Morgunblaðið - 08.11.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980
3
Jóhanne* Snorrason og eiginkona hans, Arna Hjörleifsdóttir á Keflavíkurflugvelli viö komuna úr
lokaferö Jóhannesar sem flugstjóra í millilandaflugi. Arna heldur á dótturbarni þeirra hjóna, sem var í
hópi fjölmenns skylduliös er tók á móti Jóhannesi.
„Það má segja,
að allur gamli sjarmurinn
sé farinn af þessu44
„Ætli ég fari ekki aö feröast. óvt á fullt af vinum út um allan heim
sem mi>f lanttar að hcimsa kja. ok á systur í Kaliforníu sem ég ætla
að heimsækja sem fyrst. Þá Kæti ég trúað að þess verði ekki leniíi að
híða að és brejfði mér upp á Sandskeið í svifflujíið. fari að „fljújra"
aftur,“ sajjði Jóhannes Snorrason. yfirflujcstjúri hjá Flujtleiðum. í
spjalli við Mhl., skömmu eftir að hann lenti flujtvél sinni, nýjustu
flujtvél Flujtleiða. á Keflavíkurflujtvelli í ttær. en það var lokaferö
Jóhannesar á lonjtum farsælum ojt litrikum flujtmannsferli hans.
Jóhannes sczt nú í heljtan stein eftir 37 ára starf í flugstjórnarklefan-
um.
„Það er mikill munur að fljúga
nú og er ég fór í mína fyrstu
millilandaferð," sagði Jóhannes,
„en sú ferð var jafnframt fyrsta
ferð í millilandaflugi Islendinga,
var farið 11. júlí 1945, á Catalína-
flugbátnum Pétri gamla. Þá höfð-
um við ekkert annað en allra
nauðsynlegustu mæla til að geta
haldið vélinni láréttri í lofti í mjög
takmörkuðu hlindflugi. Þá voru
engar miðunarstöðvar eða leið-
sögutæki. En í dag er sjálfvirknin
slík, að skömmu eftir að flugvélin
lyftir sér frá jörðu ýtum við á
takka og vélin sér sjálf um allt.
Við snertum ekki stýrin fyrr en
rétt fyrir lendingu," bætti Jóhann-
es við. „Það má eiginlega segja, að
allur gamli sjarmurinn sé farinn
af þessu,“ hvíslaði Jóhannes að
blm.
Á móti honum tóku á Keflavík-
urflugvelli, auk fjölda frammá-
manna í íslenzku flugi, tveir úr
áhöfn hans í fyrsta millilanda-
fluginu, þeir Smári Karlsson og
Sigurður Ingólfsson. Þá voru tveir
farþegar í fyrsta fluginu sérstakir
gestir Flugleiða í þessari ferð, þeir
Jón Jóhannesson stórkaupmaður
og sr. Róbert Jack. Auk þeirra
voru stórkaupmennirnir Hans
Þórðarson og Jón Einarsson far-
þegar í fyrstu ferðinni, en þeir eru
báðir látnir.
„Jú ég man vei eftir þeirri ferð,“
sagði Jón Jóhannesson, er blm.
Mbl. bað hann að rifja upp ferðina
1945. Við lentum í Largs Bay á
Skotlandi eftir rúmlega sjö
klukkustunda flug. Flujrvélin var
fremur gerð til herþjónustu en
farþegaflugs og því ekki einangr-
uð, þannig að okkur var nokkuð
kalt, en ég man eftir að flugmenn-
irnir voru í alveg sérstökum stíg-
vélum til að verjast kuldanum. Þá
voru þægindin ekki eins mikil og
nú. Núna er þetta ósköp þægilegt,
að ferðast með þotu er eins og að
sitja heima hjá sér í þægilegum
stól. Manni er þjónað af kappi, en
í fyrstu ferðinni tókum við með
okkur nesti, skrínukost,“ sagði
Jón. „Og nú tekur ferðin vel innan
við tvær klukkustundir," bætti
hann við.
