Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980 15 Málfreyjur og fleiri við gróðursetningu i Heiðmörk. Málíreyjur gróður setja í Heiðmörk Alþjóðasamtökum Málfreyja á íslandi var á siðastliðnu sumri úthlutað tveimur hekturum lands af Skógræktarfélagi íslands i Ileiðmörk. og var fyrsta gróður- setningarferðin farin i júli. Um 30 málfreyjur, fulltrúar þeirra 6 deilda sem eru skráðar á Islandi í dag, ásamt eiginmönnum og börnum, voru viðstaddar, er Sigrún Sigurðardóttir, forseti I. Ráðs. nýverið formlega opnaði „Freyjulund" með þessum orðum: „Skáldi hæfir slíkur salur, í stað þess vil ég flytja hugsjón og draum, heit Málfreyja um allan heim: Við í Alþjóðasamtökum Málfreyja heitum við því að afla okkur þjálfunar til forystu og bæta tjáningu okkar í orði í þeirri von, að með bættum samskiptum takist okkur að efla skilning manna á meðal um víða veröld." Fyrsta Málfreyjudeildin á ís- landi var stofnuð 3. jan. 1973. Fyrsta íslenska Ráðið byrjar nú sitt 3ja starfsár, en þetta ár markar tímamót í sögu íslenskra Málfreyja þar sem Handbók Ræðubók og Vinnubók þeirra er nú í fyrsta sinn gefin út á íslensku. Ný bók: „Glósutækni“ ÚT ER komin á vegum Iðunnar bókin Glósutækni fyrir nem- endur á öllum skólastigum. Höfundur er Oddbjörn Evens- haug, norskur kennslufræðing- ur. Bók þessi kom út 1972 hjá forlagi Óslóarháskóla, Jón Gunnarsson þýddi. Höfundur segir í formála meðal annars: „Nemendur á öllum stigum náms vita það, flestir hverjir, að rétt er að skrá niður minnisatriði úr fyrirlestr- um, við lestur námsbóka og yfirleitt allra heimildarita. En þeir eru afar fáir sem vita hvernig best er að skrá slík minnisatriði. Bók þessi er ætluð öllum þeim sem telja aðferðum sínum við skráningu minnisat- riða ábótavant, vilja bæta námstækni sína og ná þannig betri árangri í námi. Reynslan hefur sannað að þær reglur um rétta skráningu minnisatriða sem hér eru kynntar hafa reynst árangursdrjúgar." Glósutækni skiptist í sjö kafla: Koma glósur að gagni?; Að hafa reglu á glósunum; Skráning minnisatriða, megin- reglur; Glósur í kennslustund- um; Glósur við lestur námsefnis; ODDBJ0RN EVENSHAUG Glósutækni Skráning á spjöld;— sjöundi og síðasti kaflinn eru æfingatextar handa nemendum. — Glósu- tækni er annað leiðbeiningaritið af þessu tagi sem forlagið gefur út. Aður er komin út bókin Inngangur að námstækni eftir annan norskan kennslufræðing, Per Dalin. Glósutækni er 60 blaðsíður, Oddi prentaði. □ Herraföt fiestar stæröir ......... 49.31 G Tereiyne-buxur .. ft/ herra óii númer ......... 10.91 G Stakír herrajakkar flestar stæröir ........ 31.91 □ Dömuuilar-buxur qiu Ktil og stór númer ..... G Herraskyrtur öllnúmer ................ ö.9( G Dömublússur öll númer ................ 6.9« Q Riflaöur flauelisbuxur margir litír ffest númer .............. 8.90 □ Kakhi-buxur flest númer _ ^ G Vesti margir litir og geröir 3.900.- \A □ Sportiakkar margar geröir ^ flest númer 13.900." □ Fallegt úrval af skóm í litlum númerum Q Ullarefni . ........................ 4.000.- Wji’, O Terelynefni ........................ 4.000.- m% □ Fínflauel ......................... 4íoo,- m □ Fóðurefní ........................ 1.300,- □ Anorakkaefni ..................... 1.300.~ G Skyrtuefni D Gardínuefni D Kjólaefni ( mörgum litum og geröum □ Ungbarnafatnaöur — Plaköt P Nýlegar hljómplötur og kassettur frá 500,- Opið frá 1—6 í dag og 1—7 á morgun Þú mátt prútta Prúttmarkaður hafinn á 2. hæð Laugaveg 66 Takið vel eftir Byrjunar- verð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.