Morgunblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980
11
Faðir og sonur, Sigurður Karlsson og Emil Gunnar Guðmundsson.
Verksmiójusala
Buxur á alla aldurshópa
Herrabuxur úr flaueli, kakí og denim.
Dömubuxur úr flaueli, flannel og kakí.
Unglingabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Barnabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Sumarjakkar á börn og karlmenn.
Geriö góð kaup í úrvalsvöru.
Opiö virka daga kl. 9—18. Laugardaga kl. 9—12.
BOT HF.
Skipholti 7.
Sími 28720.
Leikfélag
Reykjavíkur:
Fyrsta f rumsýn
„Að sjá til þín maðui
Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ kemur verður fyrsta frumsýning
leikársins hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þá verður kynntur í
fyrsta skipti á íslenzku leiksviði þýzki leikritahöfundurinn
Franz Xaver Kroetz, sem þykir nú meðal fremstu höfunda þar
í landi og er mest leikinn allra vestur-evrópskra höfunda
síðustu ár. Leikrit hans hefur á íslenzku hlotið heitið „Að sjá
til þín, maður!“ (Mensch Meier!) í þýðingu Ásthildar Egilsson
og Vigdísar Finnbogadóttur. Leikmynd og búninga gerir Jón
Þórisson, Daníel Williamsson sér um lýsingu og leikstjóri er
Hallmar Sigurðsson. Þetta er fyrsta leikstjórnarverkefni
Hallmars fyrir Leikféiag Reykjavíkur en hann er nýkominn
heim frá námi i leikstjórn
Stokkhólmi.
Leikritið Að sjá til þín, mað-
ur! fjallar um hjónin Ottó og
Mörtu og son þeirra á táninga-
aldri. Ottó er verkamaður og
sonurinn vill gerast múrari, en
foreldrar hans hafa ýmislegt
við það að athuga og vilja að
hann stefni hærra. I verkinu
verða töluverð umskipti í lífi
fjölskyldunnar, sem valda gagn-
gerum breytingum á heimils-
högum og samskiptum þeirra
þriggja, en verkið þykir eitt
áhrifamesta og bezta leikrit
höfundar og hefur verið leikið
víðar en nokkurt annað verka
hans. Eitt einkenni á verkum
Kroetz er einmitt fámenni
þeirra, þau lýsa gjarnan tveim-
ur eða þremur persónum, höf-
undur segist frekar vilja gæða
fáa einstaklinga lífi á leiksvið-
inu en bregða upp yfirborðslegri
mynd af fjölda manns. „En þótt
persónurnar í verkum mínum
séu fáar eru þær þó um leið
fulltrúar fyrir miklu stærri
fjölda." Vinsældir Kroetz sýna
bezt hve ríka skírskotun per-
sónur hans hafa til áhorfenda,
en í verkum hans er brugðið upp
svipmyndum úr hversdagslífi
almúgafólks, þar sem fábreytni
tilverunnar sprengir gjarnan af
sér öll bönd og voveiflegir
atburðir gerast.
Leikendur i Að sjá til þín,
maður! eru þrír: Sigurður
Karlsson leikur Ottó, Margrét
Ilclga Jóhannsdóttir leikur
Mörtu og Emil Gunnar Guð-
mundsson leikur Lúðvík, son
þeirra. Þau Sigurður og Mar-
grét Helga hafa leikið með
Leikfélaginu um árabil og vakið
athygli í ýmsum hlutverkum en
Emil leikur nú sitt annað hlut-
verk hjá félaginu, hann leikur
einnig Þórberg ungan í Ofvitan-
um, sem senn verður tekin til
sýninga að nýju.
Þótt Franz Xaver Kroetz sé
aðeins þrjátíu og fjögurra ára
að aldri, hefur hann samið yfir
30 leikrit, mörg að vísu í styttra
lagi, svo og kvikmyndahandrit,
blaðagreinar, útvarpsleikrit og
sjónvarpsefni. Hann þykir af-
kastamikill með afbrigðum.
Kroetz er upphaflega leikari að
mennt en sneri sér að leikrita-
gerð fyrir rúmum áratug. Fyrir
skömmu voru verk hans sýnd í
27 leikhúsum í Þýzkalandi sam-
tímis, en þau hafa auk þess
við Dramatiska Institutet í
verið sýnd í flestum löndum
Vestur-Evrópu, svo og í New
York, Brasilíu, Venezuela og
Calcutta, svo einhverjir staðir
séu nefndir. Að sjá til þín,
maður! var frumsýnt í Þýzka-
landi fyrir tæpum tveim árum
og þykir eitt hans albezta verk.
Meðal annarra þekktari verka
hans má nefna: Wildwechsel
(1968), Heimarbeit (1969), Stall-
erhof (1971), Oberösterrich
(1972), Sterntaler (1974), Das
Nest (1974) og Agnes Bernauer
(1976).
Hallmar Sigurðsson leikstjóri
Kroetz er ekki að öllu ókunn-
ugur íslendingum, því þrjú verk
hans hafa verið flutt hér áður.
Wildwechsel var ein af mánu-
dagsmyndum Háskólabíós, eitt
verka hans hefur verið flutt í
útvarpinu og sjónvarpið sýndi
eitt þeirra í fyrra. Kroetz hefur
lagt mikið á sig til að kynna sér
aðstæður fólksins, sem hann
skrifar um og til þess hefur
hann unnið ýmiskonar störf.
Fyrir þetta verk vann hann til
dæmis við að flokka banana
vikum saman. Það, að hann
hefur skrifað svo mikið um
almúgann og gjarnan tekið upp
hanzkann fyrir hann, olli því að
hann var mjög umdeildur í
upphafi ferils síns og þá kom
það fyrir að reynt var að
eyðileggja sýningar á verkum
hans í Þýzkalandi, en nú er
öldin orðin önnur. Kroetz legg-
ur mikla áherzlu á uppsetningu
verka sinna og er oft viðstaddur
á æfingum eða sýningum og það
er einmitt ætlun hans að koma
hingað í upphafi næsta mánað-
ar til að fylgjast með sýningum.
Leikstjórinn, Hallmar Sig-
urðsson, sem þarna stýrir sínu
fyrsta verki í Iðnó, hefur eins og
áður sagði nýlokið námi í leik-
stjórn frá Svíþjóð, en þar var
hann við nám og síðar vinnu í
nokkur ár. Hann setti þar
meðal annars upp tvær sýn-
ingar utan skólans og kenndi
leiklist um hálfs árs skeið.
Þetta er annað verkið sem hann
setur upp hér heima, en í fyrra
leikstýrði hann „Púntilla og
Matti" hjá Leikfélagi Akureyr-
ar. Á næstunni mun hann svo
fara til Þjóðleikhússins og setja
þar upp farsann „Könnusteypir-
inn pólitíski" eftir Holberg.
Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigurður Karlsson i hlutverkum
sinum.
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al (.LVSINi;A-
SÍMINN ER:
22480
ÞUMAUNA
50—70% útsöluafsláttur.
Sjáiö auglýsingu sl. helgi í blaöinu. Sængurgjafir í miklu úrvali.
Weleda snyrtivörurnar óviöjafnanlegu. Sendum í póstkröfu. Sími ■
12136.
\