Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980
Kínverjar ganga af
frímerkjasýningu
Töldu frímerki frá Taiwan
áróður gegn alþýðulýðveldinu Kina
*BM*»«fS**.n+E<Sl«í:
ÞAÐ fáheyrða atvik átti ser stað í
íyrradag að kinverskir sendi-
ráðsmenn, sem formlega voru i
boðnir til opnunar frimerkjasýn-
ingarinnar FRÍM '80, sem haldin
er að Kjarvalsstöðum, gengu af
sýningunni. Höfðu þeir þá komið
auga á frímerki frá Taiwan
(Formósu), sem þeir töldu áróður
gegn Alþýðulýðveldinu Kina og
fóru fram á að þau yrðu tekin
niður. Þvi hefur sýningarstjórnin
alfarið hafnað.
I tilefni þessa snéri blaðið sér til
Björgúlfs Lúðvíkssonar, sem setti
upp hluta af sýningunni til að fá
nánari fréttir af atburðinum.
„Ég setti upp þann hluta sýn-
ingarinnar, sem er til heiðurs
Sigurði Ágústssyni, en hann var
lengi okkar allra bezti félagi, en er
nú látinn. Hann safnaði aðallega
tvenns konar frímerkjum, annars
vegar japónskum og hins vegar
frímerkjum er snertu skátahreyf-
inguna, og eru öll merkin í þessum
hluta úr eigu hans," sagði Björg-
úlfur.
„Meðal þessara merkja eru
nokkur frá skátamótum á Taiwan
og auk þess nokkrar blokkir þaðan.
Þessi merki ráku kínversku gest-
irnir augun í og urðu þeir mjög
óánægðir með það og töldu merkin
vera áróður gegn alþýðulýðveldinu
Kína. Þeir gengu síðan af sýning-
unni, en komu svo nokkru síðar og
óskuðu þess mjög eindregið að
merkin yrðu tekin niður. Það
rökstuddu þeir með því að þessi
„áróður" gæti spillt samskiptum
lýðveldisins íslands og alþýðulýð-
veldisins Kína.
Þeim var tjáð að við værum á
móti því, en skyldum þó ræða
málið og þeir skyldu þá hringja til
okkar næsta morgun. Það gerðu
þeir ekki, en hringdu þess i stað í
formann félagsins, Pál H. Ás-
geirsson, en hann vísaði málinu
alfarið til formanns sýningar-
nefndarinnar, Jóhanns Guð-
mundssonar.
Jóhann hafði þá samband við
utanríkisráðuneytið til að spyrja
hvernig við ættum að snúa okkur í
þessu. Þar fékk hann þau svör að
við skyldum hafa þetta eins og við
vildum, þetta væri ekkert mál.
Síðan var hringt úr utanríkisráðu-
neytinu um klukkustund síðar og
okkur ráðlagt að taka merkin
niður. Þegar spurt var um forsend-
ur þessara ráðlegginga, fengust
sömu rök og Kínverjarnir höfðu
verið með áður. Jóhann sagði þá að
frímerkin yrðu ekki tekin niður
vegna eftirtalinna atriða: Frí-
s s ;t;
2
Frímerkjablokkirnar írá Taiw-
an, sem Kinverjarnir toldu ár-
óður g«gn alþýðulýðveldinu
Kína.
merkjasöfnun er hafin yfir alla
pólitík. Svo er einnig með skáta-
hreyfinguna.
Þessi hluti sýningarinnar er
settur upp í minningu okkar bezta
félaga og það væri hrópleg móðgun
við minningu hans að taka merkin
niður á svona forsendum.
Því næst var kínverjunum boðið
til fundar með okkur fyrir opnun
sýningarinnar í gær, en þeir hvorki
komu né hringdu," sagði Björgúlf-
ur að lokum.
Iscargo:
Fljúga með fersk-
f isk til Frakklands
FLUGFÉLAGIÐ Iscargo hefur
undanfarna daga flogið með 30
tonn af ferskum fiski til Frakk-
lands, að sögn Kristins Finn-
bogasonar. framkvæmdastjóra
fyrirtækisins.
Kristinn sagði, að haldið yrði
áfram með þessa flutninga í
næstu viku og þá flogið á þriðju-
dag og laugardag með svipað
magn.
Þá kom það fram í samtalinu
við Kristin, að félagið er að auka
fragtflug milli íslands, Hollands
og Bretlands. Flogið verður tvisv-
ar í viku, en hingað til hefur þetta
Akureyri:
Gamall maður fannst
eftir mikla leit
Akureyri. 7. nóvember.
