Morgunblaðið - 08.11.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980
23
Leikvangur heitinn
eftir Wallenberg
New York. 7. nóv. — AP.
Borgarstjóri New York-
borgar. Edward I. Koch.
undirritaði í gær lög þess
efnis, að íþróttaleikvang-
ur í borginni skuli fram-
vegis bera nafn Raoul
Wallenbergs, Svíans, sem
bjargaði þúsundum gyð-
Steve
McQueen
látinn
Loh Anxeles. 7. nóvember. AP.
Kvikmyndaleikarinn Steve
McQueen lézt í sjúkrahúsi í
Mexíkó í kvöld. Banamein
hans var hjartaslag, en hann
var haldinn krabbameini í
lungum, og var ætlunin að
gera á honum aðgerð til að
nema brott æxli innan fárra
daga.
inga á dögum síðari heims-
styrjaldarinnar.
í ræðu sem borgarstjórinn
hélt við þetta tækifæri sagði
hann, að nafngiftinni væri ætl-
að að minna á „hugrekki Wall-
enbergs og mannkærleika".
Wallenberg, sem bjargaði
fjöldamörgum g>rðingum úr
klóm nasista í Ungverjalandi,
var handtekinn af Rússum í
stríðslok. Rússar halda því
fram, að hann hafi látist í
fangelsi árið 1957 en ýmislegt
þykir benda til að hann sé enn á
lífi. Mörg samtök gyðinga hafa
reynt að hafa uppi á honum án
þess að hafa haft erindi sem
erfiði hingað til.
Þotan komin
til Caracas
Caracas. 7. nóvember. AP.
VENEZÚELSKA DC-9-þotan.
sem rænt var í ga‘r og snúið til
Havana á Kúbu. er nú komin
aftur til Caracas. Flugræningj-
arnir. sem voru tveir. gáfu sig
fram við yfirvöld á Kúbu og er
búist við að stjórnvöld í Venezú-
ela muni fara fram á framsal
þeirra.
Borin hafa verið kennsl á flug-
ræningjana, sem voru tveir bræð-
ur, Felix og Jose Grimaldi, og að
sögn lögreglunnar hafa þeir ekki
haft nein afskipti af stjórnmálum
svo vitað sé. Sjálfir lýstu þeir hins
vegar yfir því við komuna til
Kúbu, að þeir væru félagar í
óþekktum skæruliðasamtökum,
sem þeir nefndu Alþjóðhreyfingu
öreiganna.
Neil Reagan forsetabróðir:
„Læt bróður minn
um landsstjórnina“
Santa Fe. Kaliforníu. 7. nóv. AP.
STRAX að lokinni embættistök-
unni ætlar Neil Reagan, bróðir
Ronald Reagans, tilvonandi for-
seta. að taka aftur til við fyrri
iðju, golfleik og að nostra við
grasflötina. Hann segist enda
ekki sjá neina ástæðu til að
„forsetabróðir sé að skipta sér af
landsstjórninni*.
Neil Reagan, sem er 71 árs
gamall og starfaði áður við aug-
lýsingagerð, hafði hönd í bagga
með bróður sínum þegar hann
bauð sig til ríkisstjóraembættisins
í Kaliforníu á sínum tíma og hann
segist ekkert undrandi á frama
bróður síns.
„Þegar Reagan bauð sig fram í
ríkisstjórakosningunum í fyrra
sinn var ég oft spurður hvað vekti
eiginlega fyrir honum þar sem
miklu fleiri demókratar hefðu
látið skrá sig á kjörskrá. Ég bara
brosti og sagði, að fólk ætti eftir
að furða sig á tvennu, í fyrsta lagi
á sigrinum og í öðru lagi á því hve
stór hann yrði,“ sagði Neil Reagan
forsetabróðir.
Þetta geróist S. nóvemb'er
1519 — Hernando Cortez kemur
til Mexíkóborgar.
1520 — Stokkhólmsvíg: Eiríkur
Vasa, sænskir biskupar og aðals-
menn myrtir að undirlagi Krist-
jáns II, Danakonungs.
1620 — Orrustan við Hvítafjall:
Kaþólskur her Tillys greifa sigr-
ar mótmælendaher Friðriks af
Bæheimi nálægt Prag.
1793 — Louvre-safnið í París
opnað almenningi.
