Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980 35 — Önnur grein: önnur og geigvænlegri áhrif. Þó Verkamannaflokkurinn sé skilget- ið afkvæmi verkalýðshreyfingar- innar, fer því fjarri að flokkurinn ráði einn öllum verkalýðsfélögun- um. íhaldsmenn hafa verið að sækja í sig veðrið og kommúnistar af öllum stærðum og gerðum ráða ríkjum í ýmsum félögum. Kommúnistarnir hafa sótt það fast að mega láta rödd sína heyrast þegar leiðtogi Verka- mannaflokksins verður kosinn. Kommúnistar ráða t.d. námu- mannafélögunum í Skotlandi og Yorkshire. Miðað við skipulags- reglur Verkamannaflokksins mættu þeir kjósa í leiðtogakosn- ingunum, ef hann verður kosinn að hætti og ósk róttæklinganna. Þetta hefur reitt marga jafnað- armenn til reiði. Shirley Williams fyrrum menntamálaráðherra sagði til dæmis á fundi nýverið: „Eg er engan veginn andvíg til- veru Kommúnistaflokksins. Þeir mega taka þátt í kosningum og enginn ætti að banna þeim það. En fjandinn hafi það, að ég samþykki, að þeir fái að ráða hver verður kosinn leiðtogi Verka- mannaflokksins." Gedþóttareglan Eg gat þess í grein fyrir skömmu í Morgunblaðinu, að vinstri menn hefðu knúið það í gegn fyrir nokkrum árum að svonefndur „Proscribed list“ væri afnuminn. „Proscribed list“, var útbúinn ár hvert. Á honum voru nöfn ýmissa samtaka og félaga sem störfuðu innan Verkamanna- flokksins. Árlega fór flokksráðið yfir þennan lista og athugaði hvort á honum væru nöfn félaga og samtaka sem ekki ættu samleið með Verkamannaflokknum. Þessi listi var viðhafður að sögn kunn- ugra til að koma í veg fyrir, að ýmsir öfgahópar gætu brotist til valda í stofnunum flokksins. Ár- angurinn af þessum lista var meðal annars sá, að árið 1959 voru Trotsky-ista samtök nokkur rekin úr Verkamannaflokknum. Maður að nafni Paul McCor- mick skrifaði fyrir skömmu í hið virta stjórnmálafræðitímarit, British journal of political studies. Þar vék hann að þessum málum og gaf þar m.a. í skyn, að ástæðan fyrir því að „proscribed list“ hafi verið afnuminn, hafi einfaldlega verið sú, að vinstri menn hafi verið komnir til áhrifa í valda- stofnunum flokksins. Þeir hafi talið það tryggara að láta lög og reglur ekki binda sig í báða skó og því afnumið listann. Þetta hefur líka komið á daginn. Flokksráð Verkamannaflokksins getur nú ráðið mestu um hvaða félagasamtök fá aðild að flokkn- um. Vinstri menn eru þar í meirihluta. Og þeir hafa nú byrjað að sýna all ótæpilega hverjir völdin hafa. Fyrir skömmu ráku þeir samtök hægri sinnaðra jafn- aðarmanna, SDA, úr flokknum. Hins vegar sáu þeir ekkert at- hugavert að hið svokallaða Mili- tant Tendency, sem eru samtök róttækra Trotsky-smna, væru meðlimir í Verkamannaflokknum. Það hefur því rækilega sannast, sem McCormick sagði, að vinstri mennirnir í flokksráðinu hafa nú náð þeim tökum á flokknum, að þeir geta beitt völdum sínum nánast að vild. Til eflingar forræðinu Þetta ættu menn að hafa í huga þegar þeir skoða tillögur þær sem liggja fyrir, og ég hef þegar útlistað, um nýjar reglur um kosningu leiðtogans. Þær fela alls ekki í sér „grasrótarlýðræði", svo þetta prentsmiðju-enska orð sé notað. Allar tillögurnar miða að því beint og óbeint, meðvitað eða ómeðvitað, að efla enn forræði verkalýðsbarónanna og forrétt- indahópsins, sem öllu ræður í Verkamannaflokknum, í skjóli lít- illar þátttöku. Að minni hyggju eru aðeins tvær leiðir færar ef menn vilja forðast þetta forræisfyrirkomu- lag. Óbreytt kerfi Hin fyrri er að viðhalda óbreyttu kerfi við kosningu leið- togans. Með því móti verður komið í veg fyrir að verkalýðsforingjarn- ir geti (mis)notað ægivald sitt. Benda má á, að þingmenn eru ekki einangruð klíka, eins og sumir hafa látið skína í. Þvert á móti hafa þingmenn umboð þúsunda kjósenda, sem hafa vottað þeim traust sitt í frjálsum kosningum. Fæstir