Morgunblaðið - 23.11.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1980
47
Lífsskoðun
Halldór Kristjánsson frá Kirkju-
lx>li: Ilalldórskver,
Sálmar ok kvæði
bjóðsa>?a
Reykjavík 1980
Þeir munu ekki margir á landi
hér, sem komnir eru til vits og ára
og ekki kannast við Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli í
Bjarnardal í Önundarfirði. Hann
hefur verið um marga áratugi í
ræðu og riti einhver harðvítugasti
andstæðingur áfengissölu og
áfengisveitinga. Hann hefur og
tekið mikinn þátt í stjórnmálum
sem framsóknarmaður, verið
starfsmaður við Tímann árum
saman, verið í kjöri til Alþingis
mörgum sinnum fyrir sinn flokk
og setið á þingi margoft, sem
fyrsti varamaður flokksins í
Vestfjarðakjördæmi. Þá er hann
og kunnur sem lengi formaður í
úthlutunarnefnd listamannalauna
og varið gerðir hennar í sjónvarpi.
Það munu vera hartnær fimm-
tíu ár, síðan ég hafði fyrst kynni
af Halldóri. Það varð svo fastur
vani minn, þegar ég dvaldi á
Isafirði og átti leið vestur yfir
Önundarfjörð, að koma við á
Kirkjubóli og spjalla við systkinin
þrjú um skáldskap, enda hafði ég
heyrt, að öll væru þau vel hagorð,
og hjá þeim sá ég ljóðasöfn ýmissa
merkisskálda frændþjóða okkar.
Það l'eið og ekki á löngu, unz ljóð
komu frá hendi Guðmundar Inga,
sem skipuðu honum í sérstætt
sæti á skáldabekk.
Ekki tel ég mig hafa haft náin
kynni af Halldóri fyrr en sumarið
1946. Þá vorum við báðir í fram-
boði í Barðastrandarsýslu ásamt
hinum mælska, en rökhelda og
harðvítuga áhugamanni, Gísla
Jónssyni, sem þá var orðinn þing-
maður kjördæmisins og hafði
geipimikið fylgir. Fjórði maður
var ljúfmennið Albert Guð-
mundsson, sem fór sér hægt á
fundum, en reyndist mjög farsæll
til forystu um framkvæmdir í
heimasveit sinni, Tálknafirði. Við
héldum ellefu fundi og fórum
ríðandi um hið víðáttumikla kjör-
dæmi. Voru fundir vel sóttir og
oftast skemmtilegir. Halldór og
Gísli háðu harðar sennur, en þó að
ég gerði allvel grein fyrir stefnu
og starfi flokks míns, beitti ég
mikið skopi og háði, svo sem sjá
má á frásögnum Halldórs í Tím-
anum. Oftast vorum við allir fjórir
samferða, en fyrir kom, að við
Halldór vorum ýmist á undan eða
eftir hinum, sem ávallt fylgdust.
Þá var það, að ég kynntist Hall-
dóri náið. Fann ég glöggt, hve heill
hann var í allri sinni afstöðu,
jafnt til stjórnmála sem tilver-
unnar yfirleitt. Kom mér það
raunar ekki á óvart, en eitt var
það í gerð hans, sem kom fram í
kosningaferðalagi okkar, en ég
hafði alls ekki haft veður af áður.
Hann reyndist hafa frábærlega
næmt skopskyn — og gekk þess
síður en svo dulinn, sem skoplegt
hefði mátt teljast í fari hans.
Bókmenntlr
eftir GUÐMUND
G. HAGALÍN
Hann hefur sterka rödd og er
stundum allt að því svo harðmælt-
ur, að furðu gegnir. Hann fræddi
mig svo á því á leiðinni ofan í
Gufudal, að hann væri með ein-
dæmum ólagvís. Og síðan kvað
hann og söng þannig, hafandi eins
hátt og hann gat, að það lá við ég
ylti af hestinum af hlátri.
