Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ftitstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Augiýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftarg/ald 5.500.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. Sjálfseign á húsnæði Það er aðall hvers ábyrgs manns að skapa fjölskyldu sinni afkomuöryggi. Þess vegna ætti það að vera sameiginlegt kappsmál þjóðfélagsþegnanna að tryggja atvinnuvegunum rekstraröryggi. Rekstraröryggi atvinnuveganna og afkomuöryggi almennings eru tvær hliðar á sama hlutnum. Atvinnuöryggið er grundvöllur hverrar fjölskyldu en fleira kemur til, ef fjölskyldan á að vera í senn: hornsteinn þjóðfélagsins og félagseining, sem tryggir meðlimum sínum hamingjusamt, menningarlegt og þroskandi líf. Það þarf fjölmargt til að koma, m.a. íverustaður, samastaður fjölskyldu, sem er hluti af öryggi hennar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur allar götur haldið því sjónarmiði hátt á loft, að hver fjölskylda í landinu verði að hafa aðstæður til að eignast eigið þak yfir höfuðið; þó valfrelsi eigi að sjálfsögðu að ríkja um lífsstíl í þessu efni sem öðrum. Kjörorð flokksins, eign handa öllum, hefur ekki sízt bergmálað þennan þátt í Islendingseðlinu. En því miður hefur efnahagsmálaþáttur þjóðarbúskaparins þróazt svo undir þremur vinstri stjórnum þessa áratugar, að það verður sífellt erfiðara fyrir ungt fólk að komast yfir eigið húsnæði. Miðstýringarmenn sósíalismans vilja gera einstaklingana háða sér um skömmtun „félagslegs" húsnæðis. Slíkt húsnæði á vissulega rétt á sér, til að fullnægja valfrelsi og mæta vissum þörfum, en það á ekki að koma í staðinn fyrir sjálfseign fólks á íbúðarhúsnæði eins og raun er á orðin þar sem þjóðfélagsgerð sósíalismans ræður ríkjum. Aðstaða ungra húsbyggjenda Um langa hríð hefur það ákvæði verið í skattalögum að skattgreiðendur gætu dregið frá tekjum sínum greidda vexti, verðbætur, afföll og gengistöp. Þessi regla hefur fyrst og fremst komið til góða húsbyggjendum, og hefur hjálpað fjölmörgum til að komast yfir eigið húsnæði. Með þeirri breytingu sem gerð var á lögum um tekju- og eignaskatt, við tilkomu núverandi ríkisstjórn- ar, í febrúar 1980, var þessi regla þrengd mjög. Nú takmarkast þessi heimild við fasteignaveðskuldir til þriggja ára eða lengri tíma — og vextir eru því aðeins frádráttarbærir frá tekjum á næstu tveimur skattárum, talið frá og með kaupári, eða á næstu fjórum árum, talið frá og með því skattári sem bygging er hafin á. Frádrátturinn takmarkast við l’/2 m.kr. hjá einstaklingum og 3 m.kr. hjá hjónum. Eins og verðbólgan hefur þróazt á síðustu vinstristjórnarmiss- erum og eins og útlánareglur banka og vaxtakjör eru í dag, er ljóst, að þessi regla er of takmörkuð. Ekki bætir úr skák að bæði beinir skattar, þ.e. útsvör, tekjuskattur, eignaskattur og sjúkra- tryggingagjald, og óbeinir skattar, eins og vörugjald og söluskattur, hafa verið hækkaðir oftsinnis á sl. tveimur árum, þann veg, að skattbyrði hverrar meðalfjölskyldu hefur hækkað hátt í l'/2 m.kr., þegar allt er talið, frá árinu 1978. Þegar þessi nýja regla kemur til framkvæmda á næsta ári, er því hætt við að margir húsbyggjendur lendi í erfiðleikum. Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks, Birgir ísl. Gunnarsson og Halldór Blöndal, hafa nú flutt á Alþingi frumvarp til laga um rýmkun heimilda til frádráttar vegna vaxta. Samkvæmt frumvarpinu skal vaxtafjárhæð miðast við 4 m.kr. hjá einstakl- ingi og 8 m.kr. hjá hjónum. Ekki er sérstaklega sett það skilyrði að lán séu notuð til húsnæðisöflunar, en oft er erfitt að rekja slíkt þegar húsbyggjendur taka mörg lán til skamms tíma, sem mæta hvert öðru. F'agna ber þessu frumvarpi, sem ef að lögum verður kemur ungum húsbyggjendum mjög að gagni. En hyggja verður alvarlega að því, hvern veg það verður tryggt til frambúðar, að sú meginregla, að hver fjölskylda eigi sitt húsnæði, fái að vera íslenzkt þjóðareinkenni um alla framtíð. Sjónarmið sósíalista mega ekki brjóta það fjölskylduöryggi á bak aftur. SÍS hvarf f rá byggingu háhýsis inn við Sundin Fengið lóð í nýja miðbænum þess i stað SAMBAND íslenskra samvinnufélaga hef- ur dregið umsókn sína um byggingu skrifstofuháhýsis við Sundin til baka. Þess í stað óskaði SÍS eftir lóðarúthlutun til Sambandsins í nýja miðbænum. Borgarráð tók beiðni SÍS til meðferðar í gær og samþykkti samhljóða með fimm atkvæðum að verða við beiðni SÍS um lóð í miðbænum nýja. Sambandið gaf í gær út sérstaka frétta- tilkynningu vegna þessarar ákvörðunar og voru tilgreindar tvær meginástæður fyrir því að SÍS hefði fallið frá áformum um úthlutun lóðar á landsvæði við Holtaveg i Reykjavík. I fyrsta lagi hefði verið endur- mat á framtíðarþörf SÍS fyrir landrými leitt í ljós, að svæðið við Sundin væri tæpast fullnægjandi fyrir framtíðarstarf- semi SÍS. f öðru lagi hefði SÍS ekki viljað vaida opinberum ágreiningi og deilum við íbúa Reykjavíkur, sem við Sundin búa. Sambandið sótti um 2,5 ha. svæði til bygginga aðalskrifstofa SÍS og eins og áður sagði, varð borgarráð við þeirri beiðni. í lok fréttatilkynningar SÍS sagði: „Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur sýnt lofsverðan skilning á þörfum Sambandsins fyrir aukið landrými vegna starfsemi þess. ósk Sambandsins um út- hlutun landrýmis á öðrum stað í borginni er fram komin að frumkvæði Sambandsins sjálfs enda hafa borgaryfirvöld í engu breytt fyrri afstöðu sinni til umræddrar lóðaúthlutunar við Hoitaveg.“ Mbl. ræddi við nokkra þá aðila. sem þessu máli tengjst og fara viðtöl við þá hér á eftir. Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS: Lóðin inn við Sundin reyndist ekki heppileg „ÞETTA mál er ekki mjög stórt — En hefur orðið fréttaefni að undan- förnu. Við höfum nú ákveðið að hætta við byggingu skrifstofuhús- næðíð inn við Sund. Það kom í ljós, að lóðin sem okkur stóð til boða reyndist ekki heppileg. Með nýrri flutningatækni, sem skipadeild SÍS hefur verið að kanna möguleika á að innleiða, er hugsanlegt að auk- ins landsrýmis sé þörf. í ljósi þessa og auk þess, að SÍS vill ekki standa í útistöðum við íbúa í nágrenninu, ákváðum við að hætta við skrif- stofubyggingu þarna og sækja þess í stað um lóð í nýja miðbænum," sagði Erlendur Einarsson, forstjóri Sambands íslenzkra samvinnufé- laga á fundi með fréttamönnum í gær vegna þeirra ákvörðunar SÍS að hætta við byggingu skrifstofu- háhýsis við Sundin og þess í stað sækja um lóð í nýja miðbænum. „Það er ákaflega ánægjulegt, að borgarráð skuli hafa samþykkt þessa beiðni okkar um lóð í mið- bænum," sagði Erlendur ennfrem- ur. Hann var spurður hvort það væri tilviljun, að SÍS hefði nú ákveðið að draga umsókn sína inn við Sundin til baka vegna borgara- fundar sem til stóð að halda um málið af hálfu Sundasamtakanna. „Alls ekki og það var enginn þrýstingur frá borgaryfirvöldum. Þvert