Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980 37 Frá þróunarhjálp Norðmanna í Súdan 2. grein: Tveir ungir þorpsbúar horfa yfir Lafon. Arnlaug Kjöllesdal og Sigurd Björtuft rœða við nokkra ur hópi Eldri systkini gæta hinna yngri og bera þau þá yfirleitt yngri kynslóðarinnar en hjúkrunarfólkinu er hvar- 4 bakinu. vetna vel tekið. Mikill bamadauði og margs konar sjúkdómar ríkjandi FYRSTI viðkomustaður ís- lendinganna, sem dvöldu um vikutíma i Suður Súdan til að kynna sér starfsemi hjálp- arstofnunar norsku kirkj- unnar, KN, var þorpið Juba, sem stendur á austurbakka Nílar. bar er þó ekki aðal- bækistöð Norðmannanna, því hún er við þorpið Torit og heitir Hilieu. Nauðsynlegt reyndist þó að hafa viðkomu í Juba, því þar eru nauðsyn- leg yfirvöld, til að taka á móti ferðalöngum og skrá þá inn i landið. Eftir að forms- atriðum þar hafði verið full- nægt gátum við haidið ferð- inni áfram. Þegar við stigum út úr vélinni í Juba eftir flugið frá Nairobi reyndist hitinn eins og í bakarofni og fötin límdust við skrokkinn. Ég stóð fyrir aftan hreyfilinn þegar ég kom út úr vélinni og taldi að þessi mikli hiti hlyti að koma frá heitum mótorunum. Taldi ég mig hafa gert mikla uppgötvun og hlakkaði í mér að finna svalt loftið leika um mig þegar ég færði mig, en því var ekki að heilsa. Hitinn var bara óvart yfir 30 stig. Þegar við höfðum kynnst nokk- uð því starfi KN, sem fram fer á Hilieu og lýst var í fyrri grein, lá næst fyrir að ferðast um næstu sveitir. Uti á landsbyggðinni eru reknir eins konar búgarðar þar sem fara fram hvers kyns tilraun- ir í ræktun og vinnuaðferðum. Því starfi stjórna 7 menn, menntaðir í búvísindum. Einn þeirra er Gud- brand Söberg, roskinn bóndi, kraftalegur og viðkunnanlegur náungi: Bóndi í 30 ár — Ég hef stundað búskap heima í Noregi í 30 ár, en svo þegar afkomendurnir tóku við búrekstrinum þá sá ég að það var ekkert pláss fyrir gamla manninn og með einhverjum hætti skaut þessari hugmynd upp, að taka að sér starf hér næstum því beint undir sólinni, sagði Guðbrandur. — Ég er búinn að vera hér í ár og kann bara vel við starfið. Hér er auðvitað allt mjög frábrugðið norskum landbúnaði, en ákveðin grundvallaratriði eru þó hin sömu. Hér nota menn annars konar verkfæri og fábreytt, korntegund- ir eru aðrar og allar vinnuaðferðir og venjur. Hlutverk okkar er að aðstoða fólkið til að auka korn- framleiðsluna. Það gerum við t.d. með því að finna út hvaða korn- tegund gefur mesta uppskeru, hvaða aðferðum bezt er að beita og við reynum smám saman að kenna fólkinu að nota tæki, sem létta því störfin og auka afköst. Hins vegar verðum við að gæta þess, að fara ekki of hratt í sakirnar. Við megum ekki koma eins og sá sem valdið hefur og alla vizku, við kynnum aðferðir okkar og hugmyndir fyrir íbúunum og það eru þeir sem i raun ráða Börnin voru misjafnlega áræðin þegar taka átti af þeim mynd. sum stiiltu sér upp, en önnur voru varkárari. BV4 Regntimabilið var á enda, en einstaka vegur samt erfiður yfirferðar á köflum og hér er það Gudbrand Söberg sem stjórnar liði sínu við að reyna að losa farartækið. búnaðarverkefninu sé aö byrja að koma í ljós. Hins vegar held ég að okkar verði þörf hér í nokkra áratugi til viðbótar ef við eigum að geta fylgt starfinu almennilega eftir, enda er gert ráð fyrir að Hjálparstofnunin verði hér í all- mörg