Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980
Heimsmeistarar
Vestur-Þjóóverja
leika hér á landi
HEIMSMEISTARARNIR í hand
knattleik. Vestur-I>j<iðverjar,
munu sækja Íslendintía heim nú i
miðjum nóvemhermánuði og
heyja 2 landsieiki, föstudaKÍnn
14. nóv. <>k sunnudaKÍnn 16.
nóvember.
Leikirnir
Fyrri leikurinn verður föstudag-
inn 14. nóv. og hefst kl. 20.00.
Síðari leikurinn fer fram, sunnu-
daginn 16. nóv. og hefst kl. 15.00.
Báðir leikirnir fara fram í Laug-
ardalshöll.
Dómarar í leikjunum eru
sænskir og heita Carl-Olov Nilson
og Lars-Eric Jersmyr. Þeir félagar
eru taldir með beztu handknatt-
leiksdómurum í heiminum í dag
og má m.a. geta þess að þeir
dæmdu úrslitaleik Evrópumeist-
ara keppninnar á sl. vetri.
Miðaverð — íorsala
Forsala á föstu'dag hefst í Laug-
ardalshöll kl. 17.00 og sunnudag
kl. 13.00 á sama stað. Þ^ munu
verða seldir miðað á sunnudags-
leikinn strax að leik loknum á
föstudagskvöld fyir þá sem vilja
tryggja sér miða á síðari leikinn.
Miðaverð verður eins og hér
segir:
Sæti kr. 5.000.-
Stæði kr. 4.000.-
Börn kr. 1.000.-
Ileiðursgestur
Forsætisráðherra, dr. Gunnar
Thoroddsen, mun verða heiðurs-
gestur Hanknattleikssambandsins
á leiknum á föstudagskvöld. Mun
forsætisráðherra ganga fram á
leikvöll og heilsa leikmönnum,
stjórnendum liða og dómurum.
Áhorfendur
Hlutur áhorfenda gæti orðið
mjög stór. Oft hafa íslenskir
áhorfendur staðið vel við bakið á
landsliðinu. Nú, þegar. í augsýn er
sigur við sjálfa heimsmeistarana
er óhætt að segja „að oft var þörf
en nú er nauðsyn". Góður stuðn-
ingur frá áhorfendum gæti hér
haft úrslitaáhrif. Áfram ísland
verður að bergmála langt, langt út
fyrir Laugardalshöllina.
Landsleikir íslands og heims-
meistaranna Vestur-Þýskalands
er einstakur íþróttaviðburður, sá
stærsti og eftirtektarmesti á land-
inu á yfirstandandi ári. Engin
önnur íþróttagrein býður heims-
meisturum sinnar íþróttar byrg-
inn, með það fyrir augum að sigra
þá. Það, að Þjóðerjar sjá ástæðu
til að leggja á sig langt og
kostnaðarsamt ferðalag til Islands
sannar enn einu sinni, svart á
hvítu, hve geysi mikillar virðingar
íslenskur handknattleikur nýtur á
erlendum vettvangi.
Það er kunnugra en frá þarf að
segja að fjárhagur HSÍ hefur
verið mjög erfiður síðustu misser-
in og því hefur HSI farið fram á
það við borgarstjórann í Reykja-
vík að hann hlutist til um að
húsaleiga af framangreindum
leikjum verði felld niður. Slík
ákvörðun af hálfu ráðamanna
Reykjavíkurborgar gæti orðið
handknattleikssambandinu mikil
lyftistöng.
• Atvinnumennska í knattspyrnu er harður skóli og óvæginn. Harkan í leikjum er
mikil og leikmenn meiðast því oít og illa. Á myndinni hér að ofan hefur Pétur meiðst
og liggur óvígur á vellinum.
