Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 Gunnar Snorrason, formaður Kaupmannasamtaka íslands; Það hefur löngum verið rík tilhneiging hjá forystumönnum þessarar þjóðar, til að gera skatt- kerfið svo flókið að helst enginn maður botnaði í því. I framhaldi af því er nær útilokað fyrir venjulegan mann að gefa upp til skatts án þess að hafa fagmann sér við hlið. Einnig eru ráðamenn útsjónar- samir við að finna upp nýja skatta og sköttum sem áttu að gilda skamman tíma hefur ekki verið aflétt. Dæmi um það er viðlaga- sjóðsgjaldið sem lagt var á vegna gossins í Vestmannaeyjum og snjóflóðsins í Neskaupstað. Enn í árinu 1980 greiða sérstakan eign- arskatt til ríkissjóðs. 2. gr. Skattskyldan hvílir á þeim aðil- um sem skattskyldir eru sam- kvæmt ákvæðum I. kafla laga nr. 40/1978, um tekjuskatt og eignar- skatt, með síðari breytingum, og auk þess á bönkum og innláns- stofnunum. 3. gr. Stofn til sérstaks eignarskatts skal vera fasteignamatsverð í árslok 1979 á þeirri fasteign, sem nýtt er við verslunarrekstur eða eigna sem um er getið í 2. mgr. 4. gr. Þeir aðilar, sem skattskyldir eru skv. 2. gr. laga þessara, en undan- þegnir eru tekju- og eignarskatts- skyldu, skulu fyrir 31. maí 1980 skila skrám skv. 1. mgr. til skattstjóra í því umdæmi þar sem þeir eiga lögheimili. 6. gr. Sérstakur eignarskattur skal nema 1,4% af skattstofni skv. 3. grein. Skattinn skal leggja á í heilum þúsundum króna þannig að lægri fjárhæð en 1.000 kr. sé sleppt. Skattagleði dag er atvinnurekendum gert að inna þetta gjald af hendi í formi launaskatts sem nemur 3 'k % af greiddum vinnulaunum. Ár og dagar eru síðan þessar náttúru- hamfarir áttu sér stað og hefði vitaskuld átt að aflétta þessum sköttum fyrir löngu. Hvað er hér á seyði? Þessir skattar landsfeðranna ganga undir ýmsum nöfnum, en sá sem ég ætla að gera að umtalsefni nefnist: „Sérstakur skattur á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði". Þessi skattur var lagður á í fyrsta skipti við álagningu gjalda á árinu 1979 og aftur 1980. Til að menn glöggvi sig á þessum lögum er rétt að birta þau orðrétt eins og þau eru í dag: Lög um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. 1- gr. „Eigendur þeirra fasteigna, sem nýttar eru við verslunarrekstur eða til skrifstofuhalds, skulu á til skrifstofuhalds, ásamt tilheyr- andi lóð, enda þótt um leigulóð sé að ræða, þó að frádregnu af- gjaldskvaðarverðmæti leigulóðar sem skal telja sem stofn hjá eiganda hennar. Ef fasteignamatsverð er ekki fyrir hendi skal miða við kostnað- ar- eða kaupverð eignar eða áætl- að fasteignamatsverð. 4. gr. Við ákvörðun á því, hvaða eignir myndi stofn sérstaks eignarskatts, skal miða við raunverulega notk- un fasteignanna í árslok 1979. Sé sama eignin notuð við versl- unarrekstur eða til skrifstofu- halds, en einnig til annarra nota, skal við ákvörðun á skattstofni skipta verðmæti eignarinnar hlut- fallslega. 5. gr. Með skattframtali 1980 skal fylgja skrá yfir eignir þær sem falla undir lög þessi, ásamt upp- lýsingum um heildarfasteigna- matsverð, eða eftir atvikum kostn- aðarverð þeirra, í árslok 1979. Ennfremur skal skrá þar upplýs- ingar um notkun þeirra, svo og upplýsingar um rúmmál þeirra Sérstakan eignarskatt, sem ekki nær 100.000 kr. skal fella niður við álagningu. 7. gr. Ákvæði VIII.