinnurekstri. Þess
vegna skapar aðför sósíalista að Flugleiðum alveg ný viðhorf í
íslenzkum þjóðmálum. Hún gerir kröfu til þess, að lýðræðissinnar í
þremur stjórnmálaflokkum, sem hafa verið tvístraðir og sundraðir,
leggi niður deilur sínar og taki höndum saman um að hrinda árás
Alþýðubandalagsmanna á frjálsan atvinnurekstur og efla hann á ný.
Langt er síðan raunveruleg barátta hefur staðið í þessu landi um
grundvallarmál af þessu tagi. Sósíalistar hafa ekki í langan tíma gert
tilraun til að vega að undirstöðum okkar frjálsa samfélags með þeim
hætti, sem þeir gera nú, þegar erfiðleikar steðja að í flugrekstrinum.
Þessi atlaga sósíalista að atvinnurekstrinum í landinu og þá fyrst og
fremst Flugleiðum nú, gefur lýðræðissinnum, stuðningsmönnum
frjáls atvinnurekstrar, hvort sem um einkarekstur er að ræða, eða
samvinnurekstur, tækifæri til að efla baráttuhug sinn og snúa bökum
saman með þeim hætti, sem ekki hefur verið gert um langa hríð. Það
er tími til kominn að menn taki höndum saman á breiðum grundvelli
til þess að losa þjóðina við þjakandi afskipti þeirra sósíalísku afla,
sem tröllriðið hafa samfélagi okkar nú um nokkurt skeið. Framundan
er hörð barátta næstu mánuði. Nú er tækifæri til að láta hendur
standa fram úr ermum.
Hvenær kemur tilkynning-
in frá fjármálaráðherra?
Enn hefur ekki borizt tilkynning frá fjármálaráðuneytinu um að
Baldur Óskarsson hafi verið leystur frá störfum, sem eftirlits-
maður fjármálaráðherra með fjárhagslegum rekstri Flugleiða. Sá
dráttur, sem orðinn er á því, að fjármálaráðherra taki af skarið, hefur
vakið undrun manna vegna þess, að augljóst er að hann hlýtur að
skipta um eftirlitsmann. Baldur Óskarsson hefur brotið trúnað með
þeim hætti, að óhjákvæmilegt er, að hann láti af þessum störfum.
Augljóst er, að stjórnendur Flugleiða geta ekki starfað með honum
eftir atburði síðustu daga og fjármálaráðherra sjálfur er bersýnilega
þeirrar skoðunar, að hann hafi farið út fyrir eðlileg mörk í starfi eins
og berlega kemur fram í viðtali við fjármálaráðherra í Morgunblað-
inu í gær. Væntanlega dregst það ekki öllu lengur að ráðherrann
tilkynni mannaskipti í þessu starfi.
HÖRMUNGARNAR í AUSTUR-AFRÍKU:
Stúlkubörn deyja fyrst
Þeir veikbyggðustu deyja alltaf
fyrst. En börnin standa ekki jafnt að
vígi. Stephanie Symmonds segir:
„Það versta er að sjá mæðurnar gefa
allan matinn til sonanna á sama
tíma og þær láta dæturnar deyja. En
þannig eru þeirra siðir. Synirnir
verða meira virði þegar þeir ná
fullorðinsaldri. Það eru mæðurnar
sem taka á móti matnum, þegar
honum er úthlutað. Þegar örvænt-
ingin hefur algjörlega náð yfirhönd-
inni hef ég séð mæður borða allan
matarskammtinn, án þess að gefa
börnum sínum neitt. Þá höfum við
orðið að taka þau börn að okkur
sjálf. En við ráðum ekki við að ná til
þeirra allra og okkur vantar alltaf
meiri mat á þurrkasvæðunum. Þó
svo maður harðni er ómögulegt að
venjast því að barn deyji úr hungri i
höndum manns. Hugsunin um
óréttlæti, ráðleysi og sorg verður
allsráðandi þegar slíkt gerist. Þú
óskar, að þú eigir allan mat veraldar
til að gefa þessum veikbyggðustu af
Þetta litla barn fannst é landamærum Eþíópíu og Sómalíu fyrr á þessu
ári. Hjálpin barst barninu of seint og þaö dó eftir aó hafa lifaö
ólýsanlegar hungurkvalir. Stephanie Symmonds tók myndina sem
notuö hefur verió í söfnunarherferö Rauöa Krossins á Noröurlöndum í
því skyni aö hægt verói að bjarga sem flestum börnum frá því aó
þeirra endalok veröi hin sömu.
mer
þeim öllum á leið þeirra til hægs
hungurdauða.
