Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980 27 Njarðvík: Kirkjan fær að gjöf 1400 eintök af bókinni Ást Guðs og ábyrgð manns SL. ÞRIÐJUDAG var afhent storKjöf til Njarðvíkurkirkju. Var þar um að ræöa bók sem Gísli SÍKurbjörnsson oj? fjöl- skyida hans hafa látiö prenta i 1400 eintökum. Bókin heitir Ást Kuðs ok ábyrgð manns og geym- ir sjónvarpshugleiðingar og prédikanir sr. Páls heitins Þórðarsonar. sem var prestur i Ytri-Njarðvíkurkirkju frá 1976 til dánardægurs 16. október 1978. er hann lézt aðeins 35 ára gamall. Sjónvarpsræður sr. Páls Þórð- arsonar vöktu mikla athygli á sínum tíma, en hann þótti fara nokkuð nýjar leiðir í boðun kristinnar trúar. Bókin er 218 blaðsíður í fallegu bandi, en prófessor Þórir Kr. Þórðarson bjó bókina til prentunar. Ákveðið hefir verið að 'h af innkomnu fé fyrir sölu á bókinni muni renna í sérstakan sjóð, Stofnsjóð sr. Páls Þórðarsonar við Ytri-Njarðvíkurkirkju. Markmið sjóðsins er að vinna að líknar- og menningarmálum í byggðarlaginu og að stuðla að fjárhagslegu sjálfstæði kirkj- unnar. Gísli Sigurbjörnsson er for- stjóri Hjúkrunar- og elliheimil- isins Grundar í Reykjavík og hefir mikið unnið að málum aldraðra, svo og menningar- og líknarmálum í gegnum árin. Hann er faðir Guðrúnar Birnu Eintak bókarinnar Gísladóttur, ekkju Páls heitins Þórðarsonar. Milli 20 og 30 manns voru við bókaafhendinguna. Tók Árni Júlíusson, formaður sóknar- nefndar, við fyrsta eintakinu og þakkaði gjöfina fyrir hönd Njarðvíkinga. Þeim, sem hafa áhuga á að eignast þessa bók, er bent á að sala hennar verður eingöngu í höndum Friðriks Valdimarsson- ar sóknarnefndarmanns. Við þetta tilefni var tekinn í notkun safnaðarsalur kirkjunn- ar en í ráði er að hefja þar starf fyrir aldraða á vetri komanda. Frá bókaafhendingunni. Árni Juliusson. formaður sóknarnefndar Ytri-Njarðvíkurkirkju. þakkar Gisla Sigurbjörnssyni og fjöl- skyldu hans hina höfðinglegu gjöf. Milli þeirra situr ekkja Páls heitins Þórðarsonar. Guðrún Birna Gísladóttir. Þingflokkur Alþýðuflokksins: Samgönguráðherra gefi Alþingi skýrslu um málefni Flugleiða EFTIRFARANDI frétt frá þing- fiokki Alþýðuflokksins harst Mbl. i gær: Á fundi þingflokks Alþýðu- flokksins, sem haldinn var í gær, var samþykkt, -að þingflokkurinn mun þegar við upphaf þings í næstu viku fara þess á leit, með stoð í 31. gr. laga um þingsköp Alþingis, að samgönguráðherra, Steingrímur Hermannsson, flytji Alþingi skýrslu um málefni Flug- leiða svo fljótt sem verða má og að sú skýrsla verði tekin til umræðu. í beiðni þingflokks Alþýðu- flokksins verður þess farið á leit, að í skýrslunni verði m.a. gefnar allar upplýsingar, sem ríkisstjórn- in hefur undir höndum um mál Flugleiða, þ.á m. um eignastöðu fyrirtækisins og rekstrarafkomu og skýri auk þess frá öllum afskiptum, sem ríkisstjórnin hef- ur haft af málefnum félagsins, þ.á m. hvaða skuldbindingar ríkis- stjórnin ýmist hefur undirgengist eða hyggst undirgangast í því sambandi og hvaða skilyrði sett kunna að vera í tengslum við það. I 31. grein laga um þingsköp Alþingis segir m.a., að níu þing- menn geti óskað skýrslu ráðherra um opinbert málefni og verði beiðnin leyfð, sem er formsatriði, skuli ráðherra ljúka umbeðinni skýrslugerð, prenta skýrsluna og útbýta henni á Alþingi. í greininni segir einnig, að ef ráðherra eða skýrslubeiðendur óska, skuli skýrslan tekin til umræðu. Grenivík: Mjög góð aflabrögð miðað við árstíma Grenivik. 1. október. MJÖG mikill afli hefur borizt á land hér á Grenivík frá því að þorskveiðibanninu lauk um miðj- an ágúst. eða alls 130 tonn. sem þykir mjög gott á þessum árs- tíma. Þrír stórir bátar eru gerðir út frá Grenivík. Frosti ÞH 220 hefur landað 292 tonnum síðasta Fyrsta mjölfarm- inum skipað út frá Siglufirði SÍKlufirði. 