Morgunblaðið - 23.11.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1980
61
BÍLBELTIN:
Æ’
Oþekktar-
angar í um-
ferðinni
Það er haegt að fá börn til að
bursta tennur sínar með því að
framleiða tannkrem með appels-
ínubragði, en hvernig er hægt að fá
ökumenn til að nota bílbeltin?
1 Vestur-Þýzkalandi hafa þeir
verið skyldaðir til þess að nota
beltin frá árinu 1976, en fram að
þessu hafa þeir verið áhugaiausir.
Samanburðurinn á tannkremi
fyrir börn og notkun bílbeita kom
fram á ráðstefnu í bænum Bad
Kissingen og það var Hans Joach-
im Förster, prófessor, sem kom
fram með þessa iíkingu, en hann er
yfirmaður rannsóknarstofu Daiml-
er-Benz bílaverksmiðjanna.
I fyrstu virðist það út í hött að
bera saman börn og ökumenn og
tannkrem og bílbelti, en svo sann-
arlega er ýmislegt líkt með þessu.
Hvort tveggja er nauðsynlegt, að
bursta í sér tennurnar og að nota
bílbelti við akstur. í báðum tilfell-
um er tilgangurinn heilsugæzla.
Þegar allt kemur til alls er það
samfélagið í heiid sem ber kostnað-
inn af því ef hvorugt er gert. Það
vita allir.
Langflestir ökumenn gera sér
góða grein fyrir því, að það er
þeirra hagur að nota bílbelti, en
samt eru það stöðugt fleiri sem
nenna því ekki.
Samkvæmt könnun, sem gerð var
í Vestur-Þýzkalandi í marzmánuði
síðastliðnum, kom í ljós, að einung-
is 63% ökumanna nota bílbelti úti
á þjóðvegum og aðeins 42% í
borgum og bæjum. Þó nota um 80%
ökumanna bílbelti á hraði>rautum,
þar sem slysahættan er minnst.
Skýrslur um slysatíðni gefa til
kynna, að hættan á alvarlegum
meiðslum sé að minnsta kosti tíu
sinnum meiri, ef bílbelti er ekki
notað í akstri, að því er dr. Beier
við háskólann í Múnchen upplýsir.
Hann segir, að sex af hverjum
tíu ökumönnum séu haldnir þeim
misskiiningi, að þeir geti ekki losað
sig úr bílbeltinu í tíma ef eidur
kemur upp í bílnum. En samkvæmt
könnum er það aðeins i 3,3%
tilfella að alvarleg slys hljótast af
því er eldur kemur upp í bíl.
Lenz, prófessor við umferðar-
rannsóknarstofnunina í Köln, hef-
ur skýrt frá því, að hefðu allir
ökumenn og farþegar í framsæti
notað bilbeíti hefði dauðaslysum
fækkað um 1.300 og alvarlegum
slysum um 16.000 á vestur-þýzkum
vegum á sl. ári.
Venjulegur ökumaður lítur hins
vegar allt öðrum augum á líkinda-
reikning. Af eigin reynslu ályktar
hann sem svo, að umferðarslys séu
fátíð. Hann hittir örsjaldan þá,
sem hafa lent í alvarlegum umferð-
arslysum, enda engin furða. Þeir
eru í sjúkrahúsum.
- KONRAD MRUSEK.
issinnaðri. Samt erum við minni
máttar."
En hvers konar þjóðfélag er
það, sem verkalýðshreyfinguna
nýju dreymir um?
Eva hikar dálítið. „Sennilega
eru nokkuð deildar meiningar um
það. Þó munu aðeins fáir vilja
kalla sig sósíalista. Við myndum
jafnvel fagna því ef fjölþjóðleg
fyrirtæki og stórar samsteypur
hæfu starfsemi í landinu. Með
öðrum orðum: okkur væri ekkert á
móti skapi, þótt kapítalisminn
yrði endurreistur. Að vísu ekki að
bandarískri fyrirmynd, heldur
sænskri eða danskri.
En þetta er ekki það, sem málið
snýst um. Við verðum að halda
aftur af öllu því sem er óraunhæft
og skaðvænlegt. Hins vegar er
knýjandi að leysa hin raunveru-
legu vandamál og flestir tala um
þau. Við vitum hvernig á að búa
við hálft frelsi. Það er betra að
vera í opnu fangeisi en í Gúlag."
Eva er spurð um Kania, hinn
nýja leiðtoga kommúnistaflokks-
ins.
„Sem stjórnmálamaður er hann
óheiðarlegur," segir hún. „Hann
hatar okkur innst inni að sjálf-
sögðu, en hann verður að taka mið
af sínum eigin vandamálum og við
erum hans mesti höfuðverkur. Ef
hann ætlar að halda stöðu sinni,
verður hann að semja við okkur á
einhvern hátt.
Nú er fólk farið að gagnrýna
ástandið í heyranda hljóði. Jafn-
vel við ókunnugt fólk. Það er ekki
lengur hrætt við njósnara og
útsendara. Við gangrýnum
ástandið, er við stöndum í biðröð-
um til að fá mat og þjónustu. Nú
er nýr brandari í gangi. Á pólsku
þýðir Walesa að láta reka á
reiðanum. Þess vegna segjum við
við fólk: — Hvað er ríkisstjórnin
að gera? Svar: — Hún lætur reka
á reiðanum. — En hvað er Lech
Walesa að gera? Svar: — Hann er
að stjórna.
Og það er alveg satt. Verkalýðs-
hreyfing Lech Walesa er sterkasta
afl í Póllandi um þessar mundir.
En hvað verður um jólaleytið, veit
enginn."
— JOHN TORODE.
UPPÁTÆKI:
Vitleysai
á vél-
Travolta leikur listir sínar.
tuddunu
EKKI er öll vitleysa eins segja
sumir og það á vel við um nýjasta
faraldurinn í Bandaríkjunum, kú-
rekadýrkunina, sem nú tröllríður
öllu þar vestra. Það er einkum
kvikmyndin Borgarkúrekinn, sem
á mestan þátt í þessari vitleysu en
fyrir áhrif frá henni hefur verið
komið upp óðum tuddum, vélknún-
um að vísu, í um 400 næturklúbb-
um í Bandaríkjunum. Galdurinn er
svo sá að sitja tuddana sem lengst
og sanna með því fyrir sjálfum sér
og öðrum manndóm sinn og karl-
mennsku.
í Texas var þó kvenfólkinu farið
að finnast sem þær væru orðnar
hálfafskiptar vegna nautanna svo
að þær ákváðu að taka þátt í
ieiknum og nú er svo komið að þær
eru farnar að taka karlmönnunum
fram í reiðlistinni. Víðast hvar eru
það þó karlmenn, sem reyna að
ímynda sér að þeir séu kúrekar, og
Jim Salem, f élagsfræðingur við
Alabama-háskóla segir, að kúreka-
kráin sé „afturhvarf til gamalla
hugmynda um hlutverk kynjanna,
þar sem karlmenn eru kurteisir en
óútreiknanlegir og ákaflega eigin-
gjarnir á kvenfólkið". Salem segir,
að þetta sé dýrkun „hvítra manna
á karlmennskunni", full fordóma í
garð kvenna og minnihlutahópa.
Kúrekadýrkunin er þó ekki bara
einhver rómantísk eftirsjá eftir
horfnum heimi, heidur, eins og oft
vill verða, verulegt gróðafyrirtæki.
Véltuddarnir kosta um 7000 doli-
ara hver og það kostar 2 dali að
reyna að sitja hann í hvert sinn.
Stærstu barirnir geta því haft 5000
dollara upp úr krafsinu á kvöldi.
Sums staðar verða þátttakendur
einnig að undirrita yfirlýsingu um
að þeir fari ekki í mál við vínveit-
ingahúsið þó að þeir meiðist.