ARINBJÖRN Guðmundsson, 77
ára, sem hvarf frá elliheimilinu I
Skjaldarvík um klukkan 18.00 í
gærkvöldi, fannst um klukkan
10.30 í morgun, nokkuð kaldur á
fótum, en að öðru leyti allvel á
sig kominn. Hann var fluttur á
sjúkrahús til hressingar.
Eins og fyrr segir var Arin-
bjarnar saknað frá Skjaldarvík
um miðaftanleytið í gær og var
fljótlega hafin að honum mikil
leit. Um 50—60 manns úr Hjálp-
arsveit skáta á Akureyri og Flug-
björgunarsveitinni á Akureyri
leituðu í nágrenni Skjaldarvíkur
og á svæðinu milli Skjaldarvíkur
og Akureyrar þangað til um
klukkan 3 í nótt.
Leit hófst aftur í birtingu í
morgun og lauk með því að
maðurinn fannst og var hann þá
staddur í grennd við bæinn Pét-
ursborg sem er skammt norðan
Akureyrar. Hann var sæmilega
búinn og var allhress, en var þó
orðið mjög kalt á fótum. — Sv.P.
flug verið einu sinni í viku.
Menn frá íscargo munu í vik-
unni fara utan og skoða fjórar
flugvélar af gerðinni Lockheed
Electra, sem eru fjögurra hreyfla
skrúfuþotur, en félagið hyggst
festa kaup á slíkri vél til að annast
farþegaflug milli íslands og Amst-
erdam eins og skýrt hefur verið
frá. Kristinn sagði, að fallið hefði
verið frá hugmyndum um kaup á
Boeing 737 vegna þeirra staðhæf-
inga verksmiðjunnar, að 737-vél-
arnar séu ekki heppilegar fyrir
þau vályndu veður, sem eru á
þessu flugsvæði.
---------------? ? ¦»---------------
Barnablaðið heit-
ir nú ABC & D
NÝTT nafn hefur nú verið ákveðið
á barnablað það, sem Frjálst
framtak gefur út. Lögbann var
lagt á nafnið ABC, en blaðið hefur
nú fengið nafnið ABC & D. Lím-
miðar með nýja nafninu verða
settir á forsíðu þess hluta 2.
tölublaðs, sem ekki var farinn í
dreifingu, en desembertölublaðið
ber hið nýja nafn.
V£>í ræðir beiðni
FIP um verkbönn
á mánudag
STJÓRN og samninganefnd Fé-
lags islenzka prentiðnaðarins
ræddi i gær viðbrögð við verkfalls-
hoðun bókagerðarfélaganna
þriggja, sem ákveðið hafa að boða
til verkfalls frá og með 17. nóvem-
ber næstkomandi. Ákveðið var að
árétta bréf til Vinnuveitenda-
sambands íslands frá 18. septem-
ber siðastliðnum, þar sem sam-
þykkt var að óska eftir verkbanns-
aðgerðum á aðra starfsmenn fyrir-
tækja í FlP, ef til frekari verk-
fallsaðgerða kæmi.
Grétar Nikulásson, fram-
kvæmdastjóri FÍP sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, er hann var
spurður að því, hvort komið gæti til
verkbannsaðgerða við aðra við-
semjendur, sem þegar hefðu bund-
inn samning, en aðeins Blaða-
mannafélag íslands mun eiga
ósamið við Félag blaðaútgefenda í
Reykjavík, sem er aðili að FÍP.
Grétar kvað þá samúðarverkbann
koma til greina með sama hætti og
samúðarverkföll væru boðuð. Sam-
kvæmt upplýsingum Þorsteins
Pálssonar, framkvæmdastjóra VSÍ
mun framkvæmdastjórn VSÍ koma
saman til fundar klukkan 16 á
mánudag til þess að ræða þessa
beiðni FIP.
Félag íslenzka prentiðnaðarins
sendi í gær forstjóra Þjóðhags-
stofnunar, Ólafi Davíðssyni beiðni
um að reiknað yrði út tilboð FÍP til
bókagerðarmanna og það borið
saman við hækkanir annarra sam-
bærilegra launþegafélaga. FÍP-
menn telja sig hafa boðið sambæri-
lega hækkun og komið hefur fram í
fjölmiðlum að a.m.k. bókbindarar
fara ekki fram á meira en önnur
stéttarfélög hafi fengið.
