Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 37 hans minnst fyrir gátur og vísna- spjall. Lét honum einkar vel að klæða í skáldlegan búning það er bjó í huga og hafði af því yndi að flétta rímþrautir og fela ráðningar með ýmsum hætti. í biskupsritara- tíð Sveins hafði biskupsskrifstofa aðsetur í Arnarhvoli. Voru þeir grannar, hann og Vilmundur land- læknir, og má geta nærri að ýmis- legt hafi borið á góma þá er þeir hittust á förnum vegi eða í anddyri. Er í minnum haft að þá er Sveinn Víkingur birti vísnakver sín, er höfðu að geyma gátur hans, setti Vilmundur saman vísur tvær og voru nöfn Sveins bæði bundin í ráðningu þeirra. Önnur er þessi: IlrKKur strendur. bvr við huK blaö á v.itum slóöum. Spyrnir knetti af heilum huK. hyKKur aö hiskupssji'töum. Meðal félaga í Knattspyrnufélag- inu Víkingi, er spyrnti þá „af heilum hug“ var tengdasonur Vilmundar, Þorsteinn Ólafsson tannlæknir, vaskur í framgöngu á velli. í sextugsafmæli gamals félaga úr guðfræðideild, Ludvigs Guðmunds- sonar, lyftir Sveinn glasi og minnist samverustunda stúdenta á Mensa, vínbanns og „hundaskammta", er svo voru nefndir. Hann þarf ekki að óttast að deila kjörum þeirra Sigur- bjarnar skálds á Fótaskinni og Gríms Víkings, föður síns, er þeim var vísað burt af vertshúsi. Það er hlýtt og notalegt í húsi Ludvigs og ylur gamalla góðvinakynna: LanKt er nú síöan. LudvÍK minn. aö lyftum unKÍr KÍusum saman. Þá hofAum við „hundaskammt* «K helv ... var það rammt. en vakti þó Káska ok Kaman ok Keðið hressti samt. Svo liða árin. LudvÍK minn. við lifum. en orðnir sextuxir skrjóðar. Við ýtumst afturábak við ellinnar þunKa tak. En. — þina skál. Ilafðu þakkir Koðar. Er þetta ekki koniak? Séra Sveinn Víkingur varð svo kunnur maður fyrir margháttuð störf sín að eigi er ástæða til að rekja feril hans í smáatriðum. Hann gegndi fyrst aðstoðarprestsstörfum að Skinnastað. Síðan starfi sókn- arprests í Þóroddsstaðarprestakalli. Þá sat hann á Dvergasteini á annan tug ára, síðan sex ár á Seyðisfirði. Auk þess að gegna aukaþjónustu norðan lands og austan. Á fardögum 1942 ræðst hann til biskupsskrif- stofunnar sem skrifstofustjóri. Jafnframt því starfi var hann rit- stjóri Morguns. Kunnur og vinsæll fyririesari á mannfundum og í útvarpi. Minningar hans hafa komið út í þremur bindum auk samstæðrar bókar er hann nefndi „Vinur minn og ég“. Þykir fara vel á því að ljúka Sveins þætti Víkings með tilvitnun í kafla úr þeirri bók: „Það er hvorki unnt né heldur æskilegt að slíta sundur þá þætti, sem eðli okkar er fléttað af. Það er ekki mögulegt að fjötra þær hvatir, sem við nú kunnum að telja lágar og illar, né varpa þeim í ævilangt fangelsi. Þær slíta fjötrana, brjóta upp dyrnar fyrr en okkur varir. Það illa verður ekki fjötrað með slíku valdi, nema ef til vill um stund. Fullnaðarsigur yfir okkar svoköll- uðu lægri hvötum fæst aðeins með vexti og þroska persónuleikans sem heildar. Þannig ná þær að falla eðliiega og auðgandi inn í hinn mikla samhljóm hins fullkomna lífs, eru ekki lengur æpandi og falskir tónar, heldur samræmdir hlutar hljómkviðunnar. Ég er fyrir mitt leyti sannfærður um, að það er hin margbreytilega lífsreynsla, líka víxlsporin, glappa- skotin og gönuskeiðin, það að kanna bæði dýpstu sælu og þyngstu sorg, skjálfandi unað og nístandi kvöl, vonfylling og vonbrigði, sigra og ósigra, sælu og styrk trúartrausts- ins, voða villunnar og þjáning iðrun- arinnar, sem mestu veldur um líf okkar. Allt þetta á að minnsta kosti að geta aukið vöxtinn og þroskann og skapað að lokum þá lífsfyllingu, lífsfögnuð og frið, sem fólginn er í samræmingu og samtillingu og jafnvægi andstæðnanna að lokum.“ „Ertu. lif. nema alda sem utan frá sjónbauKsins rond berst fyrir orlaxa byljum ok hrotnar við timans strönd?“ I’étur Pétursson þulur Sextugs- afmæli í dag SEXTUGUR er í dag Óskar Ág- ústsson, kennari að Laugum í Þingeyjarsýslu. Hann hefur verið kennari að Laugum síðan haustið 1944, en hafði áður kennt þrjú ár á vegum U.M.F.