Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980 37 yÍKINGASALUR EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU Hagkvæmara að leita samninga um verkið en að bjóða það út — segir Landsvirkjun um viðbótarsamninga við Hraunvirki um framkvæmdir við Ilrauneyjafoss LANDSVIRKJUN hefur nýlega. án undangengins útboðs, samið við Hraunvirki hf. um gröft frárennslisskurðar Hrauneyja- fossvirkjunar, og við Fossvirki hf. um að steypa yfirfallsþrösk- uld skurðarins. en báðum þessum verkefnum á að vera lokið á næsta ári. að þvi er Halldór Jónatansson aðstoðarfram- kvæmdastjóri Landsvirkjunar tjáði Morgunblaðinu i gær. í greinargerð um málið. sem Halldór sendi Morgunblaðinu, segir svo: Samningurinn við Hraunvirki um frárennslisskurðinn er í formi viðbótar við verksamning Lands- virkjunar og Hraunvirkis um gerð jarðstíflu og aðrennslisskurðar virkjunarinnar, en sá samningur var gerður í desember 1979 að undanfengnu útboði. Er í þeim samningi eins og hliðstaeðum verksamningum gert ráð fyrir því að verkkaupa, í þessu tilviki Landsvirkjun, sé innan handar að fela verktaka viðbótarverk eins og hér er um að ræða. Viðbótarverk Hraunvirkis hækkar fjárhæð upprunalega verksamningsins um 1,318 m. kr. eða úr 5,796 m.kr í 7,114 m.kr. miðað við verðlag í júlí sl., sem er tæplega 23% hækkun. Að sjálfsögðu kom til álita að bjóða þennan verkþátt út, en niðurstaðan varð sú að af ýmsum ástæðum gæti verið hagkvæmara fyrir Landsvirkjun að leita samn- inga um verkið við verktaka á staðnum og þá við helsta jarð- vinnuverktakann þar, sem er Hraunvirki hf. í samræmi við samþykkt stjórnar Landsvirkjun- ar hafa því undanfarið átt sér stað viðræður við Hraunvirki um frá- rennslisskurðinn. Hafa viðræður þessar leitt tii samnings þess, sem nú hefur verið gerður, og er samningsgerðin í samræmi við tillögur ráðunauta Landsvirkjun- ar. Henni fylgja ýmsir kostir fyrir Landsvirkjun. Má þar fyrst nefna, að Landsvirkjun fær í verkið verktaka með mikla reynslu í jarðvegsvinnu og sem hefur staðið sig vel við gerð stíflumannvirkja og aðrennslisskurðar virkjunar- innar og hefur á að skipa öllum nauðsynlegum vélabúnaði. Véla- búnaðurinn er auk þess að veru- legu leyti í eigu Landsvirkjunar, en í leigu hjá verktakanum sam- kvæmt upprunalega verksamn- ingnum. Er þannig gert ráð fyrir, að Landsvirkjun fái tekjur af tækjaleigunni að fjárhæð um 100 m.kr., sem ekki hefði komið til, ef umræddur viðbótarsamningur hefði ekki verið gerður. í annan stað er með þessu móti unnt að vinna við frárennslisskurðinn í vetur, eftir því sem veður leyfir og nýta þannig tækin á þeim tíma, sem þeirra er ekki þörf við stíflugerðina. Þá var einnig höfð í huga hagkvæmni þess að fjölga ekki verktökum á virkjunarstað umfram það, sem nú er orðið, en slíkt hefði krafist aukins húsa- kosts, mötuneytis og annarrar viðbótaraðstöðu með verulegum aukakostnaði fyrir Landsvirkjun. Landsvirkjun telur því að hér sé um hagkvæma ráðstöfun að ræða og að samningsupphæðin sé eðli- ieg, enda byggð upp á hliðstæðum einingarverðum og í upprunalega samningnum og álíka há og áætl- un ráðunauta Landsvirkjunar. Samningurinn, sem nú hefur verið gerður við Fossvirki um yfirfallsþröskuld í frárennslis- skurðinum, er í formi viðbótar við verksamning Landsvirkjunar og Fossvirkis um steypuframleiðslu og byggingu stöðvarhúss Hraun- eyjafossvirkjunar frá í desember 1979. Viðbótarverk Fossvirkis hækkar upprunalega verksamn- inginn um 214 m.kr. eða úr 7,705 m.kr. í 7,919 m.kr. miðað við verðlag í júlí sl., sem er 2,8% hækkun. Viðbótarsamningurinn við Fossvirki var gerður að undan- gengnu lokuðu útboði, sem tók til Fossvirkis og Vatnsvirkis, þar sem Fossvirki reyndist lægstbjóðandi. Var talið rétt að takmarka útboð þetta við þá verktaka á virkjunar- staðnum, sem vinna þar við steypumannvirkjagerð, enda eins og áður segir ekki talið hagkvæmt að fjölga verktökum á byggingar- stað frá því, sem orðið er. I þessu sambandi má geta þess, að í byggingarvinnunni við Hraun- eyjafoss eru nú þrír stórir inn- lendir verktakar, en í fyrri virkj- unarframkvæmdum Landsvirkj- unar við Búrfell og Sigöldu var byggingarvinnan í höndum eins verktaka. Var um að ræða sam- steypu norrænna verktaka við Búrfell og júgóslavneskan verk- taka við Sigöldu. Við útboð bygg- ingarvinnunnar við Hrauneyja- fossvirkjun hefur Landsvirkjun hins vegar með ýmsu móti kapp- kostað að gera innlendum verk- tökum kleift að takast þá vinnu á hendur í sem ríkustum mæli. Var því markmiði náð með því að skipta verkinu í nokkra megin- þætti og bjóða þá sjálfstætt út. Var þá jafnframt gert ráð fyrir því sem áður, að Landsvirkjun væri innan handar að veita verk- tökum á staðnum viðbótarverk, eftir því sem hagkvæmt gæti talist og þörf væri á eins og á við um hina tvo nýgerðu samninga við Hraunvirki og Fossvirki. Finnskur matseðill. Hin fræga jasshljómsveit DOWNTOWN DIXIE TIGERS leikur. Tískusýning á hverju kvöldi, sýndur verður fatnaður frá Finnwear. Kvikmynda- og litskyggnusýningar daglega. Borðpantanir í símum 22-3-21 og 22-3-22. Verið velkomin á Finnlandsfagnað. HÓTEL LOFTLEIÐIR > 1 j íSr* i ■ h FATAMARKAÐUR í FJalakettinum Aðalstræti 8, R. byrjar í dag. Stendur aðeins yfir í eina viku. Peysur — Skyrtur — Jakkar — Bolir o.fl. á haustsölunni í Fjalakettinum, Aöalstræti 8, R. Ótrúlegt úrval af góöum vörum á góöu veröi. Opiö frá 9—6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.