Myndin getur bjargað
lífi annarra
— En hvernig leið Symmonds,
þegar hún tók myndirnar. Hún segir
svo frá: „Ég varð að upplýsa veröld-
ina um hið skelfilega sem er að verða
enn skelfilegra. Mér leið illa þegar
ég tók þessar myndir. Helst vildi ég
geta bjargað börnunum frá yfirvof-
andi dauða í stað þess að taka
myndir af þeim. En e.t.v. — og það
vona ég innilega — geta myndirnar
orðið til þess að fólk gefur peninga,
sem verða til að bjarga öðrum
börnum.
—Kemst hjálpin til skila?
Hjúkrunarkonan Symmonds tók
einnig þessa mynd. Hún lýsir
betur en nokkur oró hvernig
ástatt er fyrir mörgum í þessum
hluta Afríku.
Við stöndum nú betur að vígi en
1973—75. Þurrkahörmungarnar eru
nú í byrjun, en þær krefjast samt
sem áur daglegra fórna. Söfnunar-
herferð er nauðsynleg til að hindra
að ekki deyji eins margir og í fyrri
hörmungum. Ég veit, að margar
Rauða kross deildir í veröldinni hafa
safnað peningum fyrir mat handa
hinum hungruðu og að deildirnar á
Norðurlöndum standa fyrir miklum
herferðum í dag. Ég er mjög ánægð
með, að þeir skuli nota myndirnar
mínar og ég vona að þeir nái inn
mörgum milljónum fyrir mat og
meðulum. Við hérna niður frá,
ábyrgjumst, að hjálpin komist til
skila,“ sagði hjúkrunarkoan Steph-
anie Symmonds að lokum.
Rauði kross íslands:
„Þú getur
bjargað lífi“
FRAMKVÆMDANEFND fjár
söfnunar Rauða kross íslands
til kaupa á matvælum handa
bágstöddum í A-Afriku hefur
ákveðið yfirskrift söfnunarher-
ferðarinnar. sem hefjast mun 1.
okt. nk. og er hún „Þú getur
bjargað lífi“. Nú þegar er tekið
á móti framlögum á skrifstofu
Rauða krossins og opnaður hefur
verið sérstakur póstgíróreikn-
ingur vegna söfnunarinnar og er
númer hans 120200.
Framlög eru farin að berast og
t.d. kom kona á skrifstofu R.K.I.
í fyrradag og gaf 45 þús. kr. í
söfnunina. Þá hafa margir
hringt og spurt hvert koma megi
framlögum og boðið fram aðstoð
sína. Þeirra á meðal eru margir
þekktir listamenn.
I framkvæmdanefnd söfnun-
arinnar eiga sæti: Ásgeir Guð-
mundsson, Bryndís Schram,
Fríða Proppé, Jón óttar Ragn-
arsson, Matthías Johannessen,
Ólafur B. Thors og af hendi
Rauða krossins þeir Ólafur Mixa
formaður íslandsdeildarinnar og
Björn Friðfinnsson gjaldkeri.
Framkvæmdastóri er Jón Ás-
geirsson.
Það eru átakanlegar og áhrifa-
miklar myndir sem berast frá
Afríku þessa dagana. Myndirnar
eru af banhungruðum. heinaber-
um börnum og hafa þær verið
notaðar um öll Norðurlönd sem
haráttutæki í söfnunarherferð
Rauða krossins til kaupa á mat-
vælum handa hungraðri Afríku.
Sú mynd, sem mest hefur verið
notuð var ekki tekin af faglærðum
Ijósmyndara. Myndin var tekin af
hjúkrunarkonu. sem vinnur í
flóttamannahúðum í Hararge við
landamæri Eþíópíu og Sómalíu og
tók hún mvndina við vinnu sina á
þessu hormungasva'ði. Í norska
hlaðinu Rogaland Avis 25. ágúst
hirtist viðtal við hjúkrunarkon-
una, sem er brezk og heitir
Stephanie Symmonds. Fer viðtalið
við hana hér á eftir.
