Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 5 SÍKursæll Magnússon veitingamaður. Ljósm. Emiiía t {J i Er aðeins að leita eftir meðeiganda - segir Sigursæll Magnússon veit- ingamaður í Ártúni VEGNA fréttar í Morgunblaðinu um veitingahúsið Ártún vil ég taka fram eftirfarandi: Fyrirtæk- ið hefur ekki verið auglýst sér- staklega til solu, heldur var leitast við að fá aðila inn í fyrirtækið sem eignaraðila. Aðr- ar upplýsingar, sem fram komu í fréttinni, eru villandi og mun fyrirtækið starfa áfram óbreytt og standa við allar skuldbind- ingar sinar gagnvart póntunum ok leigu á sólum, sagði Sigursæll Magnússon veitingamaður í Ár- túni í samtali við Mbl. Sigursæll Magnússon hefur rek- ið veitingahúsið Ártún við Vagn- höfða í Reykjavík í tvö ár og starfa þar nú alls milli 20 og 25 manns. Á efri hæð er salur sem notaður er til almenns dansleikja- halds og skemmtana, leigður til einkasamkvæma o.fl. og tekur hann um 300 manns. í salnum er aðstaða fyrir hljómsveit á palli, bar og á snyrtingum er aðstaða fyrir hjólastóla og húsið þannig úr garði gert, að fatlaðir eigi auðvelt með að fara um það. Á neðri hæðinni er rekin kaffitería, sem tekur um 170 manns í sæti. Starfa við hana eina milli 10 og 12 manns. Kaffiterían er opin alla virka daga kl. 7:30 til 18 og eru þar allmargir í föstu fæði í hádeginu. — Salirnir eru ýmist notaðir báðir í einu sameiginlega eða sitt í hvoru lagi, allt eftir því hvers menn óska, en þeir taka alls nærri 500 manns. Ef ekki eru einka- samkvæmi eru almennir dansleik- ir á föstudags- og laugardags- kvöldum, sagði Sigursæll. Sem fyrr segir er Ártún við Vagnhöfða í Reykjavík og taldi Sigursæll staðinn nokkuð góðan, ekki síst nú eftir að búið er að malbika göturn- ar í hverfinu og er aðkoman nú mjög góð. Spariskírteinin ganga hægt út „ÞVÍ ER ekki að neita. að sala á verðtryggðum spariskírteinum ríkissjóðs hefur gengið ha'gar fyrir sig að undanfórnu. heldur en við hófum átt að venjast.„ sagði Stefán Þórarinssqn. rekstr- arstjóri Seðlabanka íslands i samtali við Mbl. „Boðnir voru út 3 milljarðar króna í upphafi og frá okkur eru þegar 2200—2300 milljónir króna, sem auðvitað eru ekki allar séldar, en útsölustaðir eru bankar og sparisjóðir úti um allt land. Við vitum um sölu og öruggar pantan- ir upp á nær 1500 milljónir króna," sagði Stefán ennfremur. Stefán sagði að sölunni yrði haldið áfram fram í desember ef þá yrði eitthvað eftir. Útsölusmjörið senn á þrotum SENN líður að lokum smjörútsöl- unnar, en að sögn Óskars Gunn- arssonar, framkvæmdastjóra Osta og smjörsölunnar, er þegar búið að dreifa stærstum hluta þeirra liðlega 300 tonna, sem sett voru á útsölu. Síðustu tonnin verða væntan- lega keyrð í verzlanir á Stór- Reykjavíkursvæðinu í dag og mánudag. Bingókvöld hjá Hvöt ÞAÐ ER orðinn árviss viðburður að Sjálfstæðiskvennafélagið Ilvöt í Reykjavík efni til Bingós. Að þessu sinni verða Ilvatarkonur með bingó að Hótel Borg á mánudagskvoldið og hefst það kl. 20.30. Spilaðar verða 12 umferðir og eru margir vinningar í boði. Má þar nefna hálfsmánaðarhálendis- ferð með Ferðaskrifstofu Guð- mundar Jónassonar, vöruúttektir, bækur og hljómplötur og einnig matarkörfur, sem undanfarin ár hafa sett svip á vinningana í Hvatarbingóunum. Húsið verður opnað kl. 20.00 og er inngangur um aðaldyr. Bingó- stjórar verða Ragnhildur Páls- dóttir og Þórunn Gestsdóttir. Porunn Ragnhildur Gestsdóttir Pálsdóttir Félag islenzka prentiðnaðaríns: Þjóðhagsstofnun reikni út tilboðið og beri sam- an við kjarasamninga VEGNA ágreinings, sem upp er kominn milli Félags islenzka prentiðnaðarins annars vegar og sveinafélaga bókagerðarmanna hins vegar. varðandi hugsan- legar launahækkanir samkvæmt kjarasamningum þeim, er gerðir voru milli aðila vinnumarkaðar- ins 27. október sl.. hefur stjórn FÍP samþykkt á fundi sínum í dag að senda Þjóðhagsstofnun meðfylgjandi bréf með beiðni um könnun og úrskurð á því, hve háum hundraðshluta launahækk- anirnar muni nema „ Þ jóðhagsstof n u n. c/o hr. Olafur Davíðsson, forstjóri, Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík. Félag íslenzka prentiðnaðarins annars