Morgunblaðið - 02.10.1980, Síða 48
Síminn á afgreiöslunni er
83033
JW»T0unbI«l>it>
/v • y/ ,
Siminn a afgreiöslunni er
83033
JM«T0tinbUibib
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
Varðskipið Æ«ir kom í «ær til Reykjavíkur með nýju þyrlu LandhelKÍsgæzlunnar, TF-Rán. Þessa mynd af þyrlunni, sem er af gerðinni
Sikorsky S-76. tók Árni Kristjánsson, bátsmaður á Ægi, í St. John’s á Nýfundnalandi er þyrlan lenti í fyrsta skipti á islenzku varðskipi. Sjá
nánar á bls. 25.
ASI kynnir milljarða-
kröfur í lífeyrismálum
FULLTRÚAR Alþýðusambands Islands kynntu i gær fulltrúum
Vinnuveitendasambands íslands, Vinnumálasamhands samvinnufé-
laganna og Farmanna- og fiskimannasambands íslands kröfur ASÍ
um úrbætur i lífeyrismálum. Var þetta gert innan svokallaðrar
8-manna nefndar þessara aðila, sem um þessi mál hefur fjallað. Hafa
fulltrúar ASÍ undanfarinn hálfan mánuð unnið að þessari kröfugerð,
en innan ASÍ er mikill þungi í mönnum vegna þess aukna misræmis,
sem varð i lífeyrismálum við samkomulag fjármálaráðherra ok BSRB,
almcnnum lífeyrisþegum i óhag.
Svo §em kunnugt er hafa ýmsir
forystumenn innan ASI látið þung
orð falla vegna þessa misræmis.
Erfitt var í gær að fá upplýsingar
af fundi 8-manna nefndarinnar,
en eftir því sem Morgunblaðið
komst næst munu vinnuveitendur
ætla að skoða kröfur ASÍ og verða
þær lagðar fyrir framkvæmda-
stjórn VSÍ á föstudag.
Eftir því sem næst verður kom-
izt, munu fulltrúar ASÍ leggja
áherzlú á að ríkisstjórnin eyði því
misræmi sem er milli lífeyrisþega,
með breytingum á ellilífeyris-
greiðslum, frítekjumarki o.fl., þ.e.
að öllum launþegum verði tryggð
sömu lífeyrisréttindi, án tillits til
þess hver vinnuveitandinn sé.
Benda þeir á leiðir í þessum
efnum.
Um þessi mál sagði Ragnar
Lítið miðar á
viðræðufundum
Arnalds fjármálaráðherra í við-
tali við Tímann hinn 19. ágúst
síðastliðinn: „Mér finnst sjálfsagt
að athugað verði að bæta almennt
stöðu launþega hvað lífeyris-
greiðslur snertir, og er ekkert
Frihafnarmálið:
Y firheyrslur
halda áfram
LÖGREGLAN á Keflavíkurflug-
velli og tollgæslan vinna áfram
að rannsókn meintra tollalaga-
brota nokkurra Fríhafnarstarfs-
manna.
Sagði Kristján Pétursson deildar-
stjóri að rannsóknir og yfirheyrsl-
ur héldu áfram. Einn maður er nú
í gæsluvarðhaldi, en þeir voru um
tíma tveir. Þá sagði Kristján
Pétursson að ekkert hefði fram
komið við rannsóknir, sem bent
gæti til þess að lögreglumenn eða
tollgæslumenn væru við málið
riðnir.
vafamál að ríkið verður að greiða
þar fyrir með ýmsum hætti."
Undanfarið mun hafa verið
unnið að því að reikna út kostnað
við framkvæmd krafna ASÍ og
skiptir hann milljörðum króna.
Talið er að þessar kröfur ASÍ
nemi um 6 milljörðum króna og
hefur þá ekki verið tekið tillit til
kostnaðarauka, sem hlýzt af
niðurstöðum yfirstandandi kjara-
samninga, en venja er að þeir hafi
áhrif á almennar lífeyrisgreiðslur
almannatryggingakerfisins og líf-
eyrissjóðanna. Mun þá enn vanta
ótalda milljarða, sem greiða þyrfti
til viðbótar til elli- og örorkulíf-
eyrisþega um almannatrygginga-
kerfið, ef samræmi á að verða með
öllum tryggingaþegum landsins.
Einn forystumanna ASÍ lét þau
orð falla í gær, að þótt umræddar
kröfur fengjust fram á hendur
ríkisvaldinu um breytingar á líf-
eyrisgreiðslum og vinnuveitendur
væru inni á þeim, vantaði enn
mikið á til að hinn almenni
launamaður nyti sömu lífeyris-
réttinda og opinberir starfsmenn.
Friðrik
tef lir við
Karpov
FRIÐRIK Ólafsson, stórmeistari
og formaður Alþjóða skáksam-
bandsins, tekur á næstunni þátt í
mjög sterku skákmóti í Buenos
Aires í Argentínu. Meðal and-
stæðinga hans á mótinu verða
Karpov heimsmeistari og stór-
meistararnir Timman frá Hol-
landi og Larsen frá Danmörku svo
einhverjir séu nefndir. Þátttak-
endur eru allir stórmeistarar í
skák að undanskildum nokkrum
heimamönnum, sem fá þarna
tækifæri á að tefla gegn nokkrum
af sterkustu skákmönnum heims.
