Morgunblaðið - 13.09.1980, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
Framkvæmdastjórí S.U.S.:
Gagnrýnir ráðningu
framkvæmdastjóra
„Ályktunin réttmæt, en vinnum af ein
hug með honum“ segir stjórn S.U.S.
MORGUNBLAÐINU hafa borizt
til birtinKar tvær ályktanir, sem
samþykktar voru á fundum fram-
kvæmdastjórnar og stjórnar
Sambands ungra Sjálfstæð-
ismanna hinn 8. og 11. sept. sl.
Fara þær hér á eftir:
Framkvæmdastjórnarfundur
haldinn 8. sept. 1980 samþykkti
eftirfarandi tillögu:
Framkvæmdastjórn S.U.S
mælti eindregið með því á fundi
sínum þann 17. júlí í sumar, að
Ragnar Kjartansson yrði ráðinn
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins.
Fundur framkvæmdastjórnar
S.U.S. þann 8. sept. 1980 harmar
að ekki hafi tekizt að ganga frá
ráðningu Ragnars. Jafnframt lýs-
ir framkvæmdastjórn S.U.S. ein-
dregið þeirri skoðun sinni að
Kjartan Gunnarsson, lögfræðing-
ur, sem talið er að formaður
Sjálfstæðisflokksins muni mæla
með sem næsta framkvæmda-
stjóra flokksins sé ekki heppilegur
í þetta vandasama starf á þeim
erfiðleikatímum, sem flokkurinn á
nú við að stríða.
Á stjórnarfundi S.U.S. 11. sept-
ember 1980 var samþykkt eftir-
farandi tillaga:
Um leið og stjórn S.U.S. lýsir
yfir réttmæti ályktunar síðasta
framkvæmdastjórnarfundar varð-
andi ráðningu framkvæmdastjóra
flokksins, lýsir stjórnin því yfir að
hún mun vinna af einhug með
nýráðnum framkvæmdastjóra
flokksins. Jafnframt skorar stjórn
S.U.S. á forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins að reyna sem fyrst af
öllum mætti að ná sáttum í þeim
deilum sem nú ráða innan Sjálf-
stæðisflokksins.
15 ungir Sjálfstæðismenn:
Lýsa vanþóknun á ályktun
framkvæmdastjórnar SUS
— frá 8. sept.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
til birtingar yfirlýsing undirrit-
uð af 15 forystumönnum úr
röðum ungra Sjálfstæðismanna.
Yfirlýing þessi var send mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins i
fyrradag. Hún er svohljóðandi:
„Við undirritaðir ungir sjálf-
stæðismenn, lýsum yfir furðu
okkar og vanþóknun á samþykkt
þeirri, er gerð var á fundi fram-
kvæmdastjórnar Sambands ungra
sjálfstæðismanna hinn 8. þessa
mánaðar og gerð hefur verið að
umtalsefni í Dagblaðinu. Jafn-
framt lýsum við því yfir að
Kjartan Gunnarsson er að okkar
mati vel til þess fallinn að gegna
störfum framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins. Öllum dylgjum
um hið gagnstæða vísum við á
bug. Með því er á hinn bóginn ekki
á neinn hátt gert lítið úr hæfileik-
um annarra þeirra er kunna að
hafa komið til greina í starfið.
Mikilvægt er nú að sjálfstæð-
ismenn snúi bökum saman, og
Sjálfstæðisflokkurinn þarf á öðru
að halda en því að menn verði
dregnir í dilka á þann hátt, sem
framkvæmdastjórn S.U.S. hefur
nú gerst sek um.
Anders Hansen fyrrverandi stjórn-
armaður í SUS. Árni Sigfússon fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Heimdall-
ar. Baldur Guðiaugsson fyrrverandi
stjórnarmaður í SUS. Bessi Jóhanns-
dóttir í stjórn SUS. Davíð Oddsson
borgarfulltrúi, fyrrverandi stjórnar-
maður í SUS. Einar K. Guðfinnsson
varaþingmaður, fyrrum stjórnarmað-
ur í SUS. Guðmundur H. Frimanns-
son formaður Varðar FUS á Akureyri.
