Morgunblaðið - 13.11.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980
23
ÁÐUR en Ronald Reagan fór í „útlegð“ sina sótti hann messu,
ásamt konu sinni Nancy. Kirkjan var þéttsetin og forsetanum
tilvonandi vel faKnað. Á myndinni er Reagan og Nancy með
presti safnaðarins, séra Moomaw.
Nánari samvinna
Noregs og EBE
Frá Jan Erik Laure.
íréttaritara Mbl. í Osló,
12. nóvember.
EBE í þjóðaratkvæða-
greiðslu 1972.
NORÐMENN «k Efna-
hagsbandalag Evrópu
hafa ákveðið að auka sam-
skipti og tengsl sín, án
þess þó að Norðmenn hug-
leiði inngöngu í bandalag-
ið. Ákvörðun þessi um
aukin samskipti kemur i
kjölfar heimsóknar
Oddvars Nordlis til aðal-
stöðva EBE. För Nordlis
til aðalstöðva EBE í Bruss-
el var fyrsta för norsks
forsætisráðherra til aðal-
stöðva EBE eftir að Norð-
menn höfnuðu aðild að
Sett verður á laggirnar nefnd
skipuð norskum ráðherrum og
framkvæmdastjórum EBE. Þegar
Nordli var í Brussel ræddi hann
við Roy Jenkins, framkvæmda-
stjóra EBE og eftir viðræður sínar
við Jenkins lagði Nordli áherzlu á
þann ásetning norsku stjórnarinn-
ar að auka samskipti og samvinnu
Norðmanna og EBE. Nefndin sem
sett var á laggirnar er hin fyrsta
sinnar tegundar, sem EBE skipar.
Nefndin mun koma árlega saman
til funda — þá á vorin. Hún kemur
saman í fyrsta sinn í Osló í vor.
Roy Jenkins sagði við norska
blaðamenn, að það væri ósk EBE,
að Norðurlöndin og EBE treystu
tengsi sín og ykju samskipti.
Tyrkland:
Málgagn vinstri-
sinna bannað
Istanhul. 12. nóv. — AP.
IIERRÉTTUR í Tyrklandi
ákvað í dag að hanna útgáfu
daghlaðsins Cumhuriyet
(Lýðveldið), sem er helsta
málgagn , vinstri manna í
landinu. Ástæðan er sögð sú,
að blaðið hafi að undanförnu
birt „tilhæfulausar fréttir"
og svert minningu Kemal
Ataturks, frelsishetju
Tyrkja.
Dagblaðið hefur að undanförnu
gagnrýnt harðlega stefnu herfor-
ingjastjórnarinnar í efnahagsmál-
um og barist gegn skerðingu
yfirvalda á réttindum launþega.
Nýlega birtist grein í blaðinu þar
sem hæðst var að meintum til-
raunum hægri manna til að skipa
sér á bekk með Ataturk, en hann
frelsaði Tyrkland undan oki
Ottoman-veldisins, sem hafði var-
að í 600 ár.
Cumhuriyet er fjórða dagblaðið,
sem lokað hefur verið, síðan her-
foringjastjórnin tók völdin í land-
inu í byrjun septembermánaðar,
en hún tók völdin eftir mikil
pólitísk átök í landinu.
Suarez í setningarræðu Madrid-fundarins:
Mannréttindi og slök-
un verða að fylgjast að
Madrid. 12. nóv. — AP.
ADOLFO Suarez, forsætis-
ráðherra Spánar, sagði í
setningarræðu Madrid-
fundarins í dag, að ekki
mætti undir neinum kring-
umstæðum skilja að um-
ræðu um mannréttindi og
slökunarstefnu. Slökun og
mannréttindi verða að
haldast í hendur og um
raunverulega slökun verð-
ur ekki að ræða, nema
grundvallarmannréttindi
séu tryggð.
Meðan Suarez hélt ræðu sína
tók til starfa ný nefnd, sem skipuð
hefur verið til þess að reyna að
leysa níu vikna ágreining, sem
staðið hefur um dagskrá fundar-
ins. Sendinefndir Vesturlanda
vilja, að nægjanlegur tími verði
tekinn í umræðu um efndir aust-
antjaldsríkjanna á mannréttinda-
kafla Helsinkisáttmálans og um
íhlutun Sovétmanna í Afganistan,
en Rússar vilja ræða um slökun-
arstefnu, án tillits til efnda í
mannréttindum.
Bandaríkjamenn kröfðust þess í
upphafi undirbúningsviðræðn-
anna, að fundurinn yrði ekki
settur fyrr en dagskrá hans hefði
verið ákveðin. Þótt fundurinn sé
nú hafinn, virðist þó langt í land
að samkomulag náist um umræð-
ur um mannréttindi. Formaður
sendinefndar Sovétríkjanna til-
kynnti í dag, að „sendinefndin
Adolf Suares.
hefði aðeins umboð frá sínum
yfirvöldum, til að ræða um aukna
slökun".
