Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 41 „Hef alltaf verið trú þeirri erfiðu vinnu sem batikin er'* + „Ég hef aldrei teiknað silfurmuni fyrr, en var svo heppin að fá jafn færan mann og Leif Kaldal til að útfæra verkið og ég er mjög ánægð með útkomuna," sagði Sigrún Jónsdóttir listakona í stuttu spjalli við Mbl. Sigrún mun flestum að góðu kunn fyrir batik-list sína, sem víða hefur farið og hlotið viðurkenningar á alþjóðavettvangi, m.a. á UNESCO-sýningu, sem haldin var í Monaco árið 1973. En Sigrúnu er fleira til lista lagt og nú síðast er það silfurskjöldur á kórkápu, sem hún hefur hannað að beiðni Sænska kirkjusambandsins, en Leifur Kaldal síðan útfært, eins og áður sagði. „Tildrögin voru þau,“ sagði Sigrún, „að árið 1978 hélt ég stóra sýningu í Galleri Helands í Stokkhólmi og þar komu menn frá Sænska kirkjusambandinu og pöntuðu hjá mér kórkápu, sem átti að fara til Adolf Friðriks-kirkjunnar í Stokkhólmi. Þegar ég hafði afhent kápuna, báðu þessir sömu aðilar mig að gera uppdrátt að krókapörum til að nota á kórkápu. Þar eð silfursmíði hefur verið aðalsmerki íslensks hand- verks, þá langaði mig til að fær maður tæki að sér verkið og leitaði því til Leifs Kaldals, sem að mínum dómi er einn bezti maður, sem við eigum á þessu sviði. Skjöldurinn er kræktur að aftan, en fellur saman í eina heild að framan. Hann er úr ekta silfri með 24 karata gullhúð. Mynstrið táknar trú, von og kærleik. Kórkápan sjálf er úr þykku, handþrykktu, bómullarefni og síðan er handmálað á hana með gulli og silfri. Hún er því ekki unnin með batik-aðferð, því handþrykk er ekki sama og batik. Það er mikill munur á slíkri aðferð og batik, sem er afskaplega tímafrek og erfið listgrein, ég treysti mér til að þrykkja hundrað kápur á meðan ég geri eina í batik. Hlutirnir geta verið jafn fallegir frá skreytingarlegu sjónarmiði, en það er geysilega mikið atriði, að vinnuaðferðum sé gefið rétt heiti. Það hefur viljað brenna við, að þessum hlutum sé ruglað saman vegna ókunnugleika fólks og allt kallað batik. En það er líkt og að leggja að jöfnu vélsaumaða vöru og handunna," sagði Sigrún. „Ég hef alltaf verið trú þeirri erfiðu vinnu sem batikin útheimtir og því finnst mér mér bera skylda til að varðveita þessa listgrein. Og ef ég ræð ekki við handverkið. fæ ég aðra til að gera það fyrir mig, sbr. silfurskjöldinn. Sigrúnu barst fyrir skömmu gullpeningur frá ítalskri listastofnun, sem viðurkenning fj rir unnin störf. „Ég veit nú satt að segja ekki alveg, hvers vegna þeir voru að senda mér þennan gullpening,“ sagði Sigrún, „því ég hef aldrei sýnt á Ítalíu, þótt ég hafi að vísu fengið mörg tilboð um það. En ég dvaldi um tíma á Italíu á vegum sænsks háskóla og ég held, að sú dvöl hafi ýtt undir áhuga minn á kirkjulegri skreytingarlist, sem hefur verið stór hluti af starfi mínu. Mér finnst afskaplega gaman að vinna þessi verk og eiginlega tengjast öll mín viðfangsefni kristinni trú,“ sagði Sigrún Jónsdóttir að lokum. Sigrún Jónsdóttir í vinnustofu sinni. Á borðinu er silfurskjoldur- inn. sem hún hannaði fyrir Adolf-Friðriks kirkjuna í Stokkhólmi. en Leifur Kaldal smíðaði. ásamt vinnuteikningu. Sigrún heidur á viðurkenningarskjaiinu og gullpeningnum. sem henni barst frá Italíu nýverið. félk í fréttum Samborgarar hans söfnuðu + Oft má lesa í blöðunum fréttir af því að lögreglumenn í stórborgum verði fyrir slysum af völdum ýmiskonar vítisvéla. Þessi unga lögga, sem er lögreglumaður í London, missti framan af vinstri handlegg í vor er ieið er sprengja sprakk í hendi hans. Hann hafði ætlað að fjarlægja hana. Þetta slys lögregluþjónsins unga, sem heitir Stephan Hickling, vakti umtal og samúð meðal samborgara hans. Það var efnt til fjáröflunar til hjálpar honum. Sú söfnun var er síðast fréttist komin yfir rúmlega ísl. krónur 126 milljónir. Það er ekki langt síðan að AP-fréttaljósmyndari tók þessa mynd af lögregluþjóninum utan við kirkju eina í London. Hann og brúður hans eru að koma frá prestinum eftir hjónavígsluna. Ekki áhyggjur af aukakílóum + Hin fræga kvikmyndaleik- kona í Hollywood. Kathcrine Hepburn, sagði frá því í sam- tali við amcriskt húsmaðra blað. að hún sé hinn mesti sælkeri. borði kokur og kon- fekt baki brotnu. enda hafi hún engar áhyggjur af ein- hverjum aukakílóum. Ég hef aldrei verið talin fallega vax- in. eins la-t ég það lönd og leið þótt æskublóminn hafi dofn- að. Leikkonan verður 71 árs i þessum mánuði. Hún ba tti því við: Ég var heldur aldrei talin lagleg og engan kynþokka hafa til að bera. a.m.k. að áliti þeirra. sem framlciddu kvik- myndir. Katherine býr nú í New York. Þessi mynd af leikkonunni er frá árinu 1940. Móðir fagnar sigri sonar + Hér faðmar Edna Seaga son sinn, Edward, eftir kosningasigur hans í kosningunum suður á Jamaica- eyju á dögunum. Þar beið þá ósigur Manley, forsætisráðherra, sem er vinstri maður. Flokkur Seaga heitir Verkamannaflokkur Jamaica og er það flokkur hægri manna. Mikil ógnaröld hefur ríkt á eyjunni allt þetta ár. Hafa 600 manns látið lífið í pólitískum átökum, flestir í höfuðborginni Kingston.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.