Stephanie er brezk og hefur langa
re.vnslu af björgunarstörfum í aust-
urhluta Afríku. Hún starfaði sem
hjúkrunarkona í hjálparstarfinu við
fyrri hörmungar í Eþíópíu, sem
leiddu af þurrkunum 1973—75. Aðal-
starf hennar er þó við kennslu í
London School of Tropical Medicine
og hefur hún málefni afríku sem
sérgrein. Hún er nú á ný við
lyfjaráðgjöf á hörmungasvæðunum í
Eþíópíu. Eftir margra daga dvöl við
sjúkdómsgreiningar á verst stöddu
svæðunum er það nú hennar starf að
undirbúa hjúkrunarhópana, sem
sendir eru inn á þurrkasvæðin. Hún
segir þeim frá útbreiddum sjúkdóm-
um á svæðunum, s.s. malaríu, blóð-
sótt, meltingarfærasjúkdómum,
iðraormum o.fl. óg meðferðinni við
þeim. Einnig leiðbeinir hún um
nauðsyn misjafns magns fæðugjaf-
ar. Magnið ræðst af ástandi viðkom-
andi og því hvort um ranga. litla eða
svo til enga næringu hefur verið að
ræða.
Stephanie Symmonds var róleg og
yfirveguð þegar við hittum hana að
máli eftir einn af leiðbeinendatím-
um hennar í Addis Abeba. Það er
engin „dramatík" í fari hennar,
þegar hún talar um barn sem deyr
úr hungri. Þess í stað lækkar hún
röddina og hún verður næstum því
að hvísli þegar hún af hógværð lýsir
neyðinni og hörmungunum sem hún
þekkir svo allt of vel.
Stephanie Symmonds í starfi
sínu. Mörgum tekst að bjarga
eins og stúlkubarninu afríkanska
sem Stephanie heldur á. íslend-
ingum gefst nú einnig tækifæri á
aö leggja sitt af mörkum, því
Rauða kross deildin hér er í
samvinnu við Rauöa kross deildir
Norðurlanda, að hefja söfnunar-
herferð til bjargar þessum meö-
bræðrum okkar.
i ormum
Réttir haustið 1980:
Fyrstu réttir hóf-
ust á fimmtudaginn
FYRSTU réttir haustsins voru sl.
fimmtudag. cn þá var réttað í
Hrunamannarétt. í gær var rétt-
að í Skeiðarétt og um helgina
verður réttað í Hraunsrétt í
Aðaldal og Laufskálarétt í
Hjaltadal. Síðan verður réttað
nánast á hverjum degi allt fram
til 25. scptember víðs vegar um
landið.
Hér fer á eftir listi um réttir
haustið 1980, unninn af Búnaðar-
félagi Islands:
Réttir DagsotninKar
Auðkúlurétt í Svínadal, A.-Hún. föstud. 19. og laugard. 20. sept.
Arnarhólsrétt í Helgafellssveit, Snæf. þriðjudagur. 23. sept.
Brekkurétt í Noröurárdal, Mýr. mánudagur 15. sept.
Feltsendarétt í Miödölum, Dal. mánudagur 22. sept.
Fossvallarétt við Lögberg (Rvík/Kóp.) sunnudagur 21. sept.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. sunnudagur 21. sept.
Grímsstaöarétt, Álftaneshr., Mýr. fimmtudagur 18. sept.
Hafravatnsrétt í Mosfellssveit, Kjós. mánudagur 22. sept.
Hítardalsrétt í Hraunhr., Mýr. miövíkud. 17. sept.
Hraunsrétt í Aðaldal, S.-Þing. sunnudagur 14. sept.
Hrunamannarétt í Hrunamannahr., Árn. fimmtudagur 11. sept.
Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Árn. mánudagur 22. sept.
Kaldárrétt viö Hafnarfjörð sunnudagur 21. sept.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. sunnudagur 21. sept.
Kjósarrétt í Kjós, Kjós. þriðjudagur 23. sept.