í þessu „kveri", sem Halldór
lætur frá sér fara á sjötugsafmæli
sínu eru þrjátíu og sjö ljóð, þar af
tvö þýdd. Annað þeirra er Höndin
hans pabba eftir Anders Hovden,
en það er einmitt ljóð, sem er í
fyllsta samræmi við lífsviðhorf
Halldórs, enda er það mjög vel
þýtt. Svo mörg ljóð í þessari bók
eru ort að gefnu tilefni — eru sem
sé það, sem kallað hefur verið
tækifærisljóð — að ætla má að
í ljóði
Halldór hafi aldrei litið á það sem
markmið, hvað þá köllun, að
komast í hóp viðurkenndra ljóð-
skálda, og liggur nærri að ætla, að
ósjálfrátt hafi hann þar verið að
hliðra til fyrir bróður sínum, svo
lík sem viðhorf þeirra voru í flestu
eða öllu, en Guðmundur Ingi gaf
út fyrstu ljóðabók sína 1938 og
vakti hún — meðal annars vegna
efnisvals — mjög mikla athygli.
Að honum var gert gys af stjórn-
málalegum andstæðingum, en
hann af mörgum annars talinn
sem skáld — arftaki Eggerts
Olafssonar. Halldóri farast meðal
annars þannig orð í eftirmála
kversins:
„Efni þessa kvers er þáttur í
umræðu samtíðarinnar. En hvað
sem um slíkt má segja, var ekki til
þessarar útgáfu stofnað í áróð-
ursskyni, og er þó fjarri því, að
höfundur sé feiminn við að nefna
predikun eða áróður fyrir góðu
máli.“
Halldóri kemur það ef til vill á
óvart, að ég tel flest bezt gerðu og
hugþekkustu ljóðin í kverinu hans
alls ekki geta talizt hafa að flytja
neinn áróður. Þau lýsa fyrst og
fremst öfgalaust jákvæðu og
Halldór Kristjánsson
mannbætandi viðhorfi höfundar-
ins til veruleikans, jafnt hins
innra Sem ytra. Eg bendi til
dæmis á ljóðið Þú kemur í vor,
sem er að mínum dómi lýtalaus
óður til gróðrarafla tilverunnar.
Hví skyldi slíkt ljóð frekar talið til
áróðurs en tízkubundið og torrætt
rímað eða órímað raus um það,
hve skáld sé þjáð og þjakað af
vonzku veraldar?
Eitt er svo það, sem ég vil láta
getið og mér þykir á skorta í
Halldórskveri. Þar bryddir hvergi
á hinu næma skopskyni höfundar,
nema ef vera kynni í þessari vísu í
kvæðinu Kvenhylli kjósum við
allir:
W.\A kvcnhylli kjósum viA allir
rr kunnara on sogja þurfi.
þaó stondur á sama sti«i
hjá stráklinv; og viomlum kurfi.
þ<» uppskoran volti á ýmsu
t»K aflahroKd stundum tro«.
or þráin. óskin og oólió
hjá ollum á sama vo«.“
Halldór gerir ekki ráð fyrir
neins konar meinvillu í þessum
sökum, er eins og annars staðar
náttúrubarn og gleymir meira að
segja að gera ráð fyrir nokkru
öfugsnúnu af völdum brenndra
drykkja.
Svo heill sem hann er, þarf ekki
að spyrja hann eins og hann spyr í
lokaerindi Halldórskvers:
..llvar Koymdir þú pund þitt? Ilvaó
Koróiróu í da»{?
Hvaó Kra*ddist á návist þinni?
Varð glaóari fyludin moð hotri hran
ok hjartari huKans kynni?
Hvað hyKKÓir þú upp? Ilvorju har« hún
þín hond?
hvar hrauztu hindrun úr vo«i?
Hvort hyKKÓir þú vita á voRlausri strond?
Ilvar varstu á þossum do«i?“
Ég þakka svo að lokum hina af
vinarhug árituðu bók og óska
hinum sjötuga skörungi góðrar
heilsu til starfa í þágu gróandi
þjóðlífs.
Mýrum í Reykholtsdal
1. nóvember 1980
Ciö PIOMEER
= __■ . . . fyrir þá sem vilja
/= - == == = aðeins það besta
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
LAUGAVEG 66 SIMI 25999
Frábær hljómflutningstæki
með tæknilega yfirburði og
hönnun fyrir fagurkera
ATH.: Greiösluskilmálar eöa staögreiöslukjör
Útsölustaðir: Karnabær Laugavegi 66 —
Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík
Portið Akranesi — Eplið ísafirði —
Álfhóll Siglufirði — Cesar Akureyri —
Hornabær Hornafirði —M.M. h/f. Selfossi
Eyjabær Vestmannaeyjum
T / m
\ \ » I 1 .! a