Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
17
Alþjóðaár fatlaðra 1981:
Skipuð framkvæmdanefnd sem gera
mun tillögur um heildarstefnu
SVAVAR Gestsson. lélajísmála-
ráðherra. hefur nýlega skipað
sérstaka framkva'indanefnd i til-
efni alþjóðaárs fatlaðra 1981.
Jafnframt hefur hann leyst frá
störfum þriggja manna undir-
búningsnefnd. sem skipuð var
haustið 1979.
Með stufnun framkvæmda-
nefndarinnar hafa verið tryggð
tengsl við stjórnsýslu. sveita-
stjórnir og samtök fatlaðra á
tslandi, en i framkvæmdanefnd-
ina hafa eftirtaldir einstaklingar
verið skipaðir:
Margrét Margeirsdóttir, deild-
arstjóri, fulltrúi félagsmálaráðu-
neytisins, og er hún jafnframt
formaður nefndarinnar; Guðni
Þorsteinsson, yfirlæknir, fulltrúi
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins; Magnús Magnús-
son, sérkennslufulltrúi, tilnefndur
INNLENT
af menntamálaráðuneytinu; Alex-
ander Stefánsson, alþingismaður,
tilnefndur af Sambandi íslenzkra
sveitarfélaga og Unnar Stefáns-
son, ritstjóri til vara; Ólöf Rík-
arðsdóttir, fulltrúi, tilnefnd af
Endurhæfingarráði; Sigríður Ingi-
marsdóttir, tilnefnd af Öryrkja-
bandalagi íslands; Friðrik Sig-
urðsson, þroskaþjálfi, tilnefndur
af Landssamtökunum Þroskahjálp
og Theódór A. Jónsson, forstöðu-
maður, tiinefndur af Sjálfsbjörg,
landssambandi fatlaðra. Ritari
nefndarinnar er Þórður I. Guð-
mundsson, stjórnmálafræðingur.
Framkvæmdanefnd alþjóðaárs
fatlaðra mun starfa til ársloka
1981, en helztu verkefni hennar
verða einkum tvíþætt: í fyrsta lagi
að gera tillögur um heildarstefnu í
málefnum fatlaðra, m.a. með sam-
ræmingu gildandi laga og reglu-
gerða sem snerta málefni þessara
þjóðfélagshópa og með tillögugerð
um átak í atvinnumálum, um-
hverfismálum, kennslumálum
o.s.frv. Grundvöllur stefnumótun-
arinnar er að fatlaðir öðlist jafn:
rétti á við aðra þjóðfélagsþegna. í
öðru lagi er meginverkefni nefnd-
arinnar að beita sér fyrir kynn-
ingu á málefnum fatlaðra í skól-
um landsins og fjölmiðlum.
VERKSMIÐJU-
SALA
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA
SÝNINGAHÖLLINNIBÍLDSHÖFDA
1.-11. OKTÓBER
Opiö frá kl. 1—6.
Frá Ylrúnu:
Sængur, koddar,
svefnpokar, rúmteppi.
Frá skóversm. Iðunni:
Karlaskór, kvenskór, ung-
lingaskór og fóöraöir kulda-
skór.
Frá verksm. Skinnu:
Mokkakápur, mokkajakkar,
mokkahúfur, mokkalúffur.
Einnig lítiö gallaðar vörur.
Frá Torginu:
Dömu-, herra og
barnafatnaöur.
Iðnþróunarsjóður Suðurlands stofnaður:
25 sveitarfélög
eru stofnendur
Hellu. 30. septemher.
STOFNFUNDUR Iðnþróunarsj-
óðs Suðurlands var haldinn i dag
á Hellu, en samtök sveitarfélaga
á Suðurlandi hafa að undanförnu
unnið að stofnun sjéiðsins og á
aðalfundi þeirra i apríl sl. var
samþykkt reglugerð fyrir sjóð-
inn. Stofnendur sjóðsins eru
sveitarfélög á Suðurlandi og hafa
25 af 37 sveitarfélögum i Suður-
landskjördæmi þegar gerst aðil-
ar að sjóðnum. þar með öll
þéttbýlissveitarfélögin. Tilgang-
ur sjóðsins er að stuðla að eflingu
atvinnulifs á Suðurlandi. m.a.
með lánveitingum til nýrra fram-
kvæmda einstaklinga, fyrirtækja
og stofnana til langs eða skamms
tima svo og til sveitarfélaga.
