Morgunblaðið - 13.09.1980, Síða 26
26
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó frumsýn-
ir Jötuninn ógurlega
1 daK frumsýnir Laugarásbfó
kvikmyndina Jötuninn ÓKurlega,
sem gerð er eftir samnefndum
bandarískum sjónvarpsmynda-
flokki. Leikstjórar myndarinnar
eru Kenneth Johnson og Sig-
mund Neufeld. Ilandrit: Kenneth
Johnson. og Sigmund Neufeld.
Ilandrit: Kenneth Johnson,
Thomas E. Szollosi og Richard
Christian Matheson. Framleið-
andi: Kenneth Johnson og Chuck
Bowman. Aðalhlutverk: Bill Bix-
by, Lou Ferrigno, Susan Sullivan
og Jack Colvin. Sagan hefur
verið framhaldsmyndasaga i
Morgunblaðinu um nokkurt
skeið. .
Vísindamaðurinn David Banner
(Bill Bixby) vinnur að því að
rannsaka þá ofurmannlegu krafta
sem menn búa yfir undir miklu
álagi. Við þessar rannsóknir gerist
það slys, að Banner verður fyrir
mikilli gammageislun. Hann verð-
ur ekki var við nein slæm áhrif af
geisluninni fyrr en hann missir
næst stjórn á skapi sínu. Þá
breytist hann í ógurlegan risa
nærri sjö feta háan og tröllaukinn
að burðum. Þegar honum rennur
Ascicntlst
is exposctf to
* masslvc
tfoscof
gamma rays
antf bccomcsa
superhuman
bcast...
». » ðlLL 8IX8V LOU FE88ICN0
SliSAN SULLIVAN JACKCOIVIN
OV KfNNfTM JOHNSON A*>o*n ara t>WCI«a Ov KfNNfTm XXNSON
U« UNNfOSAl POUOf TfCHNCOLOÖv
reiðin, verður hann aftur eins og
hann á að sér.
Með hjálp félaga síns reynir
Banner að brjótast út úr þessum
álagafjötrum, sem hafa valdið því
að efnafræðileg uppbygging lík-
ama hans hefur breyst. Ómerki-
legur blaðasnápur, sem er á hött-
unum eftir æsifrétt gerir þær
tilraunir hins vegar að engu. Og
afleiðingarnar eru afdrifaríkar.
MYNDLIST
Sgningar
um helgina
Kjarvals.staðir: Septem-hópur-
inn sýnir 60 olíumálverk og
skúlptúrverk í austursal. Sýn-
ingunni lýkur 21. september.
Eitt af verkum Ilkka Juhanis á
sýningunni í Suðurgötu 7.
Vilhjálmur Bergsson sýnir 63
olíumálverk og 10 teikningar í
vestursal. Sýningunni lýkur 21.
september.
Norræna húsið: Una Dóra Cop-
ley sýnir málverk, grafík o.fl. í
anddyri. Sýningunni lýkur 28.
september.
FlM-salurinn, Laugarnesvegi
112: Örn Ingi sýnir málverk,
teikningar og skúlptúra. Sýn-
ingin er opin frá kl. 14—22 og
lýkur 21. september.
Gallerí Suðurgata 7: Finnski
myndlistamaðurinn Ilkka Ju-
hani Takalo-Escola sýnir verk
með blandaðri tækni. Sýningin
er opin frá kl. 16—18 virka daga,
en 16—22 um helgar og lýkur
um mánaðamótin.
Djúpið, Hafnarstræti: Sjöfn
Haraldsdóttir sýnir tré- og
leirmyndir. Sýningin er opin frá
kl. 11—23.30 og lýkur 24. sept-
ember.
Mokka-kaffi við Skólavörðustíg:
Úlfur Ragnarsson sýnir vatns-
lita- og pastelmyndir. Sýningin
stendur til mánaðamóta.
tm y ■ Wm 1
Frá sýningu Septem-hópsins í austursal Kjarvalsstaða.
í DAG kl. 14.00. opnar Vil-
hjálmur Bergsson sýningu i
vestursal Kjarvalsstaða sem
hann nefnir „Ljós og víddir“.
Á sýningunni eru 63 oliumál-
verk og 10 teikningar. Þetta er
sextánda einkasýning Vil-
hjálms og stendur til 21. sept-
ember.
Vilhjálmur Bergsson stund-
aði nám i Myndlista- og hand-
iðaskólanum 1951—56. Árið
1958 hóf hann nám i skóla
Rikislistasafnsins i Kaup-
mannahöfn og útskrifaðist það-
an 1%0. Næstu tvö ár, 1%0—
62, var hann á akademium i
Paris. Vilhjálmur hefur haldið
5 einkasýningar i Kaupmanna-
höfn. en þetta er 11. sýning
hans hér heima. Hún er opin frá
kl. 14—22 daglega.
Það er framtíðarsýn
í mínum myndum ...
— Hér er málað með heilan-
um, sagði gamall ka.ll, þegar
blm. rak inn höfuðið á Kjarvals-
staði í gær.
— Það er einmitt það, sagði
ég og leit í kringum mig.
