Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980 23
íranir ábyrgjast sigl-
ingar um Hormuz-sund
(AP —símamynd).
Á myndinni er verið aA setja lík þeirra manna i kistur, sem létu lífið i
sprensinKunni á bjórhátíðinni i Miinchen i fyrri viku. Þrettánda
fórnarlamb hryðjuverkamannanna lést í en talið er að allt að 123
hafi slasast.
Nýnasistar bendlaðir
við stjórnvöld i Libýu
Mtlnchen. 1. okt. — AP.
Nikósíu. 1. okt. AP.
ÍRÖNSK yfirvöld lýstu því yfir í
daK. að þau ætluðu að sjá til þess
að siglinKaleiðinni um ilormuz-
sund yrði haldið upinni en um
Persaflóa fara um 60% þeirrar
oliu. sem notuð er á Vesturlöndum.
íranir halda enn uppi loftárásum á
Iiagdad og svo virðist sem framrás
íraka i tran hafi verið stöðvuð.
í yfirlýsingu íranskra stjórn-
valda, sem sagt var frá í Teheran-
útvarpinu, sagði, að síðustu daga
hefðu nokkrar ríkisstjórnir verið að
Bonn. 1. október. — AP.
HELMUT Schmidt kanslari i
Vestur-Þýskalandi þykir liklegur
til að vinna kosningarnar sem fram
fara i Þýskalandi nk. sunnudag.
Flestar skoðanakannanir sýna
fram á það að flokkur Schmidts,
Jafnaðarmannaflokkurinn, og aðr-
ir frjálslyndir flokkar muni bera
sigurorð af flokki Josefs Strauss,
Kristilega demókrataflokknum.
Kosningabaráttan er nú senn á
enda en síðustu vikurnar hefur hún
einkennst mjög af persónulegum
deilum Schmidts og Strauss. Allur
hugleiða afskipti af stríðinu undir
því yfirskini, að siglingar um Persa-
flóa væru í hættu. „Ríkisstjórn
írans vill þess vegna fullvissa allar
þjóðir um að hún mun tryggja
óhindraðar siglingar um Hormuz-
sund,“ sagði í yfirlýsingunni.
íranir virðast veita Irökum harða
mótspyrnu á öllum vígstöðvum og
svo er að sjá sem þeir haldi enn
þeim borgum sem mest hefur verið
barist um. Abadan og Khorram-
shahr eru enn á valdi íranskra
byltingarvarða og sömuleiðis borg-
skoðanaágreiningur hefur horfið
fyrir óvirðulegum nafngiftum og
öðru slíku. Tímaritið Der Spiegel
birti nýlega grein um kosningabar-
áttuna og sagði þar m.a.: „I stað
málefnalegrar umræðu hafa þeir
boðið kjósendum upp á óvirðulegt
skítkast. Kjósendur hafa litið undan
með viðbjóði."
Eitt af þeim málum sem dregin
hafa verið inn í kosningabaráttuna
eru sprengingarnar á októberhátíð-
inni 26. september sl. Strauss hefur
haldið því fram að um megi kenna
því hversu stjórn Schmidts hefur
tekið vægt á hryðjuverkamönnum.
irnar Ahwaz og Dezful. Talið er að
fyrir Irökum vaki að ná þessum
borgum á sitt vald og koma þar á fót
stjórn sem skipuð yrði írönskum
aröbum sem eru fjölmennir á þess-
um slóðum.
Iranir voru allsráðandi í lofti í
gær og réðust á kjarnorkurann-
sóknastöð og raforkuver í Bagdad og
á olíumannvirki í borgunum Kirkuk,
Mosul og Irbil. írakar segjast hafa
skotið niður níu íranskar flugvélar í
gær.
í Teheran-útvarpinu var í dag
lesinn boðskapur Khomeinis þar
sem hann sagði, að íranir „myndu
aldrei semja“ og ekki hætta bardög-
um fyrr en Írakar hefðu verið
hraktir á brott. Leonid Brezhnev,
forseti Sovétríkjanna, hefur hvatt
stríðsaðila til að setjast að samn-
ingaborði og Edmund S. Muskie,
innanríkisráðherra Bandaríkjanna,
átti fund með utanríkisráðherra
íraka og hvatti hann til að átökum
yrði hætt án allra skilyrða. Frakkar
hafa einnig borið fram svipaða
áskorun. í Tókýó sagði sendiherra
íraka, að írakar myndu draga her
sinn til baka frá öllum svæðum
nema þeim, sem þeir gerðu tilkall
til, ef um vopnahlé yrði samið.
