Morgunblaðið - 23.11.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1980
57
Hellarnir litlu efst i hömrunum.
og síðan hverfa þeir héðan með
mismunandi miklar endurminn-
ingar í farangrinum. En mig
iangar til að skoða eitthvað af
þessum hellum, sem neðan frá séð
voru eins og pínulítil göt í fjöllin.
Ég var að vísu ekki tiltakanlega
skynsamiega klædd til fótanna að
ieggja í fjaligöngu, en þá var bara
hægt að kippa af sér skónum og ég
fann ekki að ég væri sárfætt fyrr
en niður var komið.
Og sem við vorum nú á leiðinni
niður, göngum við fram á
Bedúínakonu, sem er á leiðinni til
hellis síns. Ég bað Khalil spyrja,
hvort ég mætti taka af henni
mynd. Hún ansaði því engu, tók
undir hönd mér og spurði, hvort
ekki mætti heldur bjóða mér í te í
helli sinum. Fyrir framan var stór
slétt hella og á henni stóð tjaldið.
Nokkur börn, kannski sjö eða átta
voru þarna að leik, óhrein, sum
berrössuð og í gauðrifnum fötum.
Sjálf var bedúínakonan, Taomi-
klædd í snautlegan en skrautlegan
og útsaumaðan búning, en svo
snjáðan að af var mesti glansinn.
Hellirinn hefur kannski verið
tíu fermetrar, þar bauð hún okkur
til sætis á þunnum dýnum en
settist sjálf á gólfið, svo og börnin
öll. Þarna voru nokkrir kassar,
prímus var í tjaldinu úti fyrir,
fataleppar, vaskafat, teppi og
þvottur á snúru. Annað muna sá
ég ekki.
Taomi var hin ræðnasta og
Khalil túlkaði. Hún sagði mér, að
hún ætti mann sem væri í vinn-
unni þessa stundina: hann var
með úlfalda sinn niðri í dalnum að
skemmta ferðamönnum. Þau áttu
saman sjö börn og hún hafði ekki
hugmynd um, hvað þau væru
gömul, aftur á móti væri það
yngsta enn á brjósti. Að svo
mæltu gaf hún einu barnanna
snöfurmannlega fyrirskipun um
að kveikja undir katlinum og
innan skamms kom drengurinn
með grútskítugan ketil og skenkti
tei í þrjú skuggaleg smáglös.
Taomi þreif til sín yngsta barnið,
sem eitthvað hafði verið að æmta,
greip fram úr blússunni annað
brjóstið og gaf barninu að sjúga.
Hún hélt stöðugt að mér teinu og
langaði líka mikið til að vita hvað
ég væri að gera þarna, fæstir
ferðamennirnir færu svona hátt
upp í klettana. Svo spurði hún mig
hvort ég ætti börn. Ég sagðist eiga
þau fjögur. Þá datt yfir hana.
Hvers vegna í ósköpunum ég færi
frá þeim. Hver hugsaði eiginlega
um þau. Mér vafðist tunga um
höfuð að gefa skýringu á athæfi
mínu og beindi talinu að öðru, því
að ég er sannfærð um, að endan-
lega hefði verið fram af henni
gengið, ef hún hefði komizt að því
í ofanálag, að ég ætti engan mann,
hvað þá heldur úlfalda.
Taomi sagði mér aðspurð, að
hún ætti sér þann draum að
börnin hennar lærðu að lesa, hún
gæti ekki ímyndað sér að neitt
væri skemmtilegra en kunna það.
Aftur á móti sagðist hún þekkja
tölustafina, því að hún fyndi
nefnilega stundum stórmerkilega
forngripi í fjöllunum og seldi þá
— en bara einstöku sinnum. Þegar
barnið hafði sogið nægju sína,
vatt hún sér á fætur og náði í
ofurfallegt armband og hampaði
því framan í mig. Ég þóttist viss
um, að ég ætti að kaupa þetta
fyrir gestrisnina. Óekki. Hún ætl-
aði að gefa mér gripinn og bað mig
hugsa til sín, þegar ég bæri hann.
Þegar við létum hestana skokka
aftur út dalinn og að skarðinu, var
sólin farin að lækka á lofti og
litaði efstu tinda hamranna. Það
var fögur sjón.
Daoud bílstjóri var orðinn óþol-
inmóður, þegar við komum loks til
baka. Hann hafði látið panta
handa mér hádegisverð í litla
veitingahúsinu og nú var klukkan
að verða fjögur, ef ekki meira. En
geðgóðir þjónar gáfu mér samt
kaldan kjúkling og hrísgrjón og
einkar kærkominn stóran bjór.