ár enn. Lafon heitir þorp um 100 km norður frá bækistöðinni, en þang- að er um þriggja tíma akstur. Gudbrand Söberg ók okkur þang- að og með okkur var einn sam- starfsmanna hans Sigurd Björ- tuft, en hann hefur dvalist í Súdan í nærri tvö ár. Er hann heima í Noregi nú um jólaleytið, en hugðist starfa eitt ár enn í Afríkulandinu. Vegirnir eru< moldarvegir, sæmilegir í þurrkatíma, en verri ferðinni. Smám saman finnum við út í sameiningu hvað hæfir bezt og þannig vonumst við til að geta gert fólkið sjálfu sér nægt hvað varðar matvælaframleiðslu, skepnuhirðingu og hvaðeina er lýtur að bústörfunum. Ákveðnar hefðir og venjur eru ríkjandi og þeim má ekki kasta fyrir róða í einu vetfangi, en hins vegar verður breyting til hins betra stig af stigi. Hversu langan tíma tekur þessi breyting? Aratugastarf — Því er næstum ógerlegt að svara. KN hefur starfað hér að skipulagðri þróunarhjálp í 6 ár og segja má að árangurinn í land- Ilátiðin undirbúin og hnýttir kyndiar fyrir kvöldið. viðureignar í rigningunum, Norð- mennirnir hafa því flestir hlotið nokkra þjálfun í akstri á þessum vegum, en okkur íslendingunum komu vegirnir næsta kunnuglega fyrir sjónir, líkast fjallvegum að vorlagi. Lafon hefur byggst kring- um stakt fjall, sem rís upp af sléttunni og eru íbúar um 25 þúsund. Súdan er talsvert fjöllótt syðst, en norður af er nánast sléttlendi. Þegar við komum til Lafon, frumstæðs þorps inni í miðri Afríku, voru aðeins liðnir tveir sólarhringar frá því við spókuðum okkur í stórborgum eins og Osló og Amsterdam á leiðinni suður- eftir. Var það nokkuð undarleg tilfinning að vera hrifinn á svo skömmum tíma milli ólíkra menningarsvæða, en hins vegar er alveg umdeilanlegt hvort er þægi- legra. Er betra líf í stórborg, stútfullri af streitu eða litlu þorpi í Afríku þar sem enginn hefur áhuga á klukkunni og allir hafa nægan tíma? Því verður ekki svarað hér, en víst er að þarna í Lafon höfðu menn nægan tíma til að staldra við og taka á móti aðkomumönnum. Gagnkvæmur áhugi Fylgdarmenn okkar vöktu at- hygli, en þeir eru alltaf kærkomn- ir gestir og margir þekkja þá, en við, þessir snjóvhítu, vorum ekki síður áhugaverðir í augum inn- fæddra. Eg gekk nokkuð frá hinum og hóf að taka myndir og virtist það frekar saklaust í aug- um fólksins. Félögum mínum var boðið í ráöhús þorpsins, en þar sátu karlarnir á skrafi. Var þeim boðinn mjöður nokkur sem þeir sögðust hafa súpt á, en engum sögum fór um hvað mikið fór rétta leið niður. Greinilega stóð mikið til í þorpinu og var okkur tjáð að fyrirhuguð væri margra daga hátíð mikil í tengslum við borgarstjóraskipti, eða svipuðu yfirvaldi. Þriðji fylgdarmaður okkar í Lafon var hjúkrunarkonan Arn- laug Kjöllesdal. Hlutverk hennar er að sinna bólusetningum og annarri heilsuvernd og fræðslu. Hefur hún náið samstarf við heilbrigðisyfirvöld. Hún sagði að margs kyns sjúkdómar þjáðu fólkið, ekki sízt börnin og er barnadauði talinn milli 50 og 60%. Augnsjúkdómar og lungna- sjúkdómar eru tíðir og slæmt drykkjarvatn og óhreinlæti orsak- ar ýmsa kvilla. Hlutverk Arnlaug- ar er að fræða fólk, bólusetja og segir hún að hægt gangi' að fá fólkið til að notfæra sér brunna, sem boraðir hafi verið og dæla upp vatni af miklu dýpi, en þar er að finna mun betra vatn en í gömlu brunnunum. jt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.