í sérstakri móttöku sem haldin
var Jóhannesi til heiðurs í flug-
stöðvarbyggingunni á Keflavíkur-
flujrvelli við komu hans úr loka-
ferðinni sem flugstjóra, þakkaði
Örn Johnson stjórnarformaður
Flugleiða Jóhannesi giftudrjúg
störf í þágu félagsins og þar áður
Flugfélags íslands, svo og í þágu
fiugsins. Örn rifjaði upp mörg
atvik frá fyrstu dögum Jóhannes-
ar í fluginu, en þá flugu þeir mikið
saman. „Þú hefur notið þeirrar
blessunar að skila alltaf þínu fleyi
heilu í höfn, og á þessum tímamót-
um hugsa til þín þeir hundruðir
þúsunda farþega sem þú hefur
flutt á farsælum flugmannsferli,"
sagði Örn. Agnar Kofoed-Hansen
flugmálastjóri mælti einnig nokk-
ur orð við þetta tækifæri og
þakkaði Jóhannesi framlag hans
til flugmáia fyrir hönd Flugmála-
stjórnar, en það framlag kvað
Agnar bæði gríðarmikið og ómet-
anlegt.
Jóhannes er fæddur á Flateyri
við Önundarfjörð 12. nóvember
1917. Ungur að árum flutti hann
ásamt foreldrum sínum og systk-
inum til Akureyrar þar sem hann
ólst upp og naut skólagöngu.
Árið 1941 fór Jóhannes til
Kanada þar sem hann innritaðist í
flugskóla Konna Jóhannssonar í
Winnipeg. Hann lauk prófi at-
vinnuflugmanns og fékk réttindi
sem atvinnuflugmaður frá De-
partment of Transport of Canada
1942. Nokkra næstu mánuði flaug
hann hjá kanadíska flughernum
en kom til íslands 1943. Jóhannes
gerðist flugmaður hjá Flugfélagi
íslands hinn 15. október það ár og
hefur starfað sem flugmaður og
flugstjóri Flugfélags Islands og
síðar Flugleiða allar götur síðan.
Jóhannes varð yfirflugstjóri
Flugfélags ísiands árið 1946 og
yfirflugstjóri Flugleiða hefur
hann verið frá því Flugleiðir
yfirtóku flugréttindi fyrirrennara
sinna Loftleiða og Flugfélags ís-
lands.
Endurminningar Jóhannesar
Snorrasonar, sem hann hefur
sjálfur ritað, verða gefnar út í
vetur, en því er haldið fram af
fróðum mönnum, að Jóhannes sé
bæði góður penni og segi skemmti-
lega frá.
— ágás.
Jóhannes Snorrason gengur
niöur landganginn eftir sína
sídustu ferð sem flugstjóri í
millilandaflugi.
m •
é fm 4
Kennarar hafna sýn-
ingum á „Pæld’í’ðí“
ÁLFTAMÝRARSKÓLI hefur hafn
að því. að Alþýðuleikhúsið fái að
koma og sýna leikritið „Pæld'íðí" í
skólanum. en leikhúsið hafði farið
fram á það við fra'ðsluráð. að fá að
fara í alla skóla með verkið.
Alþýðuleikhúsið hafði síðan sam-
band við menntamálaráðuneytið og
bað það að gera sína umsögn um
málið, en því var hafnað og málinu
vísað til fræðsluráðs, sem kvað upp
úr um, að hver skóli um sig skyldi
ákveða hvort verkið yrði tekið þar til
sýninga.
ragnar Júlíusson, skólastjóri
Álftamýrarskóla, sagði í samtali við
Mbl., að hann hefði kynnt málið á
kennararáðsfundi á miðvikudag í sl.
viku og tekið það síðan til afgreiðslu
á föstudag. Þá hafi komið fram
tillaga frá tveimur kennurum um að
verkið yrði tekið til sýningar. Við
atkvæðagreiðslu fékk tillagan aðeins
atkvæði flytjenda og fékk þar af
leiðandi ekki næjyanlegan stuöning.
„Þessum úrslitum var ekki unað af
flutningsmönnum tillögunnar og því
var haldinn kennarafundur í gærdag
þar sem málið var borið undir
atkvæði. Þar voru mættir 33 af 36
kennurum og hlaut tillagan 7 at-
kvæði, 21 var á móti og fimm sátu
hjá. Það er því hægt að segja, að
andstaðan við þetta sé afgerandi og
þurfi ekki frekari umfjöllunar við,“
sagði Ragnar Júlíusson, skólastjóri
að síðustu.
„Heimkynni við sjó
— ný ljóðabók eftir Hannes Pétursson
ÚT ER komin ný ljóðabók eftir
Hannes Pétursson. Nefnist hún
Heimkynni við sjó og geymir sextíu
tölusett ljóð. Útgefandi er Iðunn.
Þetta er fyrsta Ijóðasafn Hannesar í
níu ár, eða frá því að Rímblöð komu
út 1971. Fyrir þremur árum kom
heildarútgáfa á ljóðum Hannesar,
Kvæðasafn 1951-1976.
