Morgunblaðið - 02.10.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
5
ASÍ hef ur ekki
óskað eftir f rest
un viðræðna
ÁSMUNDUR Steíánsson, íram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
íslands. kom í gær að máli við
Morgunblaðið og mótmælti
fréttaflutningi þess af samninga-
málum síðastliðinn föstudag. þar
sem sagt var að ASÍ hefði beðið
um frest á viðræðufundum dag
eftir dag. Ásmundur kvað ASÍ
aldrei hafa óskað formlega eftir
frestun viðræðna.
Vegna fréttarinnar lét ASÍ bóka
eftirfarandi hjá^sáttasemjara
ríkisins síðastliðinn föstudag:
„Viðræðunefnd Alþýðusam-
bands Islands fer fram á eftirfar-
andi bókun vegna fréttar í Morg-
unblaðinu í dag um afstöðu Al-
þýðusambands íslands í samn-
ingaviðræðunum:
I Morgunblaðinu í morgun segir
m.a.:
„Fulltrúar vinnuveitenda voru í
gær mjög óánægðir. Þeir voru í
fyrradag boðaðir á fund í aðal-
samninganefndum kl. 14. Ekkert
varð úr þeim fundi, en nýr fundur
var boðaður í dag klukkan 14.
Ekkert varð heldur úr þeim fundi,
en nýr fundur boðaður í dag
klukkan 14. Ávallt hefur fundun-
um verið frestað að beiðni Alþýðu-
sambandsins. Áður en að frestun
kemur hafa samninganefndar-
menn setið klukkustundum saman
og beðið. Veldur þetta mikilli
óánægju."
Eins og sáttanefnd er fullkunn-
ugt hefur ASÍ undanfarið lagt
þunga áherzlu á að viðræður yrðu
hafnar um kaup og vísitölu, jafn-
hliða því sem viðræður um einstök
atriði önnur héldu áfram. Það eru
því rakalaus ósannindi að staðið
hafi á Alþýðusambandinu að ræða
mál sem samhengi hafa við samn-
ingamálin. Það er því fráleitt að
staðhæfa, eins og gert er í Morg-
unblaðinu, að frestun funda sé að
ósk ASI, þvert á móti hefur staðið
á Vinnuveitendasambandi íslands
sem hefur neitað að ganga til
viðræðna um kaup og vísitölu og
fyrst og fremst borið fyrir sig
prentaradeiluna."
Ásmundur Stefánsson leiddi til
vitnis Þorstein Pálsson, fram:
kvæmdastjóra VSÍ, um, að ASÍ
hefði ekki óskað eftir frestun
viðræðna. Þorsteinn kvað það rétt,
að formlega hefði Alþýðusam-
bandið ekki farið fram á frestun,
en hins vegar kvað hann seina-
gang viðræðnanna vera ASÍ að
kenna. Það virðist því vera ljóst að
um þetta er ágreiningur milli
deiluaðila sem á öðrum sviðum
kjaramála.
Fundur í Átthagasal í kvöld:
Kjördæmamálið
og kosningalög-
gjöfin til umræðu
ÍSLENSKA mannréttindahreyf-
ingin og Stúdentafélag Iíeykjavík-
ur gangast fyrir almennum fundi
í kvöld. um kjördæmamálið og
kosningalöggjöfina. en þau máí
eru nú mjög í brennidepli eftir að
stjórnarskrárnefnd hefur skilað
fyrstu hugmyndum sínum til
þingflokkanna. Frummælendur á
fundinum verða þeir dr. Gunnar
G. Schram lagaprófessor og ráð-
gjafi stjórnarskrárnefndar, og
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður, sem á undanförn-
um árum hefur kynnt sér ýmsar
leiðir til úrbóta í kjördæmamál-
inu.