Kollafjaröarrétt í Kjalarneshr., Kjós. þriðjudagur 23. sept.
Langholtsrétt í Miklaholtshr., Snæf. miövíkud. 24 sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. sunnudagur 14. sept.
Nesjavallarétt í Grafningi, Árn. mánudagur 22. sept.
Oddsstaöarétt í Lundarreykjad., Borg. miðvikud 17. sept.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. föstudagur 19. sept.
Seiflatarétt í Grafningi, Árn. miðvikud. 24. sept.
Selvogsrétt í Selvogi, Árn. miðvikud. 24. sept.
Skaftártungurétt í Skaftártungu, V.-Skaft. miövikud. 24. sept.
Skaftholtsrétt í Gnúpverjahr., Árn. fimmtudagur 11. sept.
Skeiöarétt á Skeiðum, Árn. föstudagur 12. sept.
Stafnsrétt í Svartérdal, A.-Hún. fimmtudagur 18. sept.
Svignaskarösrétt í Borgarhr., Mýr. miðvikud. 17. sept.
Tungurétt í Svarfaöardal, Eyjaf. sunnudagur 21. sept.
Tungnarétt í Biskupstungum, Árn. miövikud. 17. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. föstud. 19. og laugard. 20. sept.
Vatnsleysustrandarrétt, Vatnsl.str., Gull. miövikud. 24. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. föstudagur 19. og laugardagur 20. sept.
Þingvallarétt í Þingvallasveit, Árn. mánudagur 22. sept.
Þórkötlustaöarétt við Grindavík mánudagur 22. sept.
Þverárrétt í Þverárhlíö, Mýr. þriðjudagur 16. og miðv.d. 17. sept.
Ólfusrétt í Ölfusi, Árn. fimmtudagur 25. sept.
Ölkeldurétt í Staöarsveit, Snæf. fimmtudagur 25. sept.
Stóðréttir Dagsetninsar
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. laugardagur 27. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardagur 27. sept.
Auökúlurétt í Svínadal, A.-Hún. laugardagur 27. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. sunnudagur 12. október.
Viðskiptaviðræð-
um við Tékka og
Pólverja lokið-
NÝLEGA er lokið í Prag og Varsjá
viðræðum við Tékka og Pólverja
um viðskipti íslands og landanna
tveggja. í viðskiptasamningum ís-
lands við þessi lönd er gert ráð
fyrir árlegum viðra“ðum um fram-
kvæmd samninganna og önnur at-
riði.
íslendingar hafa einkum selt til
Tékkóslóvakíu fiskimjöl, freðfisk,
lýsi, lagmeti, osta og kísilgúr, en
keypt þaðan vefnaðarvöru, skófatn-
að, glervörur, bíla, dráttarvélar auk
véla- pg tækjabúnaðar. Til Póllands
selja íslendingar einkum fiskimjöl,
saltsíld, skinn, ál og álmelmi og
kísiljárn, en kaupa þaðan timbur-
vörur, vefnaðarvörur, bíla, dráttar-
vélar, kol og véla- og tækjabúnað.
Viðræðurnar við Tékka fóru fram
26.-29. ágúst og við Pólverja 1.—4,
september. I báðum viðræðunefnd-
unum sátu: Stefán Gunnlaugsson
deildarstjóri, sem var formaður
beggja nefndanna, Björn Tryggva-
son aðstoðarbankastjóri Seðlabank-
ans, Heimir Hanrpson fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar lag-
metis og Andrés Þorvarðarson sölu-
stjóri hjá SÍS. Auk þeirra sátu í
viðræðunefndinni við Tékka þeir
Árni Finnbjörnsson framkvæmda-
stjóri hjá SH og Kristján Gíslason
forstjóri, fulltrúi Verslunarráðs ís-
lands, og í viðræðunefndinni við
Pólverja Björgvin Torfason deildar-
stjóri, Síldarútvegsnefnd og Gunnar
Friðriksson forstjóri, fulltrúi Versl-
unarráðs íslands.
-W 5f? ^VCK/ vlíKiR VÆNíf VflTVÓ ÓMFOtf
fWGNflf? GKlVlóóOV c^vf KÍ9M/,VN mú$ \6QH6