I könnun, sem dagblaðið New
York Times gekkst fyrir, kom í
ljós, að utan Suðurríkjanna eru
fiest nautin í Chicago en einnig
hafa þau verið flutt til Belgíu,
Svíþjóðar, Suður-Afríku og um
borð í bandarískt flugmóðurskip á
Kyrrahafi.
Véltuddarnir eru fremur ein-
faldar skepnur að allri gerð, aðeins
leðurklædd stálgrind með hnakk
og beisli. Um er að ræða tíu
gangstig og er þá miðað við hve
illa tuddinn lætur hverju sinni.
Þeir, sem óreyndir eru, komast
sjaldan hærra en í þriðja gír áður
en þeir falla af baki á loftpúðana,
sem umlykja griðunginn.
- PETELARGE
MAMMON:
Gull og grænir skógar
í Sierra Pelada, sem er nötur-
legur staður í frumskógum Braz-
ilíu, keppast um 15 þúsund manns
við gullgröft. Þarna urðu menn
fyrst varir við gull í febrúar si. og
síðan hafa 7,7 tonn verið grafin úr
jörðu. Stjórnvöld í Brazilíu telja,
að enn séu um 100 tonn neðanjarð-
ar, þannig að eftir nógu er að
slægjast.
Verðið á gullúnsunni er um kr.
360 þúsund að meðaitali en stund-
um hærra og stundum lægra.
Sumir gulileitarmannanna hafa
sagt skilið við fjölskyldur sínar og
sagt upp sínum fyrri störfum til
þess að geta stundað þessa ábata-
sömu iðju. Gullgröfturinn fer nán-
ast fram með berum lúkum og
aðstæður eru víðast hvar slæmar,
en stundum hörmulegar.
Um leið og gullfréttin fékk
fætur greip um sig í Sierra Pelada
æði, sem jafna má við gullæðið
forna í Kaliforníu og í Alaska.
Menn rifust um, hver hefði réttinn
til að grafa og skotbardagar og
drykkjulæti voru daglegt brauð.
Verð á nauðsynjum varð skyndi-
lega svimandi hátt og smygl á
gulli varð víðtækt.
í maí skárust svo stjórnvöld í
Brazilíu í leikinn. Þau lögðu bann
við vopnum á gullleitarsvæðinu og
ennfremur var konum bannaður
aðgangur þangað. í stað 30 þús-
unda, sem fyrir voru, gengu aðeins
15 þúsund gullgraftrarleyfi, og
þeir urðu allir að bera nafnskír-
teini. Ennfremur var komið á
einokun á gullsölu á svæðinu.
Ungur gullgrafari, sem áður
hafði haft þann starfa að setja gas
í tanka í höfuðborginni Brazilíu,
gaf ófagra lýsingu af ástandinu
eins og það hafði verið, áður en
stjórnvöld létu til skarar skríða.
— „Það getur enginn trúað því,
hvernig hér var ástatt í raun og
veru,“ segir hann. „Allir voru
vopnaðir, og ef maður rakst á
gullmola einhvers staðar, gat
maður átt það á hættu, að næsti
maður léti skot ríða af, og hirti
gullið."
Sierra Pelada er inni í þéttum
regnskógi 600 km frá mynni Ama-
zonfljótsins og um það bil 3.000
km. norð-vestur af Rio de Janeiro.
Aðaigatan í þorpinu er jafn-
framt flugvöllur, enda þótt hún sé
nánast eingöngu aur og eðja. Þar
lenda að jafnaði 50 litlar leigu-
flugvélar á hverjum degi.
Þrátt fyrir ýmsar hraksögur
virðast fiestir gullgrafararnir
hafa hagnazt verulega, að því er
fram kom í viðtölum nýlega.
Fausto Azevedo de Souza er einn
af lukkunnar pamfílum. Hann er
35 ára gamali og hafði þann starfa
til skamms tíma að selja rækjur.
Á þremur mánuðum hefur hann
grafið úr jörðu 24 gullúnsur, og
andvirði þeirra jafngildir því, sem
hann fengi fyrir að selja rækjur í
þrjú ár.
- BRUCE HANDLER.