Morgunblaðið - 08.11.1980, Qupperneq 11
Litla matreiðslubókin
Grænmetis-
réttir
efttr Lott® Hsvemen
Grænmeti
og svínakjöt
í meðförum
Ib Wessmans
BÓKAÚTGÁFAN Örn og
Örlygur hefur gefið út
tvær nýjar bækur í bóka-
flokknum „Litlu mat-
reiðslubækurnar". Ib
Wessman hefur þýtt þær
og staðfært.
Alls eru þá komnar út átta
bækur í þessum flokki. Hinar nýju
bækur eru Grænmetisréttir og
Svínakjöt. Hver bókanna fjallar
um afmarkað svið matargerðar.
Litlu matreiðslubækurnar eru all-
ar litprentaðar og fylgir hverri
uppskrift heilsíðumynd af við-
komandi rétti.
Áður eru útkomnar þessar bæk-
ur: Ábætisréttir, Pottréttir, Kart-
öfluréttir, Útigrill og glóðarsteik-
ur, Kökur og Kjúklingar.
í bókinni um grænmetisréttina
eru ítarlegar upplýsingar um
notkun og meðferð grænmetis
fremst í bókinni. Þar segir frá
geymslu grænmetis, næringar-
gildi þess, meðferð og matreiðslu,
forsuðu og frystingu.
Á sama hátt er ítarlegur kafli
fremst í bókinni um svínakjöt, þar
sem gefnar eru margháttaðar leið-
beiningar um matreiðslu og með-
ferð þess.
Litlu matreiðslubækurnar eru
filmusettar og umbrotnar í
prentstofu Guðmundar Bene-
diktssonar, en prentaðar og
bundnar í Danmörku.
(Úr fréttatilkynningu.)
Sérþekkingin verði nýtt!
Á þessum blm.fundi kom enn-
fremur fram sú skoðun fundar-
manna að húsgagnaiðnaðurinn
hefði ekki nema sárasjaldan séð
ástæðu til þess að hagnýta sér
sérþekkingu félagsmanna FHI. Og
innanhússarkitektarnir sögðu þann
grun læðast að sér, að samkeppnis-
staða íslendinga væri önnur og
betri, ef hönnun framleiðslunnar
væri meiri gaumur gefinn.
FHI hefur leitast við að kynna
landsmönnum, hve hönnunin er
ríkur þáttur í þessum iðnaði. Félag-
ið hefur gengist fyrir húsgagnasýn-
ingum og ýmsum fleiri nýjungum
varðandi húsgagnagerð. Sl. ár hafði
félagið samvinnu við Arkitektafélag
íslands og Félag landslagsarkitekta
að ráðstefnuhaldi um umhverfi
barna í tilefni barnaárs.
Stærri verkefni
Síðustu árin hafa innanhússarki-
tektar tekist á við stærri verkefni,
svo sem við innréttingar opinberra
stofnana, annaðhvort sem sjálf-
stæðir ráðgjafar ellegar í samvinnu
við arkitekta. Það er ekki aðeins, að
innanhússarkitektinn teikni inn-
réttingar, húsgögn, ljósabúnað,
o.s.frv., heldur er innanhússarki-
tektinn vel í stakk búinn til þess að
gera „notagildisathuganir", eins og
þeir sögðu félagsmenn FHI á
blm.fundinum um daginn — en
„notagildisathuganir" eru einmitt
forsenda allrar hönnunar.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980
11
3 $
Komið og skoð-
ið falleg hús-
gögn á góðu
verði.
húsgögn
Langholtsvegi 111, Reykjavík,
símar 37010 — 37144