Morgunblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.09.1980, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980 Síminn á afgreiðslunni er 83033 |R«r0unbI(ibib Síminn á afgreiðslunni er 83033 }H«r0unbI«t>it> Hvalvertíð lokið: 437 hvalir veiddust HVALVERTÍÐINNI lauk á mánudaífskvöldið. Alls veidd- ust 437 hvalir á vertíðinni. sem stóð i 107 daga. Er það mjöK svipað o(í í fyrra en þá veiddust 440 hvalir vertíðin stóð þá í 106 daga. Skiptingin milli tegunda er sú, að veiðst hafa 236 langreyð- ar, 101 búrhvalur og 100 sand- reyðar. í fyrra veiddust 260 langreyðar, 96 búrhvalir og 84 sandreyðar. Að sögn Kristjáns Loftssonar framkvæmdarstjóra Hvals hf. var þetta 33. vertíð fyrirtækis- ins. Sagði Kristján að þetta teldist ágæt vertíð. Hann sagði að bræla hefði verið komin á miðunum og því hefði verið álitið rétt að stöðva veiðarnar nú. Einnig hefði það sitt að segja, að búið væri að fylla bæði búrhvals- og sandreyð- arkvótana. Kristján sagði að vel horfði með sölu á hvalafurð- um. Mjöl og lýsi fara aðallega til Evrópulanda en frystar hvalafurðir til Japans og á innanlandsmarkað. Arnarflug: Engin verkefni fyrir þoturnar LJÓST er nú. að ekkert verður af fyrirhuguðu pílagrímaflugi Arnarflugs fyrir Nígeríumenn, eins og til stóð. Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arnarflugs, sagði í samtali við Mbl., að innbyrðis deilur í Nígeríu gerðu það að verkum, að ekkert yrði af þessu flugi og væri þetta sama staðan og kom upp í fyrra þegar félagið missti af sams konar samningi. Hvernig er ástandið framundan í vetur? — „Eins og er, þá höfum við engin verkefni fyrir þoturnar okkar. Boeing-707 þotan hefur nýlokið sér af í Jórdaníu og hin Boeing-720 þotan lýkur sínu verk- efni hér heima um mánaðamóiin. Eftir það eru verkefnin með öllu óráðin, en það er enginn uppgjaf- artónn í okkur. Við vinnum stöð- ugt að því að afla félaginu verk- efna og vonum að það takist á næstunni, fremur. sagði Magnús enn- Magnús sagði einnig aðspurður, að ekki yrði gripið til neinna örþrifaráða eins og uppsagna al- veg á næstunni, það yrði kannað til hlítar hvort ekki væri hægt að finna ný verkefni. Astandið á alþjóðamarkaði væri að vísu slæmt, þ.e. gífurlegt framboð af vélum. Frá Evrópuleik ÍA og F.C. Köln. Enski landsliðsmiðherjinn Tony Woodcock i baráttu við leikmenn ÍA. Köln sigraði 4—0. Sjá íþróttir. Viðræður stjórnvalda í Luxemburg um Flugleiðir: Verður Boeing 747-þota lát- in leysa tvær DC-8 af hólmi? VIÐRÆÐUR milli stjórnvalda í Luxemburg og á íslandi hefjast i Luxemburg klukkan 14 i dag. Fundarefnið verða erfiðleikar Flugieiða og á hvern hátt rikis- stjómir landanna geti stutt við Flugleiðir, svo að Atlantshafsflug þeirra geti haldið áfram. svo sem verið hefur. Ríkisstjórn íslands Samningaviðræðurnar: Iðjufélögin sömdu um launaflokkaröðun SAMKOMULAG tókst í gær með Vinnuveitendasambandi tsiands og Landssambandi iðnverkafólks um röðun starfsheita i launaflokka, en i fyrradag tókst sams konar sam- komulag við Verkamannasamband tslands eins og fram kom í Morgun- blaðinu i gær. Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkveldi voru viðræður i gangi miili VSÍ og annarra landssambanda innan ASI, sem eftir er að ná samkomulagi við um röðun í launaflokka. Þau landssambönd, sem viðræður voru við í gærkveldi voru: Lands- samband íslenzkra verzlunarmanna, Landssamband vörubifreiðastjóra, Samband byggingamanna, Málm- og skipasmiðasamband Íslands og inn í viðræðurnar kom einnig starfsfólk í veitingahúsum. Atti að freista þess að Ijúka samningum við einhver af þessum samböndum. Þá voru undirnefndarfundir í kjaradeilu bókagerðarmanna og prentiðnaðarins í gær og ennfremur voru undirnefndarfundir í kjara- deilu Plugleiða og flugmannafélag- anna, Félags íslenzkra atvinnuflug- manna og Félags Loftleiðaflug- manna. samþykkti á fundi árdegis i gær tillögur ráðherranefndar, sem Steingrímur Hermannsson. sam- gönguráðherra mun leggja fyrir stjórnvöld i Luxemburg f dag. Með Steingrfmi verða á fundunum i Luxemburg, Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytis8tjóri, Birgir