Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980 „Á styrjaldarárumim höfðu Bretar ráð íslenzkrar utanríkisverzl- unar í hendi sér“ ísland á brezku valdsvæði 1914 — 1918 eftir Sólrúnu B. Jensdóttur sagnfræðing er sjötta bindi i flokki sagnfræði- rita er út koma á vegum Sagn- fræðistofnunar Háskóla íslands og Bókaútgáfu Menningar- sjóðs. í því alþekkta fyrirbæri, sem jólabókaflóðið er, hefur þjóðlegur fróðleikur jafnan ver- ið fyrirícrðarmikill, og þótt deila megi um hvar setja skuli mörkin milli sagnfræði og þjóð- legs fróðleiks má vissulega flokka bók Sólrúnar undir hvort tveggja. — Þessi bók hefur að geyma endurritaða prófritgerð mína frá Lundúnaháskóla. Ég lagði stund á sagnfræði við London School of Economics og lauk síðan prófi í þeirri grein frá Lundúnahá- skóla. Þegar ég hóf þetta nám var nýbúið að opinbera skjöl frá fyrrastríðsárunum og því eðli- legt að athygli og áhugi beindust að þessu tímabili. — En áhuginn á sagnfræði? Hvernig vaknaði hann? — Sagnfræðiáhuga minn get ég rakið til blaðamennsku, sem ég stundaði í fimm ár. Nútíma- saga hefur verið mér hugleikn- ust, og í háskólanum hér heima var Þættir úr stjórnmálasögu íslands 1896—1918 eftir Þor- stein Gíslason meðal þeirra bóka, sem nemendum í sagn- fræði var uppálagt að lesa. Þá rak ég upp stór augu við þá staðhæfingu Þorsteins Gíslason- ar, að í heimsstyrjöldinni fyrri hefðu Bretar haft öll ráð íslend- inga í hendi sér, — ég hafði alltaf staðið í þeirri trú að það hefðu verið Danir, sem hér réðu öllu, þá sem í annan tíma. Þegar ég gat síðan farið að gramsa í þeim brezku skjölum í Lundún- um, sem hlutu að sanna eða afsanna þessa kenningu Þor- steins Gíslasonar, komst ég fljótlega að þeirri niðurstöðu að hún væri rétt. Á styrjaldarárun- um höfðu Bretar öll ráð íslenzkr- ar utanríkisverzlunar í hendi sér, og þótt Danir kynnu því illa þá höfðu þeir ekki bolmagn til að haida Bretum í skefjum að þessu leyti. Aðdragandi þess að Bretar komust í þá aðstöðu að hafa úrslitaáhrif á utanríkisviðskipt- in var sá, að íslendingar höfðu um langan aldur verið þeim háðir um brýnustu nauðsynjar, eins og kol og salt. — I hverju var ráðríki Breta hér á þessu tímabili einkum fólgið? — Þeir beindu útflutningi okkar til Kaupmannahafnar vestur á bóginn, og þá ekki sízt til Bretlands. Tilgangurinn var aðallega sá að girða fyrir að óvinurinn, Þjóðverjar, nyti góðs af afurðasölu okkar; en sú við- skiptaþróun var Islendingum óhagstæð vegna þess hve Þjóð- verjar guldu vel fyrir markaðs- vöru okkar, sem aðallega var fiskur. Bretar fengu vilja sínum framgengt með því að knýja Islendinga til að gera við sig viðskiptasamning, og í því sam- bandi er eftirtektarvert að þar komu Danir ekki við sögu. I samningnum fólst m.a. að Is- lendingar skuldbundu sig til að koma jafnan við í brezkri höfn er siglt var með vörur til útlanda. Þá var Bretum í raun tryggður forkaupsréttur að öllum þeim vörum, sem þeir kærðu sig um á föstu verði, en innflutningur þeirra til Islands skyldi hins vegar fylgja markaðsverði. I staðinn skuldbundu Bretar sig til að tryggja íslendingum kol og salt, kaupa af þeim saltfisk, skreið, síld, lýsi, þorskhrogn, fiskimjöl, kindakjöt, ull og skinn, sem ekki var hægt að selja í þeim löndum sem Bretar féllust á að fengju íslenzkar vörur. Auk þess lofuðu Bretar margskonar fyrirgreiðslu, sem ætla mátti að nauðsynleg væri vegna þeirra vandræða í verzlun, sem styrjöldin orsakaði óhjá- kvæmilega. — í þessum viðskiptasamn- ingi höfðu Bretar vitaskuld tögl og hagldir. Það var einfaldlega gamla sagan