Morgunblaðið - 19.10.1980, Page 3

Morgunblaðið - 19.10.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980 Ökumenn sviptir réttindum í stórum stíl fyrir hraðakstur Radarmælingar eru mikilvirkasta aðferð lögreglunnar til þcss að halda umferðar- hraðanum innan settra marka. ÞAÐ hefur færst geysilega í vöxt á þessu ári að ökumenn séu sviptir ökuréttindum um stundarsakir fyrir ofsaakstur á höfuðborgarsvæðinu og bendir það til þess að menn freistist meira til þess en áður að gefa duglega í eða kitla pinnann, eins og það kallast á nútímamáli. Sviptingarnar skipta ekki tugum heldur hundruðum það sem af er þessu ári, en ökumenn eru undantekningalaust sviptir réttindunum um stundar- sakir ef þeir eru teknir á 100 kílómetra hraða miðað við klukkustund og þar yfir. Morgunblaðið hafði sam- akstur væri á bilinu 20—22 band við Ingibjörgu Benedikts- þúsund krónur. Þegar ökumað- dóttur fulltrúa við sakadóm Reykjavíkur. Hún veitti blað- inu þær upplýsingar að í flest- um tilfellum væru ökumenn sviptir réttindunum um eins til þriggja mánaða skeið og sektargreiðslur væru á bilinu 50—150 þúsund. Ýmis atriði geta orðið til að þyngja refs- inguna, t.d. er ekki sama hvort maður ekur á 100 kílómetra hraða á rauðu ljósi eða hvort hann er tekinn á sama hraða á beinum og breiðum vegi, svo dæmi sé tekið. Eins hafa ítrekuð brot áhrif til þyng- ingar og eru dæmi til þess að menn hafa verið sviptir rétt- indum til aksturs bifreiða í eitt ár fyrir hraðabrot. Þá hafði Morgunblaðið ennfremur samband við Sturlu Þórðarson, fulltrúa lögreglu- stjórans í Reykjavík og fékk uppgefið hvaða sektir liggja við umferðalagabrotum. Sturla sagði að lang algeng- asta sektin fyrir of hraðan ur er tekinn á 71—80 km hraða á götu, þar sem hámarkshraði er 50 km, er sektin 22.500 krónur. Ef ökumaður er tekinn á 81—90 km hraða er sektin 34.500 krónur og 40 þúsund krónur yfir 90 km. Hér er miðað við götur með 50 km hámarkshraða en ef hámarks- hraðinn hækkar, t.d. í 60 km, er sektin 22.500 krónur ef menn eru teknir á 81—90 km hraða. Við 100 km mörkin er dregin lína að sögn Sturlu og ef menn eru teknir á þeim hraða eða þar yfir eru þeir í flestum tilfellum sviptir öku- réttindum til bráðabirgða og mál þeirra send sakadómi Reykjavíkur. Að sögn Ingi- bjargar Benediktsdóttur eru það aðallega ungir menn, sem virðast freistast til hraðaakst- urs og teknir eru fyrir ofsaakstur. Aðspurður um sektir fyrir önnur umferðarlagabrot nefndi Sturla sem dæmi að sekt fyrir að aka yfir á rauðu ljósi væri 34.500 krónur og fyrir brot á stöðvunarskyldu 22.500 krónur. Ef menn van- rækja að fara með bifreið sína í skoðun er sektin 13.500 krón- ur og 11.000 króna sekt er við því að trassa að tilkynna eigendaskipti. Ef of margir farþegar eru í bifreið er sektin 9 þúsund fyrir þann fyrsta fram yfir og 11 þúsund fyrir hvern farþega fram yfir það. Ef lögreglan vill sjá ökuskír- teini ökumanns og hann hefur gleymt því heima er sektin 4.500 krónur og ef sannast að menn hafa ekið á kyrrstæða bifreið og vikið af vettvangi er sektin 40 þúsund krónur. Ef menn aka réttindalausir er sektin 15 þúsund krónur en 6.500 fyrir pilta, sem aka vélhjólum án réttinda. Loks er að nefna það, að ef óhöpp í umferðinni eru rakin til brota á umferðarreglunum eru hinir brotlegu sektaðir og er sektin þá alltaf hærri en venjulega er sektað fyrir sama brot. Sektir fyrir umferðarlaga- brot skipta þúsundum í Reykjavík á árinu og sektar- upphæðir skipta eflaust hundruðum milljóna. Núgild- andi sektarupphæðir voru ákveðnar af rikissaksóknara fyrir tæpu ári síðan og munu vafalaust hækka innan skamms. Forsjáll ferðamaður velur ÚTSÝNARFERÐ LONDON ALLIR FARSEÐLAR Á LÆGSTA VEROI. — heimsborgin, sem býður eitthvað við allra hæfi — Leiklist — tónlist — myndlist — úrval matsölustaöa — knattspyrnuleikir — söfn — verzlanir og fjölbreytt skemmtanalíf. Enn sem fyrr býöur Útsýn hagstæöustu kjörin vegna margra ára viðskipta og hagkvæmra samninga viö gististaöi í hjarta borgarinnar. Starfsmaður Utsýnar Kristín Hauks- dóttir tekur á móti farþegum á flugvelli og verður til aðstoðar meö- an á dvölinni stendur. Vikufferðir — brottför alla laugardaga. Verö frá kr. 300.100.- Helgarferöir — brottför annan hvern fimmtudag. Verö frá kr. 266.800.- HVERT SEM FERÐINNI ER HEITIÐ, GETUR ÚTSÝN SPARAÐ YOUR FÉ OG FYRIRHÖFN. Ódýr jólafargjöld Kaupmannahöfn kr. 133.800.- Glasgow kr. 99.700.- London kr. 115.500.- Luxemborg kr. 142.000.- Oslo kr. 121.900.- Stokkhólmur kr. 152.600.- Farseðlar og ferðaþjónusta Útsýn hefur á að skipa færustu sér- fræðingum í far- seölaútgáfu og skipulagningu einstaklingsferða hvert sem er í heiminum. Með hvaöa flugfélagi viltu fljúga? Útsýn útvegar þér lægsta fáanlegt fargjald á hvaða flugleiö sem er á áætlunarleiöum allra helstu flugté- laga heimsins. Þú færð flugfarseöil- inn hvergi ódýrari en hjá Útsýn meö hvaða flugfélagi sem þú flýgur. FLUGLEIDIR m AerLíngus * oi vwprc /I A3PO<PAOT UAMm AiFt L/rvrs British © Lufthansa airways German Airlmes <&£> I' AUSTWIAM A/Wí/MfS swissair tli' KLM Royai Outch Airlmee ^Thai airportugal jt/s Helstu vörusýningar í Evrópu 1980—’81 Birmingham: Kaupmannahöfn: Kaupmannahöfn: Helsinki: Kaupmannahöfn: Kaupmannahöfn: Frankfurt: Dússeldorf: liit. Motor & Commercial Motor Show 15—26okt.'80. Int. Boat Show 8—16 nóv. '80. Scandinavian Dental Fair 3—5 jan. '81. Finnish Fashion Fair 27—29 jan. ’81. Building for Billions 21 feb.—1. mars ’81. Scandinavian Fashion Week 12—15 inars '81. Int. Sanitation, Heating & Air Con- dition’g Exbn. 17—22 mars '81. Int. Footwear Trade Fair 21—23 mars 81. Austurstræti 17. Símar 26611 og 20100'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.