1. októbrr. HÉR VAR í gær skipað út fyrsta farminum af löðnumjöli. Tók Laxá rúm 1.100 tonn sem fara áttu til Póllands. Er ráðgert að næstu daga verði skipað út öllu mjöli sem til er og lýsi einnig. Búið er að taka á móti um 25 þúsund tonnum af loðnu til bræðslu. Bræðslan gengur vel og eru afköstin um 1.500 tonn á sólarhring. Hilmir og Gísli Árni komu hér inn með 1.400 og 600 tonn í dag, en verksmiðja S.R. tekur við 4.000 tonnum á sólarhring. Hingað er um 20 tíma sigling frá miðunum. _____________ _______ m.j. Hlaut riddara- kross fyrir leiklistarstörf Forseti íslands saémdi í gær Jón Laxdal, leikara, riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, fyrir leiklistarstörf. ll/-i mánuðinn. Sjöfn ÞH 149 63 tonnum. Áskell ÞH 40 83 tonnum og Súlan frá Akureyri hefur landað hér 84 tonnum. Bátarnir hafa sótt allt út undir Kolbeins- ey. I gær lestaði Selfoss 1995 pökk- um af freðfiski og á morgun lestar Goðafoss rúmlega 2 þúsund pökk- um, en hvort tveggja fer á Banda- ríkjamarkað. Aka þurfti fiskinum til Akureyrar í flutningaskipin þar sem skipin geta ekki lagst að hér, en verið er að setja upp stálþil hér. Höfnin var dýpkuð í sumar á vegum Vita- og hafnamálastofn- unar. Næstkomandi mánudag verður skipað út 415 pökkum af skreið sem fer til Nígeríu. Mikil og góð atvinna hefur verið við fiskvinnslu undanfarið og iðu- lega unnið á kvöldin og um helgar. — Vigdís UMTALSVERÐ aukning hefur orðið það sem af er árinu í sölu á ostum. Fyrstu níu mánuði ársins varð aukningin í ostasölu hjá Osta- og smjörsölunni um 9% að magni. Þessi aukning er fyrst og fremst í föstum ostum, svo sem gouda-osti, óðalsosti og brauðosti, og áberandi aukning er í 26% feitum brauðosti. Þessi aukning er nokkuð yfir meðaltalinu yfir land- ið, sem mun vera nálægt 6,5—7% á sama tíma. Þá voru birgðir af smjöri í landinu um síðustu mánaðamót Þvrlan á myndinni var í sumar við rannsóknarstörf á Grænlandi og kom hingað til lands með danska rannsóknaskipinu VVest- ern Arctic. Var henni Ilogið frá skipinu í port Faxaskála i Reykjavík í fyrradag. en síðan á hún að fara með Dettifossi til síns heima í Danmörku í dag. tæp 1100 tonn, samanborið við 1315 tonn á sama tíma í fyrra. Birgðir af' ostum voru 1597 tonn, en voru 1246 tonn fyrir ári. Þar er þó að því að gæta að nú á næstunni eru ukm 550 tonn af ostum að fara til ýmissa Vestur- Evrópulanda og Bandaríkjanna. Eins og kunnugt er þá er mjólkur- framleiðslan mun minni yfir vetr- armánuðina en að sumrinu, og er því búist við að þessar birgðir minnki allverulega nú í haust og vetur. Ljósm. G.S. Aukning á ostasölu NÝ NILFISK Nú er sterka ryksugan ennþá sterkari. Nýr súper-mótor: áður óþekktur sogkraftur. Ný sogstilling: auðvelt að tempra kraftinn Nýr ennþá stærri pappírspoki með hraðfestingu. Ný kraftaukandi keiluslanga með nýrri festingu. Nýr vagn sameinar kosti hjóla og sleða. Auðlosaður í stigum SOGGETA I SÉRFLOKKI P.inslakur mólor. cfnisgæði. mark- vissl byggingarlag. afbragðs sog- siykki — já. hvcrl smáatriði stuðlar að soggctu í sórflokki. fullkominni orkunýtingu. fyllsta notagildi og dæmalausri cndingu. GERIÐ SAMANBURÐ: Sjáið t.d. hvcrnig stærð. lögun og staðsclning nvja N i If isk-rísapokans tryggir óskert sogafl , þótt I hann safnisf. GÆÐI BORGA SIG: Nilfisk er vönduð og ueknilega ósvikin. gerð til að vinna sitt verk fljótt og vel. ár eftir ár. með lág- marks truflunum og tilkostnaði. Varanleg: til lengdar ódýrust. Afborgunarskilmálar. Traust þjónusta. 11 ETIQIT heimsins besta ryksuga 1*^1 1^^ Stór orð, sem reynslan réttlætir. I FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX HÁTÚNI — SÍMI 24420

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.