á móti. Það er aðalatriði og ákaflega mikilvægt, að jafn stórt fyrirtæki og SÍS fái aðstöðu fyrir sína starfsemi. Við munum leggja áherzlu á, að þessi bygging verði bæjarprýði," svaraði Erlendur. Hann var spurður hvort bygging SIS inn við Sund hefði ekki verið til lýta. „Við hefðum lagt áherzlu á, að bygging SÍS inn við Sund hefði verið bæjarprýði og falleg bygging frá listrænu sjónarmiði séð,“ svar- aði Erlendur. Þá var Erlendur spurður, hvort mótmæli íbúa hefðu orðið til þess, að SIS ákvað að hætta við bygging- una inn við Sundin. „Við viljum Erlendur Einarsson ekki valda ágreiningi og eiga í deilum við íbúa Reykjavíkur sé önnur lausn fyrir hendi. Ég tel hins vegar að mótmælin hafi orðið til þess að flýta því, að farið var ofan í saumana á þessu máli. Það var vandkvæðum bundið að koma allri starfseminni fyrir inn við Sundin," svaraði Erlendur. Þá var hann spurður hvort hann teldi, að um ofsóknir á hendur SÍS hefði verið að ræða eins og haldið hefur verið fram. „Þarna var þrýstihópur á ferð- inni en ég tel ekki að um ofsóknir sé að ræða. En það er ekki sama hver á í hlut og ef einhver annar aðili hefði verið á ferðinni, hefði ekki verið mótmælt af eins mikilli hörku." Magnús óskarsson, formaður Sundasamtakanna; Anægjulegur endir og sýnir samtaka- mátt Reykvíkinga „ÞAÐ ER einlæg ánægja okkar í Sundasamtökunum, að þetta mál skuli nú farsællega til lykta leitt. Þetta er ánægjulegur endir og sýnir samtakamátt Reykvíkinga. Samband íslenzkra samvinnufé- laga hefur sýnt ánægjulegt frum- kvæði og eins er það ánægjulegt, að borgaryfirvöld skuli hafa brugðist jafn skjótt við málaleitan þeirra. Að SIS skuli hafa verið úthlutað lóð við hæfi fyrirtækisins og að þeirra ósk,“ sagði Magnús Óskars- son, formaður Sundasamtakanna í samtali við Mbl. „Þetta einstaka mál — barátta okkar gegn skrifstofuháhýsi inn við Sundin ber að skoða sem upphaf en ekki endi Sundasamtak- anna. Þau settu sér það markmið að vinna almennt að verndun strandlengju Reykjavíkur og í því starfi er enn mikið óunnið. Það er mikilvægt í því efni, að ný mistök verði ekki gerð. Það á eftir að byggja í Gufuneslandi svo og Korp- úlfsstaðalandi svo ég nefni eitt- hvað. Það þarf að standa vel að þeim málum — að varðveita óspillta fjöru í borgarlandinu. Það þarf að veita borgaryfirvöldum — hver sem þau eru, aðhald í þessum málum. Reynslan ber glöggt merki, að þess er full þörf. Samtökin, sem eru skipulegur aðili, óska eftir samstarfi og sam- ráði við þá aðila sem hlut eiga að máli um slíkar framkvæmdir. Við ætluðum okkur að halda borgara- fund á morgun — laugardag og aðalefni hans var umræða um þessi mál. Engin vitneskja, enginn fróð- leikur, engin kynning af hálfu borgaryfirvalda hafði átt sér stað um þetta stórhýsismál. Það mál var til meðferðar og Magnús óskarsson ákvarðanatöku hjá borgaryfirvöld- um og þoldi enga bið að gera að umræðuefni. Þar sem bygging stór- hýsis SÍS er nú úr sögunni inn við Sund höfum við ákveðið að fresta þessum borgarafundi. Hins vegar vilja samtökin velja og skipuleggja tíma fyrir umræður og skoðana- skip+i um verndun strandlengju Reysjavíkur þegar þess gerist þörf og ástæður gefa tilefni til,“ sagði Magnús Óskarsson ennfremur. Davíð Oddsson borgarfulltrúi: Réttlætið bar sigur úr býtum MBL. SNÉRI sér til Davíðs Oddssonar, borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins vegna ákvörðunar SIS um að hætta við fyrirhugaða