Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980 Þessi mynd sýnir framkvæmdirnar við Hafnarfjarðarveginn, við Hraunholtslæk, á miili Vífilsstaða- ve>;ar og Lyngáss. Ljósm. Mbl. Fríða Proppé. Lagfæring Hafnarfjarðarvegar í gegnum Garðabæ miðar vel FRAMKVÆMDUM við lagfær- ingu og breikkun Hafnarfjarð- arvegar og breyting á legu Vífilsstaðavegar í Garðabæ mið- ar vel. Einnig er eystri hliðar- brautin yfir Arnarneshæðina senn fuilgerð og mun öli um- ferð á Hafnarfjarðarvegi til Kópavogs fara eftir þessari hliðarbraut á meðan fram- kvæmdir standa yfir við sjálfan aðalveginn, en hann verður tvær tvöfaldar akreinar og verður sprengt nokkuð niður i hæðina fyrir þeim og síðar mun Arnarnesvegur fara yfir Ilafn- arfjarðarveginn á brú, líkt og Digranesvegur í Kópavogi. Þá verður hluti Sjávarbrautar, neðan Silfurtúns, lagður og hún tengd til bráðabirgða Hafnar- fjarðarvegi við Vífilsstaðaveg. Mun umferð á leið til Hafnar- fjarðar síðan nota þennan veg, en umferð í norðurátt fara eftir gamla Hafnarfjarðarveginum, neðan Silfurtúns. Vífilsstaðavegur við Sveina- tungu breytir aðeins um legu, þannig að hann komist síðar að Arnarnesvogi með gatnamótum við Hafnarfjarðarveg. Við gatnamótin verður komið fyrir umferðarljósum. Á milli Vífils- staðavegar og Lyngáss er unnið að margvíslegum lagfæringum. Verið er að endurbyggja brúna yfir Hraunsholtslæk og verður hún breikkuð. Biðskýlið við Ás- garð hefur verið fært úr stað til þess að svigrúm verði fyrir nauðsynleg gatnamótamann- virki vegna tengingar Vífils- staðavegar og Hafnarfjarðar- vegar. Núverandi staðsetning biðskýlisins er þó aðeins til bráðabirgða, því reiknað er með nýju skýli á svæðinu síðar. Framkvæmdir þessar munu taka nokkra mánuði. Reiknað er með af hálfu bæjaryfirvalda í Garðabæ að þessar framkvæmd- ir verði til að bæta til muna umferðaröryggi í bænum. Þó leggur bæjarstjórn Garðabæjar mikla og þunga áherslu á, að Reykjanesbraut verði lögð milli Breiðholts og Keflavíkurvegar hið fyrsta og að tilmælum bæj- arstjórna Garðabæjar og Hafn- arfjarðar fluttu allir þingmenn Reykjaneskjördæmis þings- ályktunartillögu á sl. vori um fjárveitingu til verkfræðilegs undirbúnings við þennan hluta á árinu 1980, með það fyrir augum, að við endurskoðun vegaáætlun- ar fyrir árið 1981 fáist fjármagn til framkvæmda við brautina. Biðskýlið við Ásgarð hefur verið flutt um set og má sjá hér framkvæmdir við væntanleg gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar. Verzlunarráðið: Rekstur fríhafnarinnar boðinn út Framkvæmdastjórn Verzlun- arráðs íslands hefur hvatt til þess að rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli verði boðinn út. Kemur þetta fram í ályktun framkvæmdastjórnar Verzlun- arráðsins, sem Morgunblaðinu hefur horizt og er svohlj<)ðandi: „Framkvæmdastjórn Verzlun- arráðs íslands fagnar framkomn- um hugmyndum um útboð á rekstri verzlunar í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli, Skorar fram- kvæmdastjórnin á ríkisstjórnina að framkvæma þá hugmynd og bendir í þessu sambandi á góða reynslu danskra yfirvalda varð- andi útboð á rekstri fríhafnarinn- ar í Kastrup. Ennfremur má benda á reynslu Reykjavíkurborg- ar af rekstri biðskýlis Strætis- vagna Reykjavíkur við Hlemm, þar sem rekstur verzlana í skýlinu er boðinn út til einstaklinga. Áhættusamur verzlunarrekstur sem þessi er ekki nauðsynlegt viðfangsefni opinberra aðila, og því er sjálfsagt, að bjóða þessa aðstöðu út til einkaaðila. Vöruskiptajöfnuðurinn janúar — ágúst: __ Ohagstæður um rúmlega 32,5 milljarða króna Vöruskiptajöfnuður lands- manna