Morgunblaðið - 02.10.1980, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
^>Dale .
Carnegie
námskeiöiö
Viltu óressa
UPr-' *
hjónabandiö?
GRAM
FRYSTIKISTUR
FYRSTA FLOKKS FRÁ
FÖNIX
HÁTÚNI 6A,SÍMI 24420
SPECK
Lensi-, slor-, skolp-,
sjó-, vatns- og
holræsa-dælur.
Útvegum einnig dælu-
sett meö raf-, Bensín-
og Diesel vélum.
^ðtuxrOauuisKUKr
Vesturgötu 16,
simi 13280
Fimmtudagsleikritið kl. 21.30:
Hnökrar á
hjónabandinu
Á dagskrá hljóðvarps kl.
21.30 er leikritið „Þú vilt
skilnað“ (Du vill alltsá
skiljas) eftir Lars Helges-
son. Þýðinguna gerði Jakob
S. Jónsson, en leikstjóri er
Guðmundur Magnússon.
Með hlutverkin þrjú fara
Þóra Friðriksdóttir, Róbert
Arnfinnsson og Guðbjörg
Þorbjarnardóttir. Flutn-
ingur leiksins tekur rúmar
40 mínútur. Tæknimaður:
Ástvaldur Kristinsson.
/
Guðmundur Magnússon er leik-
stjóri fimmtudavslcikritsins.
Hjónaband Ullu og Urb-
ans er orðið meira en lítið
hnökrótt, án þess að nokk-
ur ein ástæða sé sjáanleg
fyrir því. Ester, móðir Ullu,
sem er helsti ráðgjafi henn-
ar, telur að hægt sé að
bjarga við sambúðinni ef
rétt sé að farið. Dóttir
hennar eigi kannski ekki
síður sökina en tengdason-
urinn.
Lars Helgesson er Svíi,
fæddur árið 1921. Fyrsta
útvarpsleikrit hans var
„Hringir á vatni“ (flutt
1951), en síðan hefur hann
skrifað milli 20 og 30 út-
varpsleikrit. Hann hefur
auk þess skrifað leikrit
fyrir svið og sjónvarp.
Gagnrýnin lýsing á samfé-
laginu og siðræn átök inn-
an þess er eitt helsta við-
fangsefni hans. Örlög ein-
staklingsins hljóta að skoð-
ast í ljósi heildarinnar. Á
annan veg verða þau ekki
skilin.
Utvarpið hefur áður flutt
tvö leikrit Helgessons,
„Læstar dyr“ 1964 og
„Mynd í albúmi" 1965.
Verslun og viðskipti kl. 11.00:
Ingvl Hrafn Jónsson Hjörtur Hjartarson
Hús verslunarinnar
Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.00 er þátturinn Verslun og viðskipti í
umsjá Ingva Hrafns Jónssonar.
— Ég fæ til mín í þáttinn Hjört Hjartarson, stjórnarformann
byggingarnefndar Húss verslunarinnar, sagði Ingvi Hrafn. — Húsið
er nú uppsteypt og munum við Hjörtur spjalla saman um
aðdraganda að byggingu þessa húss og um þá starfsemi sem þar á að
fara fram þegar húsið verður fullgert.
Tónhornið kl. 17.20:
Gítar-jass
Á dagskrá hljóðvarps kl. 17.20 er þátturinn Tónhornið í umsjá
Sverris Gauta Diego. — Ég hef byggt þessa þætti mína í kringum
gítarinn, sagði Sverrir Gauti, og kynnt möguleika þessa hljóðfæris í
klassískri tónlist, flamingotónlist og þjóðlagatónlist. Og nú er
ætlunin að rekja nokkuð þá þróun sem átt hefur sér stað í notkun
gítars í jass-tónlist. Ekkert hljóðfæri er til jafn víða á heimilum og
gítarinn og á ekkert hljóðfæri læra fleiri. Mér fannst því rík ástæða
til að kynna fólki sem flesta af þeim möguleikum sem hljóðfærið
býður upp á.
Útvarp Reykjavfk
FIMHTUDbGUR
2. október
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar.
Þulur velur og kynnir.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund harnanna:
„Krókur handa Kötlu“ eftir
Ruth Park. Björg Árnadótt-
ir les þýðingu sína (7).
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Islenzk tónlist.
Jórunn Viðar leikur á pianó
eigin hugleiðingar um Fimm
gamlar stemmur/ Hljóm-
sveit Ríkisútvarpsins leikur
Svítu eftir Helga Pálsson;
Hans Antolisch stj.
11.00 Verzlun og viðskipti.
Umsjón Ingvi Ilrafn Jóns-
son.
11.15 Morguntónleikar.
Fílharmoníusveitin i Vin
leikur „Hamlet“, fantasiu-
forleik op. 67 eftir Pjotr
Tsjaíkovský; Lorin Maazcl
stj./ Mirella Freni og Nicolai
Gedda syngja dúetta og arí-
ur úr óperum eftir Bellini og
Donizetti með Nýju fílharm-
oniusveitinni í Lundúnn"’ —
Hljómsvoi* ” ——
_ , vll Kómaróperunn-
ar; Edward Downes og Fran-
cesco Molinari-Pradelli stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa.
Léttklassisk tónlist, dans- og
dægurlög og lög leikin á
ýmis hljóðfæri.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan:
„Hvíti uxinn“ eftir Voltaire.
Gissur Ó. Erlingsson les þýð-
ingu sina (2).
15.00 Popp.
Páll Pálsson kynnir.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðuríregnir.
16.20 Siðdegistónleikar.
Georges Barboteu, Michel
Berges, Daniel Dubar og
Gilbert Coursier leika á horn
með Kammersveit Karls
Ristenparts Konsertþátt í F-
dúr fyrir fjögur horn og
hljómsveit op. 86 eftir Ro-
bert Schumann/ Gáchinger-
kórinn syngur Sigenaljóð op.
103 eftir Johannes Brahms
við píanóundirleik Martins
Gallings; Helmuth Rilling
stj./ Sinfóníuhljómsveitin i
Dallas leikur „Algleymi“,
sinfóniskt ljóð op. 54 eftir
Alexander Skrjabin; Donald
Johanos stj.
17.20 Tónhornið.
Sverrir Gauti Diego stjórnar
þættinum.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19,35 Daglegt mál.
Þórhallur Guttormsson
SKJÁNUM
FÖSTUDAGUR
3. október
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá
20.40 Á döfinni
Stutt kynning á þvi, sem er
á döfinni i landinu i lista-
og útgáfustarfsemi, og
verður þátturinn vikulega
á sama tima.
Getið verður um nýjar bæk-
ur, sýningar. tónleika og
fleira.
fi—*'
. ..mjonarmaður Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.50 Prúðu leikararnir
Gestur í þessum þætti er
gamanleikarinn Jonathan
Winters.
Þýðandi Þrándur Thor-
oddsen.
21.15 Ný sænsk fréttamynd
um kosningabaráttuna i
Vestur-Þýskalandi.
22.10 Svona margar (Stand
Up and Be Counted)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1972.
Aðalhlutverk Jacqueiine
Bisset og Stella Stevens.
Ungri blaðakonu er íalið
að skrifa um jafnré**8-*
átti. v— ,..»soar-
„,rnna og fer heim til
fa’ðingarbæjar síns í efnis-
leit. Hún kemst að því sér
til undrunar. að móðir
hennar og yngri systir
taka háðar virkan þátt í
haráttunni.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
23.35 Dagskrárlok
cand. mag. flytur þáttinn.
19.40 Sumarvaka
a. Einsöngur:
Snæbjörg Snæbjarnardóttir
syngur íslenzk lög. Ólafur
Vignir Albertsson leikur á
pianó.
b. „Þegar ég var felldur í
hegðun“
Þórarinn Þórarinsson fyrr-
um skólastjóri á Eiðum flyt-
ur minningarþátt úr gagn-
fræðaskóla.
c. Með einum hug.
Ljóð og ljóðaþýðingar eftir
Ilalldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli. Sigrún Gissurar-
dóttir les á sjötugsafmæli
höfundar.
d. „Vinur minn, Mósi“
Torfi Þorsteinsson bóndi í
Haga í Hornarfirði flytur
frásöguþátt.
21.10 Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur i útvarpssal
Flautukonsert eftir Carl Ni-
elsen. Stjórnandi: Páll P.
Pálsson. Einleikari: Jona-
than Bager.
21.30 Leikrit: „Þú vilt skilnað“
eftir Lars Helgeson.
Þýðandi: Jakob S. Jónsson.
Leikstjóri: Guðmundur
Magnússon.
Persónur og leikendur:
Ulla, Þóra Friðriksdóttir/
Urban, Robert Arnfinnsson/
itinÁir TJ11 ■ i
***" —, Muonjörg
ujarnardóttir.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Á frumbýlingsárum.
Jón R. Hjálmarsson fræðslu-
stjóri talar við Ástu Viðars-
dóttur og Guðna Guðlaugs-
son, ábúendur á Borg i
Þykkvabæ.
23.00 Áfangar.
Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
A arnflrtuinn
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.