Morgunblaðið - 21.12.1980, Síða 3

Morgunblaðið - 21.12.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980 3 — ÞAÐ ER áhyKKÍlcKt. Lax- ness er „best-sellerinn“ í ár. Þetta var einróma álit þeirra bóksala. sem Mbl. talaði við i gærmorKun ok á fostudaK. og þetta var það eina sem þeir vildu fullyrða. Þeir voru almennt á því, að bóksalan fyrir þessi jól væri nú ekki nema rétt hálfnuð. — Það eru síðustu dagarnir sem gera útsiagið, sögðu þeir, og venju- legast sérílagi Þorláksmessan. Bækur sem ekki hafa verið nema í rétt þokkalegri sölu allan mánuðinn og aldrei kom- Grikklandsár Halldórs Laxness selst áberandi best islcnskra bóka fyrir þessi jól. Bókavertíð 1980: Laxness ber af í sölu! ist á lista yfir söluhæstu bæk- ur, þær rjúka kannski upp á Þorláksmessudag og verða, þegar allt kemur til alls, ágætir „best-sellerar“, en aftur aðrar bækur, sem hafa verið í góðri sölu allan desember, detta sumar niður síðustu dagana, eins og þær væru ekki til og hefðu aldrei verið útgefnar. — Þannig er nú bóksalan, sögðu bóksalarnir. Sem segir í upphafi mun Grikklandsár Halldórs Lax- ness seljast langsamlega best íslenskra bóka fyrir þessi jól. — Það er mér mikið ánægju- efni að geta sagt þér að Lax- ness er ennþá j ívið meiri sölu heldur en reyfararuslið, sagði einn bóksalinn og hafði mjög takmarkað álit á bókmennta- smekk þessarar þjóðar yfirleitt. Þær bækur, sem komu nokk- uð næstar Laxness, voru Valda- tafl í Valhöll eftir Hrein Loftsson og Anders Hansen, Vítisveiran sem Alistair MacLean hefur skrifað, Heims- metabók Guinness, Landið þitt, eftir Steindór frá Hlöðum og Þorstein Jósepsson, og Öldin sextánda í samantekt Jóns Helgasonar. Aðrar bækur, sem bóksalar nefndu helstar, voru: Sigfús Ilalldórsson opnar hug sinn, sem Jóhannes Helgi skrásetti, 99 ár eftir Gylfa Gröndal, Þrautgóðir á raunastund 12. bók, sem Steinar J. Lúðvíksson setti saman, myndabók Hall- dórs Péturssonar, Ófriður í aðsigi eftir Þór Whitehead, og Heygðu mitt hjarta við Undað Hné, þýdd bók um indíána. Af íslenskum skáldsögum virðist sem Læknamafía Auðar Haralds og Pelastikk Guðlaugs Arasonar seljist hvað best, en líka var Gríms saga trollara- skálds eftir Ásgeir Jakobsson oft nefnd, en einnig Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans, sem Guðbergur Bergsson hefur skrifað, Þetta er ekkert alvarlegt, smásögur Fríðu Á. Sigurðardóttur og Haustvika Áslaugar Ragnars, en annars töldu bóksalar söl- una nokkuð jafna milli ís- lenskra skáldsagna. Ennfremur nefndu bóksalar, að þýddir reyfarar og ástarsög- ur, væru sem fyrrum í góðri sölu. Staðbundnar bækur virðast ekki margar, en Aldnir hafa orðið 9. bindi eftir Erling Davíðsson og Hvað segja bænd- ur nú eftir Jón Bjarnason frá Garðsvík, seljast vel fyrir norð- an, Gullkista Árna Gíslasonar, 2. útg. selst mjög vel fyrir vestan og Æviþættir Austfirð- ings eftir Eirík Stefánsson sömuleiðis austur á fjörðum. Ennfremur hafði Gríms saga trollaraskálds selst mjög vel í sjávarplássunum kringum landið, nema í Bolungarvík. Ævi og ástir Sophiu Loren seldist líka vel í Borgarnesi. Það skal að endingu tekið fram, að ofangreind upptalning er ekki ábyggileg, heldur gefur hún aðeins mynd og sýnir tilhneigingu, því eins og bóksal- ar segja: næstum helmingur allrar bóksölu fyrir þessi jól er