Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980 Bandaríkin: Aukin herútgjöld samþykkt á þingi Washinífton. 1. okt. — AP. BANDARÍSKA þinKÍð hefur sam- þykkt 5.1 milljarða doilara auka- fjárveitinttu sem fara á til hernað- arumsvifa Bandaríkjamanna á Indlandshafi ox Persaflóa og til að reisa tautcatfasverksmiðju. Fjárveitintfin var samþykkt með 342 atkv. gegn 29 í fulltrúadeild- inni ok að viðhófðu nafnakalli í ólduntjadeildinni. Af þessari fjárhæð fer 3,1 millj- arðar dollara til að koma upp verksmiðju, þar sem framleitt verður taugagas og önnur efnavopn ef forseti og þing telja nauðsynlegt. Stuðningsmenn tillögunnar töldu hana nauðsynlega vegna þess að Rússar hafa lagt mikla áherslu á þróun vopnabúnaðar af þessari tegund. Grikkir hóta að segja sig úr Nato WashinKton. l.okt. — AP. „EF NÝR samninjíur um aðild Grikklands að Nato verður ekki gerður innan fárra vikna neyðumst við til að segja skilið við bandalaKÍð fyrir fullt og allt.“ sagði utanríkisráðherra Grikklands, Constantine Mitsotikas í viðtali við Washington Post í dag. Grikkir gengu úr hernaðar- bandalagi við Nato árið 1974 til að mótmæla því sem Karamanlis forseti kallaði „þau mistök stjórn- ar Nixons Bandaríkjaforseta að stöðva ekki innrás Tyrkja á Kýp- ur“. Árið 1976 báðu Grikkir um aðild að hernaðarsarnvinnunni á ný en beiðni þeirra hefur enn ekki verið svarað vegna ágreinings milli Tyrkja og Grikkja um hernaðarleg yfirráð á sjó og lofti yfir Eyjahafi. Mitsotikas segir að annaðhvort verði Grikkir að fá aðild að hernaðarsamvinnunni á ný eða draga umsókn sína til baka fyrir næstu kosningar sem verða á næsta ári. Harðir bardagar í E1 Salvador San Salvador 1. októlxr. — AP. Stjórnarherinn harðist við vinstrisinnaða skæru- liða nærri þremur stærstu bon;um landsins í allan gærdag. að söKn tals- manns hers E1 Salvador. Hann sagði að þrettán manns hefðu látist á einum staðnum, 10 skæruliðar og 3 hermenn. Sagði hann árásir skæruliðanna hafa verið „mjög alvarlegar" en stjórn- arherinn hefði yfirbugað þá er líða tók að nóttu. Talsmaðurinn sagði að „allt væri nú í röð og reglu". Tveir kennarar voru skotnir til bana fyrir utan rómversk kaþólsk- an skóla í San Salvador, að sögn vitnis. Þriðji kennarinn var skot- inn til bana í bænum Sonsonate. Lögreglan hefur ekkert upplýst um morðin. Samtök í E1 Salvador sem vinna að mannréttindum álíta að um 6.000 manns hafi verið myrtir það sem af er árinu. Þau segja einnig að um 3.000 manns hafi horfið eftir handtökur. r—;„^Á3P-------------' - ^ •— ; - ' -•• • . A ^ f' «... • ■ -**r; *•; 7- Þyrla sænsku strandgæzlunnar sendir hljóðnema undir yfirborð sjávar í leit að dularfulla kafbátnum. Kafbáturinn undan Svíþjóð nú týndur Frá (luðfinnu Ragnarsdóttur. íréttarit ara Mhl. I Svíþjóð. 1. október. SÆNSK herskip og þyrlur leita nú ákaft að kafhátnum. sem undanfarna daga hefur legið i sænska skerjagarðinum. Eftir að ákveðið hafði verið að varpa djúpsprengjum rétt við kafbát- inn og þannig neyða hann upp á yfirborð jarðar. hvarf báturinn og hefur ekki tekist að hafa upp á honum í dag. Varnarmálaráðherra Svíþjóð- ar hefur lýst þessum atburði sem hinum alvarlegasta frá því í síðari heimsstyrjöldinni. Skiptar skoðanir hafa verið á því hér í Svíþjóð, hvort rétt væri að varpa djúpsprengjum svo nærri hon- um, því hætta væri á að hann sykki þá og kæmi þar af leiðandi ekki upp á yfirborðið. Getuleysi flotans hefur verið gagnrýnt og að ekki skuli hafa tekist að fá kafbátinn á yfirborðið. Tals- menn sjóhersins svöruðu þessari gagnrýni í gær og sögðu, að ef vilji hefði verið fyrir hendi hefði verið hægt að ná honum upp. Hins vegar hefðu sænsk stjórn- völd farið að alþjóðlegum regl- um í málum sem þessu og sýnt biðlund — sem nú væri þó á enda. Kafbáturinn hefur komið nokkrum sinnum upp á yfirborð sjávar og þeir sem hafa séð hann eru sammála um, að hann sé byggður í Sovétríkjunum. Hins vegar er ekki ljóst hvort kafbát- urinn tilheyrir sovéska sjóhern- um, eða einhverju öðru fylgiríki Sovétríkjanna í A-Evrópu. Öldungadeildin um mál Billy Carters: Gerðir Billys ref siverðar WashinKton. 