Morgunblaðið - 13.09.1980, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
Hjalti Björnsson
Akranesi - Minning
Fæddur 22. júlí 1914.
Dáinn 5. september 1980.
Þegar Hjalti vinur minn að
Grundartúni 2 á Akranesi er allur,
finnst mér rétt og skylt að minn-
ast hans með fáeinum orðum.
Hann skilur eftir ljúfar minn-
ingar í huga mínum. Kynnin urðu
þó ekki löng — aðeins einn vetur.
Ég átti heima í nágrenni við
Hjalta og konu hans. Þangað lagði
ég oft leið mína á löngum vetrar-
kvöldum. Ætíð átti ég þar góðu að
mæta. Bæði voru hjónin ræðin og
skemmtileg. Heimilið hlýlegt og
vel búið. Ékkert er manni dýr-
mætara á lífsleiðinni en að kynn-
ast góðu fólki. Og á Akranesi
eignaðist ég nokkra ágæta vini, en
áður en þangað var haldið þekkti
ég allmarga á staðnum. Það er
ekki lítill auður.
Sl. vetur veiktist Hjalti og lá um
skeið í sjúkrahúsinu á Akranesi.
Hann komst aftur á fætur og
virtist vel frískur. Gleðin geislaði
af honum sem fyrr. Hann hélt
ásamt konu sinni fyrir jólin til
Svíþjóðar þar sem dóttir þeirra
hjóna býr með eiginmanni og
börnum. Þau komu heim skömmu
eftir áramótin, ánægð og endur-
nærð eftir ferðina. Hjalti hóf störf
að nýju í skipasmíðastöð Þorgeirs
og Ellerts, þar sem hann hafði
unnið frá stríðslokum að kalla, en
hann var vélsmiður að iðn. Er
hans nú saknað af fjölmörgum
vinnufélögum eftir langt og giftu-
ríkt starf.
Ég rek ekki æviatriði Hjalta
sáluga, því það munu aðrir honum
kunnugri gera. Hann varð ekki
gamall maður. Á Akranesi vann
hann meginhluta lífsstarfs síns.
þar fann hann lífsförunaut sinn,
Sigríði Einarsdóttur frá Bakka,
úrvalskonu sem stóð örugglega við
hlið manns síns til hinstu stundar.
Þau byggðu sér myndarlegt íbúð-
arhús að Grundartúni 2, rétt hjá
Bakka. Og stutt var þaðan á
vinnustað Hjalta: rétt yfir götuna.
Eina dóttur barna eignuðust þau
hjón: Birnu Guðbjörgu, sem er gift
Gísla Sigurðssyni lækni, (M.
Helgasonar borgarfógeta) er
stundar nú framhaldsnám í Sví-
þjóð. Þau eiga þrjú börn. Áður en
Hjalti kvæntist Sigríði, eignaðist
hann son, Halldór að nafni. Hann
er búsettur vestanhafs, kvæntur
íslenskri konu og eiga þau tvö
börn. Allt er þetta mikil ham-
ingja.
Og nú vil ég að leiðarlokum
þakka vini mínum, Hjalta, kynnin
vetrarlöngu og vel það, og votta
aðstandendum hans innilega sam-
úð við brottför hans af þessum
heimi.
Auðunn Bragi Sveinsson.
Hjalti Björnsson, vélsmiður,
Grundartúni 2 á Akranesi lést að
kvöldi föstudagsins 5. þ.m. í
Sjúkrahúsi Akraness eftir
skamma legu, rúmlega 66 ára að
aldri. Kunnugir vissu, að Hjalti
heitinn gekk ekki heill til skógar
hin síðari ár, en hann gat þó að
jafnaði stundað starf sitt, þar til á
síðasta vori, að hann veiktist
snögglega og gekk skönimu síðar
undir erfiðan uppskurð, sem ekki
mun hafa borið árangur. Hann
náði sér þó svo eftir þá aðgerð, að
hann komst heim og hafði fóta-
vist, en veiktist enn skyndilega og
var allur að fáum dögum liðnum.
Það kom því nánustu ástvinum
Hjalta á óvart, að komið væri að
hinstu skilnaðarstund. — Þótt
Hjalti Björnsson léti ekki mikið að
sér kveða í opinberu lífi, eiga
ástvinir hans, kunningjar og aðrir
samferðamenn á bak að sjá sér-
stæðum og eftirminnilegum per-
sónuleika, sem jafnan mun vekja
hlýjar, þakklátar og glaðar minn-
ingar í brjóstum þeirra, þótt árin
líði og margt fyrnist.