Tekjur sjóðsins eru árlegt
framlag sveitarfélaganna á svæð-
inu sem nemur 1% af föstum
tekjum þeirra, þ.e. af útsvari,
fasteignaskatti og aðstöðugjaldi.
Á þessu ári skal þessi upphæð þó
vera !6%. Framlag þeirra sem
þegar hafa gerst stofnfélagar á
þessu ári nemur samkvæmt áætl-
un um 25 millj. kr.
í stjórn, sem er skipuð sjö
mönnum, voru kosnir: Jón Ingi
Einarsson oddviti í Vík, Stein-
grímur Ingvarsson bæjarfulltrúi,
Selfossi, Þorsteinn Garðarsson
sveitarstjóri Þorlákshöfn, Þór
Hagalín sveitarstjóri, Eyrar-
bakka, Ölver Karlsson oddviti,
Þjórsártúni, Arnar Sigurmunds-
son bæjarfulltrúi, Vestmannaeyj-
um og Páll Zóphoníasson bæjar-
stjóri, Vestmannaeyjum.
— Jón Þorgilsson
■
n **
Frá Gefjun:
Ullarteppi, teppi, teppabútar, áklæði, gluggatjöld,
buxnaefni, kjólaefni, ullarefni, sængurveraefni, garn,
loöband, lopi.
Frá Fatav.sm. Heklu:
Úlpur, gallabuxur,
peysur, samfest-
ingar, treflar og
sokkar.
Frá lager:
Tískuvörur úr ull, peysur,
fóöraöir jakkar, prjónakáp-
ur, pils, vesti og ofnar slár.
ATH.:
Strætisvagnaferðir
Hlemmi med leiö 10.
Hér má sjá hluta hópsins sem viðstaddur var opnunarhátiðina að
Garðaholti.
Garðabær:
Jón Sveinsson forseti bæjarstjórnar stjórnar hér 100. fundi bæjarstjórnar Garðabæjar á sviði gamla
þinghússins að Garðaholti. Ljosm. Mbi. rax.
Garðaholt tekið í notkun
eftir gagngerar endurbætur
— bæjarstjórn hélt þar sinn 100. fund
SL. FÖSTUDAG var sam-
komuhúsið og gamla þing-
húsið á Garðaholti i Garðabæ
tekið í notkun á ný eftir
gagngerar endurbætur. Við
það ta kifæri hélt bæjarstjórn
Garðabæjar hátiðlegan 100.
fund sinn og tilkynnti forseti
bæjarstjórnar. Jón Sveinsson,
á fundinum. að bæjarstjórn
hefði samhljóða samþykkt að
á næsta ári yrði gengiö frá
lóðinni umhverfis samkomu-
húsið.
Garðaholt var upphaflega
byggt árið 1909 og þá notað
sem þinghús hreppsins. Húsið
hefur verið vinsæll samkomu-
staður síðustu árin og fjöl-
mörg félagasamtök hafa hald-
ið þar fundi sína og skemmt-
anir. Gagngerar endurbætur
hafa nú verið gerðar á hús-
næðinu og einnig hefur það
verið stækkað. Kostnaður við
verkið er u.þ.b. 70 millj. kr.
Kvenfélag Garðabæjar hefur
séð um rekstur hussins í
samvinnu við bæjaryfirvöld og
aðstoðuðu félagskonur við lag-
færingu hússins. Kvenfélagið
mun áfram sjá um reksturinn,
formaður þess er Þórunn Ingj-
aldsdóttir.
Viðstaddir 100. fund bæjar-
stjórnar að Garðaholti voru á
annað hundrað manns, starfs-
menn bæjarins, stjórn Kven-
félagsins og makar þeirra.
Þágu þeir veitingar í boði
bæjarstjórnar og í lokin var
stiginn dans.