1830 — Ferdinand II verður
konungur í Napoli við lát Franz I.
1861 — „Trent“-málið: Norðan-
menn taka Sunnanmenn af
brezku póstskipi.
1880 — Borgarastyrjöld brýzt út
á Samoaeyjum.
1917 — Lenín verður yfirkomm-
issar í Rússlandi og Leon Trotsky
skipaður forsætisráðherra.
1923 — Bjórkjallarauppreisn
Adolf Hitlers í Mvinchen.
1938 — Glerbrotanóttin í Þýzka-
landi (ofsóknir gegn Gyðingum).
1950 — Fyrsta þotuorrustan háð
nálægt Yalufljóti í Kóreu.
1956 — Allsherjarþingið krefst
hrottflutnings Rússa frá Ung-
verjalandi. ,
1959 — Tíu ára neyðarástandi í
Kenya lýkur.
1960 — John F. Kennedy kosinn
forseti Bandaríkjanna.
1966 — Borgin Flórenz á Ítalíu
biður um aöstoð til að bjarga
listaverkum vegna flóða.
Afmæli — John Milton, enskt
skáld (1608—1674( — Katherine
Hepburn, bandarísk leikkona
(1909 - ).
Andlát — 1890 César Franck,
tónskáld — 1933 Mohammed
Nadir Shah, konugur Afganistan,
myrtur.
Innlent — 1802 Bjarni Bjarna-
son og Steinunn Sveinsdóttir játa
á sig Sjöundármorðin — 1879
Fornleifafélagið stofnað — 1906
f. Kari ísfeld — 1945 „Uppstign-
ing“ Sigurðar Nordals frumsýnd
— 1947 Ættartölum Skagfirð-
inga stolið — 1979 Tveir fórust í
flugslysi í Borgarfirði.
Orð dagsins Bismarck háði
„ónauðsynleg“ stríð og drap þús-
undir; húgsjónamenn tuttugustu
aldar háðu „réttlátt" stríð og
drápu milljónir — Alan Ta.vlor,
brezkur sagnfræðingur (1906—
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmrnm
Vilmundur Gylfason alþingismaður:
Eitt eru pólitísk átök
annað persónuleg vinátta
Morgunblaðið birti. eins og kunnugt er. ra'kilegar frásagnir af
flokksþingi Alþýðuflokksins og þar á meðal cndursögn á ræðu
Vilmundar Gylfasonar alþingismanns. sem hann flutti að loknu
varaformannskjöri á þinginu. en vegna sérstakrar óskar Vilmund-
ar birtir hlaðið nú samtal Ilelga H. Jónssonar. fréttamanns
útvarpsins. við Viimund. en það var flutt í útvarpinu sl. sunnudag.
Samtalið var svohljóðandi:
Fréttamaður. Ilelgi H. Jóns-
son, spurði Vilmund Gylfason
fyrst hvort hinn miklu munur á
þeim Magnúsi 11. Magnússyni
og Vilinundi Gylfasyni (110—
68) i keppni þeirra um vara-
formannsstöðu í Alþýðuflokkn-
um hefði komið honum á óvart?
Ég ber ekki Alþýðuflokkinn
eða lýðræðisjafnaðarstefnuna á
torg. — Það geta aðrir gert. En
við verðum að skilja það, að
skipulagsmál hafa vegið þungt á
þessu þingi. Við viljum mörg
hver stækka flokkinn, gera hann
að kerfi, þar sem fleira fólk
telur. Og það er alveg sama
hugsunin hjá okkur núna gagn-
vart flokknum, eins og þegar við
bjuggum til opnu prófkjörskosn-
ingarnar fyrir fjórum árum sið-
an.
Þegar fulltrúar á flokksþingi
eru ekki nema tæplega 180, eins
og á þessu, þá vegur „flokkseig-
endafélagið", og það er gott orð,
sem Jónas Kristjánsson hefur,
held ég, búið til, og pólitísk
vanmetakennd; það tvennt vegur
þungt. Og ég held að þetta skipti
máli.