Arnarflug
í flug með
pílagríma
ARNARFLUG gerði í gær samn-
ing um leigu Boeing-720 þotu
sinnar til pilagrímaflugs i Afriku.
en vélin á að fljúga með farþega
milli Cotonou í Benin og Jeddah.
Að sögn Ilalldórs Sigurðssonar
sölustjóra er hér um nokkrar
ferðir að ræða. en ekki fullráðið
hversu margar.
Halldór Sigurðsson kvað samning
þennan hafa borið mjög brátt að,
hringt hafi verið í gærmorgun til
Arnarflugs og spurst fyrir um
möguleika á leigu þotunnar. Gengið
var frá samningi kl. 14 og hinn
erlendi aðili greiddi inná hann. Var
síðan unnið að því síðdegis í gær að
kalla út þær tvær áhafnir sem þarf,
alls 14 manns, og undirbúa vélina
og var áætlað að þotan legði af stað
frá Keflavík kl. 19:30 í gærkvöldi.
Hin Boeing-þota Arnarflugs sinnir
verkefnum í Jórdaníu og munu þau
endast út þennan mánuð.
Landsig
á Kröflu-
svæðinu
LANDSIG hófst á Kröflusvæð-
inu um hádegisbilið í gær og
sagði starfsmaður á skjálfta-
vakt í samtali við Mbl. í gær-
kvöld að það væru ákveðin
hættumerki í því fólgin, en
landiö hélt stöðugt áfram að
síga í allan gærdag. Að öðru
leyti vildi hann ekki spá um
hvað gerast kynni, ógjörningur
væri að segja fyrir um hvernig
málin þróuðust.
Mikil verðlækkun á ull
og gærum erlendis
LÍTIÐ sem ekkert miðaði í sam-
komulagsátt milli aðila vinnu-
markaðarins í gær, en fundur
var í undirnefnd. sem fjallar um
slysa- og veikindamál. Þá voru
bakarar á fundum og bókagerð-
armenn. en deila þeirra kemur í
veg fyrir að vinnuveitendur taki
upp viðræður um kauplið kjara-
samninga og vísitölu. Aðalsamn-
inganefndir aðila híða nú aðcins
eftir því, að sérkröfur leysist og
er þar tæknikrafa biikagerðar-
manna erfiðasti hjallinn.
Enn er uppi ágreiningur milli
vinnuveitenda annars vegar og
Sambands byggingmanna og
Verkamannasambandsins hins
vegar um sérkröfur. Vinnuveit-
endur telja að viðræðum um
sérkröfur þessara tveggja lands-
sambanda sé lokið, en landssam-
böndin ekki. Hafa byggingamenn
látið bóka atriði í því sambandi
hjá sáttasemjara ríkisins, en
VMSÍ hins vegar ekki.
Bókagerðarmenn og Félag ís-
lenzka prentiðnaðarins hafa setið
á löngum viðræðufundum og lítið
hefur miðað. Fundi, sem hófst
klukkan 14 í fyrradag, lauk klukk-
an 11 í gærmorgun og aftur hófst
fundur klukkan 16 í gær og stóð
hann enn er Morgunblaðið fór í
prentun. I dag eru rafiðnaðar-
menn boðaðir á annan samninga-
fund sinn, en hinn fyrsti var
haldinn í fyrradag. Eins og áður
hefur komið fram í fréttum sögðu
rafiðnaðarmenn sig úr samninga-
nefnd ASÍ fyrir ailnokkru og hafa
þeir ekki komið til viðræðna fyrr
en nú.
VERÐ á gærum og ull hefur enn
ekki verið ákveðið. en sexmanna-
nefndin frestaði þeirri verð-
ákvörðun fram í miðjan þennan
mánuð. Iðnaðardeild Samhands-
ins hyrjaði hins vegar að vinna
nýjar gærur fyrir um hálfum
mánuði og sagði Hjörtur Eiríks-
son. framkvæmdastjóri, i gær, að
þessi staða væri mjög erfið og
óþægileg því ekki væri hægt að
gera sölusamninga. þar sem hrá-
efnisverð væri forsenda þeirra og
einnig áætlana í rekstri.
Hjörtur sagði, að fyrir hendi
væru nákvæmar upplýsingar um
verð á ull og gærum á heimsmark-
aðnum og hefði orðið um verulega
verðlækkun á hráefninu að ræða,
sem eðlilega hefði mikil áhrif til
iækkunar á unnum ullar- og
skinnavörum. Sagði hann, að m.a.
væri beðið með verðákvörðunina
til að sjá hver þróunin yrði á
hoimsmarkaðnum.
„A brezka markaðnum, sem er
sá langstærsti í Evrópu, eru gær-
urnar boðnar á 50% lægra verði
en áður, í Svíþjóð og Noregi nemur
verðlækkunin 25 —30%. Ullin hef-
ur ekki lækkað alveg eins mikið,
en þó yfirleitt alls staðar um 20%,
þannig að hér er mjög alvarlegt
mál á ferðinni, sem bætist við
aðra rekstrarerfiðleika," sagði
Hjörtur Eiríksson.