Morgunblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980 25 félk í fréttum Jarðýtustjór- inn sem varð uppreisnar- mannaforingi + Hér má sjá jarðýtustjórann og uppreisnarmannaforingjann Jimmy Stevens á eyjunni Espirit Santo á Nýju Hebridiseyjum. Þær hlutu sjálfstæði fyrir skömmu, en ófriðarástand hefur ríkt þar, eins og kunnugt er af fréttum. Hefur Jimmy Stevens átt þar hlut að máli. — Myndin var tekin af honum við aðalbækistöð hans í frumskóginum á eyjunni. Yfir höfði Jimmys er haldið stóru pálmablaði. Stevens og liðsmenn hans hafa orðið fyrir nokkru manntjóni í átökunum við stjórn- völdin, sem sent hafa hálfgerðar herlögreglusveitir til eyjarinnar og hafa þær handtekið upp undir 300 menn úr sveitum Jimmys, undanfarnar vikur. Ekki hefur verið getið um beint manntjón í þessum átökum. Janis Ian + Ameríska söngkonan Janis Ian hefur um margt átt óvenjulegan feril. Þegar 15 ára gömul varð hún fræg fyrir lag sitt „Society ’s Child.“ En frægðin steig henni til höfuðs. Hún lagðist í eiturlyfjaneyzlu, eymd og volæði. Henni tókst þó að rífa sig upp úr soranum og 1973 söng hún inn á sína fyrstu plötu eftir fjögurra ára hlé. 1975 varð hún svo fræg fyrir alvöru. Síðan hefur líf hennar verið stanzlaus sigurganga. Sjálf segist hún nú vilja lifa eðlilegu fjölskyldulífi með maka sínum og börnum þó að söngvarnir og tónlistin skipti hana mestu. Hún sé reynslunni ríkari og hafi meiri sjálfsstjórn. Konur taka völdin + Þessi kona heitir Inge Fisher Möller og var kjörin varaformaður danska Sósíaldemókrataflokksins. Konurnar í flokknum segja, að með kosningu hennar hafi verið brotið blað í sögu flokksins. Tími kvenna sé kominn. Næsta skrefið í valdatökunni segja þær vera að koma Anker Jörgensen úr forsæt- isráðherrastólnum og setja konu að nafni Ritt Bjerregaard í hann. Og þær taka stórt upp í sig blessaðar, þegar þær segja: „Við konurnar viljum ekki bíða, því við getum nefnilega gert hlutina mun betur en karlmenn." Reagan elskar Litháa + í sérhverjum forsetakosningum sem fram fara í Bandaríkjun- um reyna frambjóðendur að höfða til ýmissa þjóðabrota er byggja þetta víðfeðma land. Hér sést hvar Ronald Reagan reynir að heilla fólk frá Eystrasaltsríkjunum með því að bregða skilti á loft þar sem stendur: Ég elska Litháa. Halldór Jóhannesson kominn á hliðina, en það hafði engin áhrif á kappann: Hann kom sigurvegari BÍLAKLÚBBUR Akureyrar stóð fyrir torfæruaksturs- keppni i malarnámi Akureyrar- bæjar nú um helgina. Steindór G. Steindórsson, blaðafulltrúi Bilaklúbbsins, sagði keppnina hina erfiðustu á islenzkan mæli- kvarða, útilokað væri annað en að vera með sérstakan útbúnað á bilunum. Keppnin tókst mjög vel, sagði Steindór, það var blíðskaparveð- ur. Keppendur vóru 7, og sigur- vegari Halldór H. Jóhannesson með 1235 stig, í öðru sæti Sigursteinn Þórsson með 1205 stig, og þriðji Guðmundur Gunn- arsson, allir frá Akureyri. Reyndar var aðeins einn kepp- andi frá Reykjavík, en bíllinn hans bilaði í giímunni við fyrstu þrautina. Steindór kvað öryggisreglur Bílaklúbbs Akureyrar strangar mjög, og kannski strangari en i mark. nauðsyn bæri tiL Hjálparsveit skáta hefði verið með sjúkrabíl og allan viðbúnað annan og slökkvitæki hefðu verið með- fram allri brautinni. — Það er mikill áhugi á bílaíþróttum hér fyrir norðan, sagði Steindór. Nei, ég get sagt þér, að samkvæmt umferðar- skýrslum hér á Akureyri, hefur vítavert gáleysi snarminnkað í umferðinni eftir að við hófum okkar starfsemi og skipulögðum sérstök mót fyrir bílaáhuga- menn. Og eftir þvl sem ég bezt veit, þá er sömu sögu að segja úr Reykjavík, eftir að t.d. Kvart- míluklúbburinn var stofnaður og fékk aðstöðu til æfinga. Séu félagsmenn Bílaklúbbs Akureyrar staðnir að vítaverðu gáleysi í umferðinni, þá eru þeir teknir á beinið, eins og þeir segja hér í Menntaskólanum, sagði Steindór ákveðinn. Ekki gekk þetta ... Hér er Kristinn ólafsson á Rússa-jeppa i fyrstu þrautinni. Ljósm Mbi. Ketill Helgason. Fór á hliðina - vann samt...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.