Ég vek athygli á því, að fjórir
forustumenn flokksins hafa gef-
ið sig upp í þessari kosningu,
allir með mér. Sá fyrsti er
Bjarni P. Magnússon, formaður
framkvæmdastjórnar flokksins,
sem hefur unnið pólitísk krafta-
verk á undanförnum árum. Ann-
ar er Karl Steinar Guðnason,
alþingismaður í Keflavík. Sá
þriðji er Snorri Guðmundsson,
formaður Sambands ungra jafn-
aðarmanna. Sá fjórði er Jón
Baldvin Hannibalsson, ritstjóri
Alþýðublaðsins. Þessir eru uppi
á yfirborðinu — þeir eru með
mér. Hinir eru á kafi. Og horfi
menn svo í kringum sig.
Það sem gerist á þinginu, og
það er eiginlea verkefni fyrir
þig, Helgi, sem rannsóknablaða-
maður(l), er að Karvel, þingfor-
seta, urðu á mjög alvarleg mis-
tök. Það var um röð á kosning-
unni. Að varaformaður var ekki
kosinn á eftir formanni, eins og
gerist á öllum venjulegum þing-
um, heldur breyttist röðin.
Karvel fór eftir bókstaf, Karvel
á ekki óheilindi til. Hér skiptir
sköpum ókunnugleiki Karvels,
það að hugsa ekki klárt á
mikilvægu augnabliki.
Og ég vil svo aðeins láta
andstæðing minn njóta sann-
mælis, að við erum báðir lýðræð-
isjafnaðarmenn, við Magnús,
sem ég, svona í galsa, kalla
stundum hægri krata.
En auðvitað eru þetta átök um
gamlan og nýjan stíl. Flokks-
þingið hefur beðið um gamla
stílinn. Það fær hann þá í tvö ár
í viðbót.
En Magnúsi það sem Magnúsi
ber. Magnús er stálheiðarlegur
maður, og traustur. Úr því að
gamla kerfið fór að bjóða fram
mann, þá auðvitað hafði það ekki
betri frambjóðanda heldur en
Magnús.
Þegar gagnrýni byrjaði á
Gröndal fyrir nokkrum mánuð-
um síðan, ég tók engan þátt í
henni og á engan hlut þar að
máli, þá var Gröndal gagnrýnd-
ur fyrir að vera veikur formaður,
eins og sagt er í pólitík. Nú hefur
það kostulega skeð, að flokks-
þingið hefur raunverulega skipt
á Magnúsi og Benedikt, og þetta
er veikari stjórn heldur en hin,
sem við vorum að losna við.
Og að lokum þetta: Ég bið vel
og virðulega skoðanasystkini
mín um land allt að halda nú ró
sinni. Sjálfur er ég hress, ég hef
að vísu tapað einni orrustu, en
stríðið sjálft er eftir.
Þú segir, Y'ilmundur. að
þarna hafi tekizt á gamall og
nýr stíll. Ilvað áttu við?
Mennirnir verða að skoða
stjórnmál síðustu ára mjög vel
og vandlega. Alþingi starfar ekki
fyrir opnum tjöldum, það er
mikill misskilningur. Mest af
vinnu þings fer fram í þingflokk-
um.
Auðvitað hafa orðið átök um
stjórnina, sem við tókum þátt í,
og Jón Baldvin hefur kallað
pólitískt umferðarslys, og það er
alveg rétt hjá honum, rétt mat.
Og ég má segja það, Magnúsi til
hróss, þá slógumst við í þing-
flokknum um þessa stjórn, og
ekki bara um að fara í hana,
heldur um ýmis mál. Og ég sagði
þaö, þegar ég var að skemmta
þingfulltrúum í gær, sagði frá
því, að þrívegis gusuðum við
Magnús fullfast. Tvisvar ég, ég
sagði hluti, sem ég dauðsá eftir.
Og einu sinni hann. Og í öll þrjú
skiptin þá stóðum við upp, full-
trúi nýja stílsins og fulltrúi
gamla stílsins, og tókumst í
hendur og minntum hvorn ann-
an á, að eitt væru pólitísk átök,
annað persónuleg vinátta. Og
það stendur enn. Við erum að
vísu ekki búnir að takast í
hendur, en við eigum eftir að
gera það.
En hvað hyggstu nú fyrir
pólitiskt?
Nákvæmlega það sem ég hef
verið að vinna. Stjórnmálamað-
ur á alltaf í svolitlum vandræð-
um með það. Ef hann vinnur
mikið fyrir flokkinn, þá vanræk-
ir hann „háttvirta kjósendur",
sem svo eru kallaðir bæði í
gamni og alvöru.
