Morgunblaðið - 08.11.1980, Side 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
249. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gera loftárás
ir á Líbanon
Tel Aviv. 7. nóv. — AP.
ÍSRAELSKAR orrustuþot-
ur gerðu árásir á fjóra
staði í Líbanon í dag, og
segir ísraelsstjórn að
markmiðinu með þessum
árásarferðum hafi verið
náð. s.s. að hæfa „bæki-
stöðvar skæruliða” í
hefndarskyni fyrir eld-
flaugaárás Palestínu-
manna á Kiryat Shmona í
gær. þar sem fimm særð-
ust.
Þetta er önnur loftárás ísra-
elsmanna á Líbanon á tveimur
vikum, en óttazt er að þessar
hernaðaraðgerðir verði til
þess að Palestínumenn verði
sér úti um loftvarnaeldflaugar
í Sovétríkjunum, en slíkum
hergögnum hafa þeir ekki átt
á að skipa hingað til.
írakar sakaðir um
að pynda ráðherra
Beirút. 7. núvember. AP.
ÍRANIR sökuðu í dag ír-
aka um að pynda íranska
olíumálaráðherrann Mo-
hammad Tonguyan, sem
féll í hendur íraka fyrir
réttri viku. íranir segja að
líf hans „hangi á hlá-
þræði“ vegna misþyrm-
inganna og hafa hvatt til
alþjóðlegrar íhlutunar
honum til hjálpar. írakar
segjast þrengja stöðugt að
borginni Ahadan en íranir
segjast halda þeim í skefj-
um með leifturárásum.
í yfirlýsingu íranska utanríkis-
ráðuneytisins er vitnað til frétta
frá Bagdad þess efnis, að Tonguy-
an hafi verið „alvarlega sár“ þegar
hann var handtekinn, og það sagt
sannað, að honum hafi verið
misþyrmt svo að líf hans sé í
hættu. Myndir af Tonguyan hafa
hins vegar birst í franska og
austurríska sjónvarpinu og á þeim
virðist hann vera heill heilsu.
Bagdad-útvarpið sagði í dag, að
íranskt herlið hefði sótt nær
Abadan úr norðri og austri með
stuðningi skriðdreka, stórskota-
liðs og fallbyssuþyrlna en eftir
öðrum heimildum er haft, að ekki
sé fyrirhugað að ráðast inn í
borgina heldur eigi að reyna svo á
þolrifin í írönum að þeir gefist
upp að lokum. Iranir segjast gera
árangursríkar leifturárásir á ír-
aka og Mohammadali Rajai, for-
sætisráðherra írans, lýsti yfir því
í gær, að þjóð hans myndi berjast
til síðasta blóðdropa og að Sadd-
am Hussein Iraksforseti yrði
aldrei drottnari Persaflóa.
Mikið jámbrautar-
slys í New York
New York, 7. nóv. — AP.
ÓTTAZT er að fjöldi
manna hafi farizt í miklu
Paul McCartney
keppir við Disney
Iiondon. 7. nóv. AP.
PAUL McCartney er um
þessar mundir að færast í
fang sitt stærsta verkefni í
kvikmyndagerð síðan hann
stofnaði hljómsveitina Vængi
í kjölfar þess, að leiðir Bítl-
anna skildu. Um er að ræða
tciknimynd, söngvamynd.
sem heita skal „Rupert" og
er hyggð á einu mesta eftir-
læti enskra barna, hirninum
Rupert.
Margar kynslóðir breskra
barna hafa unað sér við að
lesa um ævintýrin hans Rup-
erts en sagan af honum hefur
um 60 ára skeið birst í blaðinu
Daily Express. „Við ætlum að
gera mynd, sem gefur
Disney-myndunum ekkert
eftir, og koma Rupert á fram-
færi við Bandaríkjamenn,"
segir McCartney.
járnbrautarslysi er varð
þegar farþejíalest og vöru-
flutningalest rákust sam-
an við Dobbs Ferry í New
York-ríki í kvöld. Fyrstu
fregnir herma að „mikil
meiðsl hafi orðið á
mönnum", en um mann-
tjón er ekki vitað nánar
enn sem komið er.
