Morgunblaðið - 19.10.1980, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980
39
Grönlandsflyg f ær
Grænlandsflugið
SAS-fluKféiagið hefur í hyggju
að hætta Grænlandsflugi. þ.e.
áætlunarfluginu milli Kaup-
mannahafnar og Narssarssuaq
og Kaupmannahafnar og Syðri
Straumsfjarðar. Lengi var taliö
að Maersk-fiugfélagið tæki við
Grænlandsfluginu, en fyrir
skömmu var stjórnarformaður
Grönlandsflyg borinn fyrir þeirri
fregn i dönskum blöðum, að félag
hans fengi flugrútuna þegar á
næsta ári.
Til skamms tíma hefur SAS
notað þotur af gerðinni
Boeing-727 í Grænlandsfluginu,
en stjórnarformaður Grönlands-
flyg sagði, að félag hans mundi að
öllum líkindum fljúga á flugleið-
inni með Boeing-737 þotum, þar
sem hann teldi að þær væru öllu
hagkvæmari á þessari flugleið en
B-727. Þotur af gerðinni B-737 eru
nokkru minni en B-727. Þær eru
tveggja hreyfla og í flugstjórn-
arklefa starfa tveir flugmenn, en í
B-727 starfa tveir flugmenn og
flugvélstjóri, og B-727 eru þriggja
hreyfla.
Slöngvaö um borð
á 270 km hraöa
Meðal þeirra flugvéla sem þátt
tóku í misheppnaðri tilraun
Bandarikjamanna til að frelsa
gíslana margfrægu í íran. voru
MC130E Ilercules-flugvélar. sem
sérstaklcga eru búnar til björgun-
arstarfa, en meðfylgjandi mynd
er einmitt af slíkri flugvél.
Flugvélarnar eru með sérstakan
búnað framan á nefinu, n.k. gaffal,
til að fanga línur og lyfta hlutum
af jörðu. Þeim var ætlað það
hlutverk í íran að bjarga tveimur
útsendurum bandarískum, sem
komu til Iran nokkrum dögum
fyrir björgunartilraunina mis-
heppnuðu. Mennirnir áttu að setja
taug um sig miðja og festa helí-
umbele við annan endan til að
halda línunni á lofti. Siðan áttu
flugvélarnar að fanga þá og hífa
um borð um sérstaka hurð neðan
og aftarlega á búknum.
Einnig áttu vélarnar að vera til
taks og bjarga hverjum þeim úr
björgunarleiðangrinum er kynni
að verða strandaglópur. Aldrei
kom til að útsendararnir yrðu
teknir í burtu með þessum hætti og
ekki er vitað um afdrif þeirra.
Það hlýtur að vera nokkuð
óþægilegt að láta „kippa sér um
borð“ með þeim hætti sem hér er
greint frá, því þegar flugvélin
fangar línuna er henni flogið á 150
hnúta, eða rúmlega 270 km hraða á
klst.
Gaffallinn framan á flugvélinni er notaður til að fanga linur sem
helíumbelgir halda á lofti, og á hinum endanum eru ýmist menn
eða vörur. Flugvélar af þessu tagi voru notaðar i tilrauninni til að
bjarga bandarisku gislunum i tran i vetur.
Nokkrar stuttar
Mikill matur
Tíu stærstu flugfélög Bandaríkjanna vörðu 200 milljónum dollara, eða
104 milljörðum króna í mat handa farþegum á fyrsta ársfjórðungi 1980.
Flugfélögin fluttu 54 milljónir farþega á þessu tímabili sem jafngildir
því að matarskammturinn hafi kostað félögin um 2000 krónur á farþega.
Á sama tíma í fyrra vörðu sömu félög 179 milljónum til flugmatar.
Flugfélög, sem aðeins fljúga innan viðkomandi fylkja, fluttu á fyrstu
þremur mánuðum ársins 12,75 milljónir farþega og matarkaup þeirra
námu 17,6 milljónum dollara, eða 9,2 milljörðum króna.
Kínversk stæling á B-707
Fregnir frá Peking herma, að Kínverjar hafi framleitt þotu sem sé
skrambi lík þotum af gerðinni Boeing-707. Sumar fregnir herma jafnvel
að ýms tæknileg vandamál hafi gert það að verkum að þoturnar eru enn
ófleygar, þ.e. Kínverjar hafi ekki þekkingu til að gera þær fleygar.
Árið 1972 seldu Boeing-verksmiðjurnar Kínverjum 10 þotur af
gerðinni B-707, og í kaupunum fylgdu óvenju margir varahreyflar.
Formælandi Boeing hefur lýst yfir því, að verksmiðjurnar hafi enga
vitneskju um umræddar þotur Kínverja. „Flestar farþegaþotur virðast
eins í útliti í augum almennings," sagði hann.
Boeing selur grimmt
Pantaðar voru 227 farþegaþotur hjá Boeing-verksmiðjunum á fyrri
helmingi ársins 1980, og er það talsverð aukning frá sama tíma árið áður
er 148 flugvélar voru seldar. Þá voru afhentar 157 nýjar flugvélar á fyrri
helmingi 1980 miðað við 140 í fyrra. Þær vélar, sem afhentar hafa verið
á þessu ári, eru ein B-707, 70 af gerðinni B-727, 49 af gerðinni B-737 og 37
af gerðinni B-747. Gert er ráð fyrir að afhenda frá verksmiðjunum
svipaðan fjölda af hverri tegund á seinni helmingi ársins. Boeing-
verksmiðjurnar áætla að á næsta ári verði smíðaðar þrjár B-707, 105 af
gerðinni B-727,107 af gerðinni B-737 og 63 af gerðinni B-747.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF
Plötur — þurrkaöur viöur
Spónaplötur, sænsk 1. fl. vara á hagstæöu veröi.
Krossviður, rásaöur og sléttur.
Þurk. harðviöur (teak, abachi, maghoni, amerísk
eik, júgósl. beyki).
Þurkað oregon pine.
Harðplast (printplast) í miklu úrvali.
BMF og bulldog festingajárn.
f PÁLL Þ0RGEIRSS0N fr C0
Ármúla 27 — Simar 34000 og 86100.
K0SNINGASKRIFST0FA
stuöningsmanna sr. Árna Bergs Sigur-
björnssonar er í Þróttheimum viö Holta-
veg.
Upplýsingar og bílar í síma
82817.
SAMEINUMST UM LÖGMÆTA KOSNINGU
SR. ÁRNA BERGS SIGURBJÖRNSSONAR
Studningsmenn.
LADA
1600
LADA
mest seldi bíllinn
á íslandi ár eftir ár
Tryggiö ykkur LADA á lága verðinu.
Hagstæðir greiðsluskilmálar.
Lada 1200
Lada 1200 Station
Lada 1500 Station
Lada 1500 Topas
Lada 1600
Lada Sport
I.J. 2715 sendibíll
Verö ca. kr.
Verð ca. kr.
Verð ca. kr.
Verö ca. kr.
Verö ca. kr.
Verö ca. kr.
Verö ca. kr.
4.120.000
4.355.000
4.805.000
4.775.000
5.085.000
6.585.000
3.010.000
I
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hí.
SaðnHanðdiraMt U - Rejkjavík - Siml 38600