eftir. (Mbl. hafði samband við 20 bókaverslanir víðs vegar um land við þessa samantekt.) Umræður um atkvæði Eggerts Haukdal: Hvað kostuðu hinir þingmennirnir? — spurði Matthías Bjarnason Það er ekki gefið upp — svaraði Garðar Sigurðsson „ÉG IIRÖKK óneitanlega illilega við, er ég heyrði í kvöldfréttum útvarpsins, að einn þingmanna hefði sagst hafa gert g«')ða versl- un hér á Alþingi fyrr um daginn. og ekki batnaði það er kom að sjónvarpsfréttum. því þá er haft eftir honum að svona séu nú hrossakaupin í þinginu.“ sagði Matthías Bjarnason alþingismað- ur í ra>ðu á Alþingi í fyrrinótt. Þá stóð yfir þriðja fjárlagaum- ræða, og gerði þingmaðurinn meðal annars að umtalsefni þau ummæli Eggerts Haukdal. að hann hefði fallist á að greiða vörugjaldinu atkva>ði sitt gegn þvi að fá fram 1500 milljóna framlag í Byggðasjóð. „Hvað hefur gerst hér í dag?“ spurði Matthías ennfremur, „hvað heldur almenningur í þessu landi eiginlega um okkur þingmennina er svona mál koma upp?“ Þing- maðurinn sagði að varla væri von til þess að virðing þingsins væri mikil meðan vinnubrögð af þessu tagi viðgengust. Þjóðin væri að vísu orðin ýmsu vön frá núverandi ríkisstjórn, en hart væri að allir alþingismenn þyrftu að fá á sig óorð vegna stjórnarinnar og stuðningsmanna hennar. Matthías sagðist varla trúa því, að Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra tæki þátt í kaupmennsku af þessu tagi. Byggðasjóði væru tryggðar ákveðnar tekjur með lögum, og þar við ætti að sitja. Sagðist Matthías vilja fá vitn- eskju um hernig Byggðasjóði yrðu tryggðar þær 1500 milljónir er Eggert Haukdal segðist nú hafa krækt í, hvort þær kæmu úr ríkissjóði eða hvort lán yrði tekið. Undir lok ræðu sinnar sagði Matt- hías Bjarnason, að þetta undar- lega mál kallaði vissulega á ýmsar spurningar, svo sem þá, hvað hinir stjórnarliðarnir hefðu kostað, fyrst Eggert hefði kostað hálfan annan milljarð króna. — Er hér var komið ræðunni, kallaði Garð- ar Sigurðsson, einn þingmanna Alþýðubandalagsins frammí fyrir Matthíasi, og sagði:. „Það er ekki gefið upp.“ Ummæli Eggerts Haukdal hafa mjög verið til umræðu í Alþingi og hafa margir þingmenn lýst furðu sinni og vanþóknun á því að hann skuli hafa „selt sannfæringu sína fyrir 1500 milljónir" eins og einn þingmanna orðaði það. Þá vék Friðrik Sophusson að málinu í ræðu, og sagði ekki undarlegt, þótt vörugjaldslög ríkisstjórnarinnar yrðu nefnd „Hrossakaupslögin" eða „Guðmundarlögin“, og átti hann þá við hlut Guðmundar G. Þórarinssonar, er sagðist vera andvígur lögunum, en tryggði þeim þó framgang með hjásetu við atkvæðagreiðslu. Leiðrétting í FRÉTT um breytingu á lögum um Fiskimálasjóð, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, var sagt að heimild til lánveitinga hækkaði úr 2 milljörðum í 5 milljarða. Þetta er ekki rétt. Hið rétta er að heimildin hækkar úr 2 milljónum í 5 milljónir. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. NYKOMIN SÉRSTÆÐ GJAFAVARA STRIPS SOFAR Strips er ný lína frá ARFLEX. Armstólar, sófasett, raösófar, svefnsófar. Frábær og stílsterk hönnun Cini Boeri. Vönduð áklæði sem auðvelt er að taka af og hreinsa Sestu í STRIPS, - þú stendurekki strax upp aftur. Sérverslun með listræna húsmuni Borgartún29 Simi 20640

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.