var óhagstæður um rúm- lega 32,5 milljarða króna á tíma- bilinu janúar til ágúst sl„ en var hagstæður um 129 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Vöruskiptajöfnuðurinn var hins vegar hagstæður um rúmlega 3,9 milljarða króna í ágústmánuði sl., en var hagstæður um tæplega 1,1 milljarð á sama tíma í fyrra. Útflutningur landsmanna nam alls á fyrstu átta mánuðum ársins tæplega 269 milljörðum króna, en innflutningurinn var hins vegar að verðmæti um 301,4 milljarðar króna. Á sama tíma í fyrra var verðmæti útflutnings alls tæplega 166 milljarðar króna, en verðmæti innflutnings um 165,5 milljarðar króna. Á1 og álmelmi var stærsti ein- staki hluti útflutningsins fyrstu átta mánuði ársins, eða að verð- mæti liðlega 36 milljarðar króna. Þá var flutt út járnblendi fyrir tæplega 20,5 milljarða króna. Við samanburð á utanríkis- viðskiptatölum í ár og í fyrra verður að hafa í huga, að meðal- gengi erlends gjaldeyris í janúar til ágúst í ár er talið vera 34% hærra en það var sömu mánuði í fyrra. Séð yfir ölfusréttir i gær. Fjær má sjá rætur Núpafjalls og bæinn Núpa I ölfusi. Ljóttm: S.P. Heilsugæslustöð í Borgarspítalanum að komast í gagnið Opnar 1. nóvember FJÓRÐA heilsugæslustöðin sem opnuð verður í Reykjavik, mun hefja starfsemi sina þann 1. nóvember nk„ og er hún i þjón- ustuálmu Borgarspitalans. Arið 1975 var gerð i Reykjavik áætlun um uppbyggingu heilsugæslu- stöðva og fyrsta heilsugæslu- stöðin hóf starfsemi sína árið eftir, en sú stöð er i Árbæjar- hverfi. Þá var reist stöð í Domus Medica og loks í Breiðholti III. „Þegar farið var að útfæra hönnun á G-álmu Borgarspítalans þá kom það upp að heppilegt væri að starfrækja þar heilsugæslustöð í samvinnu við aðra starfsemi Borgarspítalans," sagði Páll Gíslason borgarfulltrúi í samtali við Morgunblaðið. „í stöðinni er aðstaða fyrir fjóra lækna, en sérfræðingsaðstoð og þ.h. verður sótt til lækna Borgarspítalans og sparar sú tilhögun mikið hús- næði,“ sagði Páll. „Heilsugæslust- öðin mun þjóna svæði sem af- markast af Kringlumýrarbraut að vestan, Miklubraut að norðan, Grensásvegi og Hæðargarði, Bústaðavegi og Oslandi. Að sunn- an afmarkast svæðið af landa- merkjum Reykjavíkur og Kópa- vogs. Á þessu svæði búa nú um 6600 manns, en reiknað er með að fjöldinn fari yfir 8000 þegar byggt hefur verið það sem búið er að samþykkja. Þá er hugsanlegt að stærra svæði verði tekið inn í þetta og verður það endurskoðað þann 1. nóvember 1981,“ sagði Páll. I þessari nýju stöð er áætlað að verði ýmisskonar þjónusta á boðstólum, sérstaklega þó heimil- islækningar. Þar að auki mun starfslið stöðvarinnar og barna- deildar Heilsuverndarstöðvarinn- ar annast ungbarnaeftirlit, en mæðravernd verður áfram í Heilsuverndarstöðinni, eins og er í dag, samkvæmt upplýsingum Páls Gíslasonar. Að lokum gat Páll þess að nú væri í undirbúningi bygging heilsugæslustöðvar í Mjóddinni í Breiðholti og að verið væri að byggja stöð á Seltjarnar- nesi sem myndi hugsanlega þjóna hluta Vesturbæjarins, takist samningar milli borgarinnar og Seltirninga. Styrkur til háskólanáms í Noregi Úr Minningarsjóði Olavs Brun- borg verður veittur styrkur að upphæð fimm þúsund norskar krónur á næsta ári. Tilgangur sjóðsins er að styrkja íslenzka stúdenta og kandídata til háskólanáms í Noregi. (Sam- kvæmt skipulagsskrá sjóðsins er styrkurinn aðeins veittur karl- mönnum.) Umsóknir um styrkinn, ásamt upplýsingum um nám og fjárhags- ástæður, sendist skrifstofu Há- skóla íslands fyrir 15. nóvember 1980. (Frétt frá Háskóla Islands.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.