um smáþjóð og stórveldi. Én þegar á allt er litið er vafasamt að telja að skilmál- ar Breta hafi verið ósanngjarn- ari en aðstaða þeirra gaf tilefni til. Heimildir sýna að þeir gættu hófsemi svo lengi sem fært var, en þegar til ágreinings kom hikuðu þeir ekki við að neyta aflsmunar, s.s. að hóta að stöðva allan útflutning til íslands, en eins og gefur að skilja hefði kola- og saltþurrð hér á landi jafngilt því að skorið væri á lífæð þjóðarinnar. En þótt íslendingar hlytu þarna að lúta ofureflinu urðu afleiðingarnar ekki svo illar sem ætla mátti, sízt er frá leið. Sjálfstæði þeirra í utanríkis- viðskiptum jókst, og staðan varð smátt og smátt sú, að íslend- Rætt við Sólrúnu B. Jensdóttur sagnfræðing ingar sáu sjálfir um sína við- skiptasamninga og samþykki stjórnarinnar í Kaupmannahöfn varð ekki annað en formsatriði. Það er ekki vafi á því að það hefur eflt sjálfstæðiskennd ís- lendinga að sjá sjálfir um utan- ríkisviðskipti sín á styrjaldarár- unum, án þess að Danir kæmu þar við sögu, og með því að bjóða Islendingum að samningaborði án milligöngu Dana hafa Bretar veitt íslendingum óbeina hvatn- ingu i sjálfstæðismálum. — Höfðu Islendingar ástæðu til að óttazt að Bretar innlimuðu landið í heimsveldi sitt á þessum tíma? — Ekki virðist það vera. Af- staða þeirra til landvinninga hér hélzt óbreytt, og á meðan þeir töldu sig örugga um að óvina- þjóðirnar næðu ekki fótfestu hér sáu þeir sér engan hag í að bæta íslandi við veldi sitt. Hefði hernaður hins vegar borizt ná- lægt landinu er lítill vafi á að þeir hefðu látið til skarar skríða til að koma í veg fyrir að miðveldin kæmu sér upp aðstöðu hér til að klekkja á þeim. — En hvað um hug Islendinga til þessarar raunverulegu herra- þjóðar á styrjaldarárunum? — Ráðríki Breta virðist ekki hafa bakað þeim verulegar óvin- sældir. í því sambandi er óhætt að slá föstu, að ræðismaður brezku stjórnarinnar á Islandi á styrjaldarárunum, Eric Grant Cable, gegndi mikilvægu hlut- verki. Hann átti gott samstarf við íslenzkt stjórnvöld, og meira að segja kom fyrir að hann tók málstað þeirra gegn Bretum. Stjórnin í Lundúnum mat störf hans hér mikils, og kom það ekki sízt fram er tilraun var gerð til að flæma hann úr embætti hér með því að rægja hann við stjórnina í Lundúnum, en þeir atburðir eru raktir í bókinni. — Þú nefndir að bókin hefði að geyma endurritaða prófrit- gerð. Höfðu nýjar upplýsingar e.t.v leitt eitthvað nýtt í ljós á þeim tíma sem leið frá samningu prófritgerðar þar til þú hófst undirbúning íslenzku útgáfunn- ar? — Nei. Ritgerðin er skrifuð á ensku, eins og gefur að skilja, en þegar ég settist niður og ætlaði að þýða hana á íslenzku komst ég fljótlega að raun um það að svo einfalt var málið ekki. Út- koman varð lítið annað en röð af íslenzkum orðum, orðaröð, sem hafði ekki að geyma íslenzka hugsun, heldur enska. Ég gat ekki sætt mig við slík vinnu- brögð, svo ég brá á það ráð að endursemja verkið, sem var til- tölulega lítil fyrirhöfn þar sem fyrirmyndin lá fyrir framan mig. — Hvert verður næsta rann- sóknarverkefni? — Það er bezt að segja sem minnst um það á þessu stigi. í bili er kennsla á dagskrá. Ég kenni nútímasögu í Hamrahlíð og verð auk þess með námskeið í þeirri grein í háskólanum eftir áramót, en það er ekki ólíklegt að framtíðarverkefni verði í tengslum við það sem áður er komið. Texti: Áslaug Ragnars Mynd: RAX Vilhjdlmur I Wijálmsson Öll fallegustu lög Vilhjálms Vilhjálmssonar saman á einni plötu. Dreifing mmm HLJOMPLOTUUTG/1MN hf. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.