Morgunblaðið - 23.11.1980, Page 30
70
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1980
Tilkomi þitt ríki
Hvað er guðsríki? Samkvæmt boðskap ritningarinnar felst
guðsríkið í komu Jesú Krists. Með Jesú hefst „ný öld“ eins og
gjarna er komist að orði. Hann kom í heiminn, sendur af
föðurnum, í fylling tímans, til þess sð frelsa mennina frá synd og
dauðans veldi.
I 1. kap. Markúsar guðspjalls er boðskapur Jesú dreginn saman
í einni setningu: Tíminn er fullnaður og guðsríki er nálægt, gjörið
iðrun og trúið fagnaðarboðskapnum.
Bænin: Tilkomi þitt ríki er í rauninni bæn um að þetta megi
verða í mínu lífi. Að ég megi fá náð til að trúa fagnaðarboðskapn-
um um guðsríkið.
Koma guðsríkisins er reyndar fólgin í meiru en því að Jesús
starfaði og predikaði. Það var vissulega merkilegt og gott sem
Jesús sagði og gerði á jarðvistardögum sínum. En hjálpræðis-
verkið fullkomnaðist í krossdauða hans og upprisu. Á því verki er
megináhersla kristinnar trúar.
En allt þetta getum við skoðað í fjarlægð og litið svo á að það
tilheyri liðinni sögu. Áætlun Guðs er allt önnur. Jesús gerði
ráðstafanir til þess að þessi veruleiki gæti búið með hverjum
kristnum manni á öllum tímum. Hann sagði m.a. að guðsríkið væri
hið innra með lærisveinum sínum. — Hvernig má það verða?
Ein er sú hátíð kristninnar sem allt of lítið ber á, hátíð Heilags
anda, hvítasunnan. Boðskapur hennar er mjög grundvallandi fyrir
kristna trú. Sending Heilags anda gerir það kleift að guðsríkið geti
búið hið innra með okkur. Strax í heilagri skírn fáum við gjöf
Heilags anda. Og það er Heilagur andi sem gerir Guðs orðið lifandi
fyrir okkur svo við hljótum blessun af lestri þess og íhugun. Sama
er að segja um heilaga kvöldmáltíð. Heilagur andi starfar í því
sakramenti eins og skírninni og miðlar blessun guðsríkisins inn í
lif okkar.
Á þessum forsendum hvílir sú vissa að guðsríkið sé mitt á meðal
okkar og við getum átt hlutdeild í því hér og nú fyrir trú.
En guðsríkið er líka það ríki sem bíður okkar í eilífðinni, þegar
við fáum að líta dýrð himnanna.
Það er því í tvöfaldri merkingu sem við biðjum guðsríkið yfir
okkur. Við biðjum um að blessun þess hvíli yfir okkur og í okkur
hér og nú, og jafnframt að við komum til með að eiga hlutdeild í
ríki hans um eilífð.
Tilkomi þitt ríki, er því í rauninni svo óendanlega mikil og stór
bæn, að við gætum ekki beðið hennar nema af því að Jesús lagði
okkur hana í munn. Jesús segir í rauninni með þessari bæn, að við
megum biðja föðurinn um það besta sem til er. Slík er náð hans og
miskunn.
Biblían
Innblástur
Biblíunnar
Kirkjan hefur á öllum
tímum skýrt leyndardóm
Biblíunnar með því að segja
að hún sé innblásin. Orðið
er sótt til síðara bréfs Páls
til Tímóteusar, 3,16, þar
sem segir, að Ritningin
(sem þá táknaði Gamla
testamentið) sé „guð inn-
blásin" (Nákvæmari þýðing
væri: „fyllt af anda Guðs“.
Hvað merkir þetta?
Kirkjan hefur aldrei fast-
ákveðið neina kenningu um
innblástur Biblíunnar. í
formála að sænskri útgáfu
að Præðum Lúthers hinum
minni, segir: „Heilög ritn-
ing er Guðs orð, sem fyrir
Heilagan anda er rituð af
spámönnum, guðspjalla-
mönnum og postulum,
okkur til uppfræðingar,
betrunar, huggunar og ei-
lífrar æsku.“ Á lútherska
rétttrúnaðartímanum
hugsuðu menn sér þetta
þannig, að heilagur andi
hefði lesið boðskap biblí-
unnar fyrir höfundum
hennar. Af því drógu menn
þá ályktun, að Biblían hlyti
að vera nákvæm og óskeikul
þekkingarlind, hvernig sem
á hana væri litið, jafnvel
einnig er varðar tímasetn-
ingar og tilviljanakenndar
upplýsingar um dýr eða
náttúrufyrirbæri, sem að-
eins er minnst lauslega á.
Menn, sem höfðu ef til vill
lítinn áhuga á boðskapnum
frá Guði, eða eigin synd
sinni, og náð Guðs, notuðu
biblíuna stundum eins og
uppsláttarbók með áhuga-
verðum upplýsingum, t.d.
um konungaraðir og upp-
runa þjóðanna. Þeir reyndu
að reikna út aldur heimsins
og spá um framtíðina. Síð-
an töldu menn þá niður-
stöðu, sem þannig var fund-
in, örugglega rétta og hún
varð hluti af heimsmynd
þeirra. Slíkir menn urðu
fyrir reiðarslagi, þegar vís-
indin tóku að efast um
réttmæti einstakra atriða í
þessari heimsmynd.
„Biblían bara
venjuleg bók“
Á okkar dögum má benda
á a.m.k. fjögur mismunandi
sjónarmið hvað varðar
Umsjón: Séra Jón Dalbú Hróbjartsson
Séra Karl Siynrbjörnsson
Siyuröur Pdlsson
AUDROTTINSDEGI
Biblíuna. Fyrst má nefna
þá, sem telja Biblíuna „bara
venjulega bók“, hún hafi
„orðið til á nákvæmlega
sama hátt og aðrar bækur“.
Þetta er hin veraldlega
biblíuskoðun, og samkvæmt
henni hefur Biblían ekkert
sérstakt úrskurðarvald.
Hún stendur jafnfætis öðr-
um trúarlegum heimildum.
I nútíma guðfræði er
ofarlega á baugi hin svo-
nefnda „sögulega biblíu-
skoðun". Þá er átt við, að
opinberun Guðs gjörist í
sögunni, fyrst og fremst
þannig, að Guð grípur inn í
söguna. Guð er hinn lifandi
Guð og hann starfar í
sögunni. Samkvæmt því er
Biblían vitnisburður um
áhrifamikla, leikræna sögu,
þar sem Guð færir sann-
leika sinn og hjálpræði sitt
til sigurs í langri baráttu
gegn ótal erfiðleikum.
Gagnvart þessu stendur
hin gamla skoðun, sem
stundum er nefnd „bók-
stafsinnblásturskenningin".
Þar er átt við, að Biblían sé
orð fyrir orð innblásin af
heilögum anda, og mikil
áhersla lögð á óskeikulleika
biblíunnar á öllum sviðum,
Biblíulestur
vikuna 23.-29. nóv.
Sunnudagur 23. nóv. Matt. 24:15—28
Mánudagur 24. nóv. Matt. 24:1—8
Þriðjudagur 25. nóv. Matt. 24: 9—14
Miðvikudagur 26. nóv. Matt. 24: 29—35
Fimmtudagur 27. nóv. Matt. 24: 36—42
Föstudagur 28. nóv. II. Þess. 2:1 —12
Laugardagur 29. nóv. Matt. 24: 43—51
er Guðs orð
einnig í sögulegum og nátt-
úruvísindalegum smáatrið-
um.
Loks er um fjórðu skoð-
unina að ræða. Hún leggur
áherslu á, að boðskapur
Biblíunnar sé innblásinn.
Ekki þannig, að textinn sé
óskeikull í þeim atriðum,
sem hvorki snerta Guð né
hjálpræðisverk hans. Inn-
blásturinn er fólginn í því,
að Guð hefur flutt okkur
boðskap um hjálpræði, sem
er ætlaður öllum mönnum á
öllum tímum. Og þessi boð-
skapur hefur borist okkur
óbreyttur, því að Guð hefur
tengt saman allan hinn
langa tíma, sem tilorðning
Biblíunnar hefur tekið.
Þetta gildir um hina munn-
legu erfðageymd, ritunina,
ritstjórnina, úrval og
ákvörðun ritsafnsins. Guð
hefur starfað með anda
sínum í þessu öllu. Þannig
hefur Biblían fengið þann
búning, sem henni var ætl-
aður, svo að hún í heild
sinni, og lesin á réttan hátt,
geti vitnað um Guð og
hjálpræði hans. Guð hefur
ekki gefið okkur Biblíuna
sem kennslubók í sögu eða
líffræði, ekki heldur sem
véfrétt um ókomna hluti.
Við getum ekki búist við að
finna svar Guðs við spurn-
ingum okkar ef við notum
hana á þennan hátt. Biblían
á ákveðinn tilgang, sérstakt
markmið: Hún á að flytja
okkur hjálpræði Guðs, bæði
með því að segja okkur frá
því, sem Guð hefur gjört í
sögunni, og með því að
vinna verk Guðs í okkur í
dag.
Hj álpræðisboðskapur
Guðs er fluttur í búningi
sögu, frásagna, ljóða,
söngva og spakmæla. Þessi
ytri búningur ber mörg
merki heimsmyndar liðins
tíma. Sagan er oft sögð á
ágripskenndan og stílfærð-
an hátt, stytt og saman-
dregin í fáein höfuðatriði
án tillits til innbyrðis tíma-
röðunar. Við getum ekki
lesið hana á sama hátt og
vísindaleg sérfræðirit.
Stílfærð teikning getur í
dýpsta skilningi verið sönn
og rétt og gefið lifandi
mynd af raunveruleikanum.
En það er ekki hægt að
stækka hvert smáatriði
hennar og nota það á sama
hátt og um nákvæma ljós-
mynd væri að ræða. Á sama
hátt getum við ekki notað
smáatriðin í ytri búningi
hj álpræðisboðskapari ns
eins og við værum að rann-
saka landakort af heimin-
um eða ritgerð í vísindalegu
yfirlitsriti. Oft getum við
ekki vitað hvort ákveðin
frásögn er raunveruleg
sagnfræði eða aðeins í ætt
við dæmisögur Nýja testa-
mentisins. Oft skiptir engu
máli hvort af þessu er um
að ræða (t.d. í frásögunni af
miskunnsama Samverjan-
um, Rut, Ester, Job og
Jónasi). Sannindi og gildi
frásagnarinnar eru fólgin í
því, að hún segir okkur frá
tilgangi Guðs með lífi
mannsins og við getum
heimfært það til okkar
sjálfra.
Þessari skoðun er auð-
veldast að lýsa með því að
segja, að Biblían hafi orðið
eins og guð vildi, að hún
yrði, til þess að hún gæti
flutt öllum mönnum á öll-
um öldum hjálpræðis-
boðskap sinn.
(Eftir Bo Giertz: Ágrip af
kr. trúfræði. stytt)