Morgunblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Innflytjendur
Get tekiö að mér aö leysa út
vörur. Tilboö sendist augld. Mbl.
merkt: „Trúnaöur — 4085“.
Veröbréf
Fyrirgreiösluskrifstofan, Vestur-
götu 17, sími 16223.
Keflavík
Til sölu raöhús í smíöum ásamt
bílskur ( Heiöabyggö. Húsinu
veröur skilaö fokheldu og full-
frágengnu aö utan. Glæsileg efrl
hæö ásamt bílskúr. Sér inngang-
ur. Sér þvottahús. Úrval af 3ja
herb. íbúöum meö góöum
greiösluskilmálum.
Fasteignasalan Hafnargata 27.
Sími 1420.
húsnæói '■
óskast •
Mig vantar íbúð.
Bý ein og geng vel um. Anna G.
Kristjánsdóttir, sími 14556.
Háskólakennari (kona)
óskar eftir aö taka á leigu litla
íbúö ( grennd viö Háskólann.
Uppl. í síma 25401 á herbergi 18
eöa 5.
Óska eftir 25 fm.gufukatli
fyrir 6 kg. þrýsting á fersm. og
miöstöövarketil 6 tll 7 fm. Upþl. í
síma 21703 næstu daga.
Notað píanó
óskast keypt. Hringiö f síma
92-7167 eftlr kl. 19.
IOOF 9 = 1629178’/4 =
IOOF 7 = 1629178% =
RMR-17-9-20-VS-FR-EH
Höfgshlíð 12
Samkoma í kvöld kl. 8.
Kvennadeild Rauða-
kross íslands
Konur athugiö
Okkur vantar sjálfboöaliöa tll
starfa fyrir deildina. Uppl. ( s.
17394, 34703 og 35463.
Kristniboðssambandið
Bænasamkoma veröur f Kristni-
boðshúsinu Betanía. Laufásvegi
13 í kvöld kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Helgarferðir 19.—21.
sept.:
Landmannalaugar — Jökulgil (ef
færf veröur).
Álftavatn — Torfahlaup — Stór-
konufell.
Brottför kl. 20 föstudag.
Þórsmörk — haustlitaferð.
Brottför kl. 08 laugardag.
Allar upplýsingar á skrifstofunni,
öldugötu 3.
Feröafélag jslands
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
Styrktarfélag aldraöra
Suðurnesjum
Eldri borgarar eiga kost á 2ja vikna dvöl á
Löngumýri í Skagafiröi á vegum Þjóökirkj-
unnar. Bókband, leðurvinna, hekl o.fl. Fariö
verður 6. október.
Nánari upplýsingar í síma 2172.
Feröanefndin.
Matreiðslumenn —
Matreiðslumenn
Aöalfundur félags matreiöslumanna verður
haldinn miövikudaginn 24. sept. 1980 kl.
15.00 aö Óöinsgötu 7, Reykjavík.
Dagskrá: Almenn aöalfundarstörf. Önnur
mál.
Félagar fjölmenniö. Stjórnin
bátar — skip
Skip til sölu
6 — 7 — 8 — 9—10—11 — 12—15 —
20 — 29 — 30 — 49 — 53 — 64 — 65 —
70.
Höfum verið beönir aö útvega góðan 25—40
tn. bát og 200—300 tn. bát.
Aðalskipasalan
Vesturgötu 17
símar 26560 og 28888
Heimasími 51119.
húsnæöi óskast
Bandarísk hjón
kennara, vantar íbúö eöa lítið hús á leigu í
eitt ár. Vinsamlegast hringiö í síma 2210,
herbergi 207, Navy Lodge og biðjiö um
Siemaszko.
Sauðárkrókur
— bæjarmálaráð
Aöalfundur bæjarmálaráös Sjálfstæölsflokksins á Sauöárkrókl.
voröur haldinn (Sæborg, miövikudaginn 17. september n.k. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Aöalfundarstörf.
2. Bæjarmálefni.
Mætiö stundvíslega. Stjórnin.
Matthías Salóme Ólafur
Sjálfstæðismenn
Suðurnesjum
Fundur stjórna og trúnaöarmanna Sjálfstæöisflokksins á Suðurnesj-
um veröur haldinn í Festi, Grindavík, fimmtudaginn 18. sept. og hefst
kl. 20.30.
Alþingismenn Sjálfstæöisflokksins f Reykjaneskjördæmi mæta á
fundlnum. Stjórnirnar
Sigurbjarni (Bjarni)
Tómasson — Sjötugur
Bjarni Tomm bifreiðastjóri, er
70 ár í dag 17. september 1980.
Ég undirritaður hefi átt því láni
að fagna að starfa daglega með
Bjarna Tomm, eins og hann er
oftast nefndur í hópi vina og
kunningja í rúma 2 áratugi í
erfiðu og erilsömu starfi. Það
hefur aldrei fallið skuggi á vináttu
okkar í öll þessi ár, enda er sú
vinátta byggð á traustum grunni.
Sjötíu ár er alllangur tími á ævi
manns. Margs er því að minnast
þegar litið er yfir gengin spor, og
margar eru þær ljúfu endurminn-
ingar sem koma upp í hugann, frá
löngu liðnum dögum, þær minn-
ingar eru að vísu persónubundnar
og því ekki hægt að rekja í lítilli
afmælisgrein.
Bjarni fæddist 17. september
1910. Það voru víða kröpp kjör hjá
alþýðuheimilum á íslandi í þá
daga og ekki var hægt að sækja
aðstoð í neina sjóði, eða að heimta
af öðrum. Hann fór því snemma
að vinna hörðum höndum og
hjálpa fjölskyldu sinni, eins og títt
var í þá daga.
Það leyndi sér ekki, hve dugleg-
ur og ósérhlífinn hann var í öllum
þeim störfum sem honum voru
falin. Enda er augljós samvisku-
semi og skyldurækni hans, hverj-
um þeim sem kynnist honum, það
eru dyggðir sem virðast fara
þverrandi hjá þjóð okkar.
Síðan lá leið Bjarna til Reykja-
víkur. Ekki var Bjarni Tomm
búinn að vera lengi í höfuðstaðn-
um er hann réðist að Bifreiðastöð
Steindórs. En það fyrirtæki rak þá
hin mikli athafnamaður og mann-
þekkjari Steindór Einarsson.
Enda sá hann fljótt hvað bjó í
hinum unga manni, og var hann
brátt valinn til trúnaðarstarfa á
„Steindórsstöð". Starfstími
Bjarna þar urðu 35 ár. Gagnkvæm
virðing og traust var alltaf á milli
þeirra, enda voru báðir mjög
ánægðir með samstarfið. Sam-
starfið við Steindór Einarsson var
Bjarna góður skóli, og reyndist
honum gott veganesti á lífsleið-
inni.
Það fylgir Bjarna ávallt glað-
værð og gamansöm kátína, þess
vegna er alltaf gaman að hitta
hann og blanda geði með honum,
ekki aðeins á stund gleðinnar,
heldur ávallt, því að hann er
traustur og góður vinur.
Margar eru þær ljúfar og góðar
endurminningarnar frá þessum
samstarfsárum okkar, þæði í
starfi og leik.
Það voru gæfuspor þegar Bjarni
kvæntist eiginkonu sinni Gíslínu,
hún hefur búið þeim mjög fagurt
og smekklegt heimili, þar sem þau
una sér, enda eru þau samhent í
öllu því sem þau taka sér fyrir
hendur.
Gíslína hefur staðið við hlið
hans með ráð og dáð og miklum
sóma öll þessi ár.
Fimm mannvænleg börn hafa
þau eignast, 4 drengi og 1 stúlku,
sem öll hafa stofnað sitt eigið
heimili.