Bresnev sagði í ræðu í kvöld, að
ekki yrði liðið, að þessi fundur um
efndir Helsinki-sáttmálans yrði
notaður til þess að koma á fram-
færi „ómerkilegum áróðri“. Hann
sagði að fulltrúar Sovétríkjanna á
fundinum myndu hinsvegar beita
sér fyrir að samningar næðust um
áframhaldandi slökun, öryggi og
frið í heiminum.
Suarez hvatti fulltrúa hinna 35
ríkja, sem sitja fundinn, til þess
að reyna af öllum mætti að ná
samkomulagi um dagskrána og
sagðist vona, að með sáttfýsi
mætti yfirstíga þær deilur, sem
svo mjög hafa einkennt undirbún-
ingsfundina.
ERLENT
..Ringulreiö
og óvissa“
VONIR eru að gla'ðast um að
samkomulag takist um skipu-
lag fundarins, sagði Ólafur
Egilsson, sem er i íslenzku
sendinefndinni á Madrid-fund-
inum um efndir Ilelsinki-sátt-
málans.
— Áður en fundurinn var
settur í gær var allt í tvísýnu
frám á síðustu stundu og margir
töldu ósennilegt að hann yrði
yfirleitt haldinn. Síðan náðist
samkomulag um að setja fund-
inn og í upphafi hans skyldu
fulltrúar hinna 35 ríkja, sem
aðild eiga að Helsinki-sáttmál-
anum, flytja framsöguræður sín-
ar, og er miðað við að þeim
ræðuhöldum verði lokið á föstu-
dagskvöld eða laugardagsmorg-
un. Þótt þannig hafi tekizt að
vinna tíma, svo hægt verði að
semja um dagskrána að öðru
leyti, ríkir hér samt nokkur
ringulreið og óvissa um fram-
haldið.
Þótt erfiðlega gangi að koma í
framkvæmd ýmsum mikilsverð-
ustu þáttum Helsinki-samþykkt-
arinnar eru engu að síður
bundnar við hana helstu vonir-
um hagstæða þróun á næstu
árum.
í samtalinu við Ólaf kom
einnig fram, að utanríkisráð-
herra Ólafur Jóhannesson, væri
væntanlegur til Madrid á
fimmtudag og ráð fyrir gert að
hann flytti ræðu sína á föstu-
daginn.
Þetta gerðist 13. nóv.
1002 — Þúsundir Dana myrtir á
Englandi að skipan konungs.
1511 — Hinrik VIII gengur í heil-
aga bandalagið og hefur afskipti
af evrópskum stjórnmálum.
1553 — Lafði Jane Gre.v og aðrir
leidd fyrir rétt, ákærð fyrir land-
ráð.
1781 — Bretar ná á sitt vald
hollenzku byggðinni í Negatapan,
Madras.
1893 — Bretar samþykkja innlim-
un Swazilands í Transvaal.
1913 — Grikkir og Tyrkir undir-
rita friðarsamning.
1916 — Orrustunni við Somme
lýkur.
1918 — Austurríki lýst lýðveldi —
Rússar rifta samningnum í Brest-
Litovsk.
1942 — Bretar ná aftur Tobruk —
Bandaríkjamenn hrinda árásum
Japana á Guadalcanal.
1945 — Sukarno verður forseti
Indónesíu.
1950 — Tíbet biður SÞ um aðstoð
gegn kínverskri árás.
1961 — Kongó biður SÞ um aðstoð
til að koma á reglu í Katanga.
1968 — Utanríkisráðherra Pak-
istans, Ali Bhutto, handtekinn
fyrir að æsa til stúdentaóeirða.
1975 — WHO tilkynnir að bólu-
sótt hafi verið útrýmt í Asíu.
1977 — Sómalíustjórn rekur sov-
ézka ráðunauta úr landi.
1979 — írönskum stúdentum í
Bandaríkjunum skipað að gefa sig
fram við yfirvöld innan 30 daga.
Afmadi. Robert Louis Stevenson,
skozkur rithöfundur (1850—1894).
Andlát. 1093 Malcolm III Skota-
konungur myrtur — 1460 Hinrik
sæfari.
Innlent. 1663 f. Árni Magnússon
prófessor — 1762 f. Benedikt
Gröndal (eldri) — 1812 f. Páll
Melsteð — 1903 Alberti skipar
Hannes Hafstein ráðherra íslands
— 1958 Tilraun brezks herskips til
að kafsigla „Þór“ mótmælt —
1962 Landssamband verzlunar-
manna dæmt inn í ASÍ — 1963
Surtseyjargos hefst — 1970 Þjóð-
leikhússtjóri gagnrýndur í sjón-
varpi fyrir „Brúðkaup Fígarós“ —
1973 Alþingi samþykkir
samkomulag um veiðar við Breta
— 1906 f. Eysteinn Jónsson.
Orð dagsins. Nagli er rekinn út
með öðrum nagla — vani er
sigraður með vana — Erasmus,
hollenzkur fræðimaður (1466—
1536).