Morgunblaðið - 19.10.1980, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980
Nýr
Escort
FORD Escort hefur breytt um
svip meö nýrri árgerö og er nú
veriö aö kynna hann víöa um
lönd. Aö sögn Fordumboösins,
Sveins Egilssonar, veröur nokkur
biö á því aö hann komi hingaö til
lands og vörðust talsmenn um-
boösins frétta um hugsanlegt
verö, en veriö er aö fjalla um þaö
um þessar mundir.
Nýr jeppi frá
Mitsubishi
MITSUBISHI-bílaverksmiöjurnar japönsku munu á
næsta ári setja þennan lögulega jeppa á markaðinn en
hann heitir Pajero II. Aö sögn Sigfúsar Sigfússonar,
framkvæmdastjóra Heklu hf., sem hefur umboö fyrir
Mitsubishi, verður hægt að fá hann bæöi eins og
bílinn á myndinni, þ.e. með litlu húsi aö framan, eöa
meö plasthúsi aftur úr. Þaö ætti því að vera
tilhlökkunarefni fyrir þá sem vilja eiga litla jeppa, aö fá
þessa nýjung, sem væntanlega veröur nokkuö
ódýrari heldur en t.d. amerísku jepparnir.
•** ■
SACHS
SÍKurvegari i Evrópuralli varð sa nskur ökumaóur á Volvo 343.
VOLVO umboöið kynnir á næstunni árgeröir 1981 í Volvo
fjölskyldunni, en nokkuö er um breytingar á nýju árgerðunum og fær
hver tegund sinn skammt. Nýir stuöarar eru á 240, 260 og 340
bílunum og á stærri bílunum eru nú svartar rendur kringum
gluggana.
Þá er á stærri gerðunum nýtt mælaborö og yfirbragö
framhlutans er nokkuð breytt. Ný vél er í 264 GLE bílnum, B 28 E,
155 DIN hestöfl. Meöal nýjunga í 340 bílnum eru nýir litir, ný sæti og
meira bil milli fótstiganna.
PERINGE Walfridsson ökumaöur á Volvo 343 varö Evrópu-
meistari í rallíkross akstri fyrir viku síöan, en úrslitakeppnin fór fram
í Þýzkalandi. Haröasta keppni veitti Martin Schanche á Ford Escort
og hafa þeir deilt meö sér forystunni í keppnum sumarsins. Volvo
343 bílar urðu einnig í 3., 4. og 5. sæti, en bílarnir eru knúnir Turbo
vél, sem er 255 hestöfl.
Umsjón: JÓHANNES
TÓMASSON OG SIG-
HVATUR BLÖNDAHL
meö nokkuö breyttu svipmóti eins ok sjá má.
Volvo 244 árjterð 1981 —
Breytt svipmót á
nýrri árg. Volvo
Space Wagon frá Mitsubishi:
Plássið er nýtt
til hins ftrasta
ÞESSI sérkennilegi bíll mun væntanlega aka um götur hér á landi
einhvern tíma á næsta ári, en hann heitir Super Space Wagon og
er framleiddur hjá Mitsubishi-bílaverksmiöjunum japönsku.
Sigfús Sigfússon, framkvæmdastjóri Heklu hf., sem hefur umboð
fyrir Mitsubishi hér á landi, sagöi í samtali viö Mbl., aö framhluti
bílsins væri mjög svipaður og Mitsubishi Colt, sem mikið hefur
verið seldur hér á landi. Þessi bíll væri hins vegar nokkru lengri
og víðari til veggja. Hann er því nýttur til hins ítrasta hvaö pláss
varðar. Hann er meö þremur sætarööum og getur því flutt allt aö
átta manns meö ökumanni.
Ilallmar tekur hér vlð ferðaatyrknum úr hendi Þórunnar
Si^urðardóttur (jjaldkera FLÍ.
Hallmar Sigurðsson f yrsti
styrkþegi menningarsjóðs FLÍ
HALLMAR Sigurðsson leik-
stjóri hlaut fyrsta styrkinn,
sem veittur er úr Menning-
arsjóði Félags leikstjóra á
íslandi. Hlaut hann ferðastyrk
að upphæð kr. 600.000, sem
hann hyggst nota til ferðar til
Finnlands og V.-Þýzkalands
þar sem hann mun kynna sér
samstarf og samband á milli
leikhúsa og kvikmyndagerðar.
Einnig mun hann fylgjast með
störfum nokkurra þekktra
leikstjóra, sem vinna jöfnum
höndum fyrir svið og kvik-
myndir og leita svara við
spurningunni: „Geta kvik-
myndirnar notið af þeirri
reynslu sem leikhúsin búa yfir
og hvernig þá?“
Hallmar Sigurðsson lauk
námi í leikstjórn við Dramat-
iska Institutet í Stokkhólmi og
hefur starfað hér á landi í
u.þ.b. eitt ár. Hann setti í
haust upp sýningu Leikfélags
Reykjavíkur „Að sjá til þín,
maður" og leikstýrir nú
„Könnusteypinn pólitíska" hjá
Þjóðleikhúsinu.
Styrkurinn var afhentur
þann 12. þ.m., en úthlutun úr
sjóðnum skal jafnan fara fram
í byrjun leikárs. í stjórn
Menningarsjóðs Félags leik-
stjóra á Islandi eru: Þórunn
Sigurðardóttir, Sverrir Hólm-
arsson og Jónas Jónasson.
Erlingur Gíslason er formaður
FLÍ.
/