Sjá bréf FÍP á bls.5
Borgarstjórn:
Davíð kjörinn í borgarráð
Birgir fær lausn frá störfum
Davið Oddsson
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins lögðu það til á fundi
borgarstjórnar í gærkveldi að
Davíð Oddsson borgarfulltrúi
tæki sæti Birgis ísl. Gunnarsson-
ar í borgarráði frá 10. þ.m., en
Birgir óskaði eftir því á siðasta
borgarráðsfundi að verða leystur
frá þeim störfum.
Þá var og lagt til við borgar-
stjórn að Markús Örn Antonsson
taki varamannssæti í borgarráði.
Þessi tillaga borgarráðsfulltrú-
anna var samþykkt með 15 sam-
hljóða atkvæðum. Þeir Davíð og
Markús munu gegna þessum störf-
um frá 10. þ.m. og til fyrri fundar
borgarstjórnar í júní 1981.
Færeyingar kaupa verk-
smiðjuskip til kolmunna-
veiða- og vinnslu af lans
FÆREYINGAR festu nýlega
kaup á 4 þúsund lesta nokkurra
ára fronskiim verksmiðjutogara,
sem þeir ætla að gera út á
kolmunnavelðar. Skipið er vænt-
anlegt til Færeyja I dag, en það er
færeyskt fyrirtæki, sem kaupir
skipið með styrk Landsstjórnar-
innar. Um borð eru 4 vinnsíulinur
og verður kolmunninn unninn til
manneldis. Hyggjast Færeyingar
veiða kolmunna á slóðinni við
Bretlandseyjar og Færeyjar á vor-
in og fram eftir sumri, en síðan í
Norska hafinu er kemur fram á
sumarið.
í gær hófst á Hótel Esju loka-
fundurinn í norrænu samvinnu-
verkefni um veiðar á kolmunna,
vinnslu og nýtingu til manneldis.
Ráðstefnunni lýkur í dag, en á
mánudag fara fulltrúar á fundin-
um, sem eru frá Noregi, Danmörku,
Færeyjum og íslandi, til Grinda-
víkur og Hveragerðis, en þar verð-
ur þurrkunarstöð fyrirtækisins
Hverá skoðuð. Á fundinum í gær
var mikið rætt um framtíð kol-
munnaveiða, hagkvæmni þeirra,
veiðarfæri og fleira tengt kol-
munnaveiðum og vinnslu.
A fundinum í gær kom fram, að
menn telja að kolmunnaafli fari
yfir eina milljón lesta í ár og hafi
einnig gert það í fyrra. Stórtækast-
ir í þessum veiðum eru Sovétmenn,
en talið er að þeir veiði 60-70% alls
kolmunna, sem veiddur er. Mest
veiða þeir í Norska hafinu og
undanfarið hefur stór floti sov-
ézkra veiði- og vinnsluskipa verið
rétt utan 200 mílna markanna
austur af landinu.
Borgarstjórn samþykkir f járstuðning:
Pæld'íðí niðurgreitt
um 2 milljónir króna
Á FUNDI borgarstjórnar sem
haldinn var á fimmtudaginn var
samþykkt tillaga frá Sigurjóni
Péturssyni þess efnis að Alþýðu-
leikhúsinu verði veittur 2ja millj-
óna króna fjárstyrkur vegna sýn-
inga fyrir ungíinga. Unglinga-
sýning sú sem hér um ræðir ber
nafnið „Pæld'íðí" og fjallar um
kynferðismál.
Nokkrar umræður urðu um til-
lögu þessa og kom fram í máli eins
borgarfulltrúa sú skoðun að með
þessari styrkveitingu væri gefið
fordæmi og gæti því borgin átt
von á að ýmsir leikhópar, sem
teldu sýningar sinar eiga erindi til
skólafólks, færu fram á styrk eftir
að fjárhagsáætlun hefði verið af-
greidd.
Tillaga Sigurjóns var samþykkt
með 10 atkvæðum gegn 2.
Fjárstuðningur þessi mun ætl-
aður til að greiða niður aðgöngu-
miðaverð á sýningar Alþýðuleik-
hússins á umrædrlu leikriti.
Hluti fulltrúa á lokafundi sérstaks norræns rannsóknarverkefnis um kolmunnaveiðar
og vinnslu.
(I.jósm. Emilia.)