Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980 7 Fallandi stjarna Um árabil hafa áhrifa- menn í Alþýöubandalag- inu talift, aö Hjörleifur Guttormsson væri hinn verðandi leiötogi flokks- ins. Hann haföi veriö krónprins Lúövíks á Austfjörðum um langt skeiö áöur en hann erfði þingsætiö. Mikið var látið af skipulagshæfileikum hans og menntun, sem hann hlaut í A-Þýzka- landi. Hann var umsvifa- laust settur í ráöherra- stól, þegar hann hafði verið kjörinn á þing. Um leið og hann tók við ráöherraembætti fór ár- óöursvél sósíalista í gang til þess aö upphefja hinn nýja leiðtoga. Mjög var um það rætt, hvílíkur vinnuþjarkur ráöherrann nýi væri, enn voru skipu- lagsgáfur hans rómaðar, bent var á, að Ijós logaði á skrifstofu hans langt fram á kvöld. Ráðherrann var að sögn sívinnandi. Hann skipaði nefndir og starfshópa, fékk I sína þjónustu sérfræðinga, sem yfirleitt voru með því marki brenndir að vera flokksbræður ráðherr- ans. Mikla aðdáun vakti meðal fylgismanna hans, hvað möppum var snyrti- lega raðað í hillur bak við skrifborð ráðherrans. Hjörleifur Guttormsson var hin nýja stjarna Al- þýðubandalagsins, leiö- togaefni, sem haföi allt til að bera, menntun frá A-Þýzkalandi, skipulags- hæfileika, sem eru í há- vegum hafðir í kommún- istaflokkum og fræðilega þekkingu á sósíalisma. Allt sl. ár var ekki síður talað um Hjörleif Gutt- ormsson, sem veröandi formann Alþýðubanda- lagsins en félaga hans ( forystu flokksins. En nú er öldin önnur. Hjörleifur Guttormsson er fallandi stjarna í Alþýðubanda- laginu. Flokksbræöur hans eru ófeimnir við að lýsa þeim vonbrigðum, sem þeir hafa orðiö fyrir með iðnaöarráöherrann. Hann er ekki lengur til umræðu, sem formanns- efni og sumir Alþýðu- bandalagsmenn ganga svo langt að draga í efa, að hann veröi í framboði í næstu þingkosningum. Verklaus ráöherra Helzta gagnrýnin á Hjörleif Guttormsson inn- an Alþýöubandalagsins er sú, að nú hafi hann setiö ( ráðherrastól í bráðum tvö ár og ekkert hafi gerzt. Að vísu hafa verið skipaðir starfshóp- ar og nefndir, sérfræð- ingar hafa verið ráönir til starfa, álitsgerðir og skýrslur hafa verið lagðar fram. Skrifborð ráðherr- ans er hreint og möppun- Hjörfeifur Guttormsson — fallandi stjarna um er vel raöað ( hillur. En þetta er allt og sumt. Svo gerist ekki meir. í iönaðarráöherratíð Hjör- leifs Guttormssonar hef- ur ekkert gerzt, sem máli skiptir. Hann hefur ekki haft frumkvæöi um nokkrar þær nýjungar í málefnum iðnaöarins, sem sköpum skipta og í orkumálum hefur hann verið aögeröarlaus. Enn er verið að byggja virkj- anir á íslandi, sem ákvaröanir voru teknar um í tíð Viðreisnarstjórn- arinnar. Síðan hefur ekk- ert gerzt í virkjunarmál- um nema bygging Kröflu, sem Magnús Kjartansson beitti sér fyrir og Gunnar Thoroddsen fylgdi eftir. Hjörleifur Guttormsson hefur ekki einu sinni byggt Kröflu. Hann hefur ekki gert nokkurn skap- aðan hlut í virkjunarmál- um. Nú stendur hann frammi fyrir þv( að Aust- firðingar vilja Fljótsdals- virkjun með stóriðju og hafa engar athugsemdir við það, þótt sú stóriðja verði í samvinnu við út- lendinga. Ætlar ráöherr- ann að ganga gegn stefnu kjósenda sinna í þeim efnum? Þeta eru meginástæðurnar fyrir þvi, að iðnaðarráðherr- ann liggur nú undir vax- andi gagnrýni í eigin flokki. Hann þykir verklít- ill og jafnvel verklaus ráðherra. Landsfundur Alþýðubandalagsins er framundan. Þar hefur verið gengið út frá því, sem vísu, að Lúövik Jós- epsson mundi láta af formennsku. Vist er, aö Hjörleifur Guttormsson er ekki lengur í hópi þeirra, sem nefndir eru eftirmenn Lúövíks. En raunar standa aðrir ráð- herrar Alþýðubandalags- ins höllum fæti líka. Flokksmenn telja Ragnar Arnalds íhaldssaman fjármálaráðherra, sem hafi ekki starfaö sem sósíalisti í embætti fjár- málaráðherra. Svavar Gestsson er sá ráðherra Alþýðubandalagsins, sem mestrar hylli hefur notið innan flokksins. En vinsældir hans fara nú mjög dvínandi. Undan- farna mánuöi hefur einna helzt verið talað um Svavar sem eftirmann Lúðvíks en um þaö er engin eining innan Al- þýðubandalagsins. Marg- ir eru þeirrar skoðunar, að niðurstaðan verði sú, að Lúðvík haldi áfram sem formaður en aðrir spyrja, hvort ef til vill sé svo komiö fyrir Alþýðu- bandalaginu, aö Olafur Ragnar verði kjörinn formaöurl Talið er að a.m.k. einn áhrifamaður í Alþýðubandalaginu sé þeirrar skoðunar — Ólaf- ur Ragnar sjálfur. Nýr ævintýraheimur i fyrir böm á aldrinum 3-7 ára 328 LEGO er nýtt leikfang á hverjum degi Þýskunámskeið Germaníu Námskeiöin eru bæði fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir. Innritun veröur í 6. kennslustofu Háskólans mánudaginn 6. október kl. 20—21. Þar veröa allar nánari upplýsingar gefnar um námstíma og kennslu- tilhögun. Stjórn Germaníu. NEW YORK í REYKJA VÍK Lærið vélrituvil Ný námskeiö hefjast mánudaginn 6. október. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heima- vinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13. Vélritimarskólinn Suöurlandsbraut 20 Tískusýning aö Hótel Loftleiðum á morgun föstudag kl. 12.30—13.00 Þaö nýjasta á hverjum tíma af hinum glæsilega íslenska ullar- og skinnafatnaöi ásamt fögrum skart- gripum veröur kynnt í Blómasal á vegum íslensks heimilisiönaöar og Rammageröarinnar. Modelsamtökin aýna. Víkingaskipiö vinsæla bíöur ykkur hlaöið gómsætum réttum kalda borösins auk úrvals heitra rétta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.