Um hina nýju Ijóðabók segir svo í
kynningu forlags á kápubaki: ,,„Sí-
fellt ber eitthvað annálsvert fyrir
sjónir.“ Svo kveður Hannes Péturs-
son í einu hinna sextíu ljóða þessar-
ar bókar. Og það eru orð að sönnu: í
hverju ljóðinu af öðru er brugðið
upp minnilegum og drátthreinum
myndum frá skynheimi einstaklings
andspænis hrynjandi náttúrunnar
umhverfis. Skáldið leitast við að
lýsa með persónulegum hætti þess-
ari skynjun lífs og heims, finna sér
stað í Heimkynni við sjó þar sem
stórmerkin birtast í hversdagsleik-
Tvö börn
slösuðust
TVEIR fólksbílar skullu harkalcga
saman á Vesturlandsvegi rétt norð-
an Kiðafells um ellefuleytið í gær-
morgun. Annar bíllinn var á leið
niður brekku og bremsaði en snérist
þá á veginum og skall á bíl, sem kom
á móti.
I bílunum var margt fólk, þar af
sjö börn. Slösuðust tvö börn en þó
ekki alvarlega að því er talið er.
Bílarnir eru stórskemmdir ef ekki
ónýtir.
„Ber er
hver
að baki...“
„ÉG ÓSKA þess, að allir starfs-
menn Fluglciða taki höndum
saman og standi allir sem einn
maður í þeim erfiðleikum sem
félagið á í og hjálpi stjórncndum
fyrirtækisins til að hefja flugið á
ný. Það verður hezt gert með
sameiginlegu átaki. því samein-
aðir stöndum vér og sundraðir
föllum vér. Ég treysti stjórnend-
um félagsins og forráðamonnum
flugsins til að ráða fram úr
vandanum. sem að steðjar. og tel
það jafnframt skyldu starfsfólks-
ins að standa á hak við sina
yfirmenn. því her er hver að haki
nema sér hróður eigi.“ sagði
Jóhannes Snorrason yfirflug-
stjóri Flugleiða í hófi sem haldið
var honum til heiðurs við kom-
una heim úr sínu síðasta flugi
fyrir Flugleiðir í ga'r.
„Nóg eru vandamálin, svo að
stjórn félagsins þurfi nú ekki að
standa í illindum við sitt eigið fólk
í eigin garði,“ sagði Jóhannes er
hann brýndi fyrir starfsfólki
Flugleiða að fylkja sér frekar um
stjórn Flugleiða og auðvelda þeim
að ráða fram úr þeim erfiðleikum
sem félagið á við að etja, heldur en
að gera þeim feikinn erfiðari með
innbyrðis illdeilum og ágreiningi.
ilannes Pétursson
anum? í fjöru, á grænum grundum,
hjá tjörnum, í litbrigðum landsins
um ársins hring. Þetta er fágætlega
vandaður og sannur skáldskapur,
jafnt að innviðum sem ytra búnaði.
Ef til vill hefur orðlist Hannesar
Péturssonar aldrei verið fágaðri en
hér.“
Heimkynni við sjó er 70 blaðsíðna
bók. Oddi prentaði. Ljósmynd á
bókarkápu tók Haukur Hannesson.
Fíkniefnamálió:
Síðasta mann-
inum sleppt
I GÆR var sleppt úr gæzluvarðhaldi
síðasta manninum af fjölmörgum,
sem setið hafa inni vegna rannsójtn-
ar á umfangsmiklu fíkniefnamáli.
Maðurinn, sem er 22ja ára gamall
hafði setið í ga'zluvarðhaldi í 42
daga.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu hafa um 90 ung-
menni tengst þessu máli á einn og
annan hátt. Sannaður hefur verið
innflutningur á fíkniefnum fyrir á
annað hundrað milljónir króna.
Baldur Pálmason
hættir hjá út-
varpi um áramót
BALDIIR Pálmason. varadag-
skrárstjóri útvarpsins. hefur
sagt starfi sínu lausu og ha'ttir
um áramótin. Haldur sagði i
samtali við Mhl. í ga'r. að ef til
vill myndi hann vera eitthvað
áfram „í lausamennsku“ við
dagskrárgerð: „Alla vega hef ég
ekkert á móti því sjálfur.“ sagði
hann.
Baldur hóf störf hjá útvarpinu
1945 og sagðist hafa verið skipað-
ur í desember það ár. „Ég hætti
vegna aldursmarkanna," sagði
Baldur, en hann verður 61 árs í
næsta mánuði.