Hjalti heitinn Björnsson var
fæddur í Nesi í Norðfirði, eins og
það var þá kallað og ólst þar upp
með foreldrum sínum í stórum
systkinahópi og var hann næst-
elstur ellefu systkina. Foreldrar
hans voru hjónin Guðbjörg
Bjarnadóttir, ættuð úr Sæmund-
arhlíð í Skagafirði og Björn Emil
Bjarnason frá Neskaupstað. Björn
Emil var bakari, en vann auk þess
ýmis störf um dagana; mun þar
ekki hafa verið auður í garði og
má nærri geta, að börn á slíku
heimili hafi snemma þurft að
bjarga sér sjálf, enda fór Hjalti
heitinn ungur á sjóinn, sem var
næstum eina leiðin fyrir unga
menn á þeim árum til að sjá sér
farborða. Hjalti var hér heima
framan af, ýmist í strandsigling-
um eða millilandasiglingum og um
skeið var hann á varðskipinu Ægi
með hinum harðsækna og rögg-
sama skipherra, Einari M. Einars-
syni. Síðar fór Hjalti á útlend
verslunarskip og sigldi víða um
heimshöfin, m.a. til Austurlanda.
Dvaldi hann erlendis í um 11 ára
skeið og átti þá ýmist heima í
Danmörku eða Þýskalandi. í Dan-
mörku lærði Hjalti til starfa sem
matsveinn og stundaði það starf
lengst af meðan hann var í
siglingum, en hann sigldi einkum
á dönskum skipum.
í stríðslokin kom Hjalti alkom-
inn heim til íslands og settist þá
að á Akranesi. Skömmu eftir
komuna á Skagann hóf Hjalti nám
í véismíði hjá fyrirtæki Þorgeirs
og Ellerts þar í bæ og vann þar
síðan alla tíð, þar til heilsuna
þraut á síðastliðnu vori. Vann
Hjalti lengst af sem rennismiður
og er mér tjáð af kunnugum, að
jafnan væri til hans leitað, þegar
um sérstakt nákvæmnis- eða
vandaverk var að ræða í þeirri
grein, enda var hann talinn bæði
vel hagur og laginn í höndum.
Árið 1946 gekk Hjalti heitinn að
eiga Sigríði Einarsdóttur á Bakka
á Akranesi, meistara í kjólasaum
og lifir hún mann sinn. Einkabarn
þeirra hjóna er dóttirin Birna, f.
1948, stúdent að mennt, gift Gísla
H. Sigurðssyni, lækni, en þau eru
nú um sinn búsett í Svíþjóð og
eiga þau þrjú börn, sem afi og
amma unnu mjög. Áður en Hjalti
kvæntist, eignaðist hann einn son,
Halldór, f. 1938, kvæntur Þórdísi
Sigurðardóttur og eru þau búsett í
New York og eiga tvær dætur.
Sigríður er atgervis- og mynd-
arkona, enda af góðu bergi brotin.
Foreldrar hennar voru hjónin
Halldóra Helgadóttir frá Lamba-
stöðum á Mýrum, en að mestu
uppalin í Fljótstungu, en meðal
systkina hennar voru Guðjón í
Laxnesi og Árni, organisti í
Grindavík, en faðir Sigríðar var
Einar Ingjaldsson á Bakka á
Akranesi frá Nýlendu á Skipa-
skaga, eins og þá var sagt,
vélbátaskipstjóri og útvegsmaður
og einn af forystumönnum á
Skaga um vélbátaútgerð. Hefur
sambúð þeirra Hjalta og Sigríðar
verið alla tíð með ágætum.
Ég, sem þessar línur rita,
kynntist Hjalta heitnum Björns-
syni fyrst fyrir um 9 árum, þegar
börn okkar gengu í hjónaband, en
síðan hefur verið góð vinátta með
fjölskyldum okkar. Hjalti heitinn
var talinn félagsmaður góður og
hrókur alls fagnaðar, ef svo bar
undir, en eigi að síður var hann
heimakær og hygg ég, að hans
skemmtilegasta tómstundaiðja
hafi verið lestur góðra bóka. Þau
hjón voru bæði með afbrigðum
gestrisin og góð heim að sækja, og
hygg ég að á fá heimili hafi verið
ánægjulegra að koma en til þeirra
Sigríðar og Hjalta.
Við dvöl sína erlendis hafði
Hjalti kynnst töluvert erlendum
tungum og var vel að sér í tungum
nágrannaþjóðanna, enda var oft
leitað til hans sem túlks, s.s ef
erlendir menn voru við störf um
tíma á Akranesi og einnig var oft
til hans leitað til að lesa tungumál
með unglingum í skólum, enda var
Hjalti heitinn mjög hjálpsamur
öllum samferðamönnum, sem með
þurftu, bæði sínum nánustu sem
öðrum svo öllum var hlýtt til
hans, sem eitthvað kynntust hon-
um.
Ég og fjölskylda mín sendum
Sigríði og öðrum nánustu ástvin-
um einlægar samúðarkveðjur, en
Hjalti heitinn verður lagður til
hinstu hvíldar á Akranesi í dag.
Sigurður M. Helgason.
Fáum misserum eftir að
Lionsklúbbur Akraness var stofn-
aður gerðist Hjalti Björnsson fé-
lagi í klúbbnum og starfaði innan
hans til dánardægurs.