—XIV. kafla laga nr. 40/1978, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breyting- um, skulu gilda um álagningu og innheimtu sérstaks eignarskatts, eftir því sem við á, nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum. 8. gr. Skatt samkvæmt lögum þessum má draga frá tekjum rekstrarárs- ins 1980 sem rekstrarútgjöld við álagningu tekjuskatts og útsvars á árinu 1981. Þá er skatturinn til frádráttar eignum við ákvörðun eignarskatts samkvæmt lögum nr. 40/1978, með síðari breytingum, eftir reglum lokaákvæðis 1. mgr. 76. gr. þeirra laga. 9. gr. Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara með reglugerð. 10. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og skulu koma til framkvæmda við álagningu gjalda á árinu 1980. Ákvæði til bráðabirgða Við ákvörðun tekjuskatts og útsvars á árinu 1980 er heimilt að draga frá tekjum ársins 1979 sem rekstrarútgjöld skatt þann er lagður var á samkvæmt lögum nr. 112/1978, um sérstakan skatt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði." Við yfirlestur laganna sést glöggt að eingöngu er ráðist á þá aðila sem eiga fasteignir sem nýttar eru til verzlunar- og skrifstofuhalds. Hvað er hér á seyði? Skyldi almenningur gera sér grein fyrir ,því? Ég held ekki. Ég hygg jafnvel að sumir endur- skoðendur hafi ekki áttað sig á framkvæmd þessara laga og fróð- legt væri að vita hvort þeir sem settu lögin vissu hvaða afleiðingar það getur haft ef þau gilda áfram. Mismunun Sem dæmi um hvernig þessi lög virka mætti hugsa sér þjónustu- miðstöð í einu úthverfa borgar- innar sem væri í leiguhúsnæði. Ef eigandi húsnæðisins leigir út hluta af byggingunni undir ýmis þjónustufyrirtæki sem þörf er fyrir í hverfinu, til dæmis skó- verzlun, bóka- og ritfangaverzlun, vefnaðarvöruverzlun, blóma- og gjafavöruverzlun, búsáhalda- eða raftækjaverzlun, þá greiðir hann áðurnefndan skatt. Ef húseigand- inn hinsvegar leigir húsnæði sitt undir rakarastofu, hárgreiðslu- stofu, þvottahús, fatahreinsun, pökkun á hverskonar varningi, kjötvinnslu, saumastofu, skó- vinnustofu, eða einhvern iðnað, sleppur hann við skattinn. Hér er beinlínis stuðlað að því að flæma ákveðnar þjónustugrein- ar úr hverfunum og úr verzlun- armiðstöðvum hvar sem þær eru á landinu. Menn kynnu að spyrja, hvers vegna er leigan þá ekki hærri á því húsnæði sem skattinn ber? Því er til að svara að afkoma verzlunarinnar er ekki það góð, að hún geti greitt hærri leigu en aðrar atvinnugreinar. Með setningu þessara laga er sýnilega verið að leggja í einelti þann hóp manna sem hafa valið sér lífsstarf við verzlun og við- skipti. Tilgangslítið að leggja við drengskap Einn er sá skattur sem verzlun- in hefur margsinnis mótmælt gegnum árin. Það er hið svokall- aða aðstöðugjald sem í raun er ekkert annað en veltuskattur — án tillits til hvort verzlunin hefur sýnt gróða eða tap. Þetta gjald minnir óneitanlega á 59. grein skattalaganna, þar sem skattyf- irvöld hafa heimild til að leggja tekjuskatt á fólk, hvort sem tekna hefur verið aflað eða ekki. Það virðist vera tilgangslítið að undir- rita skattaskýrslu og leggja við drengskap þar að lútandi, þegar skattayfirvöld virða það að vettugi og búa til tekjur hjá fólki. Þessi grein hefur fljótfærnislegt yfir- bragð, enda hafa sumir sem stóðu að setningu laganna frá 28. apríl 1978, dregið í land og sagt að þeir hafi ekki áttað sig á framkvæmd laganna fyrr en álagningarseðlar hafi verið sendir út. Batnandi mönnum er best að lifa. Þetta að lokum. Alþingismenn ættu ekki að loka sig inn í fílabeinsturnum, heldur gera sér far um að kynnast málefnum og stöðu atvinnuvega þjóðarinnar af eigin raun — fyrr eru þeir ekki hæfir til ákvarðana- töku um hin ýmsu málefni. Vandaðir bílar fyrir vandláta kaupendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.