stórbyggingu og úthlutun borgar- ráðs á lóð fyrir SÍS í nýja miðbæn- um. „Ég tel að úrslit þessa máls séu afar hagstæð og afar eðlileg og í samræmi við málflutning okkar sjálfstæðismanna. Sambandið hafði sótt fast að fá úthlutað lóð á svæði, sem borgaryfirvöld höfðu lofað íbúum að yrði grænt svæði og lofað að ekki yrði byggt upp — hvað þá með tíu hæða húsi eða þvíumlíku," sagði Davíð. „Meirihluti borgarstjórnar hafði beygt sig fyrir kröfum SÍS án þess að gefa málinu sérstakan gaum og var ákveðinn í að fylgja málinu fram með þeim hætti. Við tókum þá ákvörðun að taka málið upp þegar álit og ályktun hafnarstjórnar lá fyrir og koma málinu þar með í opinbera umræðu. Það var að vísu deilt um, hvort ætti að gera það þá, eða þegar lóðinni yrði beinlínis úthlutað. En við töldum nauðsyn- legt að koma þessu í umræðu þá þegar. Það hefur sýnt sig að það var rétt ákvörðun. íbúarnir brugðust við eins og við mátti búast og þó að vinstri meirihlutinn í Reykjavík hefði verið búinn að sannfæra sjálfan sig um, að þeir gætu komist hjá því að taka mark á vilja og óskum íbúa í hverfinu, hefur SÍS, sem er stórfyrirtæki, séð, að það getur ekki þröngvað vilja sínum fram gegn eindregnu áliti íbúanna í hverfinu. Við sjálfstæðismenn höfðum sagt, að SÍS þyrfti ekki að byggja þarna. Við héldum því fram, að SÍS gæti hæglega fengið lóð í nýja miðbæn- um. Það væri eðlilegt fyrir fyrirtæki eins og SÍS þegar það hyrfi úr gamla miðbænum að fá lóð í nýja miðbænum. Vinstri meirihlutinn fullyrti að SÍS hótaði að fara úr bænum, nema það fengi þessum ákveðna vilja sínum framgengt, að byggja hús við Sundin. Við vildum ekki láta undan slík- um þrýstingi. Vinstri meirihlutinn gekkst undir þennan þrýsting og stóð að þessum málum. Nú hefur meirihlutinn séð, að vilji okkar sjálfstæðismanna og borgara Reykjavíkur hefur mátt sín meira, og réttlætið bar sigur úr býtum. Þetta mál er sigur íbúa Reykjavík- ur, fyrir Sundasamtökin, leiðtoga þeirra og alla þá sem að því störfuðu og er sérstakt fagnaðarefni. Davið Oddsson Eitt háhýsi hefði kallað á fleiri Það er alveg ljóst, að ef þetta háhýsi hefði risið, þá hefði ekki verið hægt að koma í veg fyrir, að runa slíkra háhýsa raðaðist upp við Voginn. Öll sanngirnissjónarmið bentu í þá áttina. Þessi ásetningur vinstrimeirihlutans var því sér- staklega háskalegur og ég er sér- staklega ánægður með að andóf okkar og íbúa Reykjavíkur hefur orðið til að koma í veg fyrir þetta skemmdarverk. Ég vil gjarna minna á það, að á sínum tíma stóð til að hækka iðnaðarhús þarna um einn og hálfan metra yfir annað landsvæði á staðn- um. Þá mótmælti Sigurjón Péturs- son, borgarfulltrúi því harðlega — en nú á að byggja tíu hæða húsnæði, segist hann vera sammála því, vegna þess að hægt sé að horfa beggja megin við háhýsið. Þetta eru auðvitað fáránleg rök og fyrir neðan allar hellur af borgarfulltrúa að bera á bórð, vegna þess að það gefur auga leið, að ef það eru rök fyrir því að SÍS fái að byggja eins og til stóð, þá eru engin rök að neita öðrum, nema þá því aðeins að lýsa því yfir að SIS ætti að njóta forréttinda í borginni. Það er auðvitað sjálfsagt ,^ð SÍS njóti eðlilegrar fyrirgreiðslu 'og því góða lóð fyrir starfsemi sína í nýjum miðbæ — eins og við sjálf- stæðismenn ætíð lögðum til. Siguröur Helgason, forstjóri Flugleiða: Misskilningur Ólafs Ragnars Grímssonar Sem svar við grein alþing- ismannsins í Morgunblaðinu 7. nóvember skal