Karpov er
enn efstur
TilburK. 1. okt. — AP.
ÞEGAR aðeins ein umferð er eítir
á Interpolis-skákmótinu i Tilburg
í Hollandi er Anatoly Karpuv enn
efstur. í tíundu umferð, sem tefld
var i gær, gerði hann jafntefli við
Tékkann Vlastimil Hort.
I tíundu umferðinni varð jafn-
tefli í öllum skákum nema í skák
þeirra Larsens og Spasskys. Larsen
hafði svart og var skákin í jafn-
vægi framan af eða þar til Larsen
tók að leika „með öllu óskiljan-
legum leikjum" að dómi sérfræð-
inga. Hann missti þá fljótt hrók og
þar með skákina.
Staðan fyrir síðustu umferð, sem
fram fer á morgun, fimmtudag, er
þessi: 1. Karpov 7v., 2. Portisch 6‘A
v., 3. Timman 6 v., 4. Spassky 5'Æ v.,
5.-7., Tal, Hort og Sosonko 5 v., 8.
Ribli 4Vfe v., 9.—11. Húbner, Ander-
son og Larsen 4 v., 12. Kavalek 3'/í
v.
ENN einn maður lést í dag af
völdum sprenKÍnKarinnar sem
varð á bjórhátiðinni i Miinchen
fyrir nokkrum dögum. Tala lát-
inna er þá komin i 13. Ekki
virðist ljóst hve margir særðust,
en opinberar tölur eru frá 179 til
213.
Franz Josef Strauss, fylkisstjóri
í Bæjaralandi, sagði í viðtali, sem
birtist í dag, að „áreiðanlegar
upplýsingar" bentu til tengsla
milli vestur-þýsku nýnasistasam-
takanna, sem eru bönnuð, og
stjórnvalda í Líbýu. Þessi stað-
Moskvu. 1. okt. — AP.
TVEIR sovéskir geimfarar
settu í dag nýtt dvalarmet
í geimnum. Eldra metið
var 175 dagar og 36 mínút-
ur og var það sett á sl. ári.
Geimfararnir, Vladimir Ry-
hæfing Strauss kemur í kjölfar
yfirlýsingar innanríkisráðherra
Bæjaralands, sem sagði að svo
virtist sem eitthvert samband
væri á milli nýnasista og Frelsis-
hreyfingar Palestínumanna.
í blaðinu „Abendzeitung“, sem
gefið er út í Múnchen, var haft
eftir Strauss, að nýnasistinn Karl
Heinz Hoffmann eða aðrir félagar
hans hefðu selt vörubifreiðar til
Líbýu og hefði „Khaddafy greitt
þeim fyrir þær“. Hoffmann og
fimm aðrir félagar í samtökum
nýnasista voru handteknir eftir
sprengjutilræðið á bjórhátíðinni í
Múnchen.
umin og Valery Popov héldu af
stað út í geiminn 9. apríl sl. Þeir
hafa síðan dvalist í geimstöðinni
Salyut-6. Sovétmenn hafa ekkert
gefið upp það hversu lengi
mennirnir tveir verði úti í
geimnum en í sl. viku fengu þeir
félagar sendar nýjar birgðir.
Flak Phantom-þotu. scm írakar eyðilögðu þegar þeir gerðu loftárás á
Mehrabad-flugvöll í Teheran. Loftárásin var upphafið að þeim
striðsátökum sem nú eiga sér stað með írönum og írökum. (AP-símamynd)
Helmut Schmidt
er spáð sigri
Settu nýtt dval-
armet i geimnum
Starfsemi Alþjóðabankans
þarf að aukast til muna
— sagði Macnamara forstjóri á fundi bankans og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins
Frá Önnu Bjarnadóttur. fréttaritara
Mbl. i Washinyrtun. 1. október.
Ársfundur Alþjóða gjald-
eyrissjóðsins og Alþjóða-
hankans stendur yfir í Wash-
hessa viku. Tæplega 7000
manns frá um 14U auuum-
löndum stofnananna sækja
fundinn. Af íslands hálfu sitja
fundinn þeir Jóhannes Nordal
seðlahankastjóri, Jón Sigurðs-
son, forstjóri Þjóðhagsstofnun-
ar, Ragnar Arnalds fjármála-
ráðherra og Tómas Árnason
viðskiptaráðherra, auk Sigur-
geirs Jónssonar, aðstoðarbanka-
stjóra Seðlabankans og Jónasar
Haralz, bankastjóra Lands-
banka Islands.