verkalýðsleiðtoganna geta státað af slíku. Einnig má nefna, að margir þeirra þingmanna, sem vilja viðhalda óbreyttu kosninga- fyrirkomulagi, leggja höfuð- áherslu á að þingflokkarnir varð- veiti sjálfdæmi sitt. Þetta rennir einmitt stoðum undir kenningu mína, um að sögulegar þingræðis- hefðir valdi miklu um þær aðferð- ir, sem viðhafðar eru, um leiðtoga- kosningar í báðum stóru stjórn- málaflokkunum í dag. Afnám forréttinda Síðari leiðin, sem mér finnst geðfelldari, nýtur stuðnings þre- menningaklíkunnar svonefndu, þeirra Dr. Owen, Shirley Williams og Bill Rodgers. Hún hefur líka hlotið góðan hljómgrunn, meðal margra virkra flokksmanna. Sam- kvæmt þessari tillögu myndi leið- togi Verkamannaflokksins vera kosinn í leynilegum kosningum, þar sem allir skráðir meðlimir flokksins, er greitt hefðu félags- gjöld sín, tækju þátt. Hvorki þingmenn, eða verkalýðsfélög hefðu nein sérréttindi. Eins og vænta má hafa róttækl- ingar ýmsir og verkalýðsleiðtogar tekið þessari leið fálega. Þeir hafa fundið henni sitthvað til foráttu, eins og það, að hún sé kostnaðar- söm, eða að eðlilegra sé að einung- is virkir flokksmenn taki þátt, þar sem þeir þekki betur til málefn- anna sem um er kosið. Það hefðu einhvern tíma þótt skrýtin rök, að lýðræðið kostaði of mikla peninga. Enn skrýtnara þætti það því eflaust, ef menn prédikuðu það fyrir næstu þing- kosningar, að þeir einir mættu kjósa sem tækju virkan þátt í flokksstarfi og þekktu því málefn- in vel sem kosið væri um. En þessi viðbrögð sýna betur en flest annað hversu djúpt lýðræðisástin ristir meðal verkalýðsaðalsins og fylg- issveina þeirra. JAZZ I verslunum okkar er að finna fjölbreyttasta úrval af jazzplötum sem boðið hefur verið upp á hérlendis. Air — Air Lore Art Ensemble of Chi- cago — Full Force George Adams / Dannie Richmond John Abercrombie Quartet — Aber- crombie Quartet John Abercrombie Quartet — Arcade Count Basie/ Joe Turner — The Bosses Count Basie — Straight Ahead Ray Bryant — Here's Clifford Brown & Max Roach at Basin Street John Coltrane — Live at the Village Van- guard Again John Coltrane — Kulu Sé Mama Chick Corea and Gary Burton — In concert, Zurich October 28, 1979 Miles Davis and the Modern Jazz Giants Miles Davis — Volume 1 Miles Davis — Volume 2 Duke Ellington — The Afro-Eurasian Eclipse í Fálkanum Duke Ellington — Jazz Violin Session Herb Ellis/ Joe Pass — Two for the road Stan Gets/ Chets Bak- er — Stan meets Chet Stan Gets/ Dizzy Gill- espie/ Sonny Stitt For Musicans Only Dizzy Gillespie/ Roy Eldridge — Diz and Roy Benny Goodman — A Legandery Performer Stephane Grappelli Joe Pass Niels Henn- ing Pedersen — Tivoli Gardens Stephane Grappelli/ Philip Catherine/ Larry Groyell Niels-Henning Pedersen — Young Djargo Jim Hall/ Ron Carter Duo — Alone Together Billie Holiday — Strange Fruit Billie Holiday — Stormy Blues Digital Ragtime/ Music of Scott Joplin — Jos- hua Rifkin Keit Jarrett — The Celestial Hawk Pat Metheny — 80/80 Charles Mingus — Something like a Bird The Modern Jazz Quartet — The Last Concert Itzak Perlman/ André Previn — A Different Kind of Blues Oscar Peterson — The History of an Artist Oscar P. Oscar Peterson Big 6 at the Montreu Jazz Festival 1975 Oscar Petersen/ Niels Pedersen/ Joe Pass — The Trio Louis Armstrong/ Ella Fitzgerald — Porgy & Bess Django Reinhardt — Django Story Spyro Gyra — Carna- val The Tatum/ Hampton/ ' Rich Trio The Trumpet Summit — D. Gillespie/ F. Hubbard/ C. Terry The Greatest Jazz Concert Ever — C. Parker / D. Gillespie / Bud Powell / C. Ming- us / M. Roach FALKINN Suöurlandbraut 8 S. 84640 Laugavegi 24 S. 18670 Austurveri S. 33360 TTT !!§æðTarpstæki .B B B framtíðarinnar Bræóraborgarstíg1-Sími 20080- (Gengiö inn frá Vesturgötu)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.