Hjalti Björnsson var áhuga-
maður um allt starf og verkefni
klúbbsins og ætíð fús til að leggja
fram krafta sína, þegar unnið var
að framgangi líknar- og mannúð-
armála.
Á starfstíma sínum innan
Lionsklúbbs Akraness gegndi
Hjalti Björnsson fjölmörgum
trúnaðarstörfum. Hann var gjald-
keri, ritari og formaður í eitt ár, í
senn auk þess sem hann átti sæti í
fjölmörgum nefndum á vegum
klúbbsins. öllum þessum störfum
gegndi Hjaldi af áhuga og sam-
viskusemi, enda fór ekki á milli
mála, að hann mat mikils hug-
sjónir og starf Lionshreyfingar-
innar.
Hjalti Björnsson var ætíð glað-
ur og reifur á fundum og í
mannfagnaði. Lionsmenn á Akra-
nesi eiga margar ánægjulegar
endurminningar um geðþekkan og
góðan dreng, sem átti svo auðvelt
með að fá alla til að brosa, er með
honum voru.
En nú skilja leiðir um sinn.
Lionsmenn á Akranesi þakka
Hjalta Björnssyni ianga og
ánægjulega samfylgd og heiðra
minningu hans.
Eftirlifandi eiginkonu Hjalta
Björnssonar, Sigríði Einarsdóttur,
börnum og barnabörnum sendum
við hugheilar samúðarkveðjur og
biðjum algóðan Guð að styðja þau
og styrkja í sorg þeirra.
Lionsklúbbur Akraness.
t
BJÖRN SIGURÐSSON,
bifreiöaatjóri,
Birkigrurtd 39, Kópavogi.
lézt í Borgarspítalanum aöfaranótt fimmtudagsins 11. september.
Unnur Ólafsdóttir,
Jóhanna Zoóga Henriksdóttir,
og börnin.
t
Útför konunnar minnar og móöur okkar,
LILJU PÁLSDÓTTUR,
veröur gerö frá Akraneskirkju, miövikudaginn 17. september,
klukkan hálf tvö.
Blóm og kransar afþakkaöir, en þeir sem vilja minnast hennar láti
Akraneskirkju njóta þess aö hennar eigin ósk.
Jón M. Guðjónsson og systkini.
t
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
ERLENDURJÓNSSON,
frá Jarölangsstööum,
sem andaöist 5. september, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni,
mánudaginn 15. september kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Helga Jónsdóttír,
Þurióur Erlandsdóttir,
Ragnhildur Erlendsdóttir,
Erna Erlendsdóttir,
örn Erlendsson.
t
Hjartans þakkir til allra, er sýndu okkur samúö og vinarhug vlð
andlát og útför,
UNNAR JÓNSDÓTTUR,
Hólmgaröi 8.
Rósant Hjörleifsson,
Guólaug Krfafinsdóttir,
Einar Pélsson,
ÓKna Steindórsdóttir.
t
Hugheilar þakkir til allra jíeirra er sýnt hafa okkur samúö og
vináttu viö hið sviplega fráfall sonar okkar og bróöur,
GÍSLA LEIFS SKÚLASONAR,
Brekkustíg 31, Vestmannaeyjum.
Helga Gísladóttir,
Sigurbjörg Sveinsdóttir,
Valgeröur Sveinsdóttir,
Sveinn Sigurösson,
Þóranna Sveinsdóttir,
Siguröur Sveinsson.
t
Innilegar þakklr fyrir auösýnda samúö viö fráfall eiginmanns míns
og bróöur okkar,
SÆMUNDAR ÞÓRÐARSONAR,
Hvassaleiti 10.
Bergrós Jónsdóttir,
og systkini hins látna.
t
Innilegar þakkir til allra sem vottuöu okkur samúö og hlýhug viö
fráfall og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
SKÚLA ARNÓRS STEINSSONAR,
forstjóra,
Heiöargerði 19.
Gyóa Brynjólfsdóttir,
Bryndfs Skúladóttir,
Gunnsteinn Skúlason,
Guölaug Skúladóttir,
Sigrún Skúladóttir,
Halldór Skúlason,
og barnabörn.
Páll Arnason,
Sigrún Gunnarsdóttir,
Vilberg Skúlason,
Jón Þ. Sverrisson,
Jóna Helgadóttir,
t
Innilegar þakkir fyrlr auösýnda samúö og vinarhug vlö andlát og
jarðarför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
SIGRÍDAR ÁRNADÓTTUR,
Rauöalnk 2, Reykjavík.
Hannes Árni Wöhler,
Bryndís Kristiansen,
Bragi Kristiansen,
Kirstín G. Lárusdóttir,
Ketill Pálsson,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
fööur okkar, tengdafööur og afa,
EMILS ÁSMUNDSSONAR,
Fálkagötu 32.
Emil Emilsson,
Helga Emilsdóttir,
Rúnar Emilsson,
Jónína Emilsdóttir,
Jón Emil Halldórsson,
Sigrföur H. Arndal,
Halldór Ingvarsson,