Stefna stofnananna er rædd á
fundinum og framkvæmda-
stjórnir þeirra kjörnar. Hlutverk
Alþjóðabankans er að veita
þróunarlöndum langtímalán og
þróunaraðstoð, en Alþjóða gjald-
eyrissjóðsins að veita aðildar-
löndum skammtímalán og
greiðslujafnaðaraðstoð. Hópur
24 þróunarlanda, sem búa ekki
yfir olíulindum og eiga við mik-
inn viðskiptahalla að stríða, fór
fram á aðgengilegri lán frá
sjóðnum og meiri áhrif í stjórn
hans í áskorun til fundarins í
Kallizt hefur verið á
VlKUuut. _____
auðveldari lánsskilyrði og næm
lán til þeirra í framtíðinni.
Fundurinn var settur á þriðju-
dag. Jacques de Larosiere, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins og Robert
S. Mcnamara, forstjóri bankans,
ávörpuðu þá fundinn og Jimmy
Carter Bandaríkjaforseti bauð
fundargesti velkomna til lands-
ins. Þetta er síðasti ársfundur
Mcnamaras, en hann mun láta af
störfum í sumar, er hann verður
65 ára. Undir hans stjórn, síð-
astliðin 13 ár, hefur starfsemi
Alþjóðabankans aukizt mjög og
hann orðinn ein helzta upp-
spretta þróunaraðstoðar í veröld-
inni, en Mcnamara sagði í ræðu
sinni að starfsemi bankans þyrfti
að aukast enn til muna til að
gera fullt gagn. Hann gagnrýndi
Bandaríkin, Bretland, Japan og
Sovétríkin, en Sovétríkin eru
ekki aðilar að bankanum, fyrir
að láta minna fé af hendi rakna
til þróunaraðstoðar en hann teldi
Robert Mcnamara
rétt. McNamara viknaði í loka-
orðum sínum Þegar hann minnti
fundargesti á fátæktina, sem
mikill hluti mannkyns býr við, og
vitnaði í orð Bernard Shaw: „Þið
sjáið hluti og spyrjið, hvers
vegna. En mig dreymir um hluti,
sem aldrei hafa verið, og segi,
hvers vegna ekki.“
I~v.«.nnPS Nordal, sem hefur
dUllui..._ <•
■ '•'onrtfl
sótt flesta fundi stoinaiia....„
síðan 1964 sem aðalfulltrúi ís-
lands í yfirstjórn Alþjóða gjald-
eyrissjóðsins, sagði Morgunblað-
inu í vikunni, að fjórir íslend-
ingar ættu sæti á fundinum, en
Sigurgeir Jónsson kæmi þeim til
aðstoðar, en hann fer með mál
stofnananna í Seðlabankanum á
íslandi og Jónas Haralz væri í
hópi fjölmargra gesta á fundin-
um frá viðskiptabönkum um víða
veröld. Jóhannes sagði, að unnið
væri úr fjárlægð árið um kring
að stjórn og ákvarðanatöku
stofnananna og mikið gagn væri
að ársfundinum, þegar fulltrúar
allra aðildarlandanna kæmu
saman, hittust og gætu ræðzt við.
Veður
víða um heim
Akureyri 5 rigning
Amsterdam 14 heióskírt
Aþena 25 skýjað
Berlln 16 skýjað
Chicago 25 skýjað
Feneyjar 21 mistur
Frankfurt 18 heiðskirt
Færeyjar 8 skýjaö
Genf 17 þoka
Helsínki 14 skýjað
Jerúsalem 22 skýjað
Jóhannesarborg 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 15 heiðskírt
i as Palmas 22 skýjað
■ •w heiðskírt
Lissabon
London 18 skýjað
Los Angeles 36 heiðskírt
Madrid 28 heiöskirt
Malaga 26 heiðskirt
Mallorca 28 léttskýjaö
Míami 35 skýjað
Moskva 4 rigning
New York 22 skýjað
Oslo 14 heiðskírt
París 19 heiðskirt
Reykjavík 8 skýjað
R(ó de Janeiro 30 heiðskírt
Rómaborg 29 heiðskirt
Stokkhólmur 13 heiðskirt
Tel Avlv 26 skýjað
Tókýó 23 heiðskirt
Vancouver 19 heiðskírt
Vinarborg 15 skýjað