Morgunblaðið - 29.10.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
27
Turtildúfan tyllir sér á visifinKur hægri handar Ilálfdáns Henrysson-
ar, annars stýrimanns á Ægi, í brú varðskipsins.
Ljósm. Árni kristjánsson.
HuKaA að stefnunni á seKuláttavitanum.
í hniprildi af ókunnum ásta>ðum.
Lærið að prjóna
lopapeysur
Álafossbúöin, Vesturgötu 2 efnir til námskeiðs þar
sem kennt er aö prjóna lopapeysur. Námsgjald er
ekkert og efniö fæst allt í versluninni. Námskeiöið
hefst föstudaginn 31/10 og verður mánudag,
miðvikudag og föstudag frá kl. 13—16.
Leiðbeinandi á námskeiðum verður Astrid Erling-
sen.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í versluninni í
síma 13404.
A Aafossbúðin
Vesturgötu 2 - simi 13404
Ovæntur
gesturí varö-
skipinu Ægi
ÓVÆNTUR gestur kom í heim-
sókn um borð í varðskipið Ægi er
það var statt um 360 sjómílur
suðaustur af Hvarfi á Grænlandi
á leið sinni til St. John’s á
Nýfundnalandi í síðasta mánuði.
Var þar á ferðinni lítil turtildúfa,
en fuglar af þeirri tegund halda
sig aðallega í suðurhluta Evrópu.
Turtildúfur hafa þó átt það til
að flækjast til Islands, Noregs,
Svíþjóðar og Finnlands.
Er turtildúfan fannst um borð í
Ægi var hún aðframkomin af
þreytu, en hresstist tiitölulega
fljótt er henni var gefið að borða
og drekka um borð.
Fróðir menn telja, að dúfa þessi
hafi sennilega verið að flytjast
búferlum til Vesturheims, en
þangað hefði hún tæplega náð ef
ekki hefði hún getað áð um borð í
Ægi. En ferðin yfir Atlantshafið
reyndist henni ofraun, því hún dó
er varðskipið var um það bil að
sigla inn í höfnina í St. John’s á
Nýfundnalandi. Sá því litla dúfan
aldrei sæluna í vestri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 51., 54. og 57. tölublaöi
Lögbirtingablaðsins 1979, á Nýbýlavegi 94 — hluta
—, þinglýstri eign Benedikts Guðbrandssonar, fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5. nóvember
1980 kl. 12.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105. og 190. tölublaði Lögbirt-
ingablaðsins 1979 og 5. tölublaði 1980, á Hlaðbrekku
1 — hluta —, þinglýstri eign Hilmars Adolfssonar, fer
fram á eigninni sjálfri miövikudaginn 5. nóvember
1980 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53., 56. og 59. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1979, á Vatnsenda, þinglýstri
eign Magnúsar Hjaltested, fer fram á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 5. nóvember 1980 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 14., 17. og 20. tölublaöi
Lögbirtingablaðsins 1980, á Holtagerði 11 — hluta
—, þinglýstri eign Samúels Hreinssonar, fer fram á
eigninni sjálfri miövikudaginn 5. nóvember 1980 kl.
17.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
HVAÐ ER SVO GLATT A
, SEM ^
GOÐRA VMA FUNDUR
^^MIÐASALA í HÁSKÓLABÍÓI DAGLEGA FRÁ KL. 16.00.
Miönæturtónleikar Söngskólans í Reykjavík í
Háskólabíói næsta föstudagskvöld kl. 23.15.
SÖNGUR — OG
SVOLÍTIÐ GRÍN
Anna Júlíana
Garðar
Guðmundur
Guðrún Á.
Magnús
Már
Margrét
Ólöf Kolbrún
Sigurveig
Þuríöur
ásamt, Depru, Jónínu,
Kolbrúnu og Láru
Kór Söngskólans í Reykjavík.
Hljómsveit undir stjórn Björns
R. Einarssonar.
Aðstoð viö sviðsetningu
Sigríður Þorvaldsdóttir.
Kynnir Guðmundur Jónsson.
I
I
I
I
I
f