Guðjóns- son frá samgönguráðuneytinu. Henrik Sv. Björnsson ráðuneytis- stjóri og Þorsteinn Ingólfsson frá utanrikisráðuneytinu. Steingrímur Hermannsson sam- gönguráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þær tillögur, sem ríkisstjórnin samþykkti væri fyrst og fremst að hún vildi byggja áfram á íslenzku flugfélagi. Hann kvað nauðsynlegt að gera þriggja ára tilraun með áframhaldandi flug milli Bandaríkjanna og Luxemburg, óvarlegt væri að byggja á styttri tíma. Var samþykkt að veita bak- tryggingu fyrir rekstrartapi að upp- hæð 3 milljónir dollara á ári eða 1 'Æ milljarð króna, næstu 3 ár, sem er svipuð upphæð og tekjur eru áætl- aðar af þessu flugi. Að öðru leyti eru tillögurnar í samræmi við það, sem áður hefur verið skýrt frá í Morgun- blaðinu. Tilgangur fundanna í Lux- emburg er að athuga, hvaða aðstoð þarlend stjórnvöld geti látið í té. Jafnframt rekur ríkisstjórnin í til- lögum sínum, hvað nauðsynlegt sé að kanna, t.d. að efla starfsfrið innan fyrirtækisins milli stjórnar og starfsfólks. Hefur starfsfólk sýnt mikinn áhuga á að auka hlutdeild sína í félaginu og leggja fé af mörkum. Morgunblaðið spurði, hvort þetta gæti þýtt endurráðningu í stórum mæli. Ráðherra kvað það vera dæmi, sem eftir væri að reikna. „Nú eru þarna 3 DC-8-þotur, sumir vilja fara yfir í breiðþotu og telja það alveg nauðsynlegt og hallast nær allir, sem ég hef talað við, að Boeing-747, því að tían er ekki fragtflugvél, en 747 er hentug til fragtflugs ásamt farþegaflugi. Er það allra mat, sem ég hef talað við, að nokkur vandræði hafi verið því samfara að Flugleiðir misstu niður alla fragt síðustu tvö til þrjú árin. Þetta þýðir færri áhafnir, ef slík vél kemur inn fyrir kannski 2 DC-8. Hins vegar yrði allur meginþorrinn ráðinn og svo kemur leiguflug og Air Bahama, þar sem íslenzkir flugmenn munu ganga fyrir. Því er ég að gera mér vonir um að þetta geti orðið til þess, að um endurráðn- ingu geti orðið að ræða.“ Kostar 10 þús. krónur að slátra meðallambi? Líklegt að bráðabirgðaverð verði ákveðið á lambakjöti Fjárlagafrumvarpið: Niðurstöðutölurnar yfir 500 milljarðar RÍKISSTJÓRNIN hefur fjallað um fjárlagafrumvarpið cða „ramma að fjárlögum“, eins og einn stjórnarsinna sagði i sam- taii við Morgunblaðið í gær. Samþykkt rikisstjórnarinnar er án fyrirvara aðila stjórnarinn- ar. í frumvarpinu er mikill niður- skurður „miklu meiri en menn í raun vildu hafa á fjölmörgum liðum — en ekki verður á allt kosið". Niðurstöðutölur frum- varpsins hafa verið að breytast allt fram á síðasta dag, en þær eru þó rúmlega 500 milljarðar króna, en það er yfir 50% hækk- un miðað við síðustu fjárlög, sem samþykkt voru fyrir tæplega hálfu ári. REIKNAÐ er með að sláturkostn- aður hækki um 60% frá siðast- liðnu hausti. en þá var slátur- kostnaður á hvert kíló dilkakjöts 450 krónur. Fari svo verður sláturkostnaður 720 krónur á kíló i haust og kostnaður við slátrun meðallambs þvi í kringum 10 þúsund krónur. Um 50% þess- arar hækkunar eru vegna verð- breytinga siðustu 12 mánuðina, en til viðbótar er reiknað með leið- réttingu á grundvellinum sjálfum. Fundir voru tíðir í sexmanna- nefndinni í síðustu viku og í gær var á ný haldinn fundur í nefnd- inni. Að sögn Guðmundar Sigþórs- sonar er ekki ólíklegt, að bráða- birgðaverð verði ákveðið á lamba- kjöti á fundi nefndarinnar í dag, þar sem nýr verðgrundvöllur land- búnaðarafurða er enn ekki til- búinn. Fá bændur þá væntanlega 11% hækkun á lambakjöti eins og var ákveðið til bráðabirgða á nautakjöti á dögunum. Guðmundur var spurður hvort ágreiningur væri í sexmannanefnd- inni um verðgrundvöllinn eða hvort beðið væri aðgerða ríkisstjórnar- innar. Sagði hann, að verið væri að ræða við ríkisstjórnina um verð- grundvöllinn eins og hann gæti orðið. Nefnd þriggja ráðherra væri með þessi mál til athugunar og því starfi væri ekki lokið. Aðspurður um hvort auknar niðurgreiðslur væru til umræðu sagði hann, að það væri mál ríkisstjórnarinnar. Göngur I.jósm. Sík. SiKm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.