Síðastliðin tvö ár þá hef ég
unnið ásamt Bjarna P. Magnús-
syni og fleiri nánum vinum
mínum mjög mikið innan flokks-
ins, í sambandi við Alþýðublaðið
og fleiri mál. Fyrir vikið hef ég
vanrækt kjósendur. Og ég veit,
að sumt fólk metur þetta ekki.
Ég hyggst vera áfram lýðræðis-
jafnaðarmaður, áfram í Alþýðu-
flokknum. Ég reyni að vera stór
á ósigursstund. En núna ætla ég
að breyta á vigtinni, fara að
sinna kjósendum meira, en það
þýðir, að ég sinni auðvitað
flokknum minna á næstu miss-
erum.
„Argasta sorpblaðamennska
- segir Guðmundur Hallvarðsson um skrif Þjóðviljans
í FORYSTUGREIN Þjóðviljans í
gær heldur Kjartan Ólafsson
ritstjóri þvi fram. að ritstjóri
Alþýðuhlaðsins. Jón Baldvin
Hannibalsson. hafi nýlcga verið
gerður að „heiðursfélaga“ í Sjó-
mannafélagi Reykjavikur, eins
og það er orðað af honum.
Morgunblaðið sneri sér af þessu
tilefni til Guðmundar Hallvarðs-
sonar formanns Sjómannafélags
Reykjavíkur og spurði hann, hvað
væri hæft í þessum fullyrðingum.
— Þetta er argasta sorpblaða-
mennska, sagði Guðmundur, með
einu símtali hefði Kjartan Ólafs-
son getað fengið upplýsingar um
það, að Jón Baldvin Hannibalsson
er ekki í Sjómannafélagi Reykja-
víkur. Á sínum tíma greiddi hann
félagsgjöld hingað, þegar hann
stundaði sjómennsku í ígripum,
hins vegar verða menn að sækja
um inngöngu í félagið til að
komast í það og Jón Baldvin hefur
ekki gert það.
— Mér finnst það til merkis um
lágkúruna hjá þessu blaði, sem
gumar af því að vera málsvari
verkalýðsins, að hafa þá harðdug-
legu sjómenn, sem lokið hafa
löngu ævistarfi og þess vegna
verið heiðraðir af Sjómannafélagi
Reykjavíkur, að háði og spotti með
því að telja Jón Baldvin Hanni-
balsson í heiðursfélagaflokki með
þeim, sagði Guðmundur Hall-
varðsson.
Elín Pálmadóttir á borgarstjórnarfundi:
Tilvist Fæðingarheimilis-
ins mikilvæg fyrir konur
Sjöfn andvíg sölu heimilisins
Á borgarstjórnarfundi á
fimmtudagskvöldið urðu nokkr-
ar umræður um fyrirhugaða sölu
á Fæðingarheimili Reykjavíkur-
borgar til rikisins. Elin Pálma-
dóttir. varaborgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins. hóf umræðuna
og sagði m.a. að tilvist Fæðingar-
heimilisins væri gifuriega mikil-
væg íyrir konur og fjölskyldur í
borginni. Elin taldi og eðlilegt að
konur fengju að velja á milli
Fæðingarheimilisins og fæðing-
ardeildar Landsspitalans þegar
þær fæddu börn sín og að Reykja-
vikurhorg ætti að tryggja það
með áframhaldandi rekstri þess.
Albert Guðiuundsson tók einnig
til máls og sagði að auðvitað ætti
að halda áfram rekstri Fæðingar-
heimilisins, svo framarlega sem
grundvöllur væri fyrir rekstrinum
og hann réttlætanlegur. Davíð
Oddsson tók einnig til máls og tók
mjög í sama streng og Albert, að
halda ætti rekstrinum áfram,
væri grundvöllur fyrir honum.
Þá talaði Sjöfn Sigurbjörnsdótt-
ir og lýsti hún því yfir að hún væri
andvíg sölu á Fæðingarheimilinu
og sagðist hún og harma hvernig
þetta mál væri til komið.
Fleiri borgarfulltrúar tóku
einnig til máls og verða umræð-
urnar raktar nákvæmar hér í
blaðinu a næstunni.