30. september — AP. í UPPKASTI að skýrslu öld- ungadeildar Bandaríkjaþings um samskipti Billy Carters, bróður Carters forseta. og Líbýu kemur fram gagnrýni á afskipti forsetans og nokk- urra háttsettra embætt- ismanna af málinu. Það kem- ur og fram að dómsmálaráðu- neytið hafi enga hlutdrægni sýnt í rannsókn málsins. Peres. Rabin. Þetta gerðist Rabin vill ná völdum í Israel Tel Aviv, 10. okt. — AP. YITZHAK Rahin. fyrrum forsæt- isráðherra í ísraei, hefur til- kynnt að hann hyggist bjóða sig fram á móti Simon Peres, for- manni Verkamannaflokksins. til að hljóta útncfningu flokksins fyrir kosningarnar sem verða í ísrael á næsta ári. Rabin varð að segja af sér ráðherraembætti árið 1977 vegna fjármálahneykslis. Hann hefur að undanförnu stutt stöðu sína mjög innan flokksins og hefur um sig hóp stuðningsmanna sem halda um þessar mundir fund til að ákveða næsta skref. 1969 — Umdeild tilraun Banda- ríkjamanna með vetnissprengju neðanjarðar á Aleutin-eyjum veldur ekki jarðskjálfta. 1958 — Guinea fær sjálfstæði. 1957 — Rapacki-áætlun Pólverja um kjarnorkuvopnalaust svæði í Mið-Evrópu lögð fram. 1945 — George Patton hershöfð- ingja vikið úr stöðu yfirmanns Þriðja bandaríska hersins. 1941 — Þjóðverjar hefja allsherj- arsókn til Moskvu. 1940 — Brezka herskipinu „Empress" sökkt með flóttabörn- um á leið til Kanada. 1934 — Konunglegi indverski sjóherinn stofnaður. 1932 — Lytton-skýrsla þjóða- bandalagsins um Mansjúríu þar sem hagsmunir Japana eru viður- kenndir. 1889 — Fyrsta ráðstefna Amer- íkuríkja haldin í Washington. 1886 — Umbótaræða Randolph Churchills lávarðar í Dartford. 1870 — Róm gerð að höfuðborg Ítalíu. 1804 — Enska þjóðin búin undir að hrinda innrásartilraun Napo- leons. 1799 — Hertoginn af York tekur Alkmaar í Niðurlöndum. 1599 — Mountjoy lávarður skipaður landstjóri á írlandi í stað Essex. 1518 — Wolsey kardináli semur Lundúnasáttmála Englands, Frakklands, Maximilians keisara I, Spánar og Páfastóls. 1492 — Hinrik VII af Englandi gerir innrás í Frakkland. 1187 — Innreið Saladins í Jerú- salem. Afmæli. Mohandas K. Gandhi, indverskur stjórnmálaleiðtogi (1869—1948) — Paui von Hinden- burg, þýzkur hermaður og stjórn- málaleiðtogi (1847—1934) — Ferdinand Foch, franskur her- maður (1851—1929) — Cordell Hull, bandarískur stjórnmálaleið- togi (1871-1955) - Groucho Marx, bandariskur gamanleikari (1895—1977) — Graham Greene, brezkur rithöfundur (1904—) Andlát. 1920 Max Bruch, tón- skáld. Innlent. 1550 Sauðafellsbardagi — 1161 f. Guðm. biskup Arason — 1791 d. Gunnar Pálsson próf- astur — 1801 Hólastóll lagður niður — 1843 Sigurður Breiðfjörð dæmdur í seðlamálinu — 1847 Prestaskólinn vígður — 1885 Templarahúsið vígt í Reykjavík — 1907 Fyrsta sláturhús á ísiandi tekur til starfa — 1971 Nefnd Einingarsamtaka Afríku í heim- sókn — 1973 Brezk herskip sigla út fyrir 50 mílur — 1874 f. Sigfús Blöndal. Orð dagsins. Eitt er öflugra öllum herjum heims — hugmynd sem fæðist á réttri stundu — Victor Hugo, franskur rithöfund- ur (1802-1885). í uppkastinu er ekki tekin af- staða til þess, hvort aðgerðir opinberra aðila í málinu séu ólög- legar eða ekki. Hins vegar eru afskipti Jimmy Carters af annarri ferð Billys til Líbýu gagnrýnd og einnig það að Billy skuli hafa verið notaður sem miiligöngumað- ur til að fá Líbýustjórn til að hjálpa til við að frelsa gíslana í sendiráði Bandaríkjanna í Teher- an. í uppkastinu segir að forsetinn hefði átt að gera sér það ljóst að Billy gæti notað aðstöðu sína til eigin hagnaðar. Er vitnað í skýrslu undirnefndar um pen- ingamál Billys, þar sem segir að 200.000 dollara lán það, sem Billy fékk frá stjórn Líbýu, sýni „vald það sem stjórn Líbýu hafi yfir honum“. Uppkastið að skýrslunni endar á þessum orðum: „Gerðir Billys voru ekki í samræmi við áætlanir forsetans og stjórnar Bandaríkj- anna og teljast því refsiverðar." í uppkastinu er ekki minnst á þá yfirlýsingu Billys að hann hafi aldrei reynt að hafa áhrif á utanríkismálastefnu Bandaríkj- anna Líbýumönnum í hag og að stjórn Líbýu hafi aldrei beðið hann um að gera slíkt. Billy hefur sagt að peningarnir sem hann fékk hafi verið lán og að stjórn Líbýu hafi ekkert vald yfjr honum. Skýrsla öldungadeildar- innar verður birt á fimmtudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.