vegar og félög bókagerð- armanna hins vegar eiga nú í kjaradeilu, eins og flestum er kunnugt og er deilan í höndum ríkissáttasemjara. Er gengið hafði verið frá sér- kröfum og byrjað var að ræða um hugsanlegar hækkanir launaliða, var staðan sú, að atvinnurekendur tjáðu sig reiðubúna að ganga til samninga um hækkanir er voru í samræmi við það sem önnur sambærileg launþegafélög hefðu fengið er samið var á grundvelli sáttatillögu ríkissáttasemjara og sáttanefndar miili VSÍ og ASI þann 27. október sl. Fram hefur komið, m.a. hjá formanni Bókbindarafélags Is- lands í Þjóðviljanum í dag, 7. nóvember 1980, að bókagerðar- menn hafi ekki farið fram á meira en önnur stéttarfélög hefðu þegar fengið. Virðist því mikil nauðsyn á því að fá úr því skorið af hlutlaus- um aðila, hve hár sá hundraðs- hluti sé er önnur sambærileg stéttarfélög hafi fengið í launa- hækkun með samningunum 27. október. Förum við því fram á það við Þjóðhagsstofnun að hún láti nú þegar gera þessa könnun og sendi ríkissáttasemjara niðurstöðuna, þannig að staðreyndir í málinu geti greitt fyrir lausn vinnudeil- unnar." Prestskosningar í Eyrar- bakkaprestakalli á morgun - séra Úlfar Guðmundsson einn í framboði PRESTSKOSNINGAR íara fram I Eyrarbakkaprcstakalli á morg- un. I Eyrarhakkaprestakalli eru þrjár sjálfstæðar sóknir. þ. e. Eyrarbakki, Stokkseyri og Gaulverjabær. Aðeins einn prest- ur hefur gefið kost á sér, séra Úlfar Guðmundsson sóknarprest- ur á Ólafsfirði. Séra Úlfar er fæddur 30. okt. 1940 í Reykjavík. Hann er sonur hjónanna Guðmundar Grímssonar húsgagnasmiðs og Stefaníu Run- ólfsdóttur. Úlfar lauk stúdents- prófi frá Verzlunarskóla íslands 1961 og guðfræðiprófi frá Háskóla íslands í janúar 1972. Hann var vígður prestur til Ólafsfjarðar í marz 1972 og hefur verið þar búsettur síðan, en starfaði í nokkra mánuði 1976 sem biskups- ritari á Biskupsstofu. Eiginkona Úlfars er Freyja Jóhannsdóttir kennari og eiga þau tvö börn. Séra Úlfar tók virkan þátt í félagsstörfum á námsárum sínum, var m. a. bæði í stúdentaráði og háskólaráði, einnig í stjórn Lána- sjóðs ísl. námsmanna. Hann hefur einnig starfað mikið að félagsmál- um á Ólafsfirði, m.a. átt sæti í skólanefnd, kjörstjórnum og verið meðlimur í karlakór staðarins. Hann er fyrrverandi forseti Rot- ary-klúbbs Ólafsfjarðar og fleira mætti telja. Þá hefur hann kennt allan tímann með prestskapnum. Það eru allir velkomnir á Sólarkvöld Samvinnuferða-Landsýnar i Súlnasal. Frábœr skemmtiatriði, glæsilegir bingó- vinníngar, hörkufjör á dansgólfinu og slðast en ekki sist - öndvegismatur á ódýru verði. Diskópardans á heimsmælikvarða GARY KOSUDA kemur alla leið frá Honolulu og sýnir einstaka hæfileika sína i dansi með Sóleyju Jóhannsdóttur. Þessi danssýning slær flest út sem sýnt hefur verið á íslenskum dansfjölum til þessa! Ragnar og Bessi Ragnar Bjarnason og Bessi Ðjarnason enn komnir með splunkunýtt efni sem kitlar hláturtaugarnar hressilega. Kanaríeyjakynning (hliðarsal sýnum við glænýja kvikmynd f rá Kanarí- eyjum til fróðleiks og skemmtunar fyrir alla sól- dýrkendur. Ferðabingó Og enn spilum við um glæsileg ferðaverðlaun. Meðal vinninga Kanaríeyjaferð ískammdeginu að verðmæti um hálf milljón króna! Magnús Axelsson að venju með hijóð- nemann i kynningunni og stjórnandinn Sigurður Haraldsson að sjálfsögðu á vaktinni. Vanir menn sem tryggja eld- fjöruga og vel heppnaða sunnudags- skemmtun. Dansaö tll kl. 01 Húsiö opnað kl. 19.00 Boröapantanir i sima 20221, eftir kl. 4 Tiskusýning Módelsamstökin koma meö enn eina ferska og fallega tiskusýningu og sýna að þessu sinni tísku- fatnað á alla fjölskylduna frá TORGINU. Nýjasta úralínan frá SEIKO einnig sýnd. Spurningakeppni Spurningakeppni fagfélaganna fór glæsilega af stað á síðasta sólarkvöldi. Nú reyna prentarar að stöðva sigurgöngu bakaranna. Keppt er um sex Lundúnarferðir i leiguflugi Samvinnuferða-Landsýnar. Matseðill kvöldsins Meadaillons d’agneau au grenache noir. Verð aðeins kr. 7.600 Jón Ólafsson leikur á píanóið milli kl. 7 og 8. Ragnar Bjarnason fer á kostum ásamt hljómsveit sinni. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.