— Nei, það er lítið sem ég geri
með heilanum, sagði sá gamli, ég
er bara smiður.
Þessi kall var Bergur, faðir
þeirra bræðra Guðbergs og Vil-
hjálms. Nú tók í höndina á mér
Vilhjálmur Bergsson og ég bað
hann að segja mér svolítið um
sínar myndir.
— Ég held, sagði hann, — að
því betur sem listamaðurinn
málar því minna geti hann sagt
Vilhjálmur Bergsson við nýjustu mynd sina, „Tveir tengdir
heimar“.
MYNDLIST
Vilhjálmur Bergsson
á Kjarvalsstöðum
sýnir 63 olíumálverk og 10 teikningar
um sínar myndir. Ég átti fyrrum
miklu hægara með að tala um
mínar myndir, þó ég hafi reynd-
ar aldrei verið mikið fyrir út-
skýringar. Sé listamaðurinn
frumlegur í hugsun og setji hann
meiningu sína fram á kunnáttu-
samlegan hátt — þá er takmark-
inu náð.
Það er mín skoðun, að list
aldarinnar sé að ná hámarki
sínu einmitt nú, bæði hvað
varðar ímyndunarafl og verk-
kunnáttu.
Jú, það er rétt, við höfum lifað
mikla snillinga. En um Picasso
er það að segja t.d. að list hans
var aöallega hugmyndafræðilegs
eðlis, Picasso lagði lítið upp úr
útfærslum.
Það sem aftur á móti er að
gerast í dag, það er sjálf útfærsl-
an á hugmyndum brautryðjend-
anna. I dag eru möguleikarnir,
tæknilega séð að útfæra þær
hugmyndir, svo meira jafnvægi
og meiri ró skapist í mynd-
verkinu.
Þetta er auðvitað mín per-
sónulega skoðun. Ég held að
toppurinn í listinni sé ekki
þegar byltingarástand ríkir,
heldur þegar þær miklu um-
breytingar hafa verið meltar.
— Ætlið þið að vera lengi á
þessari helvízku kjaftatörn?
spurði nú sá gamli.
— Þessar þrjár myndir, sagði
Vilhjálmur, sem þér þóttu bezt-
ar, það eru gamlar myndir, alveg
frá 1965. Ég stúderaði þá gömlu
meistarana. Mér finnst gaman
að hafa þær þér með. En mörg-
um þykir framtíðarsýn í mynd-
um mínum, ég held að það sé
rétt.
Nú kom sá gamli Bergur og
klappaði á öxlina á mér:
— Þú verður að fara vinur,
áður en þú sofnar í stólnum. Og
þá fór ég.
—J.F.Á.
TONLIST
Nelly Ben-Or í
A usturbœjarbíói
HINGAÐ til lands er kominn
pólski píanóleikarinn, Nelly
Ben-Or, en hún mun halda tón-
leika á vegum Tónlistarskólans i
Reykjavik i dag kl. 14.30 i
Austurbæjarbiói. Á efnisskrá
tónleikanna eru Sónata eftir
Haydn, Kreisleriana eftir Schu-
mann. Mazúrkar eftir landa
hennar Szymanowski og Chopin
og að lokum þriðja Sónata Chop-
ins i h-moll.
Nelly Ben-Or fæddist í Varsjá,
hélt sína fyrstu opinberu tónleika
13 ára gömul og veitti ríkisstjórn
Póllands henni þá sérstakan
Chopin-námsstyrk og píanó að
auki. Framhaldsnámi sínu lauk
hún síðan með frábærum árangri í
Tónlistarakademíunni í Jerúsalem
í ísrael, en meðal kennara hennar
þar voru tónskáldin Paul Ben-
Haim og Joseph Tal og píanóleik-
arinn Henrietta Michaelson frá
Juilliard-tónlistarskólanum í New
York.
Nelly Ben-Or er nú búsett í
Englandi og er prófessor við
Guildhall School of Music í Lond-
on.
Hún heldur tónleika og nám-
skeið víða um heim, nýlega í
Ástralíu, Þýzkalandi, Hollandi, ís-
rael, Norðurlöndum, Sviss og
Bandaríkjunum. Þetta ár mun
hún halda tónleika og námskeið í
ísrael, Bandaríkjunum og Bret-
landi auk íslands.
Námskeið í
Álexandcr-tækni
Nelly Ben-Or er einnig hingað
komin til að halda námskeið*”á
vegum Félags Tónlistarkennara,
sem fram fer í Tónlistarskólanum
í Reykjavík dagana 15. og 16.
september nk. og verða einkatím-
ar fram eftir vikunni. Mun hún
þar kynna hina svokölluðu Alex-
ander-tækni, en þetta er í fyrsta
sinn, sem tækni þessi er kynnt hér
á landi. Nelly Ben-Or er þaul-
reyndur kennari á því sviði og
Nelly Ben-Or
hefur haldið slík námskeið við
tónlistarstofnanir í Evrópu, ísrael
og Bandaríkjunum í mörg ár. Hin
svonefnda Alexander-tækni er að-
ferð, sem beitt er til að öðlast
meiri skilning á því hvernig lík-
aminn starfar í heild.