Geir H. Haarde formaður utanríkis-
málanefndar SUS. Haraldur Blondal
fyrrverandi varaformaður SUS.
Ilreinn Loftsson fyrrverandi stjórn-
armaður í SUS. Inga Jóna bórðar-
dóttir fyrrverandi varaformaður SUS.
Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrver-
andi stjórnarmaður í SUS. Skafti
Ilarðarson fyrrverandi stjórnarmað-
ur í Heimdalli. Sveinn Guðjónsson
fyrrverandi ritari stjórnar SUS.
Tryggvi Gunnarsson fyrrverandi
stjórnarmaður í SUS.
Lif og land:
Fagnar ákvörðun um frest-
un flutnings Suðurgötu 7
MORGUNBLAÐINL hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
samtökunum Lif og land:
Stjórn Lífs og Lands fagnar
þeirri ákvörðun borgarstjórnar
Reykjavíkur að fresta afgreiðslu á
málefnum hússins að Suðurgötu 7.
Jafnframt skorar hún á borgaryf-
irvöld að stuðla að því að húsið
verði gert upp á þeim stað sem það
er nú og hefur staðið um einnar og
hálfrar aldar skeið, í stað þess að
flytja það upp í Árbæ.
Stjórnin hvetur borgaryfirvöld
til þess að hefja sem fyrst heildar-
endurskoðun á lögum um fast-
eignamat í því skyni að auðvelda
friðun og viðhald gamalla húsa
um land allt. Gömul hús eru
einhver merkasti menningarfjár-
sjóður íslensku þjóðarinnar og
verða best varðveitt með því að
þau haldi fullu notagildi í sínu
upprunalega umhverfi.
Fimm skip
með loðnu
FJÖGUR loðnuskip tilkynntu
Loðnunefnd um afla á fimmtu-
dag og þegar Mbl. hafði siðast
fregnir af i gær hafði eitt skip
bætzt við. Eitt skipanna fór inn
til Siglufjarðar, en hin munu
hafa farið á Austfjarðahafnir.
Skipin, sem tilkynntu um afla
eru:
Fimmtudagur: Haförn (áður
Pétur Jónsson) 680, Pétur Jónsson
(áður Haförn og Loftur Baldvins-
son) 850, Óli Óskars 1350, Sæbjörg
580. Föstudagur: Örn 580.
Kaffidagur Ey-
firðingafélags-
ins á morgun
ÁRLEGUR kaffidagur Eyfirð-
ingafélagsins i Reykjavík verður
haldinn á Hótel S<>gu i Reykjavik
á sunnudag. Verður Súlnasalur-
inn opnaður kl. 14 og er sérstakl-
ega boðið sem gestum félagsins
Eyfirðingum 67 ára og eldri.
Auk kaffiveitinga verða ýmis
atriði á dagskrá kaffidagsins svo
sem venjan hefur verið. Þá verður
haldinn basar og rennur allur
ágóði kaffidagsins til menningar-
og góðgerðarmála í Eyjafirði.
Eyfirðingafélagið hélt fyrr á
þessu ári upp á 40 ára afmæli
félagsins með samkvæmi á Hótel
Sögu.
Ljósm. Kristján.
Milli 60 og 70 læknar sátu i gær og sækja áfram í dag námskeið á
vegum námskeiðs- og fræðslunefndar læknafélaganna sem haldið er i
Domus Medica i Reykjavik. Var í gær fjallað um úrlausn bráðra
vandamála utan sjúkrahúsa og i dag er fjallað um fyrirbyggjandi
lækningar. Á dagskrá námskeiðsins voru fyrirlestrar og pallbiorðs-
umræður.
Skýrslutæknifélag íslands:
Kvikmynd um mis-
notkun tölvugagna
STJÓRN Skýrslutæknifélags ís-
lands efnir i næstu viku til
félagsfundar og kvikmyndasýn-
ingar þar sem verður fjallað um
misnotkun gagna og skort á
eftirliti og stjórn á tölvuvinnslu.
Á fundinn kemur Kevin R.
Batchelor, sem er sérfræðingur
frá endurskoðunarfyrirtækinu
Alexander Grant i Bandarikjun-
um.
Kevin R. Batchelor kynnir efni
kvikmyndar sem sýna á og fjallar
hún um fjármálahneyksli er varð í
bandarísku tryggingafyrirtæki.
Er hér um að ræða leikna mynd er
hyggir á sannsögulegum atburð-
um. Aðalástæður fyrir þessu
hneyksli voru misnotkun gagna og
skortur á eftirliti og stjórn á
tölvuvinnslu fyrirtækisins. Mynd-
in heitir „The Billion Dollar Bub-
ble of the Equity Funding Scand-
al“. Þá mun Kevin R. Batchelor
kynna námskeið um endurskoðun
tölvukerfa, sem áætlað er að halda
á vegum Stjórnunarfélags Islands
og Skýrslutæknifélagsins í nóv-
ember.
Fundurinn fer fram í kvik-
myndahúsinu Regnboganum, sal C
og hefst kl. 13 miðvikudaginn 17.
september.
Frá Eþíúpíu, en samfara
kristniborðsstaríi er bæði
frseðslu- og læknisstarf.
Kaffisala til
ágóða fyrir
kristniboð
KRISTNIBOÐSFÉLAG karla
í Reykjavik efnir til kaffisölu
á morgun i kristniboðshúsinu
Betaniu, Laufásvegi 13. Hefst
hún kl. 15 og verður hellt upp
á könnuna og borið fram
meðlæti til kl. 23 um kvöldið.
Ágóði kaffisölunnar rennur
til starfa Sambands isl.
kristniboðsfélaga sem nú fer
fram í Eþíópíu og Kenýa. í
Eþiópíu starfa ein krinstiboðs-
hjón frá íslandi, Áslaug John-
sen og Jóhannes Ólafsson, en
þau starfa á sjúkrahúsi um 100
km frá Konsóhéraði. 1 Kenýa
starfa þau Kjellrun og Skúli
Svavarsson og vinna þau nú að
því að reisa kristniboðsstöð
meðal Pókot-manna í Vestur-
Kenýa. Þá eru önnur hjón
væntanleg til starfa í Kenýa í
byrjun næsta árs, Valdís
Magnúsdóttir og Kjartan
Jónsson.
Fjórða
helgarskák-
mótið
á Húsavík
Húsavik, 12. septemher.
Fjórða helgarskákmótið, sem
tímaritið Skák og Skáksamband
íslands gangast fyrir, var sett í
dag kl. 14 i félagsheimilinu á
Húsavik með ávarpi bæjarstjór-
ans, Bjarna Aðalgeirssonar.
Minntist hann jafnframt þess, að
þetta mót í dag er sett á 65 ára
afmælisdegi eins af þekktustu
skákmönnum Ilúsvíkinga,
Hjálmars Theodórssonar og jafn-
framt eru liðin 50 ár siðan hann
fyrst keppti á skákmóti.
Guðmundur Arnlaugsson flutti
Hjálmari árnaðaróskir skák-
manna og skákunnenda og færði
honum jafnframt gjöf, en hann
háði kappskák við Hjálmar fyrir
43 árum á Akureyri. Jóhann Þórir
Jónsson er skákstjóri mótsins og
þátttakendur eru margir þekkt-
ustu og bestu skákmenn landsins
frá öllum landshlutum. Fyrsta
leikinn lék Sigurður Gissurarson
sýslumaður fyrir Hjálmar Theo-
dórsson, sem tefldi við Guðmund
Sigurjónsson og varð að láta í
minni pokann fyrir stórmeistar-
anum eftir skemmtilega skák.
Geta má þess að meðal keppenda
eru þrjár stúlkur.
JNNLENTV