Að loknum framsöguræðum
verða pallborðsumræður, með
þátttakendum frá öllum stjórn-
málaflokkum, auk framsögu-
manna. Frá Alþýðubandalagi verð-
ur Kjartan Ólafsson fyrrverandi
alþingismaður og nú ritstjóri Þjóð-
viljans, frá Alþýðuflokki verður
Jón Baldvin Hannibalsson ritstjóri
Alþýðublaðsins, frá Framsóknar-
flokki Jón Sigurðsson ritstjóri
Tímans og frá Sjálfstæðisflokki
Ólafur G. Einarsson alþingismaður
og formaður þingflokks sjálfstæð-
ismanna.
Fundarstjóri og stjórnandi pall-
borðsumræðnanna verður Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður
Stúdentafélags Reykjavíkur. Auk
þess sem ræðumenn og þátttakend-
ur í pallborðsumræðunum munu
skiptast á skoðunum, verða leyfðar
fyrirspurnir úr sal.
Fundurinn verður sem fyrr segir
haldinn í kvöld, fimmtudaginn 2.
október, i Átthagasal Hótel Sögu,
og hefst hann klukkan 20.30. Öllum
er heimill aðgangur á meðan hús-
rúm leyfir.
(FréttatilkynninK).
Gunnar G. ScKram
ólafur G. Einarsmn
JAn Steinar Gunnlaugsaon
*'■ p im n n iii n
diana
MíiiiisTine ifíns
□ Shadows
— Another Stríng of
Hot Hits
„Another String of Hot Hits" nýja
Shadows platan gefur metsöluplöt-
unni þeirra frá síöasta ári „String of
Hits" ekkert eftir. Á þessari plötu
halda Shadows áfram aö klæöa
gömul gullkorn í nýjan búning, á
þann hátt sem þeim er einum lagiö.
„String of Hits" seldist í yfir 8.000
eintökum hér á landi og öruggt er
að hinir fjölmörgu aðdáendur
þeirra verða ekki fyrir vonbrigðum
með þessa nýju plötu.
DEEPEST PURPLE
□ Diana Ross — Diana
Glæsilegt „Comeback" Diönu Ross
hefur ekki farið framhjá neinum.
Lagið „Upside down" hefur nú
þegar náö efstu sætum vinsældar-
lista víða, og „My Old Piano" nýja
litla platan hennar er nú að verða
eitt mest spilaða lag í útvarps-
stöðvum erlendis. Frábær plata
með einni af bestu söngkonum
poppsögunnar. Er hægt að fara
fram á meira?
□ Anne Murray
— Greatest Hits
Anne Murray þarf ekki að kynna.
Vinsældir hennar hafa verið miklar
að undanförnu, enda hefur fáum
söngkonum tekist að flytja
country-tónlist á jafnfágaðan hátt
og henni. Þessi nýja Greatest Hits
plata Anne Murray inniheldur öll
vinsælustu lög hennar, og ætti því
aö vera kærkomin fengur fyrir hina
fjölmörgu aðdáendur hennar hér á
landi.
□ Deep Purple — Deep-
est Purple
(The very best of Deep Purple)
Þegar rætt er um þróun „þunga-
rokksins" ber nafn ensku stór-
hljómsveitarinnar Deep Purple allt-
af á góma. Á árunum 1970—1974
áttu þeir stóran þátt í að móta þá
rokkstefnu sem notið hefur hvað
mestra vinsælda síðan þá. Á þess-
ari 12 laga plötu sem inniheldur öll
vinsælustu lög Deep Purple kemur
greinilega í Ijós af hverju þeir lan
Gillan, John Lord, Ritchie Black-
more, David Coverdale, Roger
Glover, lan Paice og Glenn Hughes
njóta jafn mikillar virðingar og raun
ber vitni meöal rokkunnenda, enn í
dag
MáMMor AKc
□ Dr. Feelgood
— A Case of
the Snakes
Breska hljómsveitin Dr. Feelgood
hefur nú starfað saman í nánast 10
ár án þess þó aö slá verulega í
gegn. A Case of the Snakes er 9.
plata hljómsveitarinnar og líkt og á
eldri plötum Dr. Feelgood gefur hér
að heyra „Rythm'n' Blues" tónlist
flutta af krafti og lífi á þann hátt
sem fáum er leikið í dag.
