Morgunblaðið - 02.10.1980, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
MORö-JKí-S^’
KAFFINli 1 r®
Fullur? — Því heldurAu það,
má ég spyrja?
... að vera alltaf
hjá henni um
meðgöngutímann
TM Reg U S Pat Oft — all rights raaerved
• 1978 Los Angeies Times Syndicats
TAKMr^OJ
Boðið í „helför“
BRIDGE
Umsjón: Péll Bergsson
Næsta hálfan mánuðinn verður
haldið ólympíumót i Valkenburg
i Ilollandi. Og þótt litið hafi af
frést verður landslið íslands þar
i hópi nálægt 60 þjóða, sem þátt
taka. Mót sem þessi eru ótrúlega
erfið en landslið okkar hefur æft
vel að undanfornu og full ástæða
til að búast við góðu gengi og_
liðinu fylgja bestu óskir.
En aðstaða íslendinga á þessu
sviði er ólík því, sem gerist
erlendis. Frændþjóðir okkar á
Norðurlöndum hafa aðstöðu til
sérstakra æfingalandsleikja og
spilið í dag er frá einum slíkum.
Svíar og Danir spiluðu á dögunum
120 spila æfingaleik, sem iauk með
naumum sigri sænskra. Suður gaf,
allir utan hættu.
Norður
S. 106
H. K1076
T. ÁKG2
L. ÁK3
COSPER
C05PER.
Ég vara þig við því, að koma ekki of nærri mér, því
ég er fullur af kvefi.
Rögnvaldur skrifar:
Mér er eins farið og „sjón-
varpsáhorfanda," sem skrifaði þér
fyrir skömmu um hina einstöku
fréttaskýringu Ögmundar Jónas-
sonar um atburðina í Póllandi.
Það var fyrst eftir skýringar hans,
að það rann upp fyrir mér, að
verkalýðurinn í Póllandi er alveg
sáttur við sósíalismann í grund-
vallaratriðum. Nú hefur Kania
hinn nýi leiðtogi pólskra kommún-
ista staðfest þessa skýringu Ög-
mundar (sjá Mbl. 9.9.), og eru
ríkisfjölmiðlarnir á Islandi og í
Póllandi því á sama máli um þetta
og segir það sína sögu.
• Samkvæmt rök-
fræði Ögmundar
Af því tilefni að sjónvarpið
hefur sýnt „helförina", dettur mér
í hug, hvort Ögmundur vilji ekki
flytja nýja fréttaskýringu, þ.e. um
átök Þjóðverja og gyðinga. Þar
hlýtur hann auðvitað að beita
sömu rökfræðinni og í Póllands-
þættinum og koma mér þá þessi
atriði í hug úr þeim þáttum:
Leiðtogar gyðinga vildu greiniiega
í lengstu lög komast hjá átökum
við nasista. Ekki hefur enn heyrst,
að þeir hafi sett fram kröfur um,
að nasismanum yrði kollvarpað í
Þýskalandi og Adolf Hitler ríkis-
leiðtogi yrði settur af, að gyðing-
um yrði skilað aftur eigum sínum,
að lagðar yrðu niður „vinnubúðir"
foringjans. Samkvæmt rökfræði
Ögmundar Jónassonar og saman-
burðarfræðinga „Þjóðviljans"
hljótum við að draga af þessu
eftirfarandi ályktanir (sbr. af-
stöðu pólskra verkamanna til al-
ræðiskerfisins í Póllandi): Gyð-
ingar studdu nasismann í grund-
vallaratriðum, en óskuðu eftir
„mannúðlegri nasisma" (sbr.
„mannúðlegur sósíalismi"). Gyð-
ingar voru fylgismenn Adolfs
Hitlers og vildu halda honum á
valdastóli, þeir vildu ekki taka
aftur við eignum sínum og höfðu
ekkert á móti „vinnubúðunum"
nema hvað vinnuálagið þar var
fullmikið.
• Ættu að leita fyr-
irmynda hjá Lenín
Hvað sagði ekki Kjartan
Ólafsson í „Þjóðviljanum" nú á
dögunum: Pólskir verkamenn
ættu að leita fyrirmynda hjá
Lenín (höfundi Gúlagkerfisins)
um það, hvernig steypa ætti ein-
ræðisstjórn. Með sömu rökum
Vestur
S. 7
H. 98532
T. D86
L. G1042
Austur
S. DG854
H. -
T. 10953
L. D765
Suður
S. ÁK932
H. ÁDG4
T. 74
L. 98
Sé aðeins litið á spil norðurs og
suðurs má sjá, að 7 hjörtu eru vel
spilanlegur samningur. En það
reyndist Dönunum ekki vel að
segja alslemmuna.
Suður Vestur NurAur Austur
1 sp. pass 2 tf. pass
2 hj. pass 4 *r. pass
5 hj. pass 5 irr pass
7 hj. allir pass.
Eðlilega varð norður viss um, að
slemma væri í spilinu þegar suður
sagði 2 hjörtu. Hann spurði því
um ása og 5 gröndin voru áskorun
í alslemmuna jafnframt því að
spyrja um kóngana. Og eðlilega
tók suður áskoruninni.
Eftir útspil í laufi tók sagnhafi
næst á spaðaás en spaðakónginn
trompaði vestur og þar með var sá
draumur búinn.
Á hinu borðinu létu Svíarnir sér
nægja að segja hálfslemmuna og
högnuðust því vel á spilinu.
JIB Stór-Rýmingarsala
Viö rýmum til fyrir væntanlegum matvörumarkaöi
og seljum þessa viku öll húsgögn og gólfteppi á
sérstöku afsláttarveröi og auk þess meö einstæö-
um greiöslukjörum.
Innlend húsgögn:staögr.afsl. 15%
Innflutt húsgögn.staögr.afsl. 5%
afsláttur á kaupsamningi 5%
Teppi: staögr.afsl. 10%
Útborgun allt niöur í 25% og eftirstöövar lánum viö
í allt aö 10 mánuöi.
Opiö föstudag til kl. 22
Opiö laugardag kl. 9—12.
Jón Loftsson h/f
Hringbraut 121,
Sími 10600, 28601.