Morgunblaðið - 02.10.1980, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
33
Friðjón Þórðarson ráðherra tók fyrstu skóflustuniíuna að viðbótar-
hyKKÍntfu sjúkrahússins í Stykkishólmi og var martrt manna viðstatt
athöfnina.
Sjúkrahúsið í Stykkishólmi:
Hafist handa um
viðbótarbyggingu
Stykkishólmi. 27. sept.
í DAG kl. 2. e.h. tók Friðjón
Þórðarson dómsmálaráðherra
fyrstu skóflustunguna að viðbót-
arbyggingu við sjúkrahúsið i
Stykkishólmi. sem jafnframt
verður heilsugæslustöð fyrir
Breiðafjörð og umhverfi. Við
þessa athöfn sem fór fram við
sjúkrahúsið, flutti priorinnan.
systir Reenee. ræðu. þar sem hún
lýsti aðdraganda að stofnun
sjúkrahússins fyrir hálfri öld, og
rakti sögu þess i áföngum síðan.
hvað unnist hefði og þeim örðug-
leikum sem upp hefðu komið. Nú
væri sjúkrahúsið þannig á vegi
að það fylgdi ekki tækniþróun
heilsugæslunnar og því væri far-
ið inn á þennan áfanga. Þakkaði
hún þeim sem lagt höfðu þessu
máli lið. sveitarstjórnum héraðs-
ins og Friðjóni Þórðarsyni og
heilbrigðismálastjórn landsins.
Kvað hún þessa byggingu veita
starfsliði sjúkrahússins meiri
þrótt til meiri starfa. Þá minntist
hún samskipta Stykkishólmsbúa
og st. Fransiskusreglunnar. en
það er hún sem hefir veg og
vanda af rekstri sjúkrahússins,
ásamt barnaheimili og smábarna-
skóla sem allt er þar rekið af
fórnfúsum systrum reglunnar.
Eftir ræðu príorinnunnar, tók
Friðjón síðan skóflustunguna og
sýndi að hann hefir einhvern tíma
áður rist torf. Fjöldi manns var
viðstaddur, bæði aðkomandi og úr
plássinu og meðal annarra fulltrúi
frá heilbrigðisráðuneytinu.
Þessi viðbót við sjúkrahúsið
verður á 5 hæðum upp komin, 2182
fermetrar eða 8250 rúmmetrar.
Ekki verður mikil viðbót við
sjúkrarúm en þau eru nú 45 í
sjúkrahúsinu. Þarna er fyrirhuguð
heilsugæsla með allskonar nýtísku
tækjum sem gera læknum kleift
að gera meira fyrir sjúklinga en
nú er hægt að gera. Öll aðstaða
verður þarna nýtískuleg.
I viðbyggingunni er sérstaklega
gert ráð fyrir aðstöðu til endur-
hæfingar og þjálfunar sjúklinga
og er það brýn nauðsyn með tilliti
til þess hversu erfitt er að fá þá
þjónustu annarsstaðar og einnig
með tilliti til samgangna. Oft
verður að bíða lengi eftir slíkri
hjálp.
Eru miklar vonir bundnar við
að þessi áfangi verði sem styst í
byggingu. Byggingarnefnd hefir
þegar verið skipuð og eru í henni
príorinnan, sem er formaður,
Sturla Böðvarsson sveitarstjóri og
Einar Karlsson.
Bókavarðafélags íslands
Eftir athöfnina var öllum við-
stöddum boðið í kaffi í félags-
heimilinu. Einar Karlsson stýrði
hófinu og sveitarstjóri, Sturla
Böðvarsson, flutti erindi og rakti
sögu þessa máls frá byrjun en
mörg ár eru síðan ákvörðun var
tekin um þessa byggingu og mikið
unnið að undirbúningi á seinustu
árum. Nýlega hefir svo heilbrigð-
isráðuneytið samþykkt bygging-
una og mun sjúkrahúsið leggja
aðalféð til framkvæmdanna eða
allt eftir nánari reglum og sam-
komulagi eigenda. Friðjón Þórðar-
son færði bæjarbúum og þeim,
sem kæmu með að njóta þessa
verks, hamingjuóskir. Þakkaði
þeim sem að verkinu hafa unnið
og munu vinna og læknishéraðinu
blessunar í komandi framtíð. Var
þetta mjög hátíðleg stund í lífi
Stykkishólmsbúa.
