Morgunblaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
20__________
Frá þingi SÍBS:
Þjónusta við lungna-
sjúklinga verði aukin
SAMBAND ísl. berkla- og brjóst-
holssjúklinKa hélt fyrir skömmu
22. þing sitt. Viö setningu þess
ræddi formaöur SÍBS. Kjartan
Guónason, um alþjóðaár fatlaóra
1981 ok ýmis atriði sem hafa bæri
í huKa í því samhandi. sérstak-
leKa varðandi jafnrétti fatlaðra
ok þau áhuKamál þeirra er varða
félaKsleKt öryKKÍ. SaKði hann að
með breyttum atvinnuháttum í
vaxandi men^un andrúmsloftsins
fjöÍKÍ lunKnasjúklinKum ok i stað
þess að auka þjónustu við þá á
eina lunKnasjúkrahúsi landsins.
Vífilsstoðum, hafi hún verið
skert. Verði heilbrÍKðisyfirvöld
að Krípa i taumana ok snúa
öfuKþróun þessari við.
Oddur ólafsson í ræðustóli á
þinKÍ SÍBS.
Haukur Þórðarson yfirlæknir á
Reykjalundi flutti fræðsluerindi
um endurhæfingu fatlaðra og þær
nýjungar, sem nú eru efst á baugi
hjá heilbrigðisþjónustu hér á
landi, sérstaklega með tilliti til
líkamsræktar í formi íþrótta-
iðkana af ýmsu tagi. Þá komu
fram á þinginu upplýsingar um
byggingaráform SIBS um nýtt
verksmiðjuhús fyrir öryrkja-
vinnustofu Múlalundar, sem nú rís
af grunni hjá háhýsum Öryrkja-
bandalagsins í Hátúni.
í sambandsstjórn eiga nú sæti,
Kjartan Guðnason formaður,
Oddur Ólafsson, Garðar P. Jóns-
son, Guðmundur Guðmundarson,
Júlíus Baldvinsson, Hjörtþór Ag-
ústsson og Björn Ólafur Hall-
grímsson. Þingið samþykkti
nokkrar ályktanir m.a. þar sem
þeirri ósk er beint til stjórnar
SÍBS að hún komi því á framfæri
við heilbrigðisyfirvöld, að almenn-
ingi verði veitt meiri fræðsla um
astma- og ofnæmissjúklinga, m.a.
með fræðsluerindum í útvarpi.
Einnig að lögð verði rík áhersla á,
að menn úr hópi lækna og sér-
menntaðs fólks fari reglulega út á
land og fái aðstöðu til að taka á
móti astma- og ofnæmissjúkling-
um til viðræðna og annarrar
þjónustu. Þá er bent á að brýn
nauðsyn sé á fræðslu í grunnskól-
um um þessi efni, stjórn SIBS er
hvött til að vinna að því að komið
verði upp fullkomnum deildum
fyrir öndunarfærasjúklinga á
A-sjúkrahúsum landsins og settar
verði upp meðferðardeildir við
önnur sjúkrahús og heilsugæslu-
stöðvar og á endurhæfingarstöðv-
um.
Frá fundi í ynKri deild KFUK i Reykjavík, en vetrarstarf KFUM og K er að hefjast um þessar mundir.
Vetrarstarf KFUM og KFUK að hefjast:
Barna- og unglinga
starf á 12 stöðum
VETRARSTARF KFUM og
KFUK í Reykjavík er að hefjast
um þessar mundir, en félögin
verða með harna- og unglinga-
starf i vetur á 12 stöðum á
höfuðborgarsvæðinu og eru á
hverjum stað margar deildir með
fundi í viku hverri. Aldursskipt-
ing er nokkuð mismunandi eftir
starfsstöðum. en viðast hvar
starfa yngri deildir fyrir 9—12
ára <>k unglingadeildir fyrir
13-17 ára.
Á fundum yngri deildanna er
margs konar efni á dagskrá, sagð-
ar sögur, farið í leiki, sýndar
myndir og mikið er um söng á
fundum félaganna. í unglinga-
starfinu er einnig fundið upp á
margvíslegu eíni til fróðleiks og
skemmtunar, t.d. farnar kynnis-
ferðir í fyrirtæki og stofnanir og
skáli við Hafravatn er notaður til
kvöld- og helgarferða. Þá annast
félögin á nokkrum stöðupi sunnu-
dagskólastarf og svonefndar vina-
deildir fyrir yngstu börnin. Þá
halda aðaldeildir félaganna viku-
lega fundi í félagshúsinu við
Amtmannsstíg, æskulýðskór fé-
V
laganna starfar yfir vetrarmánuð-
ina og kom í fyrrahaust út
hljómplata með söng kórsins.
í frétt frá félögunum segir að
þau vilji vera vettvangur fjöi-
breytts og innihaldsríks tóm-
stundastarfs og vekja meðvitund
um ábyrgð gagnvart öðrum
mönnum og gefa þátttakendum
tækifæri til að kynnast svörum
kristinnar trúar við spurningum
lífsins. Skrifstofa félaganna að
Amtmannsstíg veitir nánari upp-
lýsingar um starfsemina.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi:
Gagnrýna málsmeð-
ferð og samningsgerð
— vegna innlausnar á erfðafesturéttindum Sæbólslands
Á FUNIII bajarstjórnar Kópa-
vogs i siðustu viku. gerðu bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
þeir Richard BjörKvinsson, llragi
Michaelsson og Guðni Stefáns-
son. athuKasemd við samninga
um innlausn Kópavogskaupstað-
ar á erfðafesturéttindum Sæbóls-
lands með svohljóðandi Isikun:
Við afgreiðslu bæjarstjórnar á
samningi um innlausn Kópavogs-
kaupstaðar á erfðafesturéttindum
Sæbólslands óskum við bæjar-
fulltrúar sjálfstæðisflokksins að
gera eftirfarandi bókun um af-
stöðu okkar:
Málsmeðferð:
Við leyfum okkur að víta og
gagnrýna harðlega alla meðferð
þessa máls, sem er með eindæm-
um.
Á fundi bæjarráðs 16. sept. sl.
skýrði bæjarlögmaður frá því, að
hann hefði gengið endanlega frá
samningi um innlausn á erfða-
festulandi Sæbóls og fór þess á
leit, að bæjarráð staðfesti og
samþykkti þessa samningsgerð.
Mjög takmarkaðar upplýsingar
fengust á þessum fundi um alla
málavexti. Samningurinn var ekki
lesinn eða dreift til bæjarráðs-
manna á fundinum. Ekki lá Ijós
fyrir stærð þess lands, sem inn-
leyst er með honum og virðast
aðstandendur samningsgerðarinn-
ar ekki hafa kannað það áður til
hlítar en henni var lokið.
Á innlausn Sæbólslands hefur
ekki verið minnst í mörg ár í
bæjarráði eða bæjarstjórn í þá
veru að gera tilraun til að fram-
kvæma hana. Hvorki bæjarlög-
manni né öðrum aðila hefur verið
veitt umboð til að ganga endan-
lega frá samningi án þess að
leggja hann áður fyrir bæjarráð. I
samningnum er enginn fyrirvari
gerður um samþykki bæjarráðs og
bæjarstjórnar, sem að sjálfsögðu
bar skylda til.
Málsmeðferðin er því skýlaust
brot á 28. gr. samþykktar um
bæjarmál Kópavogskaupstaðar og
36. gr. sveitastjórnarlaganna og á
öllum lýðræðisreglum.
Harma bera, að bæjarlögmaður
skuli hafa látið meirihluta bæjar-
stjórnar hafa sig til slíkra vinnu-
bragða.
Enn einu sinni þarf að benda
bæjarfulltrúum núverandi meiri-
hluta bæjarstjórnar Kópavogs á,
að samþykktir funda meirihiutans
hafa ekkert gildi fyrr en þær hafa
einnig verið gerðar af lögformleg-
um aðilum, Þ.e. bæjarráði og
bæjarstjórn. í þessu tilviki er
málsmeðferðin því valdníðsla og
réttindi minnihluta fyrir borð
borin.
Vart er hægt að ætla fulltrúum
meirihlutans, að þeir hafi ekki
vitað betur, því þá eru þeir ekki
hæfir til að gegna störfum bæjar-
fulltrúa.
Fulltrúar meirihlutans í bæj-
arráði Iýstu því á fundinum 16.
þ.m. að hraða hefði þurft málinu.
Samningurinn er dagsettur 10.
sept. sl., en daginn áður, 9. sept.,
var haldinn reglulegur fundur
bæjarráðs, þar var ekki minnst á
málið einu orði.
Hinn 12. sept sl. var fundur
bæjarstjórnar, þar var heldur ekki
minnst á málið. Hægur vandi er
og að boða til aukafunda bæjar-
ráðs hvenær sem er og eru fjöl-
mörg dæmi um slíkt.
Að sjálfsögðu ræður meirihluti
bæjarfulltrúa niðurstöðu í hverju
máli, enginn véfengir það, en samt
ber þeim ávallt að taka ákvarðan-
ir á lögformlegan hátt og fram-
kvæma þar á sama hátt.
Samningsgerðin:
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hafa ávalit fylgt þeirri
stefnu, að Kópavogskaupstaður
eignaðist sem mest af löndum
innan bæjarmarkanna og inn-
leysti erfðafesturéttindi.
