Morgunblaðið - 02.10.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
21
Sýningar á „Rommí“
hef jast að nýju í kvöld
-Ég er ákaflega ánægður
að hafa fengið að stjórna
þessu verki. Það er svo mann-
legt og hofðar á þeim forsend-
um mjög til manns,“ sagði
Jón Sigurbjörnsson, leikstjóri
„Rommí“ eftir bandaríska
leikritahöfundinn D.L. Cob-
urn, en það verður sýnt í Iðnó
í kvöld og er það fyrsta
sýningin eftir sumarhlé leik-
hússins.
Jón sagði, að leikritið fjall-
aði um tvær gamlar manneskj-
ur. „Þær hafa verið lagðar til
hliðar," sagði hann. „Þær eiga
sér enga framtíð lengur, lifa í
fortíðinni, reyna að blekkja sig
en sitja uppi með sársaukann
að lokum."
Með hlutverkin í leiknum
fara þau Gísli Halldórsson og
Sigríður Hagalín. Þau eru á
elliheimili og stytta sér stund-
ir við að spila rommí. Eftir því
sem þau spila fleiri umferðir
opinbera þau sig æ skýrar
hvort fyrir öðru. Gamli mað-
urinn hefur ekki þegar fram í
sækir neina stjórn lengur á
skaplyndi sínu, hann sættir sig
ekki við ellina — og það fær
meðal annars útrás í því að
hann tekur því stórilla að tapa
stöðugt í spilinu. í fyrstu
höfðu þau ræðzt við um hitt
fólkið á heimilinu og haldið
uppi almennu skrafi, en „undir
lokin er ljóst að leikritið fjall-
ar ekki um aldrað fólk eða
gamalmenni heldur fyrst og
fremst um manneskjur", eins
og segir í tilkynningu Leikfé-
lags Reykjavíkur.
„Rommí" Var frumsýnt í maí
og fékk prýðilega dóma. Eins
og fyrr segir er Jón Sigur-
björnsson leikstjóri, leikmynd
gerði Jón Þórisson, Daníel
Williamsson annast lýsingu og
Tómas Zoéga þýddi leikritið.
Höfundurinn, D.L. Coburn,
fékk Pulitzer-verðlaunin fyrir
þetta leikrit fyrir tveimur ár-
um.
Þau Fonsía og Weller, gómul og gleymd og þeim sinnir enginn.
„Ég fylli þó ennþá þann flokk, sem dregur lifsandann ...“ segir
Weller í varnarskyni á einum stað.
Gísli og Sigriður í hlutverkum
sinum.
Vaxa pening-
ar á tr jánum
á íslandi?
GarAi. 30. september.
ÞESSA dagana gengur yfir þorp-
ið keðjubréfafaraldur en þetta er
orðinn viss viðburður í þjóðlífinu
á nokkurra ára fresti.
Virðist sem keðja þessi sé sett á
stað að þaulhugsuðu máli nokk-
urra manna og að sjálfsögðu eru
þeir einu aðilarnir sem hagnast
töluvert á uppátækinu. Keðjubréf
þessi ganga nú a.m.k. á Reykjavík-
ur- og Reykjanessvæðinu ljósum
logum. í þeim kemur fram að
hægt sé að hagnast svo og svo
mikið — allt upp í 20 milljónir að
ég held, og trúa þessu margir. En
mér er spurn. Síðan hvenær eru
peningar farnir að vaxa á trjánum
á Islandi? Hver borgar ef allir
græða? Spyr sá sem ekki veit.
Fréttaritari.
Háskóla-
fyrirlestur
IIERMANN Pálsson. kennari í
íslensku við Edinhorgarháskóla.
flytur opinberan fyrirlestur í
boði heimspekideildar Iláskóla
Íslands föstudaginn 3. október
1980 kl. 17.25 í stofu 201 í
Árnagarði.
Hermann Pálsson er í röð mik-
ilvirkustu fræðimanna er fást við
íslenskar bókmenntir og hefur
flestum eða öllum meira unnið að
kynningu íslenskra bókmennta í
hinum engilsaxneska heimi með
þýðingum sínum.
Fyrirlesturinn nefnist „Nýjar
rannsóknir á Hrafnkels sögu".
Öllum er heimill aðgangur.
(Frétt frá Háskóla lslands)
Sigvaldi Hjálmarsson
„Að sjá
öðruvísi,“
ný bók eftir Sig-
valda Hjálmarsson
KOMIÐ er út lítið kver eftir
Sigvalda Hjálmarsson, er nefnist
„Áð sjá öðruvisi“ með undirtitlin-
um „Esseiar um mannlegt líf“.
Bókin er 75 bls. að stærð og
skiptist í 16 kafla. Bera þeir
heitin: Hart er í heimi, Úrelt
lífsviðhorf, Nýtt sambýlisform,
Nýtt mat á menntun, Óvissan er
opið hlið, Bókalaus en ekki blind-
ur, Nýir vitsmunir, Nýr mórall, Að
finna upp ánægjuna, F'agurt
mannlíf, Að eiga eða þurfa, Skoð-
un og skoðanaleysi, Að vaxa eins
og blóm, Afrakstur iðjuleysisins
og Að kunna að eldast.
Útgefandi bókarinnar er Víkur-
útgáfan.
Útsölustaðir: Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ — Eplið Akranesi — Eplið ísafirði
Álfhóll Siglufirði — Cesar Akureyri — Hornabær Hornafiröi — Eyjabær Vestmannaeyjum
SG-330 fjjw
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR MAGNARI 2x20
WOTT R.M.S. ÚTVARP: 4 ÚTVARPSBYLGJUR. FM
FW. STERIO LW, MW. SW
PLÖTUSPILARI: HÁLF-
SJÁLFVIRKUR, S-ARM-
UR, MAGNETIC PICKUP.
SEGULBAND: MEÐ
SJÁLFLEITARA
HÁTALARAR: 2 STK. 40
WÖTT.
hItSlurum kr. 469.000.-