eftirfarandi tekið fram til frekari upplýsingar í málinu. Á fundi með ríkisstjórninni 20. ágúst var skýrt frá því að Flug- leiðir þyrftu á verulegri fyrir- greiðslu að halda vegna erfiðs reksturs og þeirrar staðreyndar að ekki hafði tekist að selja flugvélar þær sem á sölulista voru hjá félaginu. I skýrslu endurskoðenda félagsins sem send var ríkisstjórn- inni 7. september kom fram hver rekstrarfjárþörfin var. Með bréfi til samgönguráðherra 16. sept- ember var formlega farið fram á fyrirgreiðslu í formi ríkisábyrgða að upphæð 12 milljónir dollarar. Var tekið fram í því bréfi að 6 milljónir dollara væri ætlað til að breyta lausum skuldum í fast lán til lengri tíma. Var reiknað með greiðslu þeirra í októbermánuði, og samgönguráðherra gerð grein fyrir þeirri þörf. Með skýrslu endurskoðenda sýndi félagið fram á að endupnet- ið eigið fé félagsins væri a.m.k. 26 milljónir dollarar. Eftir að ríkis- stjórnin hafði fjallað um málið hefði framgangur málsins getað verið sá að þar til frumvarp um slíka aðstoð yrði samþykkt á Alþingi gat ríkisstjórnin beðið viðskiptabanka félagsins um tímabundna aðstoð þar til málið hefði fengið eðlilega meðferð á Alþingi, eins og einmitt hefur átt sér stað nú. Þær 10 milljónir dollara sem alþingismaðurinn nefnir er í sam- v ræmi við þær upplýsingar sem félagið hefur látið frá sér fara um rekstrarfjárþörf þess. Hér er í fyrsta lagi um að ræða þær 6 milljónir dollara sem að framan greinir. í öðru lagi var gert ráð fyrir því að 2 milljónir dollara af árstíðabundinni fyrir- greiðslu að upphæð samtals 6 milljónir dollara kæmu til félags- ins í nóvembermánuði. Til viðbót- ar þessu er svo framlag ríkis- stjórna íslands og Luxemborgar vegna Atlantshafsflugsins að upp- Sigurður Helgason hæð 1 milljón dollara í október og aftur 1 milljón dollara í nóvember. Enn hafa engar greiðslur gengið til félagsins vegna þessa. Eins og kunnugt er hafði stjórn félagsins tekið ákvörðun um að hætta Atlantshafsflugi frá og með 1. nóvember þessa árs. Hluthafa- fundur haldinn 8. október tók hins vegar þá ákvörðun að flugi þessu skyldi haldið áfram að tilteknum uppfyl'ltum skilyrðum, þ.e. um fjárhagslega aðstoð frá ríkis- stjórnum Islands og Luxemborgar og fleiru. Sem afleiðing af þeirri ákvörðun batt félagið sér verulega bagga, en upprunaleg áætlun hefði leitt til lækkunar á útgjöldum með því að koma Atlantshafsfluginu niður í lágmark í lok októbermán- aðar. Á sama hátt er fjárþörf félagsins meiri í nóvember með tilliti til áframhalds á Atlants- hafsflugi, en upphaflega var gert ráð fyrir. Viðræður höfðu farið fram við stjórnvöld í Luxemborg um að sá styrkur sem frá þeirri ríkisstjórn kemur yrði greiddur mánaðarlega í jöfnum hlutum mánuðina októ- ber til mars að upphæð um 500 þúsund dollarar. I viðræðum við ríkisstjórn Islands var gert ráð fyrir samskonar greiðslufyrir- komulagi. Það er því algjörlega í samræmi við þetta fyrirkomulag að tekið er tillit til þessara upphæða, enda þarf félagið á meira rekstrarfé að halda af þessum sökum. Það er mikill misskilningur hjá alþingismanninum að fé sem til fyrirtækisins kemur sé eyrna- merkt til ákveðinna þarfa. Með ákvörðun um áframhald Atlants- hafsflugsins batt félagið sér bagga sem varð að standa undir og framlagið sem rætt hefur verið um að framan varð að standa undir þessum ákveðnu útgjöldum. Varðandi ríkisábyrgð þá sem samþykkt var á Alþingi árið 1975 var um allt annan gang mála að ræða en ríkisábyrgðin var að mestu vegna flugvélakaupa og var langur fyrirvari á því hvenær til ábyrgðarinnar þyrfti að koma. Hafi alþingismaðurinn kynnt sér gjörla þau plögg sem frá félaginu hafa komið, ætti honum ekki að koma á óvart sú upphæð sem felst í rekstarfjárþörf félags- ins í nóvembermánuði eða 10 milljónir dollara. Sigurður Helgason. Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar: Ekkert keppikefli að SÍS byggði við Sundin „ÞAÐ var mér í sjálfu sér ekkert keppikefli, að Samband íslenzkra samvinnufélaga byggði háhýsi inn við Sundin og raunar er mér það í sjálfu sér fagnaðar- efni, að SIS skuli nú vilja byggja í nýja miðbænum. Það er stað- reynd, að það hefur reynst erfitt að fá aðila, sem hafa fengið lóðafyrirheit í miðbænum, til að byggja þar. Ég studdi því í borgarráði, að SÍS yrði úthlutuð lóð í miðbænum, fyrir starfsemi sína,“ sagði Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar í samtali við Mbl. „Það hefur alltaf verið gert ráð fyrir byggingum inn við Sundin í skipulagi borgarinnar. Allar göt- ur frá 1963 í gamla aðalskipulag- inu. Þar var gert ráð fyrir iðnaðarhúsnæði til síðari notkun- ar,“ sagði Sigurjón ennfremur og bætti við. „I „grænu byltingunni" sem samþykkt var 1974 var ekki gert ráð fyrir grænu svæði á þeim stað, sem SÍS hugðist byggja sitt skrifstofuhúsnæði. Og í aðal- skipulaginu, sem samþykkt var í borgarstjórn 1977 en ekki hefur verið staðfest, var gert ráð fyrir iðnaðarhúsnæði og vörugeymsl- um á þessu svæði. Það hefur því alla tíð verið gert ráð fyrir byggingum þarna og engum ákvörðunum hefur verið breytt. Eina breytingin sem var gerð, var að þarna yrði byggt skrifstofuhús. Sú breyting var samþykkt í borg- arstjórn og eins í hafnarstjórn." Nú gerðir þú sérstaka bókun í borgarráði 1977, þar sem þú lýsir þig andvígan því, að heimiluð yrði lítils háttar hækkun iðnaðarhúsa, þar sem þessi hækkun myndi skerða útsýni. Nú samþykkir þú byggingu 10 hæða háhýsis. Ertu ekki ósamkvæmur sjálfum þér í þessu tilviki? „Ég lagði á það áherzlu í bókun minni, að húsin yrðu ekki svo há, að þau skertu útsýni alfarið. Og ég lagði á það sérstaka áherzlu, að húsin yrðu grafin í jörðu til þess að útsýni yrði ekki skert. Það skiptir í sjálfu sér ekki meginmáli hve hátt hús er, ef það skerðir á annað borð sjónlínu. Samfelld húsaröð, þó lág væri en skerti engu að síður útsýni eins og þessi hækkunarbeiðni fól í sér, hefði alfarið skert útsýnið. Svo ég taki nærtækt dæmi, þá eru Kletta- garðar tiltölulega lág hús en nógu há til að skerða útsýnið, þar sem húsalengjan er samfelld. Ég er mótfallinn slíkum.byggingum. Hinsvegar ber að leggja á það Sigurjón Pétursson áherzlu, að hægt sé að sjá milli húsa. Þá skiptir ekki meginmáli hve há þau eru. Ég vil heldur fá há hús, sem hægt er að sjá á milli en lág hús yfir sjónlínu, sem birgja alfarið útsýni. Á þessu geri ég skýran greinarmun." Hefði háhýsi SÍS eki kallað á fleiri háhýsi inn við Sundin? „Alls ekki. Það voru byggð 3 háhýsi á Laugarásnum og 3 við Sólheima. Þeir sem byggt hafa lægri hús þar eiga engan rétt á hærri byggingum með skírskotun til þessara háhýsa. í nýja mið- bænum til dæmis er gert ráð fyrir aðeins einu mjög háu húsi — það er húsi verzlunarinnar. Þó slíkt hús sé byggt gefur það ekki öðrum aðilum, sem eiga eftir að b.vggja á þessum reit rétt til þess að byggja jafnhá hús.‘“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.