Svo lögðum við af stað áleiðis til
Amman. Að þessu sinni fórum við
Eyðimerkurveginn, sem er beinni
og styttri og afar tilbreytingar-
laus. Þó voru sums staðar
bedúínatjöld og úlfalda- eða geita-
hjarðir voru á rölti. Með tuttugu
og fimm kílómetra millibili voru
litlir áningarstaðir þar sem fólk
gat fengið sér smáhressingu.
Von bráðar var komið myrkur,
aðeins ljósin á bílnum Daouds og
stjörnur á himni lýstu leið, ég
steinsofnaði og mig dreymdi ég
væri að drekka te í bedúínahelli í
hömrum Petra.
Texti:
Jóhanna Kristjónsdóttir
Megum við
fá meira
að heyra?
Fríða Sigurðardóttir: betta er
ekkert alvarlegt, smásögur.
Ctg. Skuggsjá 1980
Níu smásögur eru í þessari bók
og sú fyrsta ber titilinn, sem
höfundur hefur gefið bókinni. Sú
þykir mér þó ekki sérstaklega
merk: hún er um hugrenningar
manns sem ekki fær sofið um
nætur, lýsir þrám hans, og brengl-
uðum hugmyndum sem af þessu
spretta. En við lestur þessarar
sögu er þó forvitni lesandans
vakin, því augljóst er að Fríðu
Sigurðardóttur er gefin sá hæfi-
leiki að skrifa smásögu, sem er
ekki allra. Margir hafa orðið til að
gera úttekt á smásagnaskrifum og
því lýst vel og vandlega hversu
ólík lögmál gildi um gerð hennar
ellegar skáldsögu, og þarf ekki að
fjölyrða um það.
Fríða Sigurðardóttir er kannski
ekki beinlínis innhverf í skrifum
sínum, en hins vegar á það við um
sögur hennar að þar er ekki allt
sagt, lesanda er látið eftir að túlka
ýmislegt sjálfur og umfram allt
tekzt höfundi að laða fram and-
Fríða Sigurðardóttir
Bókmenntlr
eftir JÓIIÖNNU
KRISTJÓNSDÓTTUR
rúmsloft hverrar sögu um sig, svo
að verður verulega áhrifaríkt.
Henni er líka gefin hæfileiki til að
nota ýms konar smáviðvik og
hreyfingar persóna til að lýsa
hugsunum þeirra og eykur það á
gildi þeirra að mínum dómi. Næmi
hennar á tilfinningar og sálarlíf
barna kemur skýrt fram í sögun-
um „Spegill" og „Ein örfleyg
stund" sem eru ákaflega vel gerð-
ar. I „Eg og þú“ segir frá korn-
ungri stúlku, sem elur óvelkomið
andvana barn og viðbrögðum ætt-
ingja og umhverfis lýst, en um
fram allt er þó fallega unnin
lýsingin á ungu stúlkunni sjálfri.
Mér finnst Fríðu Sigurðardótt-
ur takast sízt upp, þegar hún er
með vangaveltur um svo sem ekki
neitt, eins og í sögunni „Draumur-
inn“ og sagan um gömlu konuna í
strætó var kannski ekki út í hött,
en ekki rétt meira en svo.
Höfundur skrifa fallegt mál og
virðist eiga mjög auðvelt með að
tjá hugsanir sínar á áreynslulaus-
an og oft ljóðrænan hátt. Þótt
þarna sé aðeins brugðið upp per-
sónum á fáeinum síðum í hverri
sögu verða þær margar hverjar
svo lifandi og sannferðugar, að
lesandi hefði viljað fá meira að
heyra. Og vonandi við fáum það,
því að hér er á ferð með athyglis-
verðari höfundum, sem ég hef
lesið eftir bók um langa hríð.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNOAGERÐ
AÐALSTRÆTI • SlMAR: 17152 - 17355
Colgate MFP f luor tannkrem herðir
tennurnar og ver þær skemmdum.
Colgate MFP fluor tannkrem er reyndasta tannkremiö
á markaönum
Þúsundir barna um viöa veröld hafa um árabil veriö
þattakendur i visindalegri Colgate-pröfun og hefur hún
ótvirætt sannaö aö Colgate MFP fluor tann-
krem heröir glerung tannanna við hverja
burstun, þannig aö tennurnar veröa sifellt
sterkari og skemmast siður.
Þess vegna velja milljónir foreldra um heim
allan Colgate MFP fluor tannkrem handa
bornum sinum.
ai
1. Colgate MFP fluor gengur inn i glerunginn
og herðir hann.
2 Þess vegna verður glerungurinn sterkari
Og börnunum likar bragðið.