Starfsmenn almanna-
varna eru á leið á slysstað-
inn úr nærliggjandi borg-
um og á Hudson-línu hefur
rafstraumur verið rofinn í
öryggisskyni.
Talið er að farþegalestin
hafi verið hlaðin fólki, en
hún var á leið frá Niagara
til New York-borgar. í far-
þegalestinni voru sex vagn-
ar. Vörulestin var að fara
frá Bronx frá til Albany.
Allt er enn á huldu um
orsakir slyssins.
(AP-simamynd).
Vígbúnadarskark á Rauda torginu
Sovétstjórnin hélt í gær upp á byltingarafmælið, að vanda með því að efna til
stórfenglegrar hergagnasýningar á Rauða torginu. Vegna innrásar Sovétríkjanna í
Afganistan lét enginn fulltrúi erlends ríkis sjá sig við athöfnina. nema Mengistu forseti
herforingjastjórnarinnar í Eþíópíu. en miklir dáleikar eru með honum og Moskvustjórn-
inni.
Pólland:
Vinnudeilurnar
blossa upp á ný
Varsjá. 7. núvember. AP.
KENNARAR og læknalið í
Gdansk hófu í dag mót-
mælaaðgerðir og settust
hópum saman upp í húsa-
kynnum héraðsstjórnar-
innar í borginni. Krafizt
er hærri launa og tafar-
lausra efnda loforða um
kjarabætur. og bendir allt
til þess að vinnudeilurnar
í landinu séu að blossa upp
að nýju. Verkamenn í
fimm borgum studdu að-
gerðirnar í Gdansk með
því að leggja niður vinnu í
eina klukkustund.
Að sögn málsvara Frjálsa
verkalýðssambandsins tóku
um 100 sjúkrahússtarfsmenn
þátt í aðgerðunum, sem hófust
eftir að slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum við Sliwinski
heilbrigðisráðherra. Samtímis
settust 16 kennarar upp hjá
menntamálaráðherra eftir að
hann hafði vísað á bug kröfu
þeirra um að stjórnin léti
6,6% af þjóðrframleiðslunni
renna til skólamála.
Stjórnarbyggingarnar eru í
námunda við Lenin-skipa-
smíðastöðina og umkringdi
lögreglan svæðið, en gerði ekki
tilraun til að stugga við þátt-
takendunum í þessum aðgerð-
um. Frjálsa verkalýðssam-
bandið mun sjá fólkinu fyrir
viðurværi meðan á aðgerðun-
um stendur, en það hefur ekki
í hyggju að yfirgefa stjórnar-
setrið fyrr en stjórnin gerir
annað tveggja — verður við
kröfunum eða leggur fram
skrifleg loforð um að gera það.
Kína:
Kynferðismála-
umræða hafin
PekinK. 7. nóvemher. AP.
OPINSKÁ umra>ða um kyn-
ferðismál er hafin í Kína og
eitt helzta kvennahlað þar í
landi upplýsir nú ung hjón
um það að holdlcgt samra'ði
sé í sjálfu sér a'skilegt. þótt
hætt sé við því að það ali á
sjálfsdýrkun. Bent er á að
hér sé um að ra*ða fremur
orkufrekt athadi. og megi
telja að orkulindunum verði
betur varið við uppbygg-
ingu og framfarir í þjóðfé-
laginu.
Kynferðismál hafa verið
feimnismál í Kína síðan
kommúnistar komust þar til
valda, en með nýútkomnu
tölublaði tímaritsins „Konur
í Kína“ hefur verið brotið
blað á þessu sviði. Kínverjar
eru eftir sem áður siðavandir
og í leiðbeiningum þeim sem
nú hafa verið birtar er marg-
ítrekað að fræðslan sé aðeins
ætluð fólki, sem hafi gengið í
hjónaband.