1
Lið Vestur-Þjóðverja
LANDSLIÐ Vestur-Þj<>ðverja sem leikur hér í na*stu viku
verður skipað eftirtoldum leikmönnum:
Markverðir ’ Landsl. — Mörk
Nieme.ver, Rainer 11.05.55 TSV GW Dankersen 40/ 1
Wöller, Klaus 23.04.56 TuS Nettelstedt 9/
Hecker, Stefan 16.04.59 TUSEM Essen 1/
Aðrir leikmenn Félag
Spengler, Horst 10.02.50 TV Huttenberg 136/277
Ehret, Arno 11.12.53 TuS Hofweier 101/250
Freisler, Manfred 28.10.57 TV Grosswallstadt 62/117
Wunderlich, Erhard 14.12.56 VfL Gummersbach 51/134
Ohly, Harald 15.09.56 TV Huttenberg 42/ 67
Meisinger, Peter 16.12.54 TV Grosswaldstadt 36/ 66
Dammann, Frank 10.05.57 VfL Gummersbach 28/ 27
Voik, Klaus 03.07.57 TuS Hofweier 6/ 10
Gnau, Ulrich 02.04.57 TV Grosswallstadt 5/ 9
Springel, Thomas 15.05.59 TUSEM Essen 5/ 5
Damm, Winfried 20.04.56 SG Dietzenbach 2/
Anthuber, Matthias 24.01.59 TSV Milbertshofen /
Gersch, Frank 13.03.61 LTV Wuppertal /
Lommel, JÖrn-Uwe 21.02.58 SV Bayer 04 Leverk. /
• Pétur Pétursson ásamt eigínkonu sinni Petrinu í
heimsókn á ritstjórn Mbl. Pétur dvelur nú heima í fríi
fram til 13. nóv. ásamt fjölskyldu sinni.
Pétur óskar
eftir því að
verða settur
á sölulista
Hinn kunni og snjalli knatt-
spyrnumaður Pétur Pétursson.
sem leikur með Feyenoord er nú
hér á landi í stuttu fríi. Eins og
skýrt hefur verið frá. þurfti
Pétur að ganga undir uppskurð
<>g verður hann því frá keppni
fram í miðjan febrúar. Pétur leit
við á ritstjórn Mbl. ásamt eigin-
konu sinni Petrínu, <>g ekki var
annað að heyra á Pétri en að
hann væri fullur bjartsýni á að
eftir áramót yrði hann farinn að
leika aftur á fullri ferð. Mbl.
innti Pétur eftir því hvað tæki
við er samningur hans við Feye-
noord rynni út i maí í vor.
— Ég óskaði eftir því að vera
settur á Sölulista, mig langar að
breyta til og leika knattspyrnu í
einhverju öðru landi, fyrst og
fremst knattspyrnulega séð. Mig
langar fótboltalega séð að breyta
til. Mig langar líka til að reyna að
ná langt í einhverju öðru landi en
Hollandi. Ég hef mikinn áhuga á
að reyna fyrir mér á Italíu og á
Spáni. En þegar ég óskaði eftir því
að fara á sölulista var mér tjáð að
ég væri alls ekki til sölu hjá
félaginu. Samningur minn rennur
hinsvegar út í maí og eins og
málin standa í dag ætla ég að óska
eftir sölu, þrátt fyrir að ég og kona
mín kunnum ákaflega vel við
okkur í Hollandi. Ef ég næ ekki
fram sölu geri ég aðeins samning
til eins árs í senn við Feyenoord.
Ég er á góðum batavegi hvað
meiðslin snertir, hef verið í með-
ferð hjá góðum sjúkraþjálfara á
Akranesi síðan ég kom heim.
Þetta hefur verið góður tími, við
hjónin höfum heimsótt vini og
vandamenn og drukkið mikið
kaffi. Það er alltaf jafn vinalegt
og skemmtilegt að koma heim til
Islands. En hinsvegar togar
knattspyrnan í mann. Og óneitan-
lega er það svekkjandi að geta
ekki veriö á fullri ferð með liði
sínu Feyenoord, og manni kitlar
að komast í slaginn aftur á fullri
ferð. Liði Feyenoord gengur allvel
núna í deildinni. Ég hef ekki trú á
því persónulega, að liði AZ’67
gangi svona vel eftir áramót liðið
hlýtur að fara að missa flugið.
Ég á von á því að ég verði farinn
að leika með Feyenoord að nýju
upp úr miðjum febrúar. Svo fram-
arlega sem ég kemst i liðið aftur.
Feyenoord komst áfram í Evrópu-
keppninni. Sigruðu mótherja
Fram — Hvidovre. Þannig að
máske næ ég í næstu Evrópuleiki.
Það er aldrei að vita. Þessi meiðsli
sem ég á við að stríða eru mín
fyrstu alvarlegu meiðslin sem ég
hef hlotið á mínum fótboltaferli
og ég hef fulla trú á að þau eigi
eftir að gróa að fuliu, sagði Pétur
Pétursson, þessi geðþekki og hóg-
væri knattspyrnumaður sem gert
hefur garðinn frægan í Evrópu og
var meðal markahæstu leikmanna
síðasta keppnistímabil. Vonandi
verður þess ekki langt að bíða að
Pétur verði kominn á fulla ferð á
ný og þá þurfum við ekki lengi að
bíða eftir því að hann fari að
skora á nýjan leik, ef að líkum
lætur.
-þR.