Fréttaritari.
Stórskemmdir
unnar á veghefli
STÓRSKEMMDIR voru unn-
ar á veghefli í eigu Vegagerð-
ar rikisins i fyrrinótt.
Hefillinn var skilinn eftir við
Laxá í Kjós í fyrrakvöld en
þegar starfsmenn Vegagerðar-
innar komu til vinnu í gær-
morgun blasti við ófögur sjón.
Búið var að brjóta 14 af 15
ljósum á heflinum, allar 10
rúðurnar voru brotnar, sömu-
leiðis speglar og loftnetsstöng.
Ennfremur var búið að stela
talstöð og útvarpstæki úr hefl-
inum.
Þeir, sem kunna að geta veitt
upplýsingar um það hverjir
þarna voru að verki, eru beðnir
að hafa samband við Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Húsavík. 25. septembor. 1980.
BLÓÐSÖFNUNARSVEIT Blóð-
bankans og Rauða krossins var
hér siðastliðinn þriðjudag að
safna blóði. en tíu ár munu vera
síðan þeir voru hér síðast þessara
erinda. Því betur voru Ilúsvík-
ingar allgjafmildir. og gáfu alls
121 blóð: meiri hlutinn karl-
menn. en þó margar konur þó að
ekki næðu þa'r jafnréttishlutfall-
inu á því sviðinu.
Gjafmildi sína sýndu aðeins 5%
bæjarbúa í þetta skipti, og hefði
þar betur mátt gera enda veit
enginn hver næstur þarf að biðja
um aðstoð þessa banka sem út-
hlutar öllum sem vilja vaxta- og
kostnaðarlaust og er aldrei lokað-
ur. — Gæti Blóðbankinn ekki birt
tölur yfir gjafmildi manna á
hinum ýmsu stöðum, hlutfallslega
miðað við íbúafjölda? Þá gæti það
orðið metnaðarmál víða um land
hver gæfi mest til þessa þjóðþrifa
þjóðbanka.
6. leikvika — leikir 27. sept. 1980
Vinningsröð: 122 — 1 1 x — x 1 1 — 1 2 x
1. vinningur: 11 réttir — kr. 452.500.-
2344 31189(4/10) 40326(6/10) 41654(6/10)
10522 34067(4/10) 40729(6/10)
2. vinningur: 10 réttir — kr. 10.600.-
1046 3962 7172 10555+ 31214 33917+ 40420
1261(2/10) 7828 10568+ 31661 34004+ 40057
1509+ 4215 7901+ 10570+ 31664 34068(2/10) 41271
1558+ 4289 8431 10633+ 31710 34069 40061
1597 4340 8718 10742+ 31822 34072(2/10) 41388
1729 4824 9122 10743+ 32196(2/10) 40364
1747 4850 9199 30048 32321(2/10) 40450
1779 5225 9254 30540+ 32660 34074 40562
1908 5334 9268 30877(2/10) 34188(2/10) 41836
2021 5606 9351 30888 32731 34232 40742
2370 5923 9359 30895 32846 34247 40818
2627 5979+ 9562 30903 33009 34274 41003
3085 6604 10084(2/101+ 33306 34350 41122(2/10)
3844 7168 10552+ 30911 33721 34367 41150
Kærufrestur er til 13. október kl. 12 á hádegi.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöð fást hjá
umboðsmönnum og á aðalskrifstofunni. Vinnings-
upphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til
greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa
stofni eöa senda stofninn og fullar upplýsingár um
nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kæru-
frests.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK