Morgunblaðið - 23.11.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1980
71
Pottarim
Umsjón: SIGRÚN
DAVÍÐSDÓTTIR
Hér kemur það einfaldasta
af öllu einföldu, bakaður fiskur
Ég hef vissulega nefnt hann
áður, en möguleikarnir eru svo
margir, að það sakar ekki að
nefna hann enn og aftur. Fisk-
urinn nýtur sin afar vel, mat-
reiddur á þennan hátt. En til
þess að hann verði góður, þarf
hann auðvitað að vera alveg
glænýr, gljáandi og stinnur, þeg-
ar hann fer inn í ofninn. Og svo
verður að gæta hans vel og
vandlega, svo hann þorni ekki
um of í ofninum. Það er alveg
ótrúlegur munur á fiski, sem er
rétt hlaupinn saman og jafnvel
aðeins rauðleitur við beinið, og
svo fiski, sem er þurr og gulhvít-
ur af of langri vist í ofninum.
Hæfilega bakaður fiskur
bráðnar í munninum, ilmur og
bragð blómstra. Já, þetta er
skáldleg lýsing, en hún hæfir
vel þessum öndvegis mat...
Góða skemmtun!
Of nbökuð ýsa
Ýsa var það heillin, sagði
ofninn. Það þykir hæfilegt að
reikna með 10 mín. á hver 500
gr. En þið getið litið eftir
fiskinum og fylgzt með hvað
bakstrinum líður, svo ekki
þorni fiskurinn ...
Og hvað á svo að bera fram
með svona lostæti. Soðnar kart-
öflur eru sjálfsagt meðlæti, ekki
sízt á þessum árstíma, meðan
kartöflurnar eru enn góðar.
Kartöflur eru býsna mikilvæg-
ur matur fyrir okkur hér. Meðal
annars vegna þess að þær eru
góður C-vítamíngjafi. Þær
innihalda reyndar ekki mikið af
því, en vegna þess að flestir
borða kartöflur nær daglega
allt árið um kring, skipta þær
miklu máli. í stað kartaflna er
ekki slæmt að nota gott brauð.
Soðinn fiskur með hömsum,
hamsatólg, hefur lengi verið
hvunndagsmatur. Ég hef grun
um þeim fækki, sem nota tólg
út á mat sinn. En það er ekki
úr vegi að minna á að hún er til.
þessum tíma hafa verið fremur
einfaldar, og ekki jafn stór-
brotnar eða jafnvel yfirgengi-
legar, eins og seinna varð. Mat-
reiðslubókin er sennilega ann-
aðhvort safn af uppskriftum,
sem voru eignaðar honum eða
einfaldlega heitin eftir honum,
því hann var þekktur. En hvað
sem því líður er hún býsna
merkileg heimild, og þar má
finna ýmislegt girnilegt annað
en kapers. Einnig sést að mat-
arsmekkur hefur breytzt, því
ýmislegt í bókinni þykir nú
skrýtinn samsetningur. Það er
sorglegt að okkar skriftarglöðu
og fræðilega þenkjandi forfeð-
ur á 13. og 14. öld skyldu ekki
festa nokkrar af uppáhalds upp
skriftum sínum á bókfell.
Varla hefði iðjumanninn
Snorra Sturluson munað um að
fylla nokkur skinn með slíkum
fróðleik. Og höfundur Laxdælu
segir frá því að Guðrún Ósvíf-
ursdóttir gekk til fundar í lauka-
Ofnbakaður fiskur
kerlingin. Ýsa hefur ekki þótt
neinn sérstakur veizlumatur,
eins og oft er um algengan mat.
En góð og vel matreidd ýsa er
auðvitað hátíðamatur. Og svo er
hún svo ódýr, að það þarf ekki að
bíða hátíða til að veita sér þann
munað.
Notið endilega heila ýsu.
Beinin gefa gott bragð og safa
og svo er hún ódýrari þannig.
Hafið hausinn á, ef ykkur sýnist
svo. Setjið ofninn á 200°.
Smyrjið álpappír og setjið á fat.
Þar á leggið þið ýsuna, sem þið
hafið áður tekið sporðinn af, á
smurðan pappírinn. Lokið síð-
an pappírnum, eða því sem
næst. Nú er ekki annað en að
setja fatið inn í fullheitan
Smjör hefur víðast komið í stað
tólgar, og hér sting ég upp á að
þið notið bragðbætt smjör
með.
Smjör með kapers
Kapers eru óútsprungnir
blómhnappar runna, sem vaxa í
Suður-Evrópu. Þeir smávöxn-
ustu eru bestir og kallaðir á
frönsku nonpareilles, eða óvið-
jafnanlegir. Bragðið af blóm-
knöppunum er svolítið piprað.
Þetta hafa menn snemma upp-
götvað og farið að nota þá sem
krydd, og gjarnan lagt þá í edik,
til að þeir geymdust. Þeir eru
nefndir í einni af elztu mat-
reiðslubókum sem til er. Hún
er rómversk og kennd við Apici-
us nokkurn, sem var uppi við
upphaf tímatals okkar. Apicius
var lífslistamaður og matmað-
ur. Hann var frægur fyrir góðar
uppskriftir og stundaði matar-
gerð af kappi og hafði mat-
reiðsluskóla. Apicius var uppi
á blómatíma Rómaveldis, áður
en hnignun tók við. Uppskriftir á
garði sínum, en þegir um hvað
það var sem konan ræktaði ...
En við vorum að hugsa um
að nota papers í smjör. Þið
þurfið um 100 gr af smjöri
handa fjórum. Af því að við
erum oft að stússast í matnum
á síðustu stundu, er óþarfi að
bíða eftir að smjörið mýkist.
Stappið eða hrærið 1 msk af
kapers í smjörið, ásamt safa úr
1/2 sítrónu og svolitlu af ný-
möluðum pipar. Þar með hafið
þið ljómandi smjör með fiskin-
um.
Ef ykkur sýnist svo, getið þið
brætt smjörið og sett kapers,
sítrónusafa og pipar í það.
Frakkar borða gjarnan brætt
smjör með kapers með soðinni
skötu, sem þeir meta mikils.
Hafið þetta á bak við eyrað,
næst þegar þið eruð með skötu
eða tindabikkju.
Ábætir —
búðarfréttir
Um daginn var mér gengið
fram hjá verzluninni Kirkju-
felli. Þá sá ég útundan mér
kunnuglega leirpotta. Ég leit
betur á og sá þá að í þeim voru
ilmkerti. En viti menn ... Við
hliðina á kertunum gat að líta
dýrindis franskt sinnep, krydd-
jurtir og hunang. Þetta eru
vörur frá því sólríka og al-
þekkta matarhéraði Provence í
S-Frakklandi. Leirpottarnir eru
nokkurs konar vörumerki
þarna. Hafið þetta í huga, þegar
þið farið að hugsa um jólagjafir.
Ef þið þekkir mataráhugafólk,
er ég ekki í vafa um að það
verður alsælt að.fá slíkt hnoss-
gæti í jólapakkanum.
Og ekki má gleyma öðrum
gjafatækifærum. Síðast en ekki
sízt er þetta tækifæri til að gæða
sér og sínum. Ég vona að þessar
vörur fáist þarna sem lengst
Annað, sem er ekki úr vegi
að hafa í huga í skammdeginu
eru kerti þá er alveg tilvalið að
kveikja á gamaldags býflugna-
vaxkertum. Kertin eru steypt í
Sólheimum í Grímsnesi og eru
seld til ágóða fyrir vistheimilið
þar. Kertin eru hrcint út sagt
frábær. Þau brenna mjög vel
og gefa ljúfan og sætan ilm. Og
ekki er verra að ágóðinn af
kertasölunni kemur í góðar
þarfir. Þau eru ákjósanleg til
að lýsa upp skammdegið ...
Kertin fást í Kornmarkaðnum
og Vörumarkaðnum, og koma
væntanlega á næstunni í búsá-
haldaverzlun H. Biering á
Laugavegi 6. Þau fengust í
Glæsibæ í fyrra og kannski enn,
og vonandi verða þau víða á
boðstólum. Um dreifingu kert-
anna sér Lionsklúbburinn Ægir.
Fyrr í haust nefndi ég
hreindýrakjöt. Ég sá að í kjöt-
verzlun Tómasar er enn til
hreindýrakjöt, fyrir þá sem enn
hafa ekki náð sér í þetta
lostæti, sem sumum finnst
handan og ofan við annað kjöt.
Ganilir sem nýir...
allir þurta
ljósastillingu
Verið tilbúin vetrarakstrl
með vel stillt Ijós, það
getur gert gæfumuninn.
Sjáum einnig um aliar
viðgerðir á Ijósum.
Höfum til luktargler, spegla,
samlokur o.fl. I flestar
gerðir bifreiða.
BRÆÐURNIR
ORMSSON%
LÁGMÚLA 9 SÍMI 3(820
IÍAS1MINN ER:
22410
JHorounbtsbiti
Gjafavöruverzlun til sölu
Höfum fengiö til sölu þekkta gjafavöruverzlun í fullum rekstri á
einum bezta staö í miöborginni. Viöskiptasambönd m.a.
umboö fyrir þekktar vörur fylgja, ásamt lager og innréttingum.
Upplýsingar aöeins veittar á skrifstofunni (ekki í síma).
Eignamíðlunin,
Þingholtsstrœti 3,
Reykjavík.
Nýkomin Zimmermann og August Förster
Piano.
Getum afgreitt á þessu ári flygla frá August
Förster og Bluthner.
Lampar og gler hf.
Suðurgötu 3 — Sími 21830.
Klementínur Marokko — Vínber græn — Vínber blá
— Perur — Melónur — Epli rauö — Epli græn —
Appelsínur — Sítrónur — Greipaldin Jaffa —
Bananar — Ananas — Avocado — Kókoshnetur —
Kiwi.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 85300