Í. og haldið nám- skeið víðsvegar um landið. Jafn- framt kennslu sinni hefur hann haft með höndum póststörf og nú allmörg síðastliðin ár verið póst- og símstjóri að Laugum. Einnig séð um gistihúsarekstur þar síðan vorið 1948. Hann hefur á þessum árum tekið töluverðan þátt í félagsmálum og haldið fjölmörg námskeið með ungmennum hér- aðsins. Verið formaður Héraðs- sambands Suður-Þingeyinga í 20 ár. Kvæntur er hann Elínu Frið- riksdóttur húsmæðrakennara og eiga þau fjögur börn. Hann tekur á móti gestum í Oddfellowhúsinu við Vonarstræti 10 í Reykjavík í dag kl. 16—19. Hundavina- og Hundaræktarfélögin: Byggja hundagæzluheimili - leita eftir aðila til að taka að sér hús og rekstur 1 Fulltrúar félaganna hjá húsinu. sem er i smíðum hjá Þaki hf. l>eir eru. talið frá vinstri. Gunnar Már Pétursson gjaldkeri Hundavina- félagsins. Þór Þorbjarnarson. í stjórn Hundaræktarfélagsins. Matthias G. Pétursson. einnig i stjórn Hundaræktarfélagsins. og lengst til hægri Gunnar Erlendsson. í stjórn Hundavinafélagsins. Ljósm. Mbl. F.P. HUNDAVINA- og Ilundarækt- arfélag Íslands hafa ráðist í byggingu hundaga*zluheimilis. Heimilið mun rúma 16 hunda og er ætlað til gæzlu heimilis- hunda i skemmri tíma. Ilúsið er i byggingu hjá fyrirtækinu Þak h.f. i Bessastaðahreppi og eru félögin nú að leita fyrir sér um staðsetningu þess að sögn full- trúa félaganna. Að sögn Gunnars Erlendsson- ar sem sæti á í byggingarnefnd hf. Hundavinafélagsins er heppi- legasta staðsetning hússins á höfuðborgarsvæðinu eða í ná- grenni þess. Leita félögin eftir aðila sem hefur aðstöðu til að hafa húsið á eigin landi og sjá um rekstur þess. Gunnar sagði slík geymsluhús algeng erlendis. Með tilkomu hundagæzluheimil- isins fæst aðstaða fyrir hundeig- endur til að koma hundum sínum í örugga gæzlu fyrir sanngjarnt verð, en oft hafa þeir að sögn lent í basli, er þeir hafa þurft að bregða sér frá og hefur Dýraspítalinn hlaupið undir bagga að þessu leyti. Húsið verður færanlegt, en það er um 50 fermetrar að stærð. Hver hundur mun fá sinn eigin íverustað og verður sérstök girð- ing fyrir utan þannig að hund- arnir geta gengið út og inn að vild. Aðspurður sagði Gunnar, að heildarkostnaður við hunda- gæzluheimilið hefði verið áætl- aður um 14 millj. kr. í apríl sl. Sú upphæð fylgdi þó auðvitað verð- bólguþróuninni og hefðu félögin haft í nógu að snúast við að afla fjár til byggingarinnar. Hunda- vinafélagið hefur leitað til hundaeigenda og hundavina og notað félagsgjöld þessa árs til byggingarinnar og Hundarækt- arfélagið er með sérstakt happ- drætti í gangi í fjáröflunarskyni. Aðstandendur hundagæzluheim- ilisins sögðust vænta þess að unnt yrði að taka heimilið í notkun strax á næsta vori. Þessi börn á barnaheimili St. Franciskusystra i Stykkishólmi söfnuöu i eigin söfnunarbauk kr. 52 þús., sem þau gáfu til Afrikuhjálpar Rauða kross íslands. Fjórði bekkur Grunnskólans i Stykkishólmi safnaði í bauk í bekknum sinum og gekkst fyrir stórri hlutaveltu til ágóða fyrir Afrikuhjálp Rauða krossins. Afraksturinn var 270 þús. kr. sem þau afhentu formanni Rauða kross-deildarinnar á staðnum. Pálma Frimannssyni. en hann er með þeim á myndinni. Einnig eru á myndinni kennari þeirra Helga Maria Ólafsdóttir og Róbert W. Jörgensen, yfirkennari. Mjólkuidagar^O í húsi Osta-ogsmjörsölunnar, Bitmhálsi 2 Kymiing verður á nýjustu framleiðsluvörum mjólkursamlaganna og boðnar bragðprufur. Markaöur Þar verður seld m.a. skyrterta auk ýmissa osta. Einnig verða til sölu kynningarpakkar með mismunandi mjólkurvörum. 8.14 Mjólkurdagsnefnd Sýnikennsla fer fram alla dagana þar sem leiðbeint verður um tilbúning ýmissa mjól Hlutavetta verður í gangi allan tímann og verða vinningar ýmsar mjólkurafurðir. r Okeypis aógangur opið fostudag frá ki. 14 tn 20 laugardag frá kl. 10 til 20 sunnudag frá kl. 14 til 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.