Varðandi samninginn sjálfan
gagnrýnum við eftirfarandi atriði.
Eftir því sem næst verður kom-
ist er stærð þess lands, sem
innleyst er 43.699 fm, en þess er
ekki getið í samningnum.
Verðmæti þess, sem látið er af
hendi af hálfu bæjarins fyrir
innlausn þessa lands er erfitt og
nokkuð flókið að meta. Samning-
urinn er beinlínis þannig gerður
að gera það sem erfiðast og ætla
má, að þeir sem að samningsgerð-
inni stóðu, hafi ekki að öllu leyti
gert sér grein fyrir hvað í honum
felist. Þarna er aftur farið inn á
þá braut, að afhenda lönd og lóðir
án A-gatnagerðargjalda, sem
reynt hefur verið að forðast á
undanförnum árum. Rétt er að
vekja athygli á því, að allt það
verðmæti, sem látið er af hendi er
100% verðtryggt.
Mörg atriði í samningi þessum
eru vægast sagt mjög einkennileg
og orka tvímælis og skal bent á
nokkur. ,
Allar viðbyggingar og nýbygg-
ingar á hinum afhentu lóðum utan
einnar, skulu vera gatnagerðar-
gjaldslausar um aldur og æfi.
Einn hektari lands er afhentur til
afnota til ræktunar og til reksturs
svipaðrar verzlunar og nú er rekin
í Blómaskála. Afnot þessi skulu
endurgjaldslaus til ársins 2000,
eða í 20 ár. Hvað felist í þessu er
nokkuð erfitt að átta sig á, en ætla
mætti eftir orðanna hljóðan, að
ekki skuli greiða t.d. neina lóðar-
leigu, fasteignaskatt eða nein önn-
ur fasteignagjöld, ekkert aðstöðu-
gjald, í stuttu máli enga skatta
eða skyldur.
Samningurinn ber þess vott, að
flausturslega hefur verið að hon-
um unnið, t.d. er 8. gr. hans
einfaldlega felld niður í næst
síðustu málsgrein í lokagrein
hans.
Verðmæti þess, sem bæjarsjóð-
ur lætur af hendi má ætla að
lágmarki kr. 76,8 millj., þegar
reiknað er með niðurfellingu
skulda, eftirgefnum aðeins
A-gatnagerðargjöldum skv. gild-
andi gjaldskrá nú í september og
hluta af öðrum fríðindum, pr.
hvern hektara lands, sem innleyst
er nemur þetta nær 17,6 millj.
króna.
Ef hinsvegar er reynt að gera
sér grein fyrir hugsanlegu mark-
aðsverðmæti þess, er af hendi er
látið, mætti ætla það um 225 millj.
króna eða pr. hektara lands um
51,5 millj. króna.
Til samanburðar er skemmst að
minnast þess, að Kópavogskaup-
staður hefur fyrir rúmum mánuði
síðan fest kaup á eignalandi fyrir
verð, sem nam tæpum 3 millj kr.
pr hektara. Þessi samanburður er
því feikilega óhagstæður þessum
samningi eða frá 6 til 17 fallt
verri, sérstaklega þar sem hér er
aðeins um að ræða innlausn á
erfðafesturéttindum á landi, sem
þegar er eign bæjarins. Auk þessa
mun samningurinn vera mjög
fordæmisgefandi.
Með tilvísun til ofanritaðs bæði
málsmeðferðar og margra efnis-
atriða samningsins og óljósra
upplýsinga greiðum við því at-
kvæði gegn samþykkt hans.
11.648 krónur á
14 kílóa dilk
Á IIVERJU hausti ákveður Sex-
mannanefndin vinnslu- og dreif-
ingarkostnað við sauðfjárslátrun
og er þessi kostnaður byggður á
upplýsingum frá sláturleyfishöf-
um og verðiagsþróuninni innan-
lands. Samtals eru 22 kostnaðar-
liðir lagðir til grundvallar þegar
reiknaður er út slátur- og heild-
sölukostnaður. Þessir liðir gera
samtals 720 krónur á hvert kíló
dilkakjöts, en 560 krónur á hvert
gærukiló. Slátur- <>k heildsölu-
kostnaður á dilk. sem hefur 14
kílóa fallþunga verður þvi 11.648
krónur.
Erfitt er að meta nákvæmlega
hvað telst til sláturkostnaðar, en
varlega áætlað telur Upplýsinga-
þjónusta landbúnaðarins, að beinn
sláturkostnaður sé um 300 krónur
á kíló af kjöti og um 250 krónur á
kíló af gæru. Sláturkostnaður á 14
kílóa dilk verður því um 4.900
krónur.