□ Bob Marley — Uprising
Bob Marley er óumdeilanlega ein-
hver sérstæðasti tónlistarmaður
síðasta áratugs og helsti boðberi
reggaetónlistarinnar. Síöasta plata
Marleys „Uprising" hefur vakið
verulega athygli erlendis, t.d. í
Bretlandi og náði lagið „Could Vou
Be Loved" miklum vinsældum þar.
Þetta fallega og Ijúfa reggaelag er
dæmigert fyrir tónlist Bob Marley í
dag. A Uprising hefur honum tekist
að skapa einstaklega heilsteypta
og vandaöa plötu.
□ Lincoln Thompson & the Rasses — Natural Wild
Lincoln Thompson & the Rasses hafa gefið út nokkrar plötur sem allar
hafa fengið mjög góða gagnrýni. Dæmi um það má nefna að Melody
Maker valdi plötuna Experience með The Rasses reggaeplötu ársins í
fyrra. Natural Wild fylgir svo í kjölfar hennar og hefur Thompson nú
fengið breska rokkarann Joe Jackson til liös við sig. Útkoman er
vægast sagt einstök og er greinilegt að Lincoln Thompson heur tekist
að þróa reaggaetónlistina inn á nýjar brautir.
Nýjar plötur
□ David Bowie — Scary Monsters
□ Kate Bush — Never for Ever
□ Supertramþ — Paris
□ Gary Numan — Telecon
□ Steve Forbert — „Little Stevie
Orbit"
□ McGuinn & Hillman — McGuinn
& Hillman
□ Robert Palmer — Clues
□ B-52's — Wild Planet
□ Gibson Brothers — On the
Riviera
Rokk
□ AC/DC — Back in Black
□ Allman Brothers — Reach for
the Sxy
□ B.A. Robertson — Initial Suc-
cess
□ Bob Seger — Against the Wind
□ Dave Davies (úr Kinks) — AFL
1-3603
□ Dexy’s Midnight Runners
— Searching for Young Soul
Rebels
□ Eric Clapton — Just One Night
□ Jackson Browne — Hold Out
□ Kinks — One for the Road
□ Peter Gabriel — Peter Gabriel
□ Pink Military
— Do Animals Believe in God?
□ Police — Zenyatta Mondatta
□ Queen — The Game
□ Rolling Stones — Emotional
Rescue
□ Roxy Music — Flesh & Blood
□ Santana — 25 Hits
□ Stranglers — The Raven
□ Stiff Little Fingers
— Inflammable Material
□ Siouxsie and the Banchees
□ Young Marble Giants
— Colossal Youth
□ Þursaflokkurinn á hljómleikum
Reggaetónlist
□ ASWAD — Hulet
□ Black Uhuru — Sinsemilla
□ Burning Spear — Social Living
□ Linton Kwesi Johnson
— Buss Culture
□ The Rasses Band — Harder Na
Rass
□ The Rasses — Experience
□ Ymsir — Ballistic Assault
(Verð aðeins kr. 7.900)
Litlar plötur
□ Kate Bush — Babushka
□ Diana Ross — Upside Down
□ Diana Ross — My Old Piano
□ Stevie Wonder
— Master Blaster (jammin’)
□ Queen — Another One Bites the
Dust
□ Scorpions — The Zoo
□ Sheena Easton — Modern Girl
□ Sheena Easfon — 9 to 5
□ Gibson Brothers — Mariana
□ Dr. Feelgood — No Mono Yak-
amo
□ Abba — The Winner Takes It All
□ Shadows — Equinoe
□ U 2 — A Day Without Me
Eins og sjá má er af nógu að taka
í tónlistinni þessa dagana og það
sem er á undan talið er aöeins
lítið brot af úrvalinu í verslunum
okkar,
Við sendum samdægurs í póst-
kröfu og þú getur krossaö við þær
plötur sem hugurinn gírnist og
sent okkur auglýsinguna. Einnig
geturöu hringt í einhverja af
búðum okkar og við veitum fús-
lega allar nánari upplýsingar.
FALKINN
Heimilisfang
Suðurlandsbraut 8 — simi 84670
Laugavegi24 — Sími18670
Austurveri — Sími 33360