Gíslína og Bjarni fagna ávallt
þeim dögum þegar börnin koma í
heimsókn með barnabörnin, því að
þá færist líf og fjör í heimilislífið,
enda eru hlaðin borð af góðgæti
hjá þeim kæru hjónum. Gleðin
skín úr hverju andliti því að það er
alltaf hægt að vera glaður í návist
Bjarna og Gíslínu.
Ég óska þér Bjarni minn og
þinni fjölskyldu allrar blessunar á
þessum tímamótum í lífi þínu og
gæfu og gengis á ókomnum árum.
Ragnar Eliasson
Bjarni tekur á móti gestum kl.
20.00 í kvöld í Félagsheimili Raf-
veitunnar við Elliðaár.
Vinur minn og fyrrum sam-
starfsmaður, Sigurbjarni Tómas-
son, er 70 ára í dag. Það er æði
langt síðan að leiðir okkar Bjarna,
eins og við nefnum hann alltaf,
lágu saman, svo langt, að ég man
óglöggt upphafið, þar sem ég var
aðeins 10 ára drenghnokki þegar
hann réðist til starfa til föður
míns árið 1936.
Síðar vakti þessi maður athygli
mina fyrir vinalegt og glaðlegt
viðmót, sem hann sýndi öllum sem
hann átti samskipti við hér. Þegar
svo við fórum að starfa saman
síðar, sá ég að þar fór einn sá
traustasti maður sem starfað hef-
ur hjá Bifreiðastöð Steindórs frá
upphafi vega.
Bjarni var þau 36 ár, sem hann
starfaði hér, stundvís, reglusamur
og ábyggilegur maður, sem alltaf
mátti treysta fyrir einu og öllu. Ég
veit ekki til að Bjarna hafi vantað
til vinnu einn dag allan sinn langa
starfsferil hér nema í veikinda-
forföllum.
Bjarni er mjög góðviljaður og
tillitssamur maður, jafnt við sam-
starfsmenn sína sem aðra. Þótt af
mörgu sé að taka, man ég sér-
staklega eftir einu tilfelli af mörg-
um þar sem þessir kostir hans
komu fram við föður minn. Það
var árið 1965, faðir minn þá
aldraður orðinn og farinn að
heilsu sagði við mig, að sig langaði
að fara í ferð með Gullfossi til
Kaupmannahafnar. Sigurður
bróðir minn og hans kona, höfðu
farið með honum slíka ferð áður
og hann haft mikla ánægju af. Nú
átti Sigurður ekki heimangengt
vegna veikinda. Bjarni fór þá
þessa ferð með honum. Mér var
síðar sagt, af vinafólki mínu, sem
var samskipa þeim, að Bjarni
hefði verið, eins og ég raunar vissi
fyrirfram, mjög nærgætinn og
hugsunarsamur við húsbónda sinn
á ferðalaginu, sem varð hans
síðasta. Hann féll frá árið eftir.
Ég hefi alltaf verið Bjarna
þakklátur fyrir þetta og fyrir
tryggð hans við föður minn og
þetta fyrirtæki alla tíð.
Bjarni er kvæntur Gíslínu Guð-
mundsdóttur, hinni ágætustu
konu, sem staðið hefur dyggilega
við hlið hans. Vil ég færa henni
þakkir mínar fyrir hennar skref í
hinu langa og giftudrjúga starfi
Bjarna hér hjá okkur. Það hefur
eflaust stundum verið erfitt þar eð
hann vann vaktavinnu alla tíð.
Ég óska Bjarna Tómassyni til
hamingju með afmælisdaginn og
vona að hann og fjölskylda hans
megi eiga bjarta framtíð. Ég
þakka honum áratuga samstarf,
sem alltaf var mér til ánægju og
aldrei bar skugga á.
Lifðu heill.
Kristján Steindórsson.