Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurseptember 1980næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    2829301234
    567891011

Morgunblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980 5 Hæsta tilboð í hús- ið að Yesturgötu 18 rúm 31 millj. kr. Húsið skal endur- nýja og flytja að Bókhlöðustíg 10 í GÆR voru á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykja- víkurborgar opnuð tilboð í húseignina Vesturgötu 18, en húsið var byggt um alda- mót. Hæsta tilboðið hljóðaði upp á 31 millj. 570 þús. kr. en alls bárust 19 tilboð, það lægsta 1.200 þús. Hæsta til- boðið átti Helga E. Þórðar- dóttir. Ákveðnar kvaðir fylgja afsali hússins, m.a. skal það flutt á lóðina Bók- hlöðustig 10 á kostnað kaup- anda. Að sögn Sævars Sveinssonar hjá Innkaupastofnun eru aðrar kvaðir þær, að húsið skal endur- nýja og færa i upprunalegt horf og ýmis skrautverk sem upphaflega voru á húsinu endurnýjuð. Þá skal kaupandi annast byggingu nýs grunns undir húsið að Bókhlöðu- stíg og verður húsið að vera komið á hinn nýja grunn eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að gengið verður frá kauosamnintri. Vesturgata 18 er lengst til vinstri á myndinni, sem ólafur K. Magnússon tók í gær. Eins og sjá má er húsið illa faHA. en hað mnn vera rúmleira 80 fprmetrar að flatarmáli. Hægt geng- ur að selja frysta síld ENGIR meiri háttar samningar hafa verið gerðir um sölu á frystri síld á vegum SH, að því er Guðmundur H. Garðarsson tjáði Morgunblaðinu í gær. Hann sagði, að svo virtist sem markaðir væru erfiðir fyrir frysta síld, en sölu- menn frá SH eru og hafa verið að undanförnu í Evrópulöndum vegna þessara og annarra fisk- sölumála. í fyrra voru fryst 6.300 tonn af síld á vegum SH. Mest af því magni var selt til Bretlands, Frakklands, V-Þýzkalands, Belgíu og Tékkóslóvakíu. „Þú getur bjargað lifí:“ 295 þús. kr. hafa safnast SÖFNUN Rauða Kross íslands, i samvinnu við Rauða Kross deildir Norðurlanda hefst 1. nóv. nk. og mun bera yfirskriftina „Þú getur bjargað lífi“. eins og komið hefur fram i fréttum. Nú þegar er þó tekið á móti framlögum á skrif- stofu R.K.l. að Nóatúni 21 i Reykjavik og á póstgiróreikningi nr. 120200. Þegar hafa borizt framlög að upphæð 295 þús. kr. á skrifstofuna. 45 þús. kr. kom kona með, sem ekki vill láta nafn síns getið, 60 þús. frá M.M., 100 þús. kr. voru gefnar minningu Rósu Guðbrands- dóttur, 10 þús. kr. frá F.L., 75 þús. frá ónefndum og einnig 5 þús. kr. Suðurgötu- kirkjugarðurinn: Mikil skemmd- arverk unnin SÍÐDEGIS á mánudag uppgötv- aðist að skemmdarverk höfðu verið unnin á kirkjugarðinum við Suðurgötu i Reykjavik. Samkvæmt upplýsingum Rann- sóknarlögreglu ríkisins, sem hefur með rannsókn málsins að gera, var 20—30 legsteinum velt um koll og þrír þeirra brotnir. Þá var rótað á leiðum og blóm tröðkuð niður. Skemmdarvargarnir eru ófundnir. Satín fóöraöar 100% ullarflannel frá nORMEUII Litir: dökkblátt — milliblátt — grátt — steingrátt,— camel — brúnt. Hönnun: Colin Porter. flannel ullarbuxur Fæst hjá ^KARNABÆR og einkasöluaðilum hans um land allt.

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55869
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 209. tölublað (17.09.1980)
https://timarit